Morgunblaðið - 19.06.1938, Blaðsíða 7
Sunnudagur 19. júní 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
GARÐUR
(JÓNAS LÁRUSSON)
STJMARHÓTEL.
Með tilliti til þeirra þæginda, sem
Garður býður yður, verður Garðu.r
ódýra8ta gistihús bæjarins. -
Halldór Olafsson
löqqiliur rafy’irlr^ameistari
Þingholtsstræti 3
Simi 4775
Viðgerðarverkstæði
fyrir
rafmagnsvélar og rafmagnstæki
í==r-. . Raflagnir allskonar —=
nnmniuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiUMiiiii
Framköllun.
Kopiering.
Stækkanir.
WNUuuuiHuiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiimiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiit
MiUFUMiÍfiSSUIFSTWí
Pjetnr Mttgnúiwoii
Stmr B. Gnfimtmdston
GnBlaugar Þorláksson
Bínmr 8602, 3202, 2002.
Anstnrstræfl 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—6.
Hvort heldur er um „Ka-
rikatur“-teikningar Stróbls
að ræða eða aðrar myndir,
geta allir verið sammála um
að innrömmunin er best og
ódýrust hjá
GUÐM. ÁSBJÖRNSSYNI,
Laugaveg 1.
Qagbófc.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
N-kaldi. Ljettir til.
Helgidagslæknir í dag er Ey-
þór Gunnarsson, Laugaveg 98.
Sími 2111. Næturlæknir er í nótt
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12. Sími 2234.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Sjötug: Kristjana
Bessadóttir
Best að ausdýsa í
Morgunblaðinu.
Sr. Pjetur Oddsson frá Bolung-
arvík, nú sóknarprestur að Djúpa
vogi, messar í dómkirkjunni í dag
kl. 11 f. li.
Dánarfregn. I gærmorgun and-
aðist á Landakotsspítala Aðal-
björn Stefánsson prentari. Hann
var hálfsjötugur að aldri. Aðal-
björn, sem var Eyfirðingur að
ætt og lærði prentiðn á Akureyri,;
var einn af stofnendum Hins ís-
lenska prentarafjelags. Pyrst eft-
ir að hann kom hingað til bæjar-
ins, þá á þrítugsaldri, vann hann
í Fjelagsprentsmiðjunni, en er
Gutenherg var stofnsett, fór hann
þangað og vann þar æ síðan.
Hjónaefni. 17. jiiní opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Rósa Þórð-
ardóttir, Hallveigarstíg 10 og Jón-
.as Bjarnason sjómaður, Vestur-
götu 68.
Skíða og skautafjelag Hafnar-
fjarðar biður þess getið, að af
sjerstökum ástæðum sje það fólk,
sem ætlar að vera með í snmar-
leyfisferðinni 2.—8. júlí, beðið
að tilkynna það í síðasta lagi fyr-
ir næstkomandi miðvikudagskvöld
í síma 9230.
Sundhöllin verður ekki opin
nema til kl. 2 í dag vegna Sund-
meistaramótsins.
Hjónaband. Langardaginn 11. þ.
m. voru gefin saman ungfrú Sig-
ríður Hansdóttir, Hafnarfirði og
Astráður Proppé húsgagnasmiður.
Heimili þeirra er á Karlagötu 13.
Útvarpið:
9.45 Morguntónleikar: a) Píanó-
konsert í G-dúr, nr. 7, og h)
Symfónía í C-dúr, nr. 34, eftir
Mozart (plötur).
11.00 Messa í Dómkirkjunni (sjera
Pjetur Oddsson).
15.30 Miðdegistónleikar frá Hótel
Borg.
19.50 Frjettir.
20.15. Sumarþættir (V. Þ. G.).
20.50 Útvarp frá hátíðasamsæti
Kvenrjettindafjelags Islands í
Oddfellow-húsinu: ÁvÖrp og
ræður; hljóðfæraleikur.
Amorgun (20. þ. m.) er sjö-
tug frú Kristjana Bessa-
dóttir, kona Sigurjóns Benedikts-
sonar járnsmiðs, Aðalgötu 19,
Siglufirði. Foreldrar hennar voru
Guðrún Einarsdóttir og Bessi
Þorleifsson skipstjóri, á fyrstn hú-
skaparárum búsett á Siglufirði.
Frú Kristjana dvaldi á Siglu-
firði til 12 ára aldurs, að hún
flutti með foreldrum sínum, fyrst
að Okrum í Fljótum og síðan að
Sölvabakka í Húnavatnssýslu, og
var hún þar hjá foreldrum sínum
þar til hún giftist 16. des. 1892
og flutti þá til Blönduóss með
manni sínum, þar sem þau bjuggu
til 1907, að þau fluttu til Siglu-
fjarðar, þar sem þau hafa búið
síðan. Eignuðust þau hjón sex
börn og eru fimm á lífi og öll
gift, nema eitt.
Frn Kristjana er enn, þrátt fyr-
ir langvarandi heilsnleysi og há-
an aldur, ern og nng í anda. —
Manni sínum og börnum hefir
hún í blíðu og siríðu reynst hinn
tryggasti lífsföranautnr. S.
íþróttamótið fer
fram í dag
T þróttamótið, sem fara átti fram
17. júní, en fórst fyrir vegna
veðnrs, fer fram í dag og hefjast
hátíðahöldin með því, að Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikur fyrir
framan Mentaskólann kl. 1.15 e.
h. Veðurspá er góð.
Eins og skýrt hefir verið frá
hjer í blaðinu áður, fara fram
sýningar í sambandi við íþrótta-
mótið og er þá fyrst að teljh fim-
leikasýningu úrvalsflokks kvenna,
sem nýkominn er frá Noregi. Þá
er pokahlaup kvenna og margt
fleira.
Um Hafnarstræti er nú ekki
leyfilegt að aka bifreiðum nema
í eina átt, þ. e. frá vestri til aust-
urs. Hafa verið sett upp skilti,
sem gefa þetta til kynna.
Hjúskapur. f dag verða gefin
saman í hjónahand ungfrú Ferd-
ína Bachmann, Ránargötu 11 og
Ma "mis Gíslason, Brávallagötu 8.
Heimili ungu hjónanna verður á
Brávailagotu 8.
Hjónaband. 'í gær voru gefin
samán í hjónaband af sr. Bjarna
Jónssyni GuðbjÖrg Eiharsdóttir,
Hverfisgötu 43 og Hjörtur Haf-
liðason, Sellandsstíg 13. Heimili
þeirra er á Sellandsstíg 13.
REYKJAVÍKTJRBRJEF.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
samfelt yfirlit um alt sem gerist í
stjórnmálum íslands, til þess að
verkfæri í höndum hinna „háska-
miðstjórnin geti ákveðið af þekk-
ingu á íslenskum málum, hvernig
jarðvegurinn verði hjer best und-
irbúinn fyrir Moskvavaldið. En
Kommúnistaflokkur íslands hlýðir
öllum fyrirskipunum þaðan aust-
anað.
Og hverjar hafa fyrirskipanirn-
ar veriðl
Fyrst og fremst þær, að komm-
únistum í öllum kjördæmum lands-
ins hefir verið skipað að vinna að
því að konia Framsóknarmönnum
á þing, þar sem þeir hafa getað.
Og þetta hefir tekist.
Margir þingmenn Framsóknar-
flokksins eiga þingsæti sitt komm-
únistum að þakka. Þannig er
Framsóknarflokkurinn beinlínis
legu áróðursmanna“, og forstjóri
Áfengisverslunarinnar, maðurinn
sem mest er ánægður með sig og
flokk sinn, er sjálfur, hinn íslenski
litli fingnr einræðisstefnunnar, er
seilist hjer til valda.
Það væri mikils virði fyrir þá
Tímamenn ef þeir gætu kent Guð-
brandi Magnússyni að hætta að
láta til sín heyra.
LANDSMÓT STÚDENTA.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
vig Guðmundsson. Tillögur
höfðu komið fram um stofnun
landssambands stúdenta, sjer-
staks stúdentablaðs og um lands
mót stúdenta. Nefndin sem f jall
aði um þessi mál lagði á móti
því, að blað yrði stofnað eða
landssamband, en vildi skipa
sjerstaka nefnd til þess að und-
irbúa landsmót innan 5 ára.
Sig. Eggérz þótti kenna deyfð
ar í þessum tillögum og í sama
streng tóku Sig. ÓJason form.
Stúdentafjel. Reykjavíkur, Ei-
ríkur Sigurbergsson, Bjarni
Benediktsson próf. o. fl.
Bjarni Benediktsson vaktí
máls á því, að óheppilegt væri
að aðalhátíðahöld stúdenta
færu fram um hávetur og vildi
flytja daginn fram á vorið, eða
sumarið.
Að lokum voru eftirfarandi
tillögur samþyktar báðar frá
Sig. Ólasyni:
Landsmót 1940.
„Landsmótið ályktar, að tek-
inn verði upp árlegur íslenskur
stúdentadagur, auk 1. des. og
felur Stúdentafjelagi Reykja-
víkur framkvæmdir í því máli“.
„Landsmótið felur Stúdenta-
fjelagi Reykjavíkur að gang
ast fyrir næsta landsmóti ís
lenskra stúdenta, er haldið
verði eigi síðar en árið 1930“.
Maðurinn minn, rrr'
Aðalbjörn Stefánsson prentari,
andaðist á Landakotsspítala langardaginn 18. þ. mán.
Þorbjörg Grímsdóttár.
Hjartanlega þökkum við anðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
Ingibjargar Gunnarsdóttur.
Ebenezer Helgason, dætur og tengdasynir.
Okkar kæra vina (Gúlla)
Guðrún M. Jónsdóttir
andaðist á Landakotsspítala 17. júní.
F. h. móður hennar og systkina og okkar á Bræðraborgarstíg 1
Sveinn Hjartarson.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum fjær og nær,
að hjartkær sonur minn og bróðir okkar,
Einar Nielsen
bankastjóri, andaðist að heimili sínn, Craik. Sask., Canada 16.
þessa mánaðar.
Reykjavík, 78. júní 1938.
Þórunn Nielsen, Öldugötu 52.
Fridtiof Nielsen. Hjörtur Nielsen.
Jarðarför konunnar minnar
Guðrúnar Eymundsdóttur
fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 21- þ- m. og hefst með
húskveðjn á heimili okkar, Laufásveg 47, kl. 2.30 e. h.
Halldór Signrðsson.
Jarðarför
Gísla Bjarnasonar
lögfræðings fer fram frá dómkirkjunni þriðjudaginn 21. þ. m.
klukkan 1 eftir hádegi.
Systkinin.