Morgunblaðið - 04.12.1940, Síða 7
Miðvikudaginn 4. des. 1940.
MOKG U ín BLAjl^IÐ
Útför Pjeturs
Halldórssonar
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
það með sjer. livar sem hann er.
a,ð hann er prúðmenni hið mesta.
Einarður og skörulegur er hann í
besta lagi, og heldur fast á þeim
málstað, sem hann er sannfærður
um að sje rjettur. Ilann er trygg-
lyndur og vinfastur umfram
flesta menn aðra, og munu þeir
æði margir, sem átt háfa hauk í
horni þar sem hann er“.
Þessi, var skoðun mín á PjetrL
Halldórssyni borgarstjóra þá, og
á henni hefir engin hreyting orðið.
Pjetur Halldórsson borgarstjóri
unni kirkju og kristindómi fram-
ar öllu öðru, og var yndi að ræða
um þau mál við hann. Svo ein-
lægur trúmaður var hann, að jeg
hefi fáum mönnum kynst, sem
hafa átt jafn fölskvalausa og ein-
læga trú.
Þeir, sem eignuðust persónulega
vináttu Pjeturs Halldórssonar
borgarstjóra, urðu þeirrar hlýju
og alúðar aðnjótandi, sem jeg full
yrði að er mjög fátíð. Efa jeg að
því hafi verið nokkur takmörk
sett, hvað hann vildi leggja í söl-
urnar fyrir þá, sem hann unni.
Yið, sem nutum vináttu hans í
svo ríkum mæli, gleymum aldrei
kærleika hans og ástúð, en geym-
um minninguna um hann í þakk-
látum hjörtum.
Guðm. Ásbjörnsson.
Petain til Versala
Loftðrásirnar
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
opinberum byggingum, en einn-
ig á kirkjum, kvikmyndahúsi og
þó einkum á verkamannabú-
stöðum).
En manntjón er sagt „ekki
mikið“.
Þjóðverjar segja að tjón hafi
orðið á hafnarmannvirkjum og
á iðnaðarstöðvum í borginni, m.
a. hafi gasgeymir borgarinnar
sprungið í loft upp með ógur-
legu braki.
í Þýskalandi er skýrt frá því
að eftir loftárásina á Southamp-
ton aðfaranótt mánudags, hafi
mátt sjá bjarmann af eldunum
þ>ar alla leið til Cherbourg.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
THOMAJ CADET, sem var um
mörg ár frjettaritari „The
Times“ í París, hefir látið í
ljós þá skoðun, að nýlendur
Frakka sjeu þeim nokkur
styrkur í samningunum við
Þjóðverja. Hann segir, að
Þjóðverjum sje það ljóst, að
ef þeir gerðu alvöru úr þeirri
hótun sinni, að leggja undir
sig alt Frakkland, þá sje það
áreiðanlegt, að allar frönsku
nýlendurnar myndu rjúfa
tengslin við Frakkland og
ganga í lið með d.e -Gaulle,
og Bretum.
FREGNIR hafa borist til London
um að afráðið sje nií að Petain
flytji stjórnaraðsetur sitt til
Versala. En ekki verður sjeð af
fregninni, hvort gert er ráð fyr-
ir að Petain flytji þangað einn,
eða öll Vichystjórnin.
Meðal stjórnmálamanna í
London er litið svo á, að hvort-
tveggja verði að álítast slæmt.
Ef öll Vichýstjórnin flytur til
Versala, þá verður hún umset-
in af Þjóðverjum og þýskum
áhrifum. En ef Petain flytur
þangað einn, þá geta starfsbræð
ur hans í Vichy, sem reynt
hafa að hafa áhrif á það, að
franska þjóðin yrði ekki alger-
lega ofurseld Þjóðverjum, ekki
lengur geta komið málum sín-
um á framfæri við haniv
Afleiðingin myndi verða (seg-
ir í fregn frá London), jið Þjóð-
verjar og handbendi þeirra La-
val, myndu geta komið öllum
• sínum málum fram.
CHARLES de Gáulle flutti ræðu
í gær og sagði m. a., að 80%
af þegnum Frakklands bæði
heima og erlendis væru fylgj-
andi málstað hinna frjálsu
Frakka. Hann sagði, að þetta
gilti einnig um þann hluta
Frakklands, sem hernuminu
væri.
Samtíðin, desemberheftið, er
komin út, mjög fjölbreytt. Efni:
Stúdent.alíf í Cambridge (viðtal
við C. R. Wrigley B. A.). Þegar
hugsjónir deyja (kvæði) eftir
próf. Richard Beck. Merkir sam-
tíðarmenn (æviágrip með mynd-
um). Bókmentir og listir á stríðs-
tímum eft.ir Ólaf Jóh. Sigurðs-
son. Ljóshærð stiilka (smásaga)
eftir Conrad Philips. Bókasafn
Skagfirðinga eftir síra Helga
Eonráðsson. Sendisveinar (saga)
eftir Hasse Z. Kynlegir draumar
eftir R. L. Mégraz. Óvitinn
(kvæði) eftir Hreiðar Geirdal. —
Auk þess er fjöldi smágreina,
skrítlna og bókafregnir.
Best að auglýsa
í Morgunblaðinu.
Dagbók
Morgunblaðið. Skrifstof-
um blaðsins og afgréiðslu verður
lokað fm kl., 12.,á hádegi í dag.
Næturvörður er þessá v;ku í
Ingólfs Apóteki og Laugavegs
Apóteki.
85 ára er í dag Oddur Helga-
son frá Illíðarhúsum, nú til heim-
ilis í Garðastræti 3.
'Guðrún Ásmundsdóttir, hin vin-
sæla starfskona á Vinnumiðlunar-
skrifstofunni í Reykjavík, á 10
ára starfsafmæli í dag. ,
25 ára hjúskaparafmæli eiga á
morgun hjónin Ragnheiður Jóns-
dottir og Bjarni EinarssOn gull-
.smiður, Mímisveg 6.
Kafbátahernaðurinn
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
þessa höfn á hverri nóttu nú um
langt skeið.
Matvælaráðherra Breta, Wooli-
on lávarður, sagði í útvarpsræðu
í gær, að breska þjóðin yrði að
sætta sig við að sjá ekki á mat-
borðum sínum næsta ár ýmsar
vörur, sem hún hefir nú. Hann
sagði að Bretar yrðu að nota,
kæliskip sín til þess að flytja mat
væli til breskra hermanna við
Miðjarðarhaf; þessvegna yrði að
draga úr kjötinnflutningnum.
Hann sagði, að lítið myndi verða
um egg, og bacon myndi verða að
takmarka enn meir en verið hefir.
Engir ávextir verða fluttir inn
nema appelsínur (keyptar frá
Spáni).
En hann kyaðst einnig flytja
góðar fregnir. Vikuna fyrir jól
verður sykurskamturinn aukinn
úr 8 únsum í 12 únsur og te-
skamturinn úr 2 únsum í 4 únsur.
En te er eins og kunnugt er þjóð-
ardrykkur Breta.
Sjötugsafmæli á í dag Bjarni
Grímsson frá Stokkseyri, til
heimilis á Barónsstíg 59 hjer í
bænum.
Hjónaband. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Kristín Jónsdóttir, Hofi, Eyrar-
bakka og Gísli Jónsson lögreglu-
þjónn, Loftsstöðum. — Heimili
þeirra er í Mundakoti á Eyrar-
bakka.
Skrautleg bók. í gær kom í
bókaverslanir skrautleg bók, sem
líkleg er til þess að Amrða jóla-
bókin að þessu sinni. Er það ferða
saga hins heimsfræga ferðalangs,
Marco Polo, en ferðasöguna hefir
endursagt Aage Krarup Nielsen,
sem er kunnur rithöfundur og
mikill ferðamaður. ísafoldarprent-
smiðja gefur bókina út, en Har-
aldur Sigurðsson hefir þýtt á ís-
lensku. A undanförnum áruin
hafa margar bækur komið út hjer
á landí skreyttar myndum, en
líklega engin, sem er jafnskrautleg
sem Ferðasaga Marco Polo.
Útvarpið í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Þýskukensla, 3. flokkur.
15.30—16.00i Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla, 2. flokkur
19.00 Þýskukensla, 1. flokkur.
1Ó-25 Hliómplötur: Óperulög.
20.00 Frjettir.
20.30 Kvöldvaka: a) Bjarni Ás-
geirsson alþm..: Úr Jökulfjörð-
um og Djúpi. Ferðasaga. b)
21.00 Ungfrú Kristín Sigurðar-
dóttir: LTpplestur úr kvæðum
Davíðs Stefánssonar. e) Einleik-
ur á klarinett (Björn Jónsson).
d) 21.20 í Landbroti fyrir 70
árum. Ur endurminningum Páls
Sigurðssonar, fyrrum bónda í
Þykkvabæ (J. Eyþ.).
VASAKARLMANNSÚR
merkt B. S. tapaðist á laugar-
dagskvöldið við hornið á Lækj-
argötu og Austurstræti. Finn-
|andi vinsamlega beðinn að gera
afgreiðslu Morgunblaðsins að-
vart gegn fundarlaunum.
KJÖRFUNDUR
, r% • - . gTSfi
Kosning tveggja presta í HallgrÍTnsprestak^lli
í Reykjavík fer fram sunnudaginn 15. þ. m. í Aust-
urbæjarbarnaskóla, og hefst kl- 10 f. h.
Umsþknir umsækjenda og umsagnir biskups
eru kjósendum til sýnis virka daga 4.—12. desember
að báðum dögum meðtöldum hjá Guðmundi Gunn-
laugssyni kaupmanni, Njálsgötu 65.
Sóknarnefndin.
Það tilkynnist hjer með, að faðir minn
GÍSLI HINRIKSSON,
kennari, Geirmundarbæ, Akranesi, andaðist 3. des.
Fyrir hönd aðstandenda
Hinrik L. Gíslason.
Minningarathöfn eftir son okkar elskulegan og bróður
GUNNAR ÓLAF,
sem druknaði af m.b. Eggert þ. 23. nóv., verður haldin á Út-
skálum föstudaginn 6. des. kl. 2 e. hád.
Björg Ólafsdóttir, Haraldur Jónsson og börn.
Vegna jarðarfarar
Pjeturs Halldórssonar
borgarsf). verður skrif*
stofum vorum lokaQ frá
kl. 12 til 4 fi dag.
S.f. Stálsmiðjan. Slippfjelagið í Rvik. h.f.
H.f. Hamar. Vjeismiðjan Hjeðinn.
Skrifstofa min
verður lokud frá kl. 12 á
liádegfi i dag, vegna jarð-
arfarar.
Garðar Þorsteinsson, Hrm.
Jarðarför konunnar minnar
RAGNHILD SVEINSSON
fer fram fimtudaginn 5. þ. mán. kl. 1 e. hád. og hefst að heim-
ili hennar, Háaleitisveg 24. Jarðað verður frá samkomusal
Hjálpræðishersins.
Kristján Sveinssón.
Kveðjuathöfn
; JÓHANNESAR GUÐMUNDSSONAR kennara
frá Teigi, fer fram fimtndaginn 5. þ. m. og hefst kl. 5 e. h.
að Bergstaðastræti 6. Hann verður jarðsettur að Hvammi í
Dölum.
Aðstandendur.