Morgunblaðið - 06.09.1945, Page 2
2
MORG UNB LAÐIÐ
Fimtudagur 6. sept. 1943
Rógurinn um Fiski-
máianeínd
VEGNA marg-endurtekinna
ósanninda Alþýðublaðsins, Tím
ans og Vísis rfm framkvæmd
færeyska skipaleigusamnings-
ins vil jeg upplýsa eftirfarandi:
1. Alþýðublaðið og Tíminn
hljóta að halda því fram gegn
betri vitund, að leyfi Fiskimála
nefndar frá ríkisstjórninni til
þess að yfirdraga á reikningi
í Landsbankanum allt að 2
miljónir króna vegna Færeyja-
skipanna, þýði sama og nefnd-
ina vanti IV2—2 milj. króna.
Bæði þessi blöð vita, að sam-
kvæmt samningum eiga mán-
aðarleigur skipanna að greið-
ast fyrirfram, einnig trygg-
ingar af skipunum og margar
aðrar greiðslur verður að greiða
vegna útgerðar skipanna áður
en tekjur af rekstri þeirra koma
inn.
Nefndin hefir því frá byrjun
þurft á miklu rekstursfje að
halda, sem ríkið átti og hlaut
að leggja fram, því það er sá
aðili, sem gerði samninginn, og
ber allan fjárhagslegan halla af
honum.
Þáttur Fiskimálanefndar er
aðeins að framkvæma samn-
inginn.
2. Út af ,,yfirlýsingum“, sem
Kristján Friðriksson birfir frá
þremur Færeyingum, sem ver-
ið hafa á skipum hjá Fiskimála
nefnd, vil jeg benda á þetta:
a) Skipstjórinn m.s. „Regina”
sem skrifar undir yfirlýsingu
um „að kaupgreiðslur vegna
skips hans hafi dregist mánuð-
um saman” hefir fengið fulln-
aðaruppgjör fyrir 3 sölutúra og
fyrir fleiri túra hefir ekki ver-
ið hægt að gera upp fram til
þessa vegna vantandi upplýs-
inga, sem sumpart hefir stað-
ið á frá skipstjóranum sjálfum
og sumpart frá sölufirmum í
Englandi. Skipshöfn þessa skips
hefir fengið miklar fyrirfram
peningagreiðslur í höfnum á
íslandi og Englandi, þrátt fyrir
ófullnægjandi upplýsingar til
þess endanlega að uppgera
hvern túr.
b) Erling Christianseo, sem
skrifar undir yfirlýsingu um að
hann hafi ekki fengið uppgjört
í júní-mánuði, þegar hann fór
frá Færeyjum. hefir ekki verið
á skipi, sem nefndin sjálf hefir
gert út, en mun hafa verið á
framleiguskipi, sem útgerðar-
mannafjelag í Hornafirði rak
í vetur.
Fiskimálancfnd hefir því ekk
ert haft mcð uppgjör fyrir
þennan mann að gera, og hanii
aldrei kvartað við Fiskimála-
nefnd undan uppgjöri fjelagsins
er hafði skipið. Fiskimálanefnd
hefir nú kynt sjer að samlagið
hefir að fullu gert upp við
skipshafnir allra sinna skipa.
c) Yfirlýsing skipstjórans á
„Borglyn", er augsýnilega al-
röng frá orði til orðs.
Hann segir, að skipseigandi
„Borglyn“ hafi sagt sjer í
júní-mánuði, að á útgerðar-
mannafundi í Færeyjum um
þetta leyti hafi komið í ljós að
aðeins 2 skipaeigendur hafi þá
fengið leigur gréiddar fyrir skip
sín að fullu, og hafi það verið
framleigð skip til samlaga, en
Fiskimálanefnd hafi hins vegar
ekkert greitt.
Fiskimálanefnd hcfir ein
greitt allar skipaleigur, en ekk-
ert samlag hefir greitt þær til
Færeyja.
Nefndin greiddi í mars og
aprílmánuði 1.584.086.00 krón-
ur í skipaleigur auk margra
viðhaldsreikninga, og sjest best
á þessu að yfirlýsing sú, sem
þessi skipstjóri hefir látið hafa
sig í að undirskrifa, er alröng.
Halldór Jónsson,
framkvstj. Fiskimálanefndar.
Spánverjar munu
fara frá Tangier
London í gærkvöldi.
EFTIR AÐ stórveldin fjögur,
Bandaríkin, Bretland, Sovjet-
ríkin og Frakkland hafa sam-
þykt það sín á milli, að Spán-
verjar skuli fara burt með her
sinn af Tangiersvæðinu í Norð
ur-Afríku, er álitið að þeir geri
það. En jafnframt er_ talið, að
Spánverjar muni verja hernám
sitt á svæði þessu, en þang'að
sendu þeir her eftir fall Frakk-
lands 1940. — Þá er og talið,
að spánska stjórnin muni harð
lega mótmæla þátttöku Sovjet-
stjórnarinnar í umræðum og
ályktunum um þetta mál.
— Reuter.
Hefndarálif um
finska „sfríðs-
glæpamenn"
Stokkhólmi í gærkvöldi.
FYRIR NOKKRU var skipuð
néfnd í Finnlandi, til þess að
athuga, hvað gera skyldi við
menn þá þar í landi, „sem bæru
ábyrgð á styrjöldinni“, eins og
það var orðað. Talið var, að all-
ir fyrverandi ráðherrar myndu
verða dregnir fyrir dóm, sem
stríðsglæpamenn. — Nefndin
hefir nú skilað áliti sínu, og
komist að þeirri niðurstöðu, að
ýmsir fleiri en ráðherrar eigi
skilið að verða athugaðir í
þessu sambandi. Ennfremur
leggur nefndin til, að niður-
staða rjettarhaldanna yfir þess
um mönnum verði gerð heyrum
kunn.
Refsingar telur nefndin hæfi
legar fangavist alt að átta ár-
um, nema að sakir sjeu svo
þungar, „að lífstíðarfangelsi
komi til mála“. — Álit nefndar
þessarar mun á næstunni rætt
á þingi Finna og málum þar
ráðið til lýkta. — Reuter.
Úrslifaleikur Rafha-
keppninnar
ÚRSLITALEIKUR Rafha-
keppninnar fer fram í kvöld kl.
7 á knattspyrnuvellinum í Hafn
arfirði. Kepþa þá F. H. og
Haukar.
Er þetta annar leikur fjelag-
anna í þessari keppni, en eins
og kunnugt er, gerðu þau jafn-
tefli síðast, þegar þau áttust
við í þeirri keppni og verða því
að keppa aftur.
Nýbyggingarráð
áffi engan þátf í
að „Haukur" var
keypfur
Frá forstjóra fjelagsins,
sem átti flutningaskipið
„Hauk“, sem sökk á dög-
unum á hafinu milli Fær-
eyja og Skotlands, hefir
Morgunblaðinu borist eft-
irfarandi:
Herra ritstj.:
BLAÐSNEPILL Framsóknar
manna, Tíminn, ræðst í gær á
Nýbyggingarráð út af kaupun-
um á m.s. „Haukur" og fer þar
sem fyr og oftsinnis með rangt
mál og óþverralegar getsakir
í garð saklausra manna.
Nýbyggingarráð átti nefni-
lega engan þátt í því að þetta
skip var keypt, annan en þann,
að mæla með yfirfærslu á and-
virðinu. Ef Tíminn vill taka
einhverja menn eða pólttíska
flokka fyrir-út af þessum skipa
kaupum, þá vil jeg benda blað-
inu á að snúa sjer að rjettum
aðila, en ekki að fálma út í
loftið til að reyna að finna
einhvern pólitískan andstæð-
ing, nefndir eða ráð. Rjetti að-
ilinn í þessu máli er jeg per-
sónulega og enginn annar. Sögu
þessa máls segi jeg ekki alla
núna, en mun gera það síðar
þegar betur stendur á, en- læt
hjer nokkur mótmæli fylgja í
sem fæstum orðum.
Tíminn segir að stjórnarblöð
in hafi sýnt fagnaðarlæti í vet-
ur, þegar þetta skip kom. Er
altaf vetur í sál Tímaritstjórans.
Skipið kom nefnilega um há-
sumarið, 17. júní. Blaðið segir
að dýrðlegri veislu hafi verið
slegið upp og formaður Ný-
byggingarráðs hafi haldið ræðu
og tómt kampavín drukkið. Alt
þetta eru tóm ósannindi. For-
maður Nýbyggingarráðs kom
rjett sem snöggvast í það boð,
sem jeg hjelt blaðamönnum, ef
boð skyldi kalla, en Jóhann Þ.
Jósepsson ljet ekki svo lífið, að
segja þar eitt einasta orð. —
Kampavín kom aldrei um borð
í „Hauk“, s.vo á þessu getur
hver maður sjeð hvaða mark
menn geta tekið á þessu blaði.
Hvað sjálfu skipinu viðvíkur
og aðdraganda að kaupum þess,
mun jg skýra frá seinna, þegar
upplýst er betur en nú er, hvern
ig það óhapp vildi til, sem fyrir
skipið kom í bessari ferð. En
eitt vil jeg benda hinum unga
manni (Tímaritstjóranum) á,
að hlaupa ekki svona herfilega
með sín ósannindi. því þó fáir
lesi Tímann, þá eru það þó ein-
hverjir og allir sannleikselsk-
andi menn fá skömm á ósann-
indamönnum
Jeg geymi mjer til síðari tíma
lýsingu þessa máls, en ef rit-
stjóri Tímans vill ófrægja ein-
hvern út af þessum skipakaup-
um, þá er leiðin bein að mjer.
Reykjavík 5. sept. 1945.
Pjetur Bóasson.
LONDON: — Bretakonungur
hefir skv. meðmælum nýsj'á-
lensku stjórnarinnar staðfest
skipan Freyberg hershöfðingja
sem landstjóra á Nýja-Sjá-
landi. Freyberg stjórnaði, sem
kunnugt er, hersveitum Nýsjá-
lendinga í styrjöldinní
Droftning á Suðurhafsey.
FREMRI konan hjer á myndinni, er drottnmg á eyju einni í
Marshalleyjaklasanum í Kyrrahafi. Myndin var tekin af henni,
þegar hún var að taka á móti amerískum liðsforingjum, sem
komu í kurteisisheimsókn. Þeir gáfu henni flugmannatákn það,
sem hún er með. Hin konan er ein af hirðmeyjum drottningar.
Kosningarnar í
Búlgaríu
JAMES V. IVÝRXES, hinn
nýi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna hefir þegar fengið
orð fyrir að segja skoðun sína
ákveðnum orðum. Hjer á dög-
unum sagði hann búlgörsku
stjórninni nokkur orð í fullri
meiningu. Búlgarska stjórnin
er samsteypustjórn, en komm-
únistar ráða þar öllu og fara
með þýðingarmestu ráðherra-
embættin.
Byrnes utanríkisráðherra.
sagði hreinlega, að Bandaríkja
stjórii teldi ekki að búlgarska
stjórnin væri skijnxð fulltrú-
um frá öllum lýðræðisflokk-
um landsins, nje heldur, að
kosningarnar, senx fara ættu
fraœ, væru „frjálsar kosning-
ar“, þar sern kjósendur þyrftu
ekkert að óttast, eða ekki væri
haft áhrif á hvernig þeir
myndu kjósa.
Brynes var raunar ekki að
gera annað, en að framfylgja
samþyktum, sem g’erðar voru
á fundum hinna þriggja stóru
í Ýalta og síðar í Potsdam,
þar sem samþykt var a,ð íram
skyldu fara frjálsar og óþving
aðar kosningar í öllurn lönd-
um Evrópu og ríkisstjórnum,
sem kosnar væru á þann skyldi
veitt viðurkenning.
Ef Bulgarar vildu ekki fara
eftir þessxxm reglum myndi
stjórn þeirra ekki fá viður-
kenningu Bandaríkjastjórnar.
1 raun og veni, þar sem búlg-
’arska stjórnin er leppstjórn
Rússa, var Byrnes að gefa ein-
um hinna þriggja stóru bend-
ingu um, að" halda sjer við(
Ýalta-Potsdam samþykktirnar.
ílúlgarar frestuðu kosning-
unum eins og kunnugt er.
Krisf Guðnason far-
inn vestur
KRSTTNN GUÐNASON,
verksmiðjueigandi, sem dvali
ið hefir hjer um hríð til að!
hitta ættingja og vini er ni'i
farinn vestur urn háf heim til
sín aftur.
Ilann ferðaðist töluýert umj
landið og hitti rnarga kunrw
ingja og vini. Tlefir hann l>eði
ið blaðið, að færa öllum, seml
hann hitti, bestu þakkir ífyrir,
ánægjuíegar stundir, h.jetl
heima.
Minningardagur um
failna Norðmenn
16. sepf.
OSLO í gær: — Ákveðiffi
hefir verið að halda minxiing*
ardag urn þá Norðmenn, semj
fjellu í ófriðnum, suunudaginnl
1G. ]>. m; Um allan Noreg verðaj
f’ánar dregnir í hálfa stöng
frá morgni til klukkan U.02,
en tveggja mínútna þögn verðí
ur unx alt land frá kl. 1 P>.00j
til 13,02.
Minningargxxðsþjónustxxxxr
verða haldnar xxnx land alt og£
sjerstök minningarguðs])jón-»
usta verðxxr í hátíðasal Oslóai’i
háskóla þenna dag.
Sendiherra til Argen-
tínu.
LONDON: — Bandaríkja-
menn eru sagðir munu senda
bráðlega sendiherra til Argcn-
tínu, að því er James Byrnes,
utanríkisráðherra sagði í gser.
Mikið hefir verið bollalagt um
það, hvort Bandaríkin myndu
yfirleitt senda sendiherra til
Argentínu. . J