Morgunblaðið - 25.02.1954, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 25. febr. 1954
Skíðafélay Reykjavíkur minnist
40 ára afmælis síns á morgun
SKÍÐAFÉLAG Reykjavíkur mun minnast 40 ára afmælis síns
næstkomandi föstudag, með hófi í Sjálfstæðishúsinu. Munu
t>angað verða boðnir helztu forgöngumenn allra þeirra félaga, sem
hafa skíðaíþrótt á stefnuskrá sinni.
Skíðafélag Reykjavíkur er<
íyrsta félagið hér á landi sem
hefur haft skíðaíþrótt að mark-
rniði sínu. Félagið var stofnað 26.
iebrúar 1914. Fyrsti formaður
t>ess var L.H. Möller. Varð hann
fyrstur til þess að kynna Reyk-
■víkingum ágæti skíðanna bæði
til göngu í snjó og sem íþrótta-
grein. Var hann formaður félags-
ins til ársins 1939 en þá tók við
íormennsku Kristján O. Skag-
f jörð, en hann var þá landskunn-
ur sem dugmikill og áhugasamur
ferðamaður bæði sumar og vetur.
Jíúverandi formaður félagsins er
Stefán G. Björnsson.
SKÍÖASKÁLINN
í IIVKRAOÖLI M
Fyrir forgöngu Múllers og þá-
•verandi meðstjórnanda hans var
Ækíðaskálinn í Hveradölum reist-
\>r árið 1935. Hefir hann til þessa
•verið hinn ákjósanlegasti sama-
staður og sæluhús skíðamanna og
aiinarra, sem þurft hafa að leita
ákjóls í illviðrum á Hellisheiði.
Hann er einnig fyrsti skíðaskál-
dnn, sem byggður var hér á landi.
Á tímabili stóð félagið fyrir fjöl-
möt'gurn skíðamótum og má þar
nefna: fyrsta landsmót skíða-
ananna 1937, „Thule“-mótin 1938
-og 1939 og Landsmótið 1943.
JSiUNNA AÐ META STARF
FÉLAGSINS
Margir erlendir skíðakennarar
liafa dvalizt og kennt hér á veg-
um félagsins og var Birgir Ruud
^estur þess á „Thule“-mótinu
1939. Hinn mikli og jafni félaga-
fjöldi félagsins, sem er milli 500
og 600 manns, sýnir að skíða-
menn kunna að meta starf félags-
ins, þótt það nú hin síðari ár æfi
■ekki neina sérstaka skíðamenn
■til keppni. Enda hefur þróunin
verið stöðugt í þá átt, eftir því
sem fleiri félög tóku skíðaíþrótt-
ina á sína stefnuskrá, að skíða-
menn keppi fyrir það félag þar
sem þeir iðka aðrar íþróttir, t.d.
inattspyrnu og frjálsar íþróttir.
SUNDLAUG VIÐ
SKÍÐASKÁLANN
Éyrir 5 árum var mikill hugur
hjá stjórn félagsins fyrir að
koma upp sundlaug við skíða-
skálann, en af framkvæmdum
hefur eigi orðið enn. Lét stjórnin
teikna sundlaug með tilheyrandi
búningsklefum og böðum, en eft-
ir að hafa verið synjað um fjár-
festingarleyfi í tvö ár, var hætt
við það í bili. Enda varð félagið
um það leyti fyrir því óhappi að
mótor- og geymsluhús þess brann
ásamt ljósavél skálans.
Skíðafélag Reykjavíkur hefur
undanfarna vetur haldið uppi
stöðugum skíðaferðum í sam-
vinnu við hin skíðafélögin, en
þau öll og Ferðaskrifstofa ríkis-
ins hafa nokkurskonar sérleyfi
til skíðaferða frá Reykjavík.
r
Leik Aritu Krist-
jáiissonar fráhær-
lega vel tekið
í GÆRKVÖLDI hélt Árni Krist-
jánsson, píanóleikari, tónleika
fyrir styrktarfélaga Tónlistarfé-
lagsins í Austurbæjarbíói og var
hvert sæti í þessu stóra sam-
komuhúsi skipað. — Á efnis-
skránni voru tvær viðamiklar
Beethoven-sonötur og Orgel-
fantasía og Fúga eftir Bach og
Liszt.
Leik Árna var framúrskarandi
vel tekið og voru honum færð
blóm og ekki komst hann hjá því
að leika aukalög í lok tónleik-
anna.
Annað kvöld endurtekur Árni
Kristjánsson þessa tónleika sína
fyrir styrktarfélaga Tónlistarfé-
lagsins.
Hernaðarhjálp brási
BELGRAD 24. febr. -— Júgó-
slavneski hermálaráðherrann Iv-
an Gosnjak hershöfðingi hélt í
dag ræðu í þjóðþinginu, þar sem
hann kvartaði mjög yfir því að
lítið hefði orðið úr hernaðarað-
stoð Bandaríkjanna við Júgóslav-
íu. Sérstaklega hefði þetta orðið
tilfinnanlegt í sjóher landsins. —
Nýr vegur til Siglufjarðar
og brú á Hornafjarðarfl jót
Frá fundi sameinaðs þings í gær
Á FUNDI sameinaðs þings r gær
komu til umræðu 10 tillögur til
|>ingsályktunar. Hlutu 4 þeirra
íullnaðarafgreiðslu — 3 voru
.samþykktar, ein felld.
Tillögurnar er samþykktar
•voru eru þessar:
Tillaga Jóns Kjartanssonar
J>ingmanns V.-Skaftfellinga um
aS Alþingi álykti að skora á
xíkisstjórnina að láta rannsaka,
5ivað tiltækilegast sé að gera til
•að hindra frekari landspjöll af
völdum Dyrhólaóss í Mýrdal.
Tiliaga Einars Ingimundarson-
-ar, þingmanns Siglfirðinga, o. fl.
*var og samþykkt, en í henni er
ríkisstjórninni falið að láta at-
liuga, með hvaða hætti Siglu-
íirði verði helzt komið í varan-
legt vegasamband við Skaga-
íjörð. Skal athugun þeirri vera
lokið fyrir 1. okt. 1954.
Þá var og samþykkt tillaga
JPáls Þorsteinssonar um að ríkis-
stjórninni skuli falið að láta fram
fara á næsta ári rannsókn á brú-
arstæði á Hornafjarðarfljótum.
Skuli kostnaður við rannsóknina
greiðast úr ríkissjóði.
Felld var tillaga Þjóðvarnar-
manna um að ríkisstjórninni
skuli heimilt að hafa 1—2 bif-
reiðar í þjónustu sinni. Hinar
skuli seljast atvinnubílstjórum.
Rætt var og um tillögur Sig-
urðar Bjarnasonar um hagræn
landabréf. Flutti hann framsögu-
ræðu og var tillögunni vísað til
nefndar. Þá var og rætt um til-
lögu um að fela ríkisstjórnmni að
gera gagnkvæman höfundarrétt-
arsamning við Bandaríkin. Var
þeirri tillögu vísað til nefndar.
Svo og fáránlegri tillögu Gylfa
Gíslasonar og fleiri um takmörk-
un á heimild stjórnmálaflokka
til að nota fé í sambandi við
kosningar og kosningaundirbún-
ing. Hún fór og í nefnd.
Reykjaheiði var
íl! íær sn jóbílnum
HÚSAVÍK, 24. febrúar — Snjó-
bíll fór s. 1. sunnudag frá Húsa-
vík yfir Reykjaheiði austur í
Kelduhverfi til að sækja sjúkling.
Reykjaheiði er sá fjallvegur, sem
einna fyrst lokast þegar snjór
hefur fallið á Norðurlandi, en
sem dæmi um snjóleysi hér um
slóðir nú. má geta þess að heiðin
var illfær snjóbilnum vegna
snjóleysis.
Á mánudaginn fór vörubíll
yfir heiðina og gekk sæmilega.
Var hann um fjórar klst. á leið-
inni. Með bil þessum kom leik-
flokkur úr Kelduhverfi, sem sýn-
ir hér leikritið 'Kinnahvolssystur.
Þegar bílfært er yfir Reykja-
heiði um vetur, vekur það undr-
un manna, en ekki vekur það
minni undrun að ekki skuli lögð
meiri áherzla á að tengja saman
Suður- og Norður-Þingeyjasýslu
mcð öruggu vegasambandi, sem
verður með vegi kringum Tjör-
nes, en segja má að á þann veg
sem þegar er kominn þessa leið,
hafi enginn snjór fallið í vetur,
sömuleiðis á þann kafia sem veg-
urinn er enn óiagður.
—Fréttaritari.
— Soðkjarnl
Framh. af bls. 1.
áhugi á hagnýtingu soðsins, þess-
um miklu verðmætum, sem renna
beint í sjóinn.
Síðari hluta vetrar 1953 voru
tilraunatækin flutt í Faxa s.f. í
Örfirisey. — Hafa þau nú verið
reynd með góðum árangri, svo að
auðsætt er, að hægt er að smíða
fullkomin eimingartæki fyrir söð
hér á landi. Engir tæknilegir örð-
ugleikar eru á smíði slikra tækja
innan lands.
25% FARA í SJÓINN
Eins og mörgum er kunnugt
tapast að jafnaði um 25% af mjöl-
efnum hráefnisins, síldar- og
fiskúrgangs, þegar það er soðið,
pressað og soðinu veitt í sjóinn
frá skilvindum, eins og tíðkazt
hefur í flestum síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjum allt fram á
síðustu ár. Um gildi þessarar
framleiðslu má minna á þær síld-
arvertíðir, þegar verksmiðjur
norðan lands tóku á móti um
einni millj. mála og mjölfram-
leiðslan var um 21000 smál. Hafa
þá farið í sjóinn um 7000 smál.
af mjöli í soðinu frá skilvindun-
um eða að verðmæti, unnið sem
heilmjöl samkvæmt núgildandi
verðlagi á síldarmjöli, 17,5 millj.
króna.
Norðmenn tóku fyrir nokkrum
árum að hagnýta soðið með eim-
ingu og framleiða soðkjarna, sem
þeir blönduðu saman við pressu-
kökuna og þurrkuðu .þannig og
fengu þá svo kallað heilmjöl. —
Einnig hafa þeir blandað soðinu
beint í hálfþurrkað mjöl og fram-
leiða heilmjöl á þann hátt.
Soðkjarni er bætiefnaríkari
og hefur að geyma meira af
verðmætum köfnunarefnasam
böndum en venjulegt síldar-
mjöl eða fiskimjöl. Markaður
fyrir soðkjarna er einnig að
aukast í Norðurálfu.
2—2,5 SMÁL. Á KLST.
Hallgrímur Björnsson efna-
verkfræðingur, er var verk-
smiðjustjóri í Krossanesverk-
smiðju, er tilraunir hófust, og
Bragi Ólafsson, forstjóri iðnmála-
stofnunarinnar, hafa aðallega
staðið fyrir tilraunum þeim, sem
gerðar hafa verið með hin nýju
tæki hér á landi, og héldu þeir
þessum tilraunum áfram eftir að
þeir gerðust starfsmenn iðnmála-
stofnunarinnar.
Sveinn Guðmundsson, forstjóri
Héðins, skýrði fréttamönnum svo
Úrá, að tæki þau, sem sett hafa
verið upp í Örfiriseý geti unnið
2—2,5 smál. á klukkustund. Sam-
svara þau afköst á að gizka 400
mála verksmiðju, eri éins og fyrr
greinir nemur soðkjarnavinnsla
25% aukningu í mjölframleiðslu
hverrar verksmiðju.
háwm® Pálsson lelknr
Beintein í Sölku Völku
AKVEDIÐ hefur verið, að
Lárus Pálsson leiki. eitt
hlutverkið í kvikmyndinni
Sölku Völku, sem gerð verð-
ur á vegum Nordisk Tonefilm
og Edda Film.
Arne Mattsson leikstjóri,
sem hér var fyrir skemmstu
fór þcss á leit við þjóðleikhús-
stjóra, að Lárus Pálsson fengi
orlof frá störfum sinum við
leikhúsið til þess að taka að
sér hlutverlc í kvikmyndinni.
Lárus var fús til þess að taka
að sér hlutverkið og hefur
hann nú fengið frí frá störfum
um þriggja vikna skeið. Fer
hann utan n.k. þriðjudags-
morgun.
Hlutverkið, sem hann á að
leika, er Beinteinn, sem les-
endur skáldsögunnar kannast
við. Lárus leikur að sjálfsögðu
á sænsku.
Síðustu sýningar á Harvey,
sem er eina leikritið, sem Lár-
us leikur nú í, verða á laugar-
dag og mánudag.
Austurríska skíðafólkið
sigwsælt á HolmenkoIIen
íslendingamir meiddir, svo aðeins 2 þeirra
tóku þátt í mótinu
Fréttabréf frá
Óskari Guðmundssyni.
OPPDAL, Noregi — Vegna snjó-
leysis fór Holmenkollenmótið
ekki fram í Norefjell og Röd-
kleiva einsog ráðgert hafði verið.
Var mótið flutt til Oppdal, norð-
ur undir Þrándheimd.
Brunbrautin var mjög létt og
ráði rennsli úrslitum en tækni
minna. Það var 17 ára gamall
stúdent frá Bandaríkjunum sem
bar sigur úr býtum í þeirri
| keppni.
Svigkeppnin fór fram á laug-
ardaginn. Var brautin mjög erfið
og svo lítill var snjórinn í henni,
að skipta varð uin braut er síðari
umferð hófst.
í stórsvigi kvenna sigraði
kanadisk stúlka, sem aðeins er
15 ára að aldri. Svigbrautin var
sérstaklegá erfið.
Hér eru tveir fslendingar,
Stcindór Jónsson og Jakobína
Jakobsdóttir. Þau urðu aftar-
lega í röðinni í sínum flokk-
um.
Haukur Sigurðsson keppti
ekki hér. Hann tognaði á ökla
á æfingu í Austurríki, en verð-
ur vonandi orðinn góður fyrir
keppnina á heimsmeistara-
mótinu í Áre.
Jón Karl Sigurðsson er fót-
brotinn. Liggur hann í sjúkra-
húsi í Östersund. Það er slæmt
brot, því miður. — Hann fót-
brotnaði í Áre 14. þ. m. Leníi
hann á stöng með fyrrgreind-
um afleiöingum. — Martha B.
Guðmundsdóttir sneri sig og á
fæti fyrir nokkru og mætir
ekki til keppni í mótinu. —
Oddur Pétursson hefur legið
í innfluenzu síðan í janúar.
Hefur hann algjörlega verið
frá æfingum síðan og gat
eklti mætt til keppni í göngu
í Falum.
HELZTU ÚRSLIT
Brun kvenna: — Louise Jaretz,
Austurríki 1:55,0 mín., 2. Trude
Klecker, Austurríki 1:56,4, 3. B.
Mahringer, Austurríki 1:56:7. —*
25. Jakobína Jakobsdóttir 2:09,6
mín. Alls luku 33 stúlkur keppn-
inni. Sú síðasta hafði tímann
2:25,6 mín,
Brun karla: — Wallace Wern-
er, USA 2:13,2 mín., 2. Strolz,
Austurríki 2:13,3, 3. Cuiloch,
Kanada 2:14,3. — 32. maður náðí
tímanum 2:29,0 mín.
Svig kvenna: — 1. Thomasson,
Svíþjóð 2:13,4, 2. Trude Kiecker,
Austurríki 2:13,4, 3. Mahringer,
Austurríki 2:13,5, 4. Hvammen,
Noregi 2:13,6 mín.
Svig karla: — 1. Stein Eriksen,
Noregi 2:16,2 mín., 2. Pravda,
Austurríki 2:17,8, 3. Hintcrseer,
Austurríki 2:21,3. — Steinþór
Jakobsson var með 1:49,6 í fyrrí
umferð og komst ekki í síðarí
umferð. Bezti brautartíminn var
1:07,4 hjá Eriksen.
Stórsvig karla: — 1. Eriksen,
Noregi 2:07,1 mín., 2. Pravda,
Austurríki 2:08,2, 3. Spiess, Aust-
urríki 2:09,1. Austurríki átti og
4., 5., 6., 7. og 9. mann. — Stein-
þór varð 41. með tímann 2:28,8.
Stórsvig kvenna: — 1. Hegg-
veit, Kanada 2:07,5 mín., 2. Nisk-
in, Noregi 2:10,5, 3. Schöpf, Aust-
urríki 2:10,8 mín.
Samgöngur yóðar um iVSorðurland
Dæmi þess að ekki sé farið að kenna
lömbum álið á Hóisfjöllum
Akureyn, 24. febrúar,
ENN eru samgöngur ágætar víðasthvar á Norðurlandi, enda ekkí
nema lítilsháttar snjóföl á jörðu. Nokkurt hríðarfjúk gerði hép
á þorraþræl, en úr því varð ekkert. Annars hefur verið auð jörð
hér langtímum saman. Það mun
allt, þegar komið er fram á góu.
í gær fór jeppabifreið fyrir-
stöðulítið úr Mývatnssveit aust-
ur á Hólsfjöll og þaðan niður
yfir Hólssand niður í Axarfjörð.
Reykjaheiði mun enn fær stærri
bifreiðum, en báðar þessar leið-
ir eru ófærar meginhlúta vetr-
arins.
Þéás ’eru dæmi að ekki er enn
farið að kenna lömbum átið á
Hólsfjöllum, enda hefir beit Ver-
ið þar með ágætum í vetur. Má
einsdæmi að bílfært sé svo um
segja að hvorki hafi verið gef-
inn þar mjölhnefi eða heytugga
í vetur. Það hefir komið fyrip
áður að ekki hafi verið farið að
kenna lömbum átið á þessum tíma
í útsveitum við sjávarsíðuna þar
sem fjörubeit er, en inn í miðju
landi er þetta einsdæmi.
Er þetta eitt gleggsta dæmið
um það, hve fádæma góðan vet-
ur við höfum átt við að búa.