Morgunblaðið - 26.05.1956, Qupperneq 16
Veðrið í dag:
SV kaldi eða stinningskaldi, þoku
loft, dálítil rigning eða súld.
V. grein
frá Laugarvatni. Sjá bls. 6.
116. tbl. — Laugardagur 26. maí 1956.
Framboðið
kom 6 mín.
of steint
SIGLUFIRÐI, 25. maí. — Yf-
irkjörstjórn Siglufjarðar úr-
skurðaði í dag samhljóða, að
framboð Kjartans Hjálmars-
sonar kennara, hér, á veg-
um Þjóðvarnarflokksins væri
ógilt, vegna formgalla.
Hefði Kjartan fengið til-
skilda tölu meðmælenda, en
skilaði framboði sex mínút-
um eftir kl. 12 á miðnætti
þann 23. þessa mánaðar, eða
sex mínútum of seint, eftir
viðkomandi lagabókstaf.
Áskildi Þjóðvarnarmaður-
inn sér rétt til að áfrýja úr-
skurði þessum til landskjör-
stjórnar. Frambjóðandinn sem
er afkomandi Bólu-Hjálmars,
kastaði fram þessari stöku er
hann heyrði úrskurðinn:
Frambjóðandans fylgi vex
finnst þeim hinum stóru.
Mínúturnar segja sex
sem að umfram voru.
— Stefán.
Glæsilegasti stjórnmnhifimdur
d Akureyri
Yfir 500 manns fagna frábærri
ræðu forsætisráðherra
SÍÐASXL. fimmtudagskvöld var haldinn geysifjölmennur fundur
í Nýja-Bíói á Akureyri, sem Sjálfstæðisfélögin þar höfðu boðað
til. Er þetta fjölmennasti stjórnmálafundur, sem haldinn hefur
vcrið á Akureyri. Hvert sæti í húsinu var skipað og fjöldi manns
varð að standa og það jafnvel utan við húsið, en þar var komið
fyrir gjallarhornum. Talið er að yfir 500 manns hafi verið á fund-
inum. Frummælendur voru Ólafur Xhors forsætisráðherra, og al-
þingismennirnir Jónas G. Rafnar og Magnús Jónsson. Árni Jónsson
tilraunastjóri, form. Sjálfstæðisfélags Ak., setti fundinn og nefndi
Sverri Ragnars kaupmann til fundarstjóra.
Pou! Hansen —
landvarnaráðberra
KAUPMANNAHÖFN, 25. maí —
Poul Hansen var s.l. miðvikudag
skipaður landvarnarráðherra
Danmerkur. Tók hann við em-
bættinu af Rasmus Hansen, sem
tilkynnti H. C. Hansen s.l. þriðju-
dag, að hann yrði að láta af em-
bætti vegna heilsubrests. Poul
Hansen hefir setið á þingi frá
1945, og starfað um margra ára
skeið í Jafnaðarmannaflokknum.
Hefir hann Jengi verið einn helzti
ráðgjafi flokksins í utanríkis-
MOSKVU. — Elízabetu Eng-
landsdrottningu og hertoganum
af Edinborg hefir verið boðið
til Moskvu. Bulganín og Krús-
jeff buðu þeim til Rússlands,
er þeir voru á ferð um Bretlands-
eyjar fyrir skemmstu.
RÆDA
FORSÆTISRÁÐHERRA
Ólafur Thors forsætisráðherra
hélt þróttmikla ræðu. Ræddi
hann sérstaklega framkomu Fram
sóknarflokksins og hið óvenju-
lega viðhorf, sem skapazt hefði í
íslenzkum stjórnmálum með
stofnun Hræðslubandalagsins. Þá
ræddi hann ýtarlega Jandhelgis-
málin og varnarmálin. Var máli
forsætisráðherra frábærlega vel
tckið af fundarmönnum.
RÆÐA
JÓNASAR RAFNAR
Jónas G. Rafnar alþingismaður
ræddi sérstaklega hagsmunamál
Akureyrarbæjar og hverja af-
greiðslu þau hefðu fengið á Al-
þingi. Bar atvinnumálin þar
hæst. Var gerður góður rómur
að máli lians.
Gott heilsufar ®
I SKYRZLU frá skrifstofu borg-
arlæknis, um heilsufar bæjarbúa
í byrjun þessa mánaðar kemur
fram að ekki" hafa neinar pest-
ir verið á ferðinni undanfarið
því ekki getur það talizt annað
er um kvefsótt að ræða og kvef-
sóttarsjúklingar eru aðeins 60—80
og flenzutilfelli innan við fimm.
Frábært námsafrek íslenzks
námsmanns í Kanada
FREGNIR hafa borizt vestan frá Winnipeg, að ungur íslendingui
Björn Sigurbjörnsson, hafi unnið mikið námsafrek, er hann
brautskráðist frá Manitoba háskóla. Björn er sonur þeirra Sigur-
tjörns Þorkelssonar kirkjugarðsstjóra og konu hans Unnar Har-
aidsdóttur.
RÆÐA
MAGNÚSAR JÓNSSONAR
Magnús Jónsson alþingismaður
ræddi aðallega atburði þá er
gerzt höfðu síðustu mánuðina í
stjórnmálum okkar og einkum
samvinnuslit Framsóknarflokks-
ins við Sjálfstæðisflokkinn. —
Gerði hann glögga grein fyrir
hringlandahætti Framsóknar-
manna og málefnaþurrð Hræðslu
bandalagsins. Ræðu hans var vel
fagnað.
ÞÖKKUÐU ÞINGMANNI
GÓÐA FORYSTU
Auk frummælenda tóku til
máls Helgi Pálsson, Guðmundur
Jörundsson, Árni Jónsson, Gunn-
hildur Ryel og Árni Ásbjörnsson
bóndi í Kaupangi. Viku þessir
ræðumenn einkum að málefnum
Akureyrar og þökkuðu þing-
manni bæjarins góða forystu
þeirra á Alþingi. Hétu þeir á
Sjálfstæðismenn að starfa vel og
ötullega í kosningum þeim, sem
framundan eru.
í Iok fundarins þakkaði fund-
arstjóri Sverrir Ragnars fundar-
mönnum frábæra fundarsókn og
sér í lagi Ólafi Thors fyrir kom-
una til Akureyrar. Fundurinn
stóð fram yfir miðnætti.
Dr. Sveinn Þórðarson.
Vormóf S.U.S. á Selfossi
SAMBAND UNGRA SJÁLF-
STÆÐISMANNA efnir til vor-
móts í Selfossbíói í kvöld kl. 8,30.
Þar flytja ræður og ávörp Ás-
geir Pétursson, formaður S.U.S.,
frú Ragnhildur Helgadóttir og dr.
Sveinn Þórðarson. Er væntanlegt
fjölmenni af Suð-Vesturlandi til
vormótsins, enda hefur verið vel
til þess vandað.
. DAGSKRÁ MÓTSINS.
Vormótið hefst með því, að
Ásgeir Pétursson, form. S.U.S.
setur það með ávarpi. Þá syng-
ur frú Þuríður Pálsdóttir ein-
söng. Frú Ragnhildur Helga-
dóttir, sem skipar fimmta sæti
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík, flytur ávarp.
Jón Sigurbjörnsson syngur ein-
söng. Dr. Sveinn Þórðarson,
skólameisUiri, sem er 3 mað-
ur á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Árnessýslu, flytur
ræðu. Gestur Þorgrímsson fer
með gamanvísur og frú Þuríður
Pálsdóttir og Jón Sigurbjörns-
son syngja tvísöng. Að lokum
leikur hin vinsæla hljómsveit
Björns R. Einarssonar fyrir dansi
til kl. 2.
VORMÓTIN VINSÆL.
Samband ungra Sjálfstæðis-
manna hefur nú haldið nokkur
vormót sunnan og vestanlands,
og hafa þau öll tekizt frábær-
lega vel. Má fullvíst telja, að
vormótið á Selfossi verði hinum
ekki síðra, þar sem þegar er
vitað um mikla þátttöku ungs
fólks víðs vegar af Suður og
Vesturlandi.
Rannveig segir sig
úr Framsókn
RANNVEIG Þorstelnsdóttir hef-
ur nú sagt sig úr Framsóknar-
flokknum vegna setu sinnar á
framboðslista Alþýðuflokksins.
Og nú segist hún vera endur-
fædd. Nú geti verkafólk og laun-
þegar í Reykjavík rólegir kosið
sig. Ætlar niðurlæging Alþýðu-
flokksins aldrei að taka enda?
Ásgeir Pétursson.
HLAUT GULLVERÐLAUN
Björn hefur verið við nám í
Björn Sigurbjörnsson
búvisindum við Manitoba háskóla
undanfarin fjögur ár. Hahn út-
skrifaðist þann 18. maí og varð
efstur í sinni deild með ágætis-
einkunn. Hlaut hann gullverð-
laun háskólans fyrir frammistöð-
una. Þetta er i þriðja skiptið.
sem hann er efstur í sinni deild
og hefúr hann einu sinni áður
hlotið verðlaun.
Fyrir nokkru fékk hann styrk
frá Rannsóknarráði Kanada-
stjórnar en sérgrein hans er kyn-
bætur fóðurjurta. Hann mun
vinna að frekari rannsóknum i
sumar og næsta vetur, er hann
ráðinn kennari við háskólan,
en hefur í hyggju að ljúka meist-
araprófi næsta vor. Björn hefur
samt ákveðið að því loknu að
hverfa heim til íslands aftur þó
að honum bjóðist stöður erlendis.
Björn Sigurbjörnsson er giftur
Helgu Pálsdóttur, Jóhannessonar
verzlunarstjóra og konu hans
Unnar Einarsdóttur. Hefur Helga
verið bókavörður við íslenzku
deil bókasafns Manitoba-háskóla.
Hraða verður
gróðursetmngu
í Heiðmöi k
Á AÐALFUNDI Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur sem haldinn
var fyrir nokkru, var að sjálf-
sögðu mikið rætt um Heiðmörk
og gróðursetninguna þar. Ræddu
þeir um þetta starf, formaður
félagsins, Guðmundur Marteins-
son og framkvæmdastjóri þess
Einar G. E. Sæmundsson.
Einar sagði að hann myndi
leggja áherzlu á að reyna að
hraða vorstörfunum í mörkinni
og átti þar við starf landnem-
anna. Því fyrr sem gróðursetn-
ingunni verður lokið, því væn-
legri árangur ætti að verða í
aligóðu sumri.
Nú hafa nokkur félög undan-
farna daga komið í Heiðmörk
og hafa sum lokið gróðursetn-
ingunni í ár og sýnt mikla alúð
við gróðursetninguna. Það er
mjög mikilvægt, kom fram á
aðalfundi Skógræktarfél. Reykja-
víkur, að fólk reyni að fara mjúk-
um höndum um trjáplöntunar.
Sumardvalarheimili mæðra
os barna að Hlaðgcrðarkoti
BYGGINGARNEFND Mæðrastyrksnefndar bauð fréttamönnum í
gær að skoða hið nýja sumardvalarheimili mæðra og barna,
er Mæðrastyrksnefnd hefur nú látið reisa í Reykjahlíðarlandi í
Mosfellssveit og hefur hlotið nafnið Hlaðgerðarkot, eftir þvi býli,
er þar var. Framkvæmdir við byggingu þessa hófust seinni hluta
sumars 1953, og mun heimilið taka til starfa í sumar. ,
LEIGUHUSNÆÐI
FRAM TIL ÞESSA
Formaður byggingarnefndar-
innar, frú Auður Auðuns, skýrði
svo írá, að Mæðrastyrksnefndin
hafi í 20 ár starfrækt slík sumar-
dvalaheimili í leiguhúsnæði, að
undanteknum tveim síðustu ár-
um, að starfsemin féll niður,
vegna þess að ekkert viðunandi
húsnæði fékkst. Hefur nefndin
lengi haft í huga að eignast slíkt
heimili og í september 1947 sam-
bykkti bæjarráð að gefa nefnd-
Inni kost á einum hektara lands
' Hlaðgerðarkoti.
VERKINU HEFUR MIÐAÐ
VEL ÁFRAM
Teikningar voru gerðar að hús
nu á teiknistofu landbúnaðarins
->g Mæðrastyrksnefnd að kostnað
arlausu. Strax og fjárfestingar
.eyfi fékkst hófust framkvæmd-
irnar. S.l. sumar gaf Hitaveitan
vilyrði fyrir heitu vatni og var
það lagt í húsið í vetur. Er bygg-
ingin nú svo langt komin, að að-
eins er eftir að ganga frá því smá-
vegis innanhúss.
GLÆSILEG BYGGING
Hús þetta er 400 fermetrar og
ætlað 30 gestum. Byggingin eins
og hún er nú kostar um 850 þús-
und. Hefur nefndin fengið bygg-
ingarstyrki frá ríki og bæ, en
annað fjármagn er úr sjóðum
nefndarinnar. í húsinu eru íbúð
fyrir starfsfólk, 10 svefnherbergi
fyrir gesti, stórt eldhús, þvotta-
hús, geymslur, stór borð- og dag-
stofa, skrifstofa og snyrtiher-
hergi. Er það í alla staði hið glæsl
egasta.
IÆÐRABLÓMIÐ
Á morgun er hinn svokallaðl
Mæðradagur“, sem er merkja-
jöludagur Mæðrastyrksnefndar
og aðal tekjulind sumarstarfsem-
innar. Þann dag eru mæðra-
blómin seld á götum bæjarins.
Einnig hafa blómaverzlanir opið
þennan dag og rennur hluti
blómasölunnar til Mæðrastyrks-
nefndar. Að þessu sinni verða
mæðrablómin afgreidd kl. 9 á
sunnudagsmorgun til sölubarna í
öllum barnaskólum bæjarins og
einnig í skrifstofu nefndarinnar,
Laufásvegi 3.