Morgunblaðið - 31.03.1954, Side 1
16 síður
* 41. árgangur.
75. tbl. — Miðvikudagur 31. marz 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vísindamenn kjarnorkumálastofnunar Bandaríkjanna gera tilraun
með kjarnorkugeislun til geymslu matvæla. Á myndinni sést starfs-
maður stofnunarinnar athuga hylki með geislavirku efni, sem not-
að hefir verið við tilraunir þessar. Geislun þessi kemur í veg fyrir
að matvæli skemmist við geymslu. Hylkinu er komið fyrir í kerið
(framan til á myndinni), sem í eru matvæli. Nokkrar ámóta til-
raunastöðvar eru til í landinu.
Forsætisráðhern hvarf inn
í frumskógana fi! ai hugsa
ÞAÐ er fágætt, að forsætis-
ráðherra hverfi algerlega dög-
um saman, svo að enginn viti,1
hvert hann fer. Þetta bar við
á Gullströndinni nú fyrir
skömmu, en landið er í þann
veginn að fá sjálfstæði. For-
sætisráðherrann Kwame
Nkrumah dró sig út úr skark
ala heimsins, inn í frumskóg-
ana, til að hugsa málefni lands
síns í einveru og næði, og þar
ráðgaðist hann við guði sína
um væntanlegar kosningar og
framtíð landsins. Minnir þetta
dálitið á atburð úr íslendinga-
sögunni.
KOM RAKLEITT
ÍI’. FANGELSI
Gullströndin hefur unnið
stjórnarfarsfrelsi sitt furðan-
Iega hávaðalítið. Að vísu var
nokkur ókyrrð með verkföll-
um í landinu 1948 auk þess
sem stjórnmálaforingjar þjóð-
arinnar hafa setið í svartholi
við og við, en 1949 var sctt á
stofn löggjafarsamkunda, þar
sem flestir fulltrúanna voru
þjóðkjörnir. Forsætisráðherr-
ann Kwame Nkrumah kom
rakleitt úr fangelsi upp í ráð-
herrastólinn.
LAUT BRETUM FRÁ 1871
Innan skamms verður kosið
til stjórnlagaþings á Gull-
ströndinni, og úr því verður
landið sjálfstætt.
Portúgalar fundu Gull-
ströndina eða Kakó-Iand á 13.
öld, og á næstu öldum stofn-
uðd þeir þar verzlunarstöðvar
ásamt Englendingum og Döu-
um. Um skeið laut landið IIol-
lendingum, en 1871 náðu Bret-
ar því undir sig. Jókst seinna
meir við landið, m. a. þýzka
nýlendan Togo eftir fyrri
heimstyrjöld. Er Kakó-land
nú 238 þús. ferkm. að flatar-
máli, en íbúar 4,4 milljónir.
Um 4000 Bretar eru í landinu.
KAKÓLAND
Ekkert land í víðri vcröld
framleiðir svo mikið af kakó
sem Gullströndin eða yfir
þriðjung alls kakós, sem neytt
er í heiminum. Einnig er fíutt
út ógrynni gulls, gimsteina,
mangans og alúmíns. — Lofts-
lag er ekki betra en svo, að
landið hefur oft verið kallað
„gröf hvítra manna“.
Reyna að felia Hc
CaiHiy frá þing-
mennsku
WASHINGTON, 30. marz: —
Kjósendur í Wisconsin-ríki, sem
McCarthy er fulltrúi fyrir í Öld-
ungadeildinni, vinna að því að
„fá hann heim“.
Einn af leiðtogum repúblikana
í ríkinu sagði í dag, að hann
mundi bjóða sig fram, ef takast
mætti að fella McCarthy frá þing
setu.
Andróður gegn þingmanninum
í kjördæmi hans hefir staðið
nokkrar vikur og fengið góðar
undirtektir.
Vetnisprengja sprengd
í Kyrrahafi s.l. föstudag
Vopn, sem frekar en nokk-
uð annað kemur í veg fyr-
ir 3. heimsstyrjöldina
LUNDÚNUM, 30. marz. — Einkaskeyti frá Reuter-NTB
VETNISPRENGJAN er nú aftur á hvers manns vörum. Það var
tilkynnt í Washington í gær, að önnur tilraun með þetta ægi-
lega vopn hefði verið gerð í Kyrrahafi föstudaginn 26. marz. Tókst
sú tilraun vel, og er ekki kunnugt um nein spjöll af völdum henn-
ar á borð við þau, sem sprengingin olli 1. marz s. 1. Áður en vetm-
sprengjan var sprengd leituðu flug- og flotadeildir kirfilega um
hættusvæðið og notuðu m. a. ratsjá til að ganga úr skugga um,
að enginn lifandi sála væri svo
Stérkosflepr gull-
hindur í Rússaveldi
TOKÍÓ 30. marz — Japanzkir
stríðsfangar, sem komnir eru
heim frá Síberíu, segja frá gull-
æði rússneska ríkisins við Kol-
ymba-fljót, þar sem þýzkir og
japanskir stríðsfangar fundu ó-
hemjumiklar gulllendur eftir
stríð.
Fangarnir segja gulllendur þess
ar feikna víðáttumiklar, og telja
þeir, að þar séu stórar og smáar
gullnámur reknar hundruðum
saman.
Vinnuaflið er ekki ýkja dýrt,
því að fangar eru látnir þræla
í námunum. Fangar þessir eru
frá Eystrasaltslöndum, Rúmeníu,
Tékkó-Slovakíu, Þýzkalandi,
Kína, Ítalíu og Norður-Kóreu.
7. umferðin
varð biðskák
MCSKVU — 7. umferðin í
heimsmeistarakeppninni í
skák var tefld í dag, og fór
hún í bið eftir 41 leik. — Skák
in verður tefld í dag en 8.
umferð á morgun. — NTB.
nærri, að hlotið gæti tjón af.
'AFSKIPTI BRETA
ÓHYGGILEG
Vetnisprengjan var á dagskrá
í brezka þinginu í dag.
Churchill, forsætisráðherra,
komst svo að orði, að það væri
hvorki viturlegt né rétt af Bret-
um, að þeir legðu að Bandaríkj-
unum að hætta tilraunum sínum
með vetnisprengjur.
ENGIN BETRI VÖRN
Hann sagði m. a.: „Við
myndum gera hinum frjálsu
þjóðum hinn rnesta óleik, ef
við á nokkurn hátt reyndum
að tálma bandamönnum okk-
ar í Vesturheimi, er þeir
vinna að endurbótum þessa
stórkostlega vopns. Ekkert er
betri vörn gegn því, að þriðja
heimstyrjöldin skelli á en
þetta vopn.“
VÍSINDAMENN ÞEKKJA
ÁHRIF SPRENGJUNNAR
Að sjálfsögðu sagði ráðherr-
ann, að vitneskja Breta um þess-
ar tilraunir Bandaríkjamanna
hlytu að vera af skornum
skammti. Churchill sagði líka
Breta vita af eigin reynslu, að
það væri úr lausu lofti gripið,
þegar því væri haldið fram, að
þeir, sem tilraunir þessar hefðu
með höndum gætu engin tak-
mörk sett krafti sprengjunnar og
vissu ekki fyrirfram, hver áhrif
hennar yrðu.
Hundrað Danir skilja við konur
sínar á brúðkaupsdaginn
Um 200 þúsund
manns flýja
fléðin
BAGDAD 30. marz — Höfuðborg
Iraks er enn í mikilli hættu
vegna flóða. Verkfræðingar, her-
menn og sjálfboðaliðar vinna að
því nótt og dag að treysta flóð-
garða kringum borgina.
Læknar og hjákrunarkonur
hafa ærinn starfa með höndum,
hafa 200 þús. flóttamenn þyrpzt
til borgarinn frá nærliggjandi hér
uðum, sem liggja undir vatni.
Flóð í Tigris er enn í vexi. Vatn
ið sjatnaði lítillega á mánudag,
og vonuðu menn, að hættan væri
liðin hjá, en það fór á aðra lund.
Tjón af völdum flóða er metið
á 2000 milljónir króna. Ýmis iðju
ver landsins eru stórkemmd.
Sífellt er unnið með jarðýtum
við flóðgarðana, og sandsekkjum
er slyndrulaust hlaðið upp þar,
sem helzt þykir hætta á ferðum.
— Reuter-NTB
r r
4rás Israelsmanna
á þorp í Jórdaníu
LUNDÚNUM, 30. marz: — Vopna
hlésnefnd S.Þ., sem fjallar um
mál ísraels og Jórdaníu, hefir
slegið föstu, að Israelsmenn beri
ábyrgð á árás þeirri, sem gerð
var á þorp í Jórdaníu s. 1. sunnu-
dag. Er sagt, að þar hafi 9 manns
látið lífið.
Nefndin harmar, að þarna hef-
ir saklaust fólk orðið illum ör-
lögum að bráð og skorar á ísraels
menn, að þeir líti slíka atburði
ekki henda öðru sinni.
Diskó í árekstri
KAUPMANNAHÖFN — Nýlega
lenti danska Grænlandsfarið
Diskó í árekstri í Sagerak. Skipið
var á leið til Grænlands, en varð
ekki fyrir miklum skemmdum.
★ KAUPMANNAHÖFN, 30.
’marz: — Ókvæntir ríkisstafs-
menn í Danmörku hafa heldur
en ekki nýstárlega ráðagerð
á prjónunum til að fá kaup-
hækkun.
4r Þeim gazt ekki að því fyrir-
komulagi, að kvæntir menn
skuli fá hærri laun en stöðu-
nautar þeirra, sem ókvæmtir
eru. Því hafa þeir einsett sér
að efna til fjöldabrúðkaups;
ætla hundrað þeirra að ganga
í það heilaga í einu.
-Ar Brúðirnar vita fyrirfram, að
þær mundu ekki hreppa rétt-
indi né skyldur eiginkonunn-
ar, því að gengið verður frá
skilnaði, þegar hjónavígslan er
um garð gengin.
★ Enn er ekki fullráðið, hve
nær þetta athyglisverða
fjöldabrúðkaup verður látið
fram fara, en fógeti hefir þeg
ar tjáð sig fúsan til að vígja.
★ í staðinn fyrir brúðkaups-
söngva giftingardaginn verður
útbýtt skilnaðarskilríkjum,
engar Tobiasarnætur, engin
brúðkaupsferð.
★ Eftir skilnaðinn geta brúð- *
gumarnir tekið laun, eins og
þeir eigi fyrir konu að sjá.
Gripið hefir verið til þessa
tiltækis í andmælaskyni, svo
að yfirvöldum megi eftirminni
legt verða, hve launafyrir-
komulag þetta er vafasamt.
★ Potturinn og pannan í þess
ári giftíingarsögu er mikils
metinn ríkisstarfsmaður, sem
ekki vill láta nafns síns getið
að sinni. — NTB.
NÝJAR SPRENGINGAR
í APRÍL
Þá vék ráðherrann máli sínu tíl
þeirra manna, sem vilja, að frek-
ari tilraunir séu undir alþjóð-
legu eftirliti. Sagði hann, að
bandarísk lög gerðu slíkt ófram-
kvæmanlegt. En jafnvel þótt svo
væri ekki, mundi hann fyrir sitt
leyti ekki vera því hlynntur.
Frekari tilraunir sagði ráð-
herrann, að yrðu gerðar í apríl.
Vonaði hann, að Bretar fengju
að fylgjast með þeim veigamiklu
tilraunum að því leyti, sem það
samrýmdist bandarískum lög-
um.
ÞÁTTUR ALLSHERJAR-
AFVOPNUNAR
Churchill sagði það út í blá-
inn að tala um að takmarka
hagnýting kjarnorkuvopna einna.
Aftur á móti kæmi takmörkun
kjarnorkuvopna til greina, ef
leitað yrði samkomulags um alls-
her j araf vopnun.
Vestrænar þjóðir hafa oftsinn-
is reynt að fá afvopnun fram-
gengt, en það væri barnalegt að
ætla, að verulegur árangur næð-
ist fyrr en þjóðirnar bæru meira
traust hver til annarrar en nú er.