Morgunblaðið - 24.02.1957, Side 6
0
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 24. febr. 1957
siirifar úr
dagleqa lifinu
Skáld á hljómplötum
ISTUTTU samtali sem blaðið
átti við sænska sendikennar-
ann hér, Bo Almqvist, skýrði
hann frá því, að hann hefði undir
höndum í bókasafni sínu nokkr-
ar hljómplötur með upplestri
sænskra skálda. Lesa þau eigin
verk inn á plöturnar; þær hafa
orðið geysivinsælar, enda er það
svo, að fæstir geta lesið kvæði
skáldanna eins vel og þau sjálf.
Velvakandi minnist þess að hafa
heyrt plötur með Dylan Thomas
og T. S. Elíot, og þrátt fyrir tak-
Athl iia
Verkfrcebiþjónusta
TRAUSTYf
Skóla vörÓus1 ig 38
S/mí 8 2 6 24
markaða enskukunnáttu var það
hið mesta ævintýri að hlusta á
þessi víðfrægu skáld lesa eigin
ljóð. Elíot las t. d. The Waste
Land og Dylan Death shall have
no Dominion. — Honum hefir því
komið til hugar, hvort ekki sé
ástæða til að við eignumst einn-
ig plötur með okkar skáldum,
ungum og gömlum. Mundi það
vafalaust glæða áhuga manna á
góðum skáldskap, auk þess sem
slíkar plötur yrðu hinn mesti
fjársjóður í augum óborinna kyn-
slóða. Hér er auðvitað ekki að-
eins átt við ljóðaskáld, heldur
einnig sagnaskáld. — Hugsið
ykkur, ef við ættum plötu með
Jónasi, þar sem hann læsi t.d.
Sáuð þið hana systur mína. Ég
tala nú ekki um, ef við ættum
plötu með Agli Skallagrímssyni,
þar sem hann læsi Höfuðlausn
með þrumandi rödd! Hér er á
ferðinni mál, sem við ættum að
gefa gaum, áður en það er orðið
of seint.
Bréf frá verkamanni
ERKAMAÐUR skrifar:
„Það var gaman að hlusta
á útvarpsumræðurnar um daginn.
Stjórnin talar um einn hlut og
það er að nauðsynjavörur hækki
ekki. En svo kemur þó hækkun
rétt á eftir að þeir eru búnir
að tala. Halda þessir menn að
landslýður hugsi ekki? Þá fara
þeir nokkuð villir vegar, því
verkamaðurinn verður að hugsa,
hvernig hann á að komast af.
Þess vegna langar mig til að láta
þá fá lítið dæmi frá verkamanni.
Maður með fimm manna fjöl-
skyldu, sem hefur 4 þúsund
krónur í mánaðarlaun borgar í
húsaleigu 1 þúsund krónur, í fæði
2 þúsund krónur og 4 hundruð
krónur í ljós og hita. Þá á maður-
inn eftir að klæða sig og fjöl-
skyldu sína og borga skatta og
ýmsan kostnað vegna heimLisins.
Viljið þið, háu herrar, ekki svara
því, hvemig þetta sé hægt? Þið
hafið þó hagfræðilærðan prófes-
sor í einu embættinu. Hann ætti
að geta svarað einum ólærðum
verkamanni“.
Tónleikar
LO K S er hér bréf frá „Söng-
elskri":
„Kæri Velvakandi!
Fyrir nokkrum árum var stofn-
að tónlistarfélag hér í bæ, sem
hét „íslenzk tónlistaræska". Ég
gekk í félag þetta og borgaði 100
krónur og átti ég að fá miða á
tíu tónleika fyrir þá upphæð. Ég
fékk miða á eina tónleika, en
síðan hef ég aldrei heyrt á þetta
félag minnzt. Á ég ekki heimt-
ingu á mínum peningum fyrst ég
fékk ekki tónleikana?"
Velvakandi vill ekkert um það
segja, en ef forráðamenn „ís-
lenzkrar tónlistaræsku“ hafa á-
huga á að skýra mál sitt hér í
dálkunum, þá er það velkomið.
Þó vil ég bæta því við, að mig
minnir, að „íslenzk tónlistar-
æska“ hafi haldið fleiri en eina
tónleika, hvernig sem á þvi stend
ur, að „söngelsk” hefir farið á
mis við þá.
BÓKA1JT8ALA
ÍSAFOLDAR
Hundruð bóka á stórlækkuðu verði. — Lældcun 20%—50%
Bækur um alls konar efni, svo sem:
Ferðasögur og héraðslýsingar
Skáldsögur, frumsamdar og þýddar
Ævisögur og endurminningar
Þjóðlegur fróðleikur
Ljóða og vísnabækur
Barna og unglingabækur
Sýnishorn:
Sven Hedin: Ósigur og flótti. Áður 48,00 Nú 20,00
Pétur Jónsson: Strandamannabók Áður 60,00 Nú 45.00
Knútur Arngrímsson: Hjólið snýst Kr. 4.00
Símon Dalaskáld: Árni á Arnarfelli Áður 48,00 Nú 35.00
André Maurois: Og tími er til að þegja Áður 40,00 Nú 20,00
Kathleen Norris: Fögur en viðsjál Áður 60.00 Nú 38,00
Ásmundur frá Bjargi: Á sjó og landi Áður 50,00 Nú 38,00
Eiríkur frá Brúnum: Ritsafn Áður 60.00 Nú 38,00
Sigurður skólameistari: Á sal Áður 75,00 Nú 40.00
Douglas Reed: Rödd hrópandans: Áður 30,00 Nú 16,00
Sérstaklega vekjum við athygli á barnabókunum.
Úrvals bækur fyrir sáralítinn pening.
Nákvæm skrá yfir bækurnar er fyrir hendi.
Lítið í gluggana, lítið á bækumar í búðinnr, skoðið bókaskrána,
og sannfærist sjálf um, að hér er bókaútsala sem um munar.
Bókaverzlun ísafoldar
Austurstræti 8 — sími 4527.
Tpnlist ungu mannanna er
hnitmiðuð og ’klár4 í formi
Stutt samtal við Leif Þórarinsson tónskáld
um kynningu nútímatónlistar.
AÐ var skýrt frá því í blöð-
unum nú um daginn, að
nokkrir ungir menn hefðu orðið
við þeirri ósk Tónlistarfélagsins,
að vera því til ráðuneytis um
efnisval á hljómleika þá, sem
flutt verður á nútímatónlist ein-
göngu. Einn þessara man.’.a er
ungt tónskáld, Leifur Þórarins-
son að nafni, sem verið hefur við
nám austur í Vínarborg nú und-
anfarið og einnig í París. Er
hann mikill áhugamaður um að
fólki hérlendis verði gefinn kost-
ur á- að fylgjast með því, sem
er að gerast í tónlistarmálum
úti í heimi.
í dag klukkan 2,30 verða fyrstu
kynningartónleikarnir haldnir í
Lcifur Þórarinsson: Myndiistar-
menn eru langt á undan.
Austurbæjarbíói, eins og skýrt
hefur verið frá í blöðunum.
Það er erfitt að gera grein fyr-
ir nútímatónlist I langri bók og
því útilokað í stuttu blaðavið-
tali. í tónlistarheiminum eru
alltaf að koma fram ný sjónar-
mið, nýjar stefnur, með sína mis-
jafnlega háværu fylgismenn. —
Sumt þeirra manna sem nópast
undir þessi merki eru eflaust
nýjungagjarnar skrafskjóður, en
ætli þær síist ekki úr með tím-
anum? sagði Leifur, er ég hitti
hann að máli fyrir nokkrum dög.
um.
Herbin. Já, það er annars merki-
legt hvað myndlistarmenr.irnir
hér eru langt á undan tónlistar-
mönnum. Tökum t. d. Þorvald og
Ásmund, er ekki fantatiskt að
slíkir menn skuli vera til hér?
Einhverjir munu gefa þá skýr-
ingu, að myndlistin sé svo mikið
eldri á Islandi. Fjandakornið,
það er eitthvað meira og ann-
að. En við ætluðum víst ekki að
tala um myndlist.
FYRST BARTÓK, STRAV-
INSKY OG FLEIRI
— Eigum við þá nú þegar að
snúa okkur að elektrónísku tón-
listinni?
Það verða eflaust dagar og ár
þar til mögulegt verður að heyra
electrónisku tónlistina hér. Þeim
mun meiri þörf er þvi að heyra
það sem bezt er gert fyrir hin
venjulegu hljóðfæri. Það er t. d.
orðin þörf á að við kynnumst
verkum manna eins og Bartók’s,
Stravinsky’s og Schönberg’s o. fl.,
manna sem annars staðar eru
orðnir hálfgerðir klassikerar og
tilheyra liðnum tíma. Eða þá
Weberer’s, sem ber kannske
mesta ábyrgðina á hvað tónlist
ungu mannanna er hnitmiðuð og
klár í formi.
AÐALHLUTVERKIÐ
— Hvernig viltu haga tónlistar-
kynningum, Leifur?
Að mínu áliti er höfuðhlutverk
þessarar nýju „konsertseríu" tón-
listarfélagsins þetta: Að hverjir
tónleikar marki ákveðna stefnu,
hafi ákveðinn boðskap að flytja.
Að hlustendum verði gc.ð full-
komin grein fyrir byggingu og
gerð verkanna, því á annan hátt
er ekki mögulegt að þeir njóti
þeirra. Og í þiðja lagi: að ís-
lenzkir hljóðfæraleikarar komi
fram á tónleikum þessum eins og
mögulegt er. Þar liggur nefnilega
hundurinn garfinn. Það verða að
vera menn, sem eru þáttakendur
í þjóðlífinu sem fjalla um þessa
hluti og af mönnum með getu
til þess eigum við nóg.
— Segðu mér þá, eru íslenzk
tónskáld með nokkuð af nýjum
verkum í fórum sínum?
Jú, þeir eiga það. Ég sé ekki
annað en að fært væri að helga
þeim heilt kvöld með kynningu
á verkum þeirra. Annars stendur
fyrir dyrum íslenzk tónlistarhátið
á vegum Tónskáldafélagsins og
þar verður vafalaust margt
ánægjulegt að heyra, sagði Leif-
ur Þórarinnsson tónskáld að lok-
um.
f DAG
— Hvað er efst á baugi í dag
í tónlistinni?
Það sem efst er á baugi í dag
meðal hinna yngri er electron-
iska músikin. Þ. e. a. s. músik
framleidd með allskonar elec-
troniskum verkfærum og hvað
er svo sem eðlilegra á þessum
tímum óendanlegrar tækni?
Mönnum eins og Pierre Bonlez,
Stockhausen og Herbert Eimert
virðist mér á þennan hátt vera
að takast að skapa nýjan heim,
fullan af möguleikum. Þeir
byggja allir á svonefndri rað-
tækni (reihe teknik), sem stend-
ur föstum grunni á tólftónakerf-
inu sem kennt er við Schönberg.
MYNDLISTARMENN
LANGTÁ UNDAN
í verkum þeirra er hver tónn
veginn og metinn og dettur mér
þar helzt' í hug, til samanburðar,
myndir þeirra Mondrians og
EFNILEGT TÓNSKÁLD
Leifur er sonur hjónanna Þór-
arins Kristjánssonar símritara
og Öldu Möller. Þar neima hef-
ur alla tíð verið lögð mikil alúð
við tónlistina og hvað Leifi við-
víkur hefur málshátturinn: Sjald
an fellur eplið langt frá eikinni,
sannast áþreifanlega. — Þórar-
inn faðir hans var ceiloleikari 1
Hljómsveit Reykjavíkur í gamla
daga. Kennarar Leifs erlendis,
telja hann mjög efnilegan og
sama gildir um tónlistarmenn
hér á landi, að þeir telja miklar
vonir við hann tengdar. Leifur
hefur hlotið viðurkenningu fyrir
tónverk sem hann sendi á al-
heimstónskáldaþing, sem haldið
var í Stokkhólmi síðastliðið vor.
Hann er nú aðeins 22 ára gam-
all. í vor hyggst hann leggja
land undir fót og fara til Kölnar
og vera þar við nám, en þar er
starfandi einna fullkomnasta
„studioið“ fyrir electróniska tón-
list.
Sv. Þ.