Morgunblaðið - 16.08.1960, Síða 18
18
MORCuynr.AÐifí
Þriðjudagur 16. ágúst 1960
Keflavík rœndi !
Fram forysfunni
— og Akranes tekur við henni
ÞAU mæltust á sunnudags-
kvöld, toppliðið í 1. deild,
Frani, og liðið sem hefur
þurft að berjast við fallhætt-
una, Keflavík. Hefði ókunn-
ugur verið látinn gizka á eft-
ir spili liðanna, hvort væri
„toppliðið'4, hefðu án efa allir
sagt að það væri Keflavíkur-
liðið. Spiiið var allan tímann
betra hjá Keflvíkingum —
komst raunar eiginlega aldrei
í gang hiá Fram. Og Fram-
liðinu tókst ekki að forða því
að boltinn fór 4 sinnum í
Framnetið, en einungis tví-
vegis tókst Fram að skora og
það ekki fyrr en undir leiks-
lok, er uthald Keflvíkinga var
gersamlega þrotið.
Með þessum sigri tryggði
Keflavik sig svo gegn fall-
hættunni, að möguleikar á
falli þeirra úr deildinni eru
aðeins talfræðilegir — bundn
ir að minnsta kosti þremur
ef — ef — ef — Um Ieið
„rændu" þeir forystunni í
mótinu frá Fram og fengu
hana Akurnesingum. Hins
vegar hafa möguleikar KR til
sigurs i mótinu aukizt við
þetta. MR hefur langfæsta
leiki að baki og að öllu slysa-
lausu má búast við forystu
þeirra er þeir hafa náð upp
leikafjöldanum. — En við höf-
um nú séð að allt getur skeð
í knattspyrnu. „Topplið" okk-
ar mega ekki reikna sér sig-
urinn fyrir leikinn.
Akranes
vann 7:1
AKURNESINGAR og Akureyr-
ingar kepptu i 1. deildarkeppn'-
inni á sunnudaginn og fór leikur
inn fram á Akranesi.
Þau urðu úrslit leiksins að
Akurnesingar sigruðu með yfir-
burðum skoruðu 7 mörk gegn 1.
Reyndar skoruðu Skagamenn
öll 8 mörkin — en settu eitt í sitt
eigið net.
Dómarinn
mœtti ekki
Á SUNNUDAGINN áttu
Þróttur og Hafnfirðingar
að leika í Bikarkeppninni
og átti leikurinn að fara
fram í Hafnarfirði. Þegar
leikmenn voru tilbúnir til
að hefja leikinn var dóm-
arinn, Hreiðar Ársælsson,
hvergi nálægur og aðeins
annar línuvörðurinn mætt-
ur. Varð því að fresta leikn
um og nokk.ir tugir áhorf-
enda fengu endurgreidda
aðgöngumiðana, sem þeim
höfðu verið seldir.
Auk þess sem dómarinn
sást hvergi kvörtuðu Þrótt-
ararnir yfir því að völlur-
inn væri ekki réttilega
strikaður og niun sú kvört-
un hafa verið á rökum reist
og ’/VÍ mjög leiðinlegt fyrir
foiystu knattspyrnumála í
Hafnarfirði, að geta ekki
haft vóllinn löglega strik-
aðann fyrir opinber mót.
Eitt er víst að menn fóru
sárgramir heim af vellinum
því mjög gott veður var til
að leika knattspyrnu.
★ Fram sækir
Fyrsti stundarfjórðungur leiks-
ins var jafn, en Framarar þó held
ur meira í sókn, án allrar hættu
við mark Keflavíkur. Gott tæki
færi gekk Guðm. Óskarssyni úr
greipum er hann stóð einn og
óvaldaður nálægt markteig en
spyrnti langt framhjá. Annað
tækifæri átti Fram er Grétar ték
upp að endamörkum og með þeim
og reyndi síðan markskot — úr
vcnlitlu færi, enda hitti hann
stöng og knötturinn hrökk fra.
Að þessum tveim upphlaupum
frátöldum ásamt nokkrum lang-
skotum Guðjóns er upptalið hvað
Fram reyndi til marka í fyrn
hálfleik. Og þeim tókst aldrei að
ná neinum yfirburðum, jafnvel
ekki íiumkvæði úti á vellinum.
★ Keflav*k tekur frumkvæðið
í sóknarlotum Keflvíkinga var
öllu meiri þungi, þó frammistað-
an er að marki kom væri svipuð
og hjá Fram. Sókn Keflvíkinga
Guðjón grefur andlitið í jörð eftir að hafa stýrt knettinum í eigið mark. (Ljósm.: Sv. Þormóðss.j
þyngdist er á fyrri hálfleik leið.
Skúli Skúlason miðherji lokkaði
Geir úr markinu — en í stað þess
að senda til annars tveggja félaga
sinna óvaldaðra við markið kaus
hann vonlausu leiðina — að
skjóta úr lokuðu færi og eyði-
leggja tækifærið. Tveim min. síð
Framhald á bls. 19.
Björgvin
meistari
i
3
Síðasta mark Keflavíkur. Högni fékk skorað af stuttu
gegnum varnarmúr Fram.
Bikarkeppnin
Á LAUGARDAGINN kepptu ís- Annað mark leiksins skoruðu ls-
firðingar fyrsta leik sinn í Bikar-
keppninni. Leikurnn fór fram hér
á Melavellnum og mófcherjar ís-
firðinganna var 1. flokkur Vals
ísfirðingarnir fóru með sigur frá
leiknum 3:1, eftir 1:0 í hálfieik.
Lið ísfirðinganna var mun sókn
harðara en lið Vals og höfðu þeir
frumkvæðið í leiknum mestan
tímann og sigur þeirra aldrei í
hættu. Björn Helgason skoraði
fyrsta mark leiksins er 24 mín.
voru af leik. Skallaði Björn knött
inn í mark úr fyrirsendingu.
firðingarnir er 22 mín. voru af síð
ari hálfeik og þrem mínútum síð-
ar var dæmd vítaspyrna á mark-
mann Vals og skoraði Björn
Heigason örugglega úr henm.
Leikurinn stóð því 3:0 fyrir ís-
firðinga er 25 mín. voru af síðari
hálfleik. Mark Vals skoraði Bragi
Björrsson er 33 mín. voru af síð-
ari haifleik. — ísfirðingarnir áttu
að keppa annan leikinn í gær, en
héldu heim vegna einhvers mis-
skilning um framkvæmd leiks-
ms. En þeir munu koma til bæj-
arms aftur í vikunni.
UM helgina lauk Meistara-
móti íslands í frjálsum íþrótt-
um með keppni í tugþraut og
þremur öðrum greinum. Var
veður ákjósanlegt en nokkur
svali er leið á daginn, hæði á
laugardag og sunnudag. Kepp
endur í tugþrautinni voru
fjórir og var keppnin
skemmtileg og árangur all-
góður.
★ Forysta Björgvins
Björgvin Hólm tók forystuna i
annari grein og hélt henni eítir
það. Valbjörn fylgdi honum þó
fast eftir og skildu oft ekki nema
nokkrir tugir stiga þá félaga að.
Valbjörn náði tveim beztu af-
rekum sem unnin voru í þraut-
inni, 100 m hlaup 10.9 og 4.30 m
í stangarstökki. Björgvin var
hins vegar mjög jafnvígur, en
óheppni elti hann fyrri daginn og
var hann þá nokkuð frá sinu
bezta t. d. í kúluvarpi og eink-
um hástökki. Síðari daginn tókst
Staðan
í 1 1. deild
L U J T Mörk St.
Akranes 7 4 2 1 25:11 10
Fram 7 4 2 1 17:13 10
Valur 7 2 3 2 12:17 7
KR 4 3 0 1 18:6 6
Keflavík 8 2 1 5 13:23 5
Akureyri 7 1 0 6 11:24 2
Hólm ÍR
tugþraut
h.onum illa upp í kringlukasti.
Hafði þetta þau áhrif að hann
skorti 60 stig upp á æskilegt af-
rek til Rómarfarar en fyrr í vik-
unni hafði h-ann sýnt, að hann
er fullfær um að ná þeim árangri.
Björgvin hefur lítið getað æft þar
til nú síðustu viku vegna veik-
inda og er árangur hans því enn
athyglisverðari.
Til samanburðar má geta þess
að bezti árangur Arnar Clausen
eftir gildandi stigatöflu er 6886
stig.
Úrslit
Tugþraut Isl.meistari Björgvin
Hólm ÍR 6440 stig. (Afrek Björg-
vins voru 11.1 í 100 m., 6.64 í
langstökki, 1307 í kúluv., 1.65 í há
stökki og 52.8 í 400 m. hl., 15.00
í 110 m. grhl., 39.77 í kringluk.,
3.40 í stangarst., 58.16 í spjótk.
og 4.47 í 1500 m. hl.)
2. Valbjörn Þorláksson ÍR 5997
stig. (10.9, 6.48, 11.04, 1.74, 53.8,
16.2, 33.47, 4.30, 57.97 hætti).
3. Karl Hólm ÍR 4670 stig. 4.
Brynjar Jensson HSH 4219.
4x800 m. hlaup ísl.meist. Sveit
KR 8.25.6 2. Dr.sv. ÍR 9.05.6.
10 km. hlaup Isl.meist. Kristl.
Guðbjörnsson KR 33.39.4, 2. Haf-
steinn Sveinsson 35.44.4, 3. Reynir
Þorsteinsson KR 37.49.4.
1500 m. hindrunarhlaup ungl-
inga Ungl.meist. Agnar Levty KR
4.50.8, 2. Friðrik Friðriksson ÍR
5.05.6!
Olympíumót í kvöld
Vilhjálmur reynir þrí-
stökk í Laugardal í kvöld
í dag er Olympíudagurinn og
í kvöld er efnt til íþróttahátíðar
í Laugardal í tilefni þess. Þar
fer fram handknattleikur milli
kvenna. — Annar vegar stendur
liðið sem fyrir nokkru vann það ^
frækiega afrek að vinna Svia í |
landsleik í Svíþjóð og hins vegar ;
úrval annara handknattleiks-
kvenna. Mun marga fýsa að sja í
sl. handknattleiksstúlkurnar sem
svo vel stóðu sig ytra.
Þá fer fram knattspyrnukapp-
leikur í 2. aldursflokki milli Vals ■
og Akranes. Er það úrslitaleikur
íslandsmótsins. Þar spreyta sig
menn framtíðarinnar.
Inn á milli og í hálfleik er flétl-
að frjálsum íþróttum hlaupum,
stökkum og köstum. Allra augu
munu beinast að Vilhjálmi sem
nú reynir sig í þrístökki i síðasta
sinn fyrir Rómarleikana. Þá verð-
ur keppt í stangarstökki Valbjörn
og fleiri, í hástökki þar sem Jón
Pétursson reynir við 2 metra og
hærra kannski. Og þarna koma
allir Olympíufararnir fram.
Fólk ætti að fjölmenna á völl-
inn og hvetja þá í þessum síðustu
tilraunum þeirra fyrir Rómarleik
ana — í því felst góð kveðja til
manna sem eiga erfitt verk fyrir
höndum.
Þrír syntu
út í Viðey
Á SUNNUDAGINN syntu þrír
lögregluþjónar Viðeyjarsund. —
Lögðu þeir af stað frá Lofts-
bryggju og syntu út í eyna. Menn
þessix voru Guðni Sturlaugsson,
Guðmundur Þorvarðarson og
Halldór Einarsson.
Guðni og Guðmundur syntu
ósmurðir og voru 2 klst. og 4 mín.
og 2 klst. og 6 mín. á sundi. Hall-
dór var smuiður og synti á 2 k Ist.
og 7 mín.
Enn tveir valdir
til Rómarfarar
Á FUNDI sínum í dag ákvað
Olympíunefnd íslands, að fengn-
um tillögum Frjásíþróttasam-
bands íslands að senda eftirtalda
iibróttamenn til keppni á Olymp
íuleikunum í Róm.
Björgvin Hólm Í.R. til keppni
í tugþraut og Pétur Rögnvaids.
son KR til keppni í 110 metra
grindahlaupi.