Morgunblaðið - 26.10.1957, Blaðsíða 1
1Ö siður og Lesbók
44. áreamgur.
Prentsmiðja Morgunblaðsins-
SjálistæðisllokkurinBi helur borið
gælu til að eila hag sveitanna og
með þ vs unnið alrek í þágu alþfóðar
Réðstefna Sambands ungra
Sjélfstæðismanna usn framtið
iandbúnaðarins seit í gær
í GÆRMORGUN setti formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna,
Ásgeir Pétursson, ráðstefnu um framtíð íslen'zks landbúnaðar, sem
S.U.S. hefur boðað til. Á setningaíundinum flutti formaður Sjálf-
■tæðisflokksins, Ólafur Xhors, ávarp, en siðan voru haldin fræðileg
erindi og rætt um tillögur til ályktunar fundarins.
Þrír forystumenn íslenzkra
búnaðarmála flytja erindi á ráð-
stefnunni. í gær töluðu þeir Árni
G. Eylands, sem ræddi um við-
horf í búnaðarmálum og Guð-
mundur Jónsson skólastjóri, sem
talaði um véltæknina í landbún-
aðinum. í dag talar Haraldur
Árnason ráðunautur um búfjár-
rækt. Þá var í gær farið að Korp-
úlfsstöðum. Snæddur kvöldverð-
ur á heimili borgarstjórans í
Reykjavík og loks voru bæði
síðdegis í gær og í gærkvöldi
fjörugar umræður um tillögur til
ályktana ráðstefnunnar.
í gær voru komnir á ráðstefn-
una 65 fulltrúar úr öllum lands-
fjórðungum.
Erindi og umræður.
Ávörp Ásgeirs Péturssonar og
Ólafs Thors eru birt í heild á öðr-
um stað í blaðinu í dag. Er kosið
hafði verið í nefndir í gærmorg-
un og Árni G. Eylands flutt er-
indi sitt, var fundi frestað til
kl. 2.
Eftir hádegi tók Oddgeir Otte-
sen sveitarstjóri í Hveragerði við
fundarstjórn, og síðan flutti Guð
mundur Jónsson erindi sitt. Að
því loknu mælti Gunnar Sigurðs-
son í Seljatungu fyrir tillögum
til ályktunar fundarins og hóf-
ust síðan miklar umræður um
þær.
Til máls tóku Jón Björnsson,
Bæ, Skagafirði, Haraldur Árna-
son, Sjávarborg, Skagafirði, Ás-
geir Pétursson, form. S.U.S.,
Framh. á bls. 2
SAUD VILL
LEYSA DEILUNA
NEW YORK, 25. okt. — Saud
konungur í Arabíu hvatti í dag
sýrlenzku og tyrknesku stjórn-
irnar til að vinna með honum að
því að leysa deiluna milli þess-
ara tveggja nágrannalanda.
Á fimmtudag ræddi Saud kon-
ungur við tyrkneska ráðherrann
Zorlu um deilu þessa og lausn
á henni.
Sfjórnarskipti í Svíþjóð - Er-
lander myndar minnihLstjóm
Erfiðleikar fyrir dyrum í Svíþjóð
Stokkhólmi, 25. okt.
FRÉTTARITARI NTB hér í borg símar, að sænska samsteypu-
stjórnin hafi í dag verið á síðasta ríkisráðsfundi sínum með kon-
ungi. Snemma i fyrramálið ieggur stjórnin fram lausnarbeiðni sína.
— Sænsku blöðin velta því nú aðallega fyrir sér, hvaða menn komi
í stjórnina í stað fjögurra ráðherra Bændaflokksins. Eru blöðin
ekki á eitt sátt um það, hvaða breytingar verði gerðar á stjórninni.
Fulltrúar á búnaðarráðstefnu SUS. Myndin var tekin á morgun-
fundinum í gær. (Ljósmynd Filman).
Síðdegis í dag kom miðstjórn
Jafnaðarmannaflokksins saman
á fund, auk þingflokks jafnaðar-
manna, og var rætt um stjórnar-
skiptin og hvað við mundi taka.
Einnig var rætt um það, hvernig
minnihlutastjórn jafnaðarmanna
skyldi bregðast við hinum ýmsu
málum, sem kunna að skjóta upp
kollinum, en vafalaust er talið,
að miklir erfiðleikar séu fyrir
dyrum í sænskum stjórnmálum.
Eftir ríkisráðsfundinn gekk
Erlander forsætisráðherra á
fund konungs og ræddi einslega
Stjórnarmyndun í Finn-
landi gengur erfiðlega
Kekkonen leitar hófanna hjá jafnaðarmönnu m.
við hann um veentanlega stjórn-
armyndun.
Ný sfjórn í Frakk-
landi á mánudag?
Mollet biður um truust þingsins
Eisenhower og Macmillan:
Komum Tyrkjum til hjálpar,
ef á þá verður ráðizf
Sameiginleg yfirlýsing gefin út í gær
HELSINGFORS, 25. okt. —
Finnskir jafnaðarmenn lýstu
því yfir í dag, að þeir mundu
ekki gera tilraun til stjórnar-
myndunar, þar eð Tanner
hefði neyðst til að gefast upp
á að mynda nýja stjórn. Eins
og kunnugt er af fyrri frétt-
um, sögðust Bændaflokks-
menn ekki geta tekið þátt i
stjórn, sem Tanner myndaði.
Aftur á móti væru þeir til
viðtals, ef einhver annar jafn-
aðarmannaforingi tæki að sér
st j órnarmyndun.
Kekkonen forseti kallaði for-
mann þingflokks jafnaðarmanna
á sinn fund síðdegis í dag og
spurði hann, hvort flokkurinn
vildi benda á annan jafnaðar-
mann, sem væri líklegur til að
geta myndað stjórn. Formaður-
inn gaf það svar, að jafnaðar-
menn hefðu ekki áhuga á að
gera tilraun til stjórnarmyndun-
ar á þessu stigi málsins. Síðar
ræddi Kekkonen við Fagerholm
þingforseta, án árangurs.
Úti á landi.
Fréttamaður NTB í Helsing-
fors símaði í kvöld, að allt benti
til þess, að nokkurt hlé yrði á
umræðum um nýja stjórn. Ný
stjórn yrði áreiðanlega ekki
mynduð í Finnlandi fyrr en í
byrjun næstu viku í fyrsta lagi.
— Sukselainen fyrrum forsæt-
isráðherra og Krosima aðalritari
Bændaflokksins eru farnir norð-
ur í land til að halda fyrirlestra
um stjórnmálaástandið. Þeir
koma ekki aftur til Helsingfors
fyrr en á mánudag. Johannes
Virolainen, innanríkisráðherra,
sem nefndur hefir verið sem for-
sætisráðherra nýrrar stjórnar
kemur heim til Finnlands frá
New York á sunnudag. Þar hefur
hann veitt finnsku sendinefnd-
inni á þingi SÞ forstöðu.
WASHINGTON, 25. okt. — Eisen
hower Bandaríkjaforseti og Mac-
millan forsætisráðherra ræddu
m.a um nauðsyn þess, að áherzla
væri lögð á að stuðla að vísinda-
þróun í Atlantshafslöndunum.
Hafa þeir í hyggju að ræða málið
frekar á væntanlegum ráðherra-
fundum Atlantshafslandanna í
desember n.k.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar,
sem ræddi þessa yfirlýsingu í
dag, sagði, að búist væri við, að
báðir þessir menn tækju þátt í
ráðherrafundunum. í sameigin-
Iegri yfirlýsingu Eisenhowers og
Macmillans segir m. a., að lýð-
ræðisþjóðirnar muni koma
Tyrkjum til hjálpar, ef á þá verði
ráðizt. — Ennfremur að Bretar
og Bandarikjamenn muni héðan
í frá eins og hingað til leggja
áherzlu á að treysta friðinn i
heiminum og þá fyrst og fremst
með því að styðja af alhug. þau
hernaðarbandalög, sem hafa því
hlutverki að gegna að hindra of-
beldisárás kommúnista.
♦ PARÍS, 25. okt. — í kvöld leit
einna helzt út fyrir það, að
franska stjórnarkreppan yrði
leidd til lykta. Þingið hefur ver-
ið kallað saman til fundar á
mánudag og mun leiðtogi jafn-
aðarmanna, Guy Mollet, fara
þess á leit, að það samþykki
traust á hann sem forsætisráð-
herra 24. ríkisstjórnarinnar, sem
mynduð er í Frakklandi eftir
styrjöldina. — Stjórnmálafrétta-
ritarar segja, að fullvíst sé, að
hann muni fá traust þingsins,
enda hafi hann tryggt sér at-
kvæði 280 þingmanna og þurfi
aðeins 20 í viðbót til að fá traust.
— Jafnvel er talið, að óháðir
hægrimenn greiði honum at-
kvæði, ekki af neinn ást, heldur
til að koma Frakklandi úr því
vandræðaástandi, sem stjórnar-
kreppan skapar.
Svartagilsbrenna
í Þingvallasveit þykir fullvist að bræó-
urnir hafi brennt bæinn — Fyrir rétti
i Reykjavik i gær neitubu báðir einaregið
VARLA mun nokkur fregn, sem
birzt hefur í blöðunum um langt
árabil, hafa vakið jafnmikla at-
hygli og fréttin um Svartagils-
brennu. — Austur í Þingvalla-
sveit er "það mál manna, að
bræðurnir Sveinbjörn og Reynir
Hjaltasynir, sem tóku hús á
Markúsi bónda Jónssyni í Svarta-
gili, hafi brennt bæinn. Þeir
bræður eru 26 og 25 ára. 1 fyrri-
nótt var komið með íllvirkjana
að austan og þeir hrepptir í varð-
hald í „Steininum“. Þeir voru
teknir til yfirheyrslu síðdegis í
gær í hegningarhúsinu og stóðu
yfirheyrslur langt fram á kvöld.
Markús í Svartagili hafði í gær-
morgun gefið skýrslu fyrir rétti
um atburðina brennukvöldið.
Tíðindamaður Mbl. og ljós-
myndari brugðu sér í gærdag
austur að Svartagili. Þar var
ömurleg aðkoma. Bæjarhúsið
brunnið, en steinsteyptir útvegg-
ir stóðu. Inni í tóftinni logaði enn
og var þar mikill hiti. — Fjósið
og hlaðan, sem stóðu austan við
húsið, voru brunnin og fallin og
lá svart bárujárnið, undið af hit-
Framh. á bls. 15.
Orðsending frá
Morgunblaðinu
VEGNA inflúenzutaraldurs
vantar börn til blaðburðar.
Meðan þannig' stendur á þarf
blaðið að fá börn og unglinga
til að hlaupa í skarðið og taka
að sér blaðburð
Börn þau, sem vilja hjálpa
til eru vinsamlegast beðin að
hringja til afgreiðslu Morgun-
blaðsins, simi 22480, eða koma
og tala við afgreiðsluna Aðal-
stræti 6.