Morgunblaðið - 21.06.1938, Blaðsíða 5
-I»riðjudagur 21. júní 1938,
MOBGUNBLAÐit'
---------- JftorgmtHaftid---------------------------
Ötgref.: H.f. Árvakur, Keyk}»Tlk.
Ritstjörar- Jön Kjartanaaon o* Valtýr Btet&naaon (abjrrSarmmBur).
Auglýsingrar: Árni Óla.
Ritstjórn, au*lýaln*ar o* affrslösla: ▲uaturatratl I. — aiml 1(00.
ÁakriftarKjald: kr. 1,00 A m&nu-M.
í lauaaaölu: 10 aura alntaklö — II aura aa«n JLaabOk.
ÆSKAH OG KOMMÚNISMINN
Skotgrafakveðja til frjáls-
lyndra íslendinga". Þann-
ig hljóða niðurlagsorð í grein
• einni í Moskvablaðinu nýlega,
eftir Hallgrím nokkurn Hall-
• grímsson. Hann er í her rauð-
liða á Spáni, og hefir verið þar
síðan í fyrrahaust.
Hann dáir hermannalífið og
vopnaviðskiftin. Hann segist
vera liðsforingi í 11 manna
sveit. Við „höfum að vopni“,
segir hann „ágæta ljetta vjel-
• byssu, sem er okkar stolt og
eftirlætisgoð. Næsta skifti ætl-
nm við að gera betur en síðast“.
Pilturinn hefir sýnilega
drukkið hinn rauða hernaðar-
;anda. Enda eðlilegt, eftir þeirri
„undirbúningsmentun“ er hann
hefir fengið.
Fyrir nokkru síðan var þessi
imaður austur í Rússlandi. Var
hann þar í Rauða hernum, eða
einskonar herskóla. Kostaði
Moskvast j órnin vist hans og
!kenslu þar. Mælt er, að hann
hafi komið sér vel í ríki Stalins,
■ og hafi verið talinn líklegur til
þess að kunna vel við sig inn-
;an um hryðjuverk og blóðsút-
hellingar.
En þareð þær eru fremur ein-
'hæfar um þessar mundir þar
austur frá, — menn aðallega
myrtir á laun, — eða
skotnir -í fangagörðum, þótti
hinum rússnesku kennurum
piltsins rjett að hann vendist
meiri fjölbreytni í starfinu. Og
því var honum komið til Spán-
ar. Þaðan er hann svo látinn
syngja skotvopnum og blóðsút-
hellingum lof og dýrð við og
við, á þeirri síðu „Þjóðviljans“,
sem aðallega er ætluð ungu
fólki til lestrar.
Kunnugir menn telja, að mið-
stjórnin í Moskva hafi valið
þenna Hallgrím til þess að vera
.einskonar yfir-,,general“, þegar
Moskvabyltingin á. að hefjast
hjer á landi.
★
Framsöknarflokkurinn efndi
nýlega til unglingasamkomu
austur að Laugarvatni. Þar voru
margar samþyktir gerðar. Með-
■al þeirra var áskorun til Al-
i þingis um að semja lög við
fyrstu hentugleika, sem bönn-
uðu pólitískan áróður meðal
barna og unglinga til 14 ára
Æildurs.
Tímadagblaðið er sjerstak-
'lega hreykið af samþykt þess-
ari. Hefir blaðið flutt langa
lofgerðarollu um það, hvílík
blessun þjóðfjelagi voru hlotn-
. aðist, ef slík lög yrðu samþykt.
"Síðan er að því spurt, hvað
Morgunblaðið kynni að vilja
leggja til málsins.
★
Nú skal rifjað upp í stuttu
máli, hvernig Tímamenn hafa
á undanförnum árum litið á
þessi mál.
í tvo áratugi hafa forvígis-
menn Framsóknarflokksins haft
sjerstakan áhuga fyrir því, að
beita áhrifum sínum meðal
þeirra manna, sem þjóðfjelagið
kostar til þess að vera upp-
fræðara barnanna á meðan þau
eru á skólaskyldualdri.
Árangurinn af þessari starf-
“’semi flokksins hefir verið sá, að
fjöldinn allur af barnakennur-
ur þjóðarinnar hefir verið val-
inn úr hópi þeirra manna, sem
aðhyllast Moskvastefnuna, sem
eru boðnir og búnir undir eins
og kallið kemur, að hlýða sömu
fyrirskipunum og tilvonandi
blóðböðull Islands, sem Moskva-
stjórnin hefir gert út, til þess að
venjast hryðjuverkun suður á
Spáni.
★
Það er rjett að segja þeim
Tímamönnum í eitt skifti fyrir
öll, að á meðan þeir eiga meiri
hlutavald sitt á Alþingi Islenil-
inga kommúnistum að þakka,
á meðan þeir vitandi vits horfa
upp á það með velþóknun, að
aðdáendur hinna „Ijettu vjel-
byssa“ og annara morðtóla, eru
settir í kennarastöður hjer á
landi, og það fyrir tilverknað
Framsóknarmanna, þá verður
Laugarvatnssamþyktin um áróð-
ur meðal barna og unglinga
tekin hæfilega alvarlega.
En ef það skyldi koma fyrir,
að Framsóknarflokkurinn ein-
hvern tíma hefði manndóm til
jþess að vinna gegn kommúnism-
anum hjer á landi, þá er kom-
inn tími til að tala við þetta
fólk um það, hvernig á að leiða
þjóðina framhjá þeim skerjum,
sem Framsóknarflokkurinn hef-
ir beinlínis stýrt að á undan-
förnum árum.
Umræðuefnið í dag;
Sundmetin.
í nefndinni, sem fjallaði um
„Háskólann og framtíð hans“ á
stúdentamótinu, voru þessir:
Björn Þórðarson lögmaður (fram-
sögumaður), Ágúst H. Bjarnason,
sr. Jón Finnsson, Magnús Gísla-
son sýslum., Jónatan Hallvarðsson,
Ragnar Jóhannesson og Jóhann
Hafstein. Frá þessari nefndarskip
un var ekki rjett skýrt í sunnu-
dagsblaðinu.
Myndir frá stúdentamótinn. 30
mynda sería, eru til sölu hjá OL
afi Magnússyni Ijósmyndara,
Templarasundi 3, og verða þær
til sýnis þar í dag og næstu daga.
Serían hefir margar skemtilegar
myndir að geyma, og er víst, að
allir stúdentar munu hafa ánægju
af að eiga þær, til minningar nm
fyrsta landsmót íslenskra stú-
denta og margar glaðar stundir
þar. Þeir, sem ætla sjer að eign-
ast mynda-seríuna, ættu að
tryggja sjer hana sem fyrst, því
að margir hafa þegar pantað mynd
ir frá mótinu hjá Ólafi.
•f
Rjettarstaða íslensku kon-
unnar í þjóðfjelaginu
Ur erindi Þórðar Eyjólfssonar hæsta-
rjettardómara á iandsfundi' kvenna
Rjettarstaða íslensku
konunnar í þjóðfje-
laginu var fyrsta málið,
sem tekið var fyrir á 5.
landsfundi kvenna, en
hann stendur yfir hjer í
bænum þessa dagana.
Þórður Eyjólfsson hæsta-
rjettardómari flutti fróðlegt
inngangserindi í þessu máli og
verður hjer drepið á nokkur
atriði úr erindi hans. Erindið
var flutt að tilhlutan Kvenrjett-
indafjelags íslands.
★
Goðarnir fóru með mest alt
opinbert vald hjer á landi til
forna, bæði heima í hjeraði og
á Alþingi. Ekki var konum
bannað að lögum að eiga goð-
orð, en það var mjög sjaldgæft
að kona eignaðist goðorð. Hins-
vegar var konum bannað að
fara sjálfar með goðorðsvald.
Ef kona eignaðist goðorð, varð
hún að fela karlmanni að fara
með goðastarfið.
Konur máttu ekki eiga sæti
í lögrjettunni á Alþ. og-þar með
voru konur útilokaðar frá lög-
gjafarstörfum. Ekki mátti kjósa
konur í hreppstjórn, ekki í
dóma, og þær máttu ekki bera
vitni í málum.
Á ýmsum sviðum öðrum var
rjettur konunnar mjög fyrir
borð borinn. Um erfðir nutu
þær minni rjettar en karlar og
bóndinn mátti heita einráður yf-
ir fjelagsbúi hjóna. Ekki mátti
lcona giftast manni nema með
ráði forráðamanns, þ. e. fastn-
anda, en hann mátti gefa kon-
una burt án samþykkis hennar.
★
Þessi rjettarstaða konunnar,
sem mörkuð var í fornöld helst
svo í höfuðatriðum í meira en
níu aldir, eða alt fram á tíma
núlifandi manna. Því að þótt
mikil breyting yrði á stjórnar
háttum landsins á þessum tíma
mátti heita, að rjettindi kvenna
stæðu í stað.
Konur höfðu hvorki kosning-
rrrjett nje kjörgengi til Alþing-
is og ekki til sveitar eða bæjar-
stjórna. Ekki mátti skipa konu
í opinbert embætti eða til að
hafa opinber störf á hendi. Til
marks um hvernig litið var á
stöðu konunnar á þessum tím-
um, má geta þess, að árið 1896
vítti yfirrjetturinn það ,að kona
hafði verið fengin til að vera
.rjettarvottur.
Fram til ársins 1850 erfði
systir ekki nema hálfan hlut á
móti bróður. Bóndi hafði einn
forráð yfir fjelagsbúi hjóna o.
s. frv.
★
Laust fyrir miðja 19. öld
hefst erlendis baráttan fyrir
jafnrjetti kvenna, kvenfrelsis-
baráttan svo nefnda. Hingað
barst aldan á síðustu áratugum
aldarinnar og var frú Bríet
Bjarnhjeðinsdóttir forvígiskona
baráttunnar hjer. Rakti Þ. E.
því næst brað áunnist hefði í
þessum málum hjer.
Þátttakan í löggjafarstarfinu.
Það er fyrst með stjórnarskrár-
breytinguuni 19. júní 1915, að
konur fá kosningarrjett til Al-
þingis og rjett til setu á Alþingi.
I fyrstu var þessi rjettur nokkr-
um takmörkunum háður, en þær
hafa nú verið afnumdar. Hafa
konur nú sama rjett og karlar
á þessu sviði.
Kosningarrjett í málefnum
sveitar og bæjarfjelaga öðluð-
ust konur 1882, en þó aðeins
„ekkjur og aðrar ógiftar kon-
ur, setp standa fyrir, búi, eða á
einhvern hátt eiga ineð s|ig
sjálfar“, eins og segir í lög-
unum.
Þetta helst til 1909, en þá er
konum veittur rjettur í þessum
málum til jafns við karla. Þeim
var þó heimilt að skorast und-
• rir
an kosningu. En sarhkv. gild-
andi lögum er rjettur og skyld-
ur karla og kvenna á þessu
sviði hinn sami að öllu leyti.
Rjettur til embætta. Lengst
af þótti það hin mesta goðgá,
ef því var hreyft, að konur ættu
að fá rjett til embætta. Konum
var jafnvel meinaður aðgangur
að latínuskólanum og öðrum
æðri mentastofnunum, svo sem
prestaskólanum og læknaskól-
anum.
Með tilskipun frá 1886 var
konum þó heimilað að taka stú-
dentspróf og þeim leyft að
stunda námílæknadeild ogtaka
burtfararpróf þaðan. Svo máttu
þær og njóta kenslu að nokkru
leyti í prestaskólanum, en burt-
fararpróf þaðan máttu þær ekki
taka. Hinsvegar máttu þær
ganga undir sjerstakt próf fyrir
konur. Þá máttu þær ganga
undir próf í forspjallsvísindum.
En síðan segir í tilskipuninni:
„Með því að ganga undir próf
þau, er um getur í þessari til-
skipun, öðlast konur engan að-
gang að embættum, nje heldur
til að njóta góðs af styrktarfje
því, er hingað til hefir ákveðið
verið námsmönnum við presta-
og læknaskólann. Konur mega
heldur eigi stíga í stólinn, þótt
þær njóti kenslu í prestaskól-
anum, eða hafi gengið undir
próf það, í guðfræði, er getur
um í 2. gr.“
Þessi tilskipun frá 1886 var
í fullu gildi til 1911, en þá voru
sett pý lög um þetta efni og
þá fengu konur sama rjett og
karlar til að njóta kenslu og
ljúka fullnaðarprófi í öllum
mentastofnunum landsins. Þá
fengu könur fullkomið jafnrjetti
við karla, að því er varðar em-
bætti og aðrar opinberar stöður.
Geta má þess, að ljósmæðralög-
in og hjúkrunarkvennalögin,
sem bæði eru frá 1933, eru orð-
uð þannig, sem konum einum
sje áskilinn rjettur til þeirra
starfa.
Önnur rjettindi. Lögræðisald-
ur er hinn sami fyrir konur og
karla, þ. e. 16 ár. Þá mega
konur ráða dvalarstað sínum.
21 árs eru þær fjárráða. Ekkjur
og fráskildar konur eru þó fjár-
ráða yngri, en sama regla gildir
ekki um karla. Hjer eru því
konur rjetthærri. Konur mega
ekki gifta sig yngri en 18 ára
og karlmenn ekki yngri en 21
árs, án opinbers leyfis. Sje kona
yngri en 21 árs verður hún þó
að hafa leyfi foreldra eða lög-
ráðamanns til giftingarinnar.
Þegar kona giftist má hún
taka sjer eftirnafn manns síns,
ef hann hefir ættarnafn. Verði
síðar skilnaður gerður með þeim
getur maðurinn bannað konunni
að nota nafnið, ef skilnaðurinn
er aðallega konunni að kenna.
Konau er jafn rjetthá bónda
sínum að því er snertir umráð
yfir fjelagsbúi hjóna.
Ríkisborgararjettur konunnar
er að nokkru leyti annar en
karlmannsins. Þannig fer ríkis-
borgarrjettur giftrar konu eftir
ríkisfangi bónda hennar. Þó er
hjer sú undantekning gerð, að
ef íslensk kona, sem öðlast hef-
ir ríkisborgararjett við fæðingu
sína, giftist erlendum manni,
heldur hún íslenskum ríkisborg-
ararjetti, meðan hún dvelst
hjer. Er því ekki hægt að vísa
konunni úr landi með bóndan-
um, þótt honum sje brott vísað.
Ef íslenskur ríkisborgari giftist
erlendri konu, fær hún við gift-
inguna íslenskan ríkisborgara-
rjett.
Áður fyr átti gift kona fram-
færslurjett í sömu sveit og bóndi
hennar. Nú á hver maður fram
íærslurjett í heimilissveit sinni
og geta því hjón nú átt fram-
færslurjett hvort í sinni sveit,
ef þau búa ekki í sama sveitar-
íjelagi.
Erfðahluti karls og konu hef-
ir verið jafn að lögum síðan
1850.
★
Á þeim 23 árum, sem liðin
eru síðan konur fengu kjör-
gengi til Alþingis, hafa aðeins
tvær konur átt sæti á þingi. Á
þeim 27 árum, sem liðin eru
síðan konur fengu jafnrjetti við
karlmenn til embætta og opin-
berra starfa, hafa fjórir kven-
kandidatar lokið burtfararprófi
í læknadeild, einn úr lögfræði-
deild, en enginn úr guðfræði-
eða norrænudeild.
„María Stúart“ heitir amerísk
kvikmynd, sem Gamla Bíó sýnir
í fyrsta skifti í kvöld. Aðalhlnt-
verkið leikur Katharine Hephurn
Fredric March. Kvikmyndin seg-
ir frá lífi Maríu Stúart Skotlands-
drotningar. Kvikmynd þessi hefir
ihlotið mikið lof erlendis.