Morgunblaðið - 07.03.1954, Blaðsíða 16
Veðurúilil í dag:
AUhvnss NA. Lcttskýjað.
Samlal
við Jórunni Viðar á bls. 8.
9
Ólag reið á skipið á miðum úti.
ÞAÐ SVIPLEGA slys vildi til í fyrrakvöld á miðum úti, er ólag
reið á togarann Geir frá Reykjavík, að einn skipverjanna,
Níels P. Guðmundsson háseti, til heimilis hér í Reykjavík, beið bana.
)
Togarinn Geir hafði verið á*
veiðum um tvo sólarhringa út af
Snæfellsjökli er slysið vildi til.
Skipverjar voru margir að
vinnu á þilfari. Verið var að
.ganga frá botnvörpunni stjórn-
jborðsmegin, því slæmt veður var
í aðsigi.
Ólagið reið á skipið bakborðs-
xnegin, en þar var Níels heitinn.
lir ólagið var um garð gengið,
Jkom í ljós að Níels hafði hlotið
Jjöfuðhögg, en ekki missti hann
ineðvitundina.
w Var farið með hann niður, og
iionum hjúkrað, en honum
þyngdi skjótt. Togaranum var
þegar siglt áleiðis til Reykjavík-
úr. — Laust fyrir miðnætti lézt
Níels af afleiðingum höfuðhöggs-
ins, en við það mun höfuðkúpan
hafa brotnað.
Togarinn Geir kom hingað til
Reykjavíkur um klukkan 11 í
gærmorgun.
t t
Níels P Guðmundsson var 32
ára, ættaður úr Hnífsdal. Hann
Jætur eftir sig konu, Kristínu
Guðmundsdóttur og misseris-
gamalt barn. Níels var þaulvanur
togarasjómaður og hafði verið á
iogaranum Geir í rúmlega tvö ár.
Hér í bænum átti Níels heitinn
heima að Eskihlíð 29.
Kynning á íslenzkum
hestum í Skollandi
SAMÞYKKT var á Búnaðarþingi
að beina þeim tilmælum til ríkis-
stjórnarinnar, að veitt yrði fé til
kynningar á íslenzkum hestum í
Skotlandi á næsta vori.
Var samþykkt svohljóðandi til-
laga um þetta mál:
„Búnaðarþing óskar eindregið
eftir því að ríkisstjórnin veiti fé
til kynningar á íslenzkum hest-
um, í Skotlandi á næsta vori.
Þetta verði framkvæmt þannig
að keyþtir verði 8 hestar og send
ir út, ásamt kennara í hesta-
mennsku og ráðunaut Búnaðar-
félags íslands í hrossarækt. S'kulu
þeir dvelja í reiðskóla í Skotlandi
um tíma í vor til þess að kynna
þar ágæti íslenzkra hesta og
kenna þar íslenzka hestamennsku
samkvæmt framkomnu tilboði.
Kostnaður við framkvæmd
þessa er áætlaður allt að kr.
60.000.00.“
Matsvemuskóliim
Nú er hver síðastur að sjá hina merku sýningu Jóns Stefánssonar,
sem haldin er í Listvinasalnum við Freyjugötu. Sýningunni lýkur
í kvöld kl. 23.00, og er ekki útlit fyrir, að henni verði framlengt.
! Sýningin hefur verið fjölsótt að undanförnu, og hefur sýningar-
gestum þótt mikill fengur í að sjá nýjustu verk þessa málara. Þess
I skal getið að í dag verður sýningin opnuð kl. 10 f. h. til hægðar-
I auka þeim, er betur eiga heimangengt á þeim tíma dags. Mynd-
in hér fyrir ofan er af einni blómamynd Jóns Stefánssonar.
Erfiðasti dasnirinn við
Togarasjómaður deyr
af völdum höfuðhöggs
uC
mjólkurflutningana í gær
FÆRÐIN Á VEGUM í AUSTUR-
SVEITUM ORÐIN MJÖG SLÆM
INÓTT er leið var unnið í Samsölunni að mjólkurvinnslu, því
svo seint komust mjólkurbílarnir að austan í gærkvöldi. —
Höfðu þeir þá verið á leiðinni frá því eldsnemma um morguninn.
iGóður afli sfðustu
viku hjá Sand-
gerðiibálum
'SANDGERÐI, 6. marz: — Al-
jnenn hafa bátarnir hér róið 4
{s’óðra í viku, þó hafa 2 bátar farið
5 róðra, þeir mb. Mummi og
Hétur Jónsson. Beztur afli var 4.
jþ.m. Þá hafði Mummi 20.285 kg.
Næstir voru Víðir með 17.860 kg.
og Guðbjörg með 15.400 kg. —
Hægsti báturinn var þann dag
jneð 5.700 kg. Vikan hefur verið
flestum bátum góð og hafa 3
æstu bátarnir fengið frá 47.000
g. upp í 67.000 kg. Búist er við
‘íf.lmennu ræði í nótt. f dag beittu
;bátarnir loðnu og er það í fyrsta
þkipti á vertíðinni, annar hafa
'þeir beitt síld. — Axel.
í gær var slíkt fárviðri, að
íullorðnir karlmenn réðu sér
•«?kki í hvössustu byljunum. Einn
‘maður fauk og viðbeinsbrotnaði,
;<én meiðslin eru ekki talin alvar-
tteg. Það var Bessi Guðlaugsson,
eem fyrir þessu slysi varð.
BÁTUR FAUK Á
HAF ÚT
Aftök þessi hafa ollið nokkr-
•um skemmdum hér. Þakplötur
íuku af húsi, sem verið var að
íjárnklæða og árabátur, nokkuð
’titór, sem var hér í fjörunni, um
}30 metra fyrir ofan sjávarmál,
jífannst ekki í morgun, er talið að
SAMGÖNGUMÁLARÁÐUNYT-
IÐ hefur samkv. lögum nr. 82/
1947 um Matsveina- og veitinga-
þjónaskóla og lögum nr. 83/1952
um breytingu á þeim lögum, skip
að til 4 ára Tryggva Þorfinnsson
matreiðslumann sem formann
skólanefndar þess skóla. Aðrir
skólanefndarmenn hafa jafn-
framt verið skipaðir þeir Böðv-
ar Steinþórsson formaður Sam-
bands matreiðslu- og framreiðslu
manna, Pétur Daníelsson varafor
maður Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda, Haraldur
Hjálmarsson varaformaður deild
ar fiskiskipamatsveina innan S.
M. F. og Sigurður B. Gröndal
framreiðslumaður.
Iþróiíagefraun
ÚRSLIT getraunaleikjanna í gær
urðu þessi: 111 — 21x — 222
— 1x2.
hann hafi fokið á haf út og sé
algjörlega glataður.
KAUPSTAÐURINN
MJÓLKURLAUS
Allir vegir tepptust í fyrrinótt
og hefur kaupstaðurinn verið
mjólkurlaus nú í tvo daga. Eftir
hádegið í dag var farið á snjó-
bíl til þess að sækja mjólk að
Laxamýri en þangað er 8 km
leið. Bíllinn er búinn að vera um
tvo tíma og er ennþá ókomin
að Laxamýri. Hér á Húsavík eru
meira en mannhæðarháir skaflar
á götunum og öll umferð teppt.
— Fréttaritari.
Merkjasala Hvíla-
bandsins í dag
í DAG hefur Hvítabarwlið merkja
sölu til ágóða fyrir ljósastofu
sína. Ljósastofan hefur nú starf-
að í 2 ár og verið mikið sótt.
Læknar bæjarins hafa sýnt vel-
vilja sinn í því að vísa þeim börn
um þanðað sem þeir telja aðþurfi
ljósböð, og eru þar nú um 70
börn, enda mikill lasleiki í bæn-
um.
Sá ljóður er á að félagið á ekki
sjálft húsnæði yfir þessa starf-
semi sína, en bærinn hefur sýnt
félaginu þá vinsemd að láta það
hafa húsnæði hingað til, en það
mun ekki hægt framvegis, því
nóg er til af húsnæðislausu. fólki
í bænum,
Það er því takmark Hvíta-
bandsins að ljósastofan fái í fram
tíðinni sitt eigið húsnæði og með
það fyrir augum er efnt til þess-
arar merkjasölu.
Treysta félagskonur bæjarbú-
um til að sýna málefninu velvild
og kaupa merki félagsins er seld
verða í dag.___________
RKi deiid þakkar
Á MERKJASLUDEGI Rauða
Krossins í Keflavíkur- og Njarð-
víkurdeild, seldust merki þar
syðra fyrir kr. 4350.00. Hefur
stjórn deildarinnar beðið Mbl.
að færa sölubörnum þakkir fyr-
ir dugnað þeirra.
Fréttaritari Mbl. á Selfossi
símaði í gærkvöldi, að mjög
erfiðlega hefði gengið í gærdag
að ná mjólkinni saman í sveit-
unum. — í þrjár sveitir varð ekki
komizt: Biskupstungur, Gríms-
r.es og í Laugardalinn. í aðrar
sveitir var færðin mjög þung,
eins austur í Rangárvallasýslu.
Snjóýtur höfðu tæplega við
vegna skafrennings. Bílarnir,
sem fóru austur í Holtin í gær-
morgun, komust til Selfoss milli
kl. 7—8 í gærkvöldi. — Bílarn-
ir, sem voru sendir í Hreppana
voru ókomnir kl. 8.30 í gærkvöldi.
Krísuvíkurvegurinn er snjó-
léttur, en Hellisheiðin er ófær orð
in. Mjólkurbílarnir komust yfir
heiðina um kl. 5,30 í gærdag, en
hingað til bæjarins komu þeir
milli kl. 9—10 í gærkvöldi. Næg
mjólk verður hér í bænum í dag.
Strax og veðrinu slotar, en spáð
er minnkandi norðanátt, munu
snjóýturnár ryðja vegina í aust-
ursveitum.
Á þessum vetri hafa mjólkur-
flutningarnir ekki verið jáfn
miklum erfiðleikum bundnir og
í gær.
Kjölur lagður að
nýjum báli á Akran.
AKRANESI, 6. marz: — f dag
var lagður kjölur að nýjum bát
á dráttarbraut Þorgeirs Jósefs-
sonar á Akranesi. Eigandi báts-
ins sem þarna á að smíða, er sam
vinnufélagið Guðfinnur í Kefla-
vík. — Oddur.
Aframhaldandi slórhrið á
Húsavík, Mjólkurlaus bær
HÚSAVÍK, 6. marz. — f gær og fyrradag hefur geisað mikið óveð-
ur hér á Húsavík. í dag er áframhaldandi stórhríð, þótt veð-
•urhæðin fari minnkandi, er snjókoma sízt minni.
Um IðJðö tenm.
7 í
aí síijó ekið
úr Miðbænum
UNDANFARIÐ hafa daglega um
70 verkamenn unnið að snjó-
mokstri á götum bæjarins og 12
vörubílar, sem við snjóakstur
hafa veríð, hafa flutt úr helztu
umferðargötum í Miðbænum
10.000 teningsmetra af snjó. í út-
hverfum bæjarins hafa snjóýtur
verið að verki, en þar er snjónum
ýtt til hliðar til að gera umferð-
ina greiðari og hættuminni.
Dýnamid hvellhett-
um stollð
í GÆRKVÖLDI var birt viðvör-
un frá hreppstjóranum í Njarð-
víkurhreppi til barna og forráða-
manna þeirra vegna þess að stol-
ið hefir verið úr læstri geymslu
nokkrum hvellhettum, sem þar
voru geymdar. Þær geta verið
hættulegar í meðförum unglinga,
Tveggja ára barn fann eina slíka
hvellhettu í gærdag er það var
að leik skammt frá hreppstjóra-
bústaðnum. Talið er að innbrot-
ið í geymsluna hafi verið framið
í fyrrinótt eða nóttina þar á und-
an.
Stjórnarkjör í FéL :!
ísl. raSvirkja
í DAG verður gengið til stjórnar-
kosningar I Fél. ísl. rafvirkja hér
í bæ. — Um 270 rafvirkjar eru á
kjörskrá. — Stjórn og trúnaðar-
mannaráð félagsins ber fram A-
listann_ og eru efstu menn hans
þeir: Óskar Hallgrímsson, Þor-
valdur Gröndal, Gunnar Guð-
mundsson, Kristján Benediktsson
og Guðmundur Jónsson.
Kjörfundur hefst kl. 2 í dag
og lýkur kl. 10 í kvöld og verð-
ur í skrifstofu félagsins í Eddu-
húsinu við Lindargötu.
Akranesbátarnir i
voru með 135
tonn í gær
AKRANESI, 6. marz: — Afli bát-
anna í gær var samtals 135 tonn
Hæstur var Keilir með 11 % tonn.
16 bátar eru á sjó héðan í dag.
Tveir snéru aftur í nótt. Ekki er
vitað um afla. — Oddur.
SJÁLFSTÆÐISKONUR
Þær sjálfstæðiskonur, sem
ekki eru enn búnar að fá sér að-
göngumiða að afmælisfagnaði
sjálfstæðiskvennafélagsins Hvat-
ar, sem verður í Sjálfstæðishús^
inu á naánudagskvöldið, geta
keypt þá í dag hjá Maríu Maack,
Þingholtsstræti 25.
Skákcmvígið 1
HAFNARFJÖRÐUR
28. leikur Hafnarfjarðar:
Dg5—e3