Morgunblaðið - 31.12.1935, Side 1
Hryllf legur stórbruni
í Keflavik.
m.
Fjögra barna og tveggja
aldraðra kvenna saknað.
20 börn og fullorðnir
særast hættulega.
180 börn og 20 fullorðnir æða
að læstum úlgöngndyrum.
Samkomuhús U. M. F. Keflavlkur
brann tll kaldra kola.
'C'AMKOMUHOS U. M. F. Keflavíkur brann
^ til kaldra kola í gærkvöldi
180 börn á aldrinum 6—14 ára og 20 full-
orðnir voru á jólatrjesskemtun í samkomuhús-
inu þegar eldurinn kviknaði.
Sex menn eru taldir hafa brunnið inni og 20
eru hættulega særðir.
Þegar þessi hryllilegu tíðindi bárust til
Reykjavíkur sendi Morgunblaðið frjettaritara
til Keflavíkur.
Völdust til ferðarinnar þeir Árni Óla- og ívar
Guðmundsson.
Skýrsla þeirra, símuð blaðinu frá Keflavík
kl. 3 í nótt, birtist hjer á eftir:
j Út af leiksviðinu voru út-
! göngudyr. Einnig var hægt að
i komast af leiksviðinu niður í
'kjallara, undir húsinu og voru
!þar aðrar útgöngudyr.
U. M. F. Keflavíkur helt tvær
jólatrjesskemtanir í samkomu-
húsi kauptúnsins í gær.
Fyrri skemtunin hófst kl. 3
síðdegis og voru þá börn á
aldrinum 2—5 ára; einnig
nokkur gamalmenni.
Síðari skemtunin hófst kl. 7
og komu þá börn á aldrinum
6—14 ára. Gamalmenni voru
einnig á þessari skemtun.
Samkomuhúsið.
Samkomuhús U. M. F. Kefla-
víkur var gamalt timburhús og
herbergjaskipun þannig, að í
austurenda var sýningar- eða
leiksviðspallur, salur stór í
miðju húsinu, á honum 4 glugg
ar á hvorri hlið. í hinum end-
anum voru tvö fataherbergi,
sitt til hvorrar handar við for-
stofu inn úr miðjum gafli. Inn
úr fataherbergjunum voru 2
dyr, inn í salinn.
Um 200 manns í salnum.
Þegar eldsins varð vart var
um 200 manns í salnum, þar af
180 börn á aldrinum frá 6—14
ára, hitt gamalt fólk, aðallega
konur og svo 4 fullorðnir karl-
! menn.
j Jólatrjeð stóð lítið eitt fyr-
ir innan miðjan salinn. Þar sem
jólatrjeð þótti ekki nógu hátt,
var kassi settur undir það. Var
silkipappír breiddur yfir kass-
ann, undir trjeð.
Kviknar í jólatrjenu.
Bergsteinn Sigurðsson var
umsjónarmaður með jólatrjenu.
Kl. rúmlega 9 '/2 var hann
staddur uppi á leiksviðinu og
voru þar einnig 37 böm að
gæða sjer á ýmsu góðgæti. (
Heyrði þá Bergsteinn að kall-
að var framan úr salnum, að
eldneisti eða kerti hefði fallið
af trjenu og kveikt í silkipapp-
írnum undir jólatrjenu. Hann
j leit fram í salinn og sjer þá
■ eldblossann.
j Hann þrífur tjald á leik-
sviðinu og ætlar. að reyna að slá
yfir jólatrjeð. i
En það skifti engum togum,
vegna þess hve trjeð var orðið
þurt, eldurinn flaug um allar
greinar þess í einu vetfangi og
upp í loftið og þaðan út í vegg-
ina.
Loft og veggir voru striga-
lagðir og olíubornir; flaug því
eldurinn um loft og veggi á
svipstundu, svo að fólk var alt
innibyrgt milli eldblossanna.
Til dyranna í dauðans
ofboði.
Ruddist fólkið nú í dauðans
ofboði til dyranna.
En þá kom í ljós, að aðrar
útgöngudyrnar, í fataherberg-
ið, voru læstar, það voru aðal-
útgöngudymar, og hurðin fell
inn í salinn.
Klemdist fólkið þar saman í
horninu og þessvegna var ekki
hægt að opna hurðina, en tókst
að lokum að brjóta hana utan
frá.
Um hinar dyraar, sem opn-
ar voru, komust margir út .
Út um glugga.
Þegar Bergsteinn umsjónar-
maður sá hvernig komið var í
salnum, rak hann börnin út af
leiksviðinu, ýmist út um dyrn-
ar þar eða kjallaradyrnar.
Komust þau öll, 37 talsins, ó-
meidd út.
Síðan rauk hann til og braut
glugga og þar bjargaðist margt
út með aðstoð hans. Stóð hann
inni þar til yfir lauk og hjálp-
aði til við björgunina og brend-
ist furðu lítið.
En margir, sem komu að,
hlutu meiri eða minni bruna-
sár eða skárust á glerjum í
gluggum, sem þeir bi'utu.
Slökkviliðið á vettvang.
Slökkvilið kauptúnsins kom
á vettvang, strax eftir að elds-
ins varð vart. Leiðslu varð að
setja niður í sjó — um 350
metra langan veg — með
tveggja þumlunya slöngu.
En þá var eldurinn orðinn
svo magnáður, að ekkert viðlit
var að bjai'ga húsinu. En það
tókst að bjai'ga næstu húsum;
voru aðallega tvö íbúðarhús í
hættu.
Samkomuhúsið var gjöreyði-
Iagt eftir hálfa klukkustund.
Sex manns — f jögurra
barna og tveggja aldr-
aðra kvenna — saknað.
Talið að hafi brunnið
inni.
Það tók að sjálfsögðu all-
langan tíma að athuga, hvað
fram var komið af fólki út úr
brunanum.
Eftir að nákvæm lei.t hafði
farið fram um alt kauptúnið,
kom í ljós, að saknað var 6
manns — f jögurra barna á
aldrinum 7—14 ára og tveggja
aldraðra kvenna.
Talið er líklegt, að þetta fólk
hafi brunnið inni.
Tuttugu manns særðist
mjog mikio.
Vitað er um 20 manns, sem
hlaut alvarleg brunasár eða
skarst á glerbrotum. Þar af
voru 17 börn á aldrinum 6—
14 ára og þrjár eldri konur.
Talið er að 10 af þessu fólki
hafi særst mjög hættulega.
Auk þess særðist margt meira'
og minna.
Meðal þeirra, sem særðust
alvarlega voru: Þóra Eyjólfs-
dóttii', kona um sjötugt, Anna
Þórarinsdóttir, unglingsstúlka,
systurdóttir konu Sverris Júlí-
ussonar stöðvárstjóra, tveir
drengir og var annar Ingvar
Guðjónsson, en nafn hins veit
■blaðið ekki.
Hinir særðu fluttir til
Reykjavíkur og Hafnar-
j fjarðar.
í Tveir læknar, þeir Ólafur
Helgason og Þórður Þórðarson
fóru hjeðan til Keflavíkur strax
og frjettist um brunann, til
þess að hjálpa hjeraðslæknin-
um, Helga Guðmundssyni til
að binda um sár hinna sæi'ðu.
Einnig kom Sigvaldi læknir
Kaldalóns sunnan úr Grindavík.
Voru bílar strax sendir til
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
með þá sem mest voru særðir.
Fyrst fór bíll með 3 börn, þ. á
m.. Ingvar Guðjónsson og voru
þau flutt á Landakotsspítala.
Sjúkrabíll fór þvínæst með
aldraða konu og tvo drengi,
sem voru hættulega særð. Alls
voru flutt 12 manns á sjúkra-
hús í nótt.
Síra Eiríkur á Útskálum
mikið særður.
Síra Eiríkur Brynjólfsson á
Útskálum fekk mörg og mikil
i brunasár og skarst auk þess
í læri.
I Hann hafði kastað sjer út um
glugga, er hann var að bjarga
gamalii konu út úr brunnum.
Presturinn liggur hjá hjer-
Framh. á 4. síðu.