Morgunblaðið - 31.12.1935, Page 2
2
'MT) "RHG U 0X1’ ÐI ©
Þriðjudaginn 31. des. 1935.
?BiWi»WiCT3^IWBCT>^
GLEÐILEGT NÝÁR!
G. Helgason <& Melsted li.f.
m&m
GLEÐILEGT NÝÁR!
Prentmyndagerð in,
Ól. J. Hvanndal.
GLEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
0. Ellingsen.
ir===nr=np^r==nr==ir=ir=it=ii
GLEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
Reiðhjólaverhstœðið „Örninn‘ ‘.
E3
I
ir=^r=nf==^n==nn=^n==nr==ir==ii
]□□□□□□□□!
GLEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
Sápubúðin,
Laugaveg 36.
11
G
□
GLEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
IÐNÓ
GLEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu.
Raftœkjaverslunin Jón Sigurðsson.
íslensk fornrit.
* v.XÉÉ? . \ >. *" %■.
Eftir Áraa Pálsson, prófessor.
Eyrbyggja saga — Grænlendinga
sögnr. - Einar O. Sveinsson og
Matthías Þórðarson gáfu út. —
Reykjavík, 1935.
Útgáfur Pornritafjelagsins eru
svo úr garði gerðar, að ókleift er
að gera nokkra fullnægjancli
grein fyrír þeim í stuttri rit-
fregn, sem ætlöð eY dagblaði. í
fórmálunum er leitast við að lýsa
einkennum fornsagnanna, sögu-
gildi þeirra, afstöðu þeirra til ann-
ara fornrita, uppruna þeirra o. s.
fv. En í neðanmálsskýringum
hlýtur útgefandinn að koma við
á flestum sviðum íslenskrar mál-
fræði og sagnfræði. Þess er því
enginn kostur að leggja clóm á
verk hans, sem nokkur skil sjeu
að, nema í löngum ritgerð-
um, sem ekki verða birtar
í blöðum. Því verður og í
þessari ritfregn aðeins minst á
fyrra helming þessa bindis, Eyr-
byggja sögu, sem Einar 01. Sveins-
son hefir gefið út, og verður þó
ekki tóm til annars en að benda á
nokkur hÖfuðatriði, sem máli
skifta. Um Grænlendinga sögur,
sem géyma minningar um ein-
hverja hina stórmerkustu við-
burði sögualdar, verður ekki rit-
að hjer að þessu sinni. Efni þeirra
er svo einstakt og umfangsmikið
og skoðanir manna á þeim svo
sundnrleitar, að hvorki verður
þeim nje starfi útgéfanda lýst í
stuttu máli.
Eyrbyggja er að sumu leyti
einstæð meðal íslenskra fornsagna.
Sagnfræðileg athygli höfundarins
er óvenjulega mikil ,svo að helst
verður jafnað til þeirra konunga-
sagna, sem béstar eru. Tímatal
vandar hann svo sem fremst hann
iná og hendir mið af slíkum
stórviðburðum sem fundi Græn-
lands, kristnitökúrini hjer á landi
og falli Ólafs ’konungs hins helga.
Ættvísi lians er og traust og ör-
ugg, og þar sem Eyrbyggju grein-
ir á við aðrar heimildir um ætt-
færslur, er venjulega eins líklegt
að hún |ari rjett með. Höf. Eyr-
byggju er Og- óvenjulega ljóst, að
öldin var önnur, er sögurnar gerð-
ust heldur en þegar þær voru rit-
•aðar (,,Egill liafði skúfaða skó-
þvengi, sem þá var siður“. „Þat
var þá kaupmanna siðr at hafa
eigi matsveina“ o. s. frv.). Hann
veit og deili á, að löggjöf og
rjettarfar hefir ekki verið með
öllu hið sama á söguöld sem á
ritöld, og hefir Konrad Maurer
bent á þetta fyrir löngu. Iíann
efur nánar gætur að margvís-
legri forneskju, að heiðinni trú
og hjátrú, að hofurii og blótum.
Loks lætur hann þess vandlega
getið, ef nokkrar sýnilegar minj-
ar eru til, sem staðfesti frásögn
hans.
Stíll Eyrbyggju er hreinn og
heiðríkur, harð-íslenskur, svo að
erlendra áhrifa gætir þar alls eigi:
Að því leyti er mikill greinar-
munur á Eyrbyggju og Laxdælu,
þessum tveim höfuðsögum Breið-
firðinga, og er sem þar sjeu alda-
mót á milli. Mistur og móða er-
lendra riddarasagna hefir lagst
í loft víða i Laxdælu og spilt
skygninu, en í Eyrbyggju „er
veðr kyrrt ok þurrt, svá at hvérgi
sjer ský á himni“. Þar kennir
aldrei sundurgerðar, — „listin er
innlend, óvitandi og ásköpuð“ (E.
Ól. Sv.). Höf. er hvort.tveggja í
senn, fræðimaður og listamaður,
en þó er öll frásögn hans af sama
toga spunnin. Hann skemtir altaf,
hvort sem hann segir frá viðburð-
um, fornum átrúnaði eða fornum
venjum.
Um lieimildir sögunnar, upp-
runa hennar gg starfsaðferðir
liöfundarins vitum vjeí meira, en
títt er um aðrar íslendingasögur.
Ilefir Einar Ól. Sveinsson gert
skilmerkilega grein fyrir því efni
í formálatium. Er þéss þá fyrst að
geta, að aftan við eitt handrit
sögunnar finst stutt æviágrip
Snorra goða. Þar er í mjög fáum
orðum greint frá nokkrum höfuð-
atriðum úr ævisögu hans, börn
hans talin og sagt frá móðerni
þeirra. Hefir E. Ól. Sv. fyrstur
manna leitt lílcur að því, að rit-
smíð þessi sje runnin frá Ara
fróða, og telur hann hana vera
eina af frumheimildum Eyr-
byggju-höfundarins. Þar að auki
var til samtíma kvæði um Snorra,
líklega orkt að honum lifandi. —
Hrafnsmál, — sém höf. hefir stuðst
mjög við. Enn voru aðrar fornar
vísur á sveimi, — eftir Björn
Breiðvíkingakappa og Þórarinn
Máhlíðing — og hefir höfundur-
inn haft mikil not af þeim. Hann
virðist og hafa farið eftir gömlu
riti um landnám, sém eldra hefir
verið en nokkur sú Landnámu-
gerð, sem nú þekkist. Loks má
telja víst, að hann liefir þekt
Heiðarvíga sögu, en útgefandinn
telur líklegt, að hann hafi auk
þess þekt Gísla sögu Súrssonar og
einhverja sögu um skifti Snorra
við höfðingja í Dölum, líklega
Þorgils sögu Höllusonar, sem
vitnað er til í Laxdælu. Hinsvegar
trúir útgefandinn ekki á tilvitn
un þá í Laxdælu, sem finst í 55.
kapítula Eyrbyggju og hyggur
hann, að þeirri tilvitnun hafi verið
bætt við síðar. Rökstyður hann þá
skoðun sína á ýmsan veg, en þó
tekur sú rökstuðning ekki af
skarið, og tel jeg fult svo líklegt,
að tilvitnunin hafi verið í Eyr
byggju frá upphafi, enda finst
hún í öllum þeim höfuðhandritum
sem heil eru á þéssum kafla sög-
unnar. I því sambandi má benda
á, að það er eitf af höfuðeinkenn
um Eyrbyggju, að hún tæpir að-
eins á eða hleypur með öllu yfir
þá viðburði í a;vi Snorra, sem
aðrar sögur geina frá. Hún
'minnist t. d. aðeins með örfáum
orðum á þá sögulegu atburði, sem
Café Svanur.
t GLEÐILEGT NÝÁR!
Klein.
GLEÐILEGS NÝÁRS
óskar öllum
Blóm <& Avextir.
GLEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin
á liðna árinu.
vMt44*MtMíMt44t44t4*t4*t44tMt,Mt'Mt44t'MtMt44t(Mt,MtMt'Mt'Míi
| GLEÐILEGT NÝÁR! |
}- Þökk fyrir viðskiftin
á liðna árinu.
Sjóklæ'ðagerð íslands h.f.
4
A
%
GLEÐILEGT NÝÁR!
Verksmiðjan Venus h.f.
n IIIW ... IIIHll MIIIIIIIIMIIH—
GLEÐILEGS NÝÁRS
óskar öllum viðskifta-
vinum sínum.
Þvottahúsið Drífa.
1 iiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiitiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiJ
®0®<0#<0©S@®@<C>®C>®'
GLEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin
\
á liðna árinu.
5
AÐALSTÖÐIN
|O«O®O@ii0iO«OI
GLEÐILEGT NÝÁR!
Þökk fyrir viðskiftin
á liðna árinu.
Ilúsgagnavinnustofa
Hjálmars Þorsteinssonar.