Morgunblaðið - 24.02.1957, Síða 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudaffur 24. febr. 1957
Málefnalegar hrakfarir kommúnista
á fjölmennum fundi í Tré-
smiöafélagi Reykjavíkur
Trésmiðir fordæma pólitiska
misnotkun kommúnista i félaginu
IFYRRAKVÖLD var haldinn
félagsfundur í Trésmiðafélagi
Reykjavíkur. Var fundur þessi
haldinn í baðstofu iðnaðarmanna
og mun vera fjölmennasti fund-
ur, sem haldinn hefur verið í
félaginu um árabil. Boðaði hin
kommúniska stjórn félagsins til
fundarins bersýnilega í því skyni
að bæta vígstöðu sina í stjórn-
arkosningum þeim í félaginu, sem
hófust í gærmorgun. Þessi hug-
mynd stjórnarinnar fór algerlega
út um þúfur. Þótt flokksskrif-
stofa kommúnista hefði smalað
á fundinn öllu því liði í félag-
inu, sem fáanlegt var til að
klappa fyrir kommúnistum, þá
áttu þeir sízt meira fylgi á fund-
inum en lýðræðissinnar.
þessu stærsta félagi iðnaðar-
manna sem tæki í stjórnmálabar
áttu kommúnista í landinu. —
Þessu hlutverki sínu hefðu þeir
verið trúir. Við mörg tækifæri
hefðu þeir misnotað nafn félags-
ins og aðaláhugamál þeirra hefði
verið að tryggja sér sem sterkasta
aðstöðu í félaginu. Félagsmálin
hefðu algerlega orðið útundan,
enda heppilegast fyrir hina
kommúnisku forustu, að félags-
menn hefðu almennt sem minnst-
an áhuga á málefnum félagsins.
TRÉSMIÐIR SAMEINAST TIL
VARNAR í FÉLAGI SÍNU
Fundur þessi sýndi glöggt
hversu sterkan hljómgrunn á hjá
trésmiðum sú barátta, sem lýð-
ræðissinnar í félaginu hafa nú
hafið gegn hinni pólitísku mis-
notkun kommúnista á félaginu.
Trésmiðir munu í þessum stjórn
arkosningum tryggja það, að fé-
Iagi þeirra verði ekki framvegis
beitt fyrir stríðsvagn kommún-
ista, heldur verði þar starfað í
friði og samheldni að því, að
skapa á ný blómlegt félagslíf og
gera félagið að þelm hagsmuna-
samtökum, sem því er ætlað að
vera.
Sigur B-listans er fmmskilyrði
þess, að svo megi verða.
Ólafur ÞórÖarson
frá Laugahóli sextugur
LÍFEYRIS S JÓÐURINN
Stjórn félagsins notaði þá
átyllu til fundarboðunar, að taka
þyrfti ákvörðun um stofnun líf-
eyrissjóðs í félaginu. Þetta mál
var þó svo illa undirbúið, að úti-
lokað var að afgreiða það á
fundinum, og var samþykkt til-
laga frá Magnúsi Jóhannessyni
um að íresta málinu og fjölrita
tillögurnar til nánari athugunar
fyrir félagsmenn.
KOMMÚNISTAR RÖKÞROTA
Að öðru leyti snerist fundurinn
um kosningarnar. Af hálfu lýð-
ræðissinna töluðu þeir Magnús
Jóhannesson, Guðni Árnason,
Karl Þorvaldsson og Guðmundur
Guðnason. Deildu þeir með sterk
um rökum á hina kommúnisku
stjórn félagsins og sýndu fram
á, hvernig hagsmunamál félags-
manna hafa verið látin sitja á
hakanum fyrir pólitískri mis-
notkun á félaginu í þágu komm-
únista.
Innheimta félagsgjalda er í megn
ustu óreiðu, málfundadeild og
pöntunarfélagi, sem áður störf-
uðu innan félagsins hafa kom-
múnistar komið fyrir kattarnef
og eftirlit með vinnu ófaglærðra
manna i iðninni hefir gersamlega
verið vanrækt.
FÉLAGIÐ BARÁTTUTÆKI
KOMMÚNISTA
í niðurlagi mjög greinagóðrar
yfirlitsræðu Magnúsar Jóhannes
sonar um þróun félagsmálanna
undir stjórn kommúnista, sem
kommúnistar treystust ekki til að
hrekja, sýndi hann fram á það,
að kommúnistum í félaginu hefði
af flokksforustunni verið falið
að ná félaginu á sitt vald og beita
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON, fram-
kvæmdastjóri Jökla h.f. er
sextugur í dag.
Ólafur er búfræðingur að
menntun, en snemma hneigðist
hugur hans að útvegs- og verzl-
unarmálum. Um tvítugt settist
hann að á Akureyri og var um
10 ára skeið í þjónustu hins al-
kunna athafnamanns Ásgeirs
Péturssonar. Á vegum hans fór
Ólafur til Noregs til þess að
kynna sér síldarverkun, niður-
suðu og niðurlagningu á síld.
Var hann svo jöfnum höndum
verkstjóri á Siglufirði á sumr-
um og verzlunarmaður við hinn
mikla atvinnurekstur Ásgeirs.
Um skéið rak Ólafur hraðfrysti-
hús á Siglufirði í félagi við
Gústav bróður sinn og Jón Ás-
geirsson. Einnig var hann við-
riðinn rekstur á fleiri frystihús-
um og síldarsöltun.
Ólafur hefur verið búsettur í
Reykjavík síðan um 1930. Hann
var einn af helztu forgöngu-
mönnum stofnunar Sölumiðstöðv
ar Hraðfrystihúsanna og á sæti
í stjórn hennar. Var hann ráð-
inn framkvæmdastjóri Jökla h.f.
við stofnun þess fyrirtækis og
hafði eftirlit með smíði' kæli-
skipsins m.s. Vatnajökuls.
Jöklum h.f. hefur vegnað vel
imdir stjóm Ólafs og hefur starf-
semi félagsins haft ómetanlega
þýðingu fyrir viðgang hraðfrysti-
húsanna og fyrir sjávarútveginn
í heild.
Árið 1947 fór hann ásamt Vil-
hjálmi Finsen, sendiherra, til
Finnlands á vegum ríkisstjómar-
innar, sem kunnugur maður síld-
arverzlun. í þeirri för gerðu þeir
samning um mikla síldarsölu
þangað. Var sá samningur upp-
haf að hinum hagstæðu viðskipt-
um, sem síðan hafa haldizt milli
þessara vinaþjóða.
Einnig hefur hann átt sæti af
hálfu íslendinga í samninga-
nefndum um viðskiptamál við
Pólverja.
Ólafur er ekki einungis laginn
í viðskiptum og framkvæmdum,
heldur er hann og mjög hug-
vitssamur. Hafa margir notið
góðs af því í nýjungum við út-
búnað og vinnutilhögun í hrað-
frystihúsum og á fiskvinnslu-
stöðvum.
Það sannast á Ólafi, að mað-
urinn lifir ekki á brauði einu
saman. Ólafur er mjög íróður
í íslenzkum bókmenntum, vel
hagmæltur og orðhagur, enda á
hann ekki langt að sækja þessar
gáfur, því að hann er sonur
hinna þjóðkunnu hjóna Þórðar
Jónssonar formanns og útvegs-
bwida að Laugabóli og Höllu
Eyjólfsdóttur, skáldkonu og
fiændi Matthiasar Jochumsson-
ar.
Á efstu dögum þjóðskáldsins
dvaldi Ólafur á Akureyri og
hafði Matthías hinar mestu
mætur á þessum unga frænda
sínum og getur hans vinsamlega
í endurminningum sínum.
Það mun allra manna mál, sem
þekkja Ólaf Þórðarson, að ekki
geti meiri aufúsugest en hann,
hvort sem er í fjölmennum sam-
kvæmum eða í fámenni í heima-
húsum, né gestrisnari mann heim
að saekja. Hann kann góð skil á
mörgu, er ófeiminn og glettinn,
en þó pfúður og háttvís í fram-
komu. Á hann því marga vini
og kunningja, sem munu senda
honum hlýjar kveðjur og hugs-
anir á þessum merkisdegi æfi
hans. Ólafur er nú á ferðalagi er-
lendis, staddur á Palace-hóteli í
Kaupmannahöfn.
Óskum vér honum fararheilla,
góðrar heimkomu og þökkum
honum fyrir margar ánægjulegar
samverustundir. Megi hann njóta
góðrar heilsu og langra lífdaga.
Sveinn Benediktsson.
„Utanflokkalistinrí'
ÞEGAR kommúnlstar birtu framboðslista slnn í Iðju í Þjóðvilj-
anum á dögunum, var áherzla á það lögð ,að þar væri einkum
um utanflokkamenn að ræða, þótt einhverjir aðrir hefðu fengið að
fljóta með. Að sjálfsögðu skildu alUr orsakir þessarar hógværðar,
því að óneitanlega er herbragðið gamalkunnugrt, og ekki tekið alvar-
lega lengur. Hins vegar þótti mönnum það ágætt, að Þjóðviljlnn
skyldi sjálfur verða til þess að svipta fíkjublaðinu frá og sýna
kommúnistanektina. Gerði blaðið það á ýmsan hátt í gær, en þó
einna skýrast i eftirfarandi forsíðuklausu, þar sem „utanflokka-
mennimir41 auglýsa skrifstofu sína í flokkshreiðri kommúnista og
t«lj* samvizkusamlega upp alia sima Sósialistaflokksius.
Hljóðfæraleik-
arar, hvers ina
vænta á aðal-
fundi ?
SAMKVÆMT auglýsingu
stjórnar Félags íslenzkra hljóð
færaleikara, verður aðalfund-
ur félagsins haldinn næstkom
andi fimmtudag.
Ég vil vekja athygli allra
félagsbundinna hljóðfæraleik-
ara á, að aðalfundur þessi mun
að öllum líkindum verða sögu
legasti fundiur í félaginu fram
að þessu.
Bæði er það, að mörg verk-
efni bíða úrlausnar og svo
hitt, að þeir atburðir hafa
gerzt í málum félagsins und-
anfarna mánuði, að hverjum
einasta hljóðfæraleikara ætti
að vera kappsmál, að fá að
heyra allan sannleikann í þess
um málum, áður en lengra
verður haldið.
Þá má einnig minnast á til-
lögur þær til lagabreytinga, er
stjórnin hefir sent félagsmönn
um. Þar kennir margra nýj-
unga, sem vafasamar teljast,
svo eklti sé meira sagt.
Það er því mjög áríðandi, að
félagsmenn greiði upp skuldir
sínar til síðustu áramóta, og
komi þannig félagsskírteini
sínu í lag. Með því einu njóta
þeir fullra réttinda á fundin-
Hermann vílir sjálfan
sig og Sieingrín
búnaðarmálasljóra
Á BÚNAÐARÞINGI í fyrradag
blöskraðist Hermann Jónasson,
landbúnaðarráðherra, út af því
að tilraunastarfsemi í þágu land.
búnaðarins hefði ekki verið efld
nógu mikið á undanförnum ár-
um. Bændur hefðu verið „stór-
skaðaðir" með þessu tómlæti. —
Tók H. J. svo sterkt til orða, að
hann yrði ekki lengi við völd, ef
ekki yrði gert stórt átak í þessu
efni.
En hverjir eru það, sem hafa
„stórskaðað" bændur með tóm-
læti um að efla tilraunir? Er það
ef til vill arfur frá Ólafi Thors?
í þessu sambandi skaðar ekki að
benda á að sl. 10 ár hafa Fram-
sóknarmenn farið með landbún-
aðarmálin í ríkisstjórnum. Fyrst
Bjarni heitinn Ásgeirsson, síðan
Hermann Jónasson sjálfur í 4—5
ár og loks Steingrímur búnaðar-
málastjóri.
Það sýnist glöggt að þessi „arf-
ur“ er frá landbúnaðarráðherr-
um Framsóknar og ætti það arfs-
mál þess vegna ekki að vera svo
mjög flókið viðureignar.
Horska vorsíldveföin
BERGEN, 22. febr. — Um mið-
nætti s. 1. voru komnir á land
1,2 millj. hektólítrar af vorsíld
að verðmæti 24 millj. n. kr.
Hljóðfæraleikari.
Fólag anstfirzkro kvenna 15 óra
Merkileg líknarstarfsemi félagsins
AÐALFUNDUR Félags aust-
firzkra kvenna var haldinn 12.
þ. m. að Grófinni 1. Á fundinum
flutti varaformaður félagsins, frú
Anna Johannessen, skýrslu um
störf félagsins á liðnu ári.
Starfsemi þess fer sívaxandi,
en aðalmarkmið félagsins er að
gleðja austfirzka sjúklinga, ekkj.
ur og gamalmenni fyrir jólin, og
á sú starfsemi vinsældum að
fagna. Margir ágætir stuðnings-
menn félagsins styrktu það með
fjárframlögum og vörum á bazar,
sem félagið heldur árlega fyrir
styrktarsjóð sinn. Þess má og
geta, að félagið selur minningar-
spjöld, og rennur ágóði af sölu
þeirra í styrktarsjóðinn. Á sl. ári
var úthlutað kr. 10.356,00 til 145
einstaklinga.
Þá gekkst félagið að venju fyr-
ir skemmtun fyrir aldraðar aust-
firzkar konur, og var yfir 80 kon-
um boðið á síðustu skemmtun fé-
lagsins. Þá má að lokum geta
þess, að félagið hyggst leggja
fram kr. 10.000,00 til Hallveigar-
staða, þegar bygging þeirra hefst.
Hinn 2. janúar sl. var félagið
15 ára. Formaður þess frá upp-
hafi hefur verið Guðný Vilhjálms
dóttir. Aðrar konur í núverandi
Tómstundanáimkeið
í Hafnarfirði
HAFNARFIRÐI. — Á fimmtu-
daginn, 28. þ. m. verður tóm-
stundanámskeið fyrir stúlkur í-
Góðtemplarahúsinu. Hefst það
klukkan 8.
Á námskeiðinu verður unnið úr
tágum og basti, en kennari er
Margrét Sigþórsdóttir. Einnig
verður námskeið fyrir pilta
mánudaginn 25. og verður kennd
flugmódelsmíði. Kennari er Svav
ar Jóhannesson. — Þeir piltar,
sem ætla að sækja námskeiðið,
eru beðnir að mæta í Gúttó
mánudaginn 25. febr. kl. 7,30.
Námskeiðin eru haldin á veg-
um Áfengisvarnanefndar Hafn-
arfjarðar, en hún hélt hliðstætt
námskeið fyrir stúlkur og pilta
fyrir jól, og voru þau vel sótt.
— G. E.
stjórn erú: Halldóra Sigfúsdóttir
ritari, Anna Wathne gjaldkeri,
Anna Johannessen varaformaður,
og meðstjórnendur Sigríður Guð-
mundsdóttir, Snorra Benedikts-
dóttir og Sigríður Lúðvíksdóttir.
í félaginu eru nú 142 konur.
Skók-keppnÍB
I. BORÐ
Svart: Akureyri
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavík
(Ingi R. Jóhannsson)
40. Hg6—g8 og býður jafn-
tefli.
2. BORB
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.-Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
Hvitt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
35___________hl—h3
I leikunum i gær varff misrit-
un. 35. leikur hvíts á 2. borffi áttl
að vera De3—ð. Leikurinn var
hlns vegar rétt færffur á skák-
borðinu.