Morgunblaðið - 16.12.1960, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.12.1960, Blaðsíða 16
16 M fí V r. r * n r 4 fíl B Föstudagur 1G. des. 196t> Nýjasta — og bezta — skáldsagan Of seint, óðinshani — hin frábseira saga Alans Patons, stór- brotin og harmþrungin, saga um járnlög Búanna í samskiptum svartra og hvítra í Suður-Afríku, sagan um þeldökku þokkadísina sem steypti heilu heimili í glötun. í ágætri þýðingu And’résar Björnssonar. — Verð kr. 140.—. Aðrar skáldsögur: Sextug i dag: Laufey Tryggvadóttir í DAG, 16. desember, á frú Laufey Tryggvadóttir, kona séra Þorsteins Jóhannessonar, fyrr- um prófasts í Vatnsfirði, og síð- ar fulltrúa í kirkjumálaráðu- neytinu, sextugsafmæli. Frú Laufey er dóttir Tryggva Guðmundssonar, fyrrum kaup- manns á Seyðisfirði og síðar gjaldkera í Reykjavík, og fyrri konu hans, Jónínu. Hún giftist 23. 6. 1923 Þor- steini Jóhannessyni kandidat í guðfræði, er gerðist prestur á Stað í Steingrímsfirði 1924, en fékk veitingu fyrir Vatnsfirði 1929 og var þar til 1955, er þau fluttust til Reykjavíkur, og eru búsett að Bugðulæk 18. Kynni mín af þessari merkis- konu hófust er þau fluttu í Vatnsfjörð 1929. Varð öllum brátt ljóst er kynni höfðu af henni og heimili þeirra í Vatns- firði, að hér fóru miklar mann- dómsmanneskjur. Starf prests- konunnar er mikilvægt og út- heimtir fjölhæfa hæfileika, þar er oft að mæta mun meiri önn og umsýslan, en almennt er. — Gömlu prestssetrin voru oft n.iðstöð margvíslegra menning- arstarfa í byggðarlaginu, og oft leitað halds og traust þeirra, ef vanda bar að höndum. Þau hjón voru þeim vanda vaxin að mæta slíku og héldu uppi mikilli reisn þessa gamla höfuðbóls, er þau dvöldu í 26 ár. Allir áttu þar gott athvarf, mikil gestrisni og heimilishlýja einkenndu heimil- ið, samfara myndarlegum bú- rekstri og hverskonar störfum er þau höfðu með höndum. Var heimili þeirra oft fjöl- mennt og þurfti því að mörgu að hyggja, samfara mikilli um- ferð og fyrirgreiðslu á mörgum sviðum. Allt slíkt hvíldi mikið á húsmóðurinni, sem annaðist það af mikilli alúð. Sést bezt hvílíkum hæfileikum hún var búin, er hún tók að sér starf prestkonunnar í sveit, en hafa í uppvexti sínum vanizt meir störfum kaupstaðaheim'ilis. Frú Laufey ávann sér miklar Framhaid á bls. 19. Messalína eftir Conte Costellano, sagan um róm- versku keisaradrottninguna, sem leiddi jafnt tiginborna menn, sem þræla til sængur með sér, og átti með dæmafárri léttúð sinni þátt í hrörnun hins forna Rómaveldis. Herleidda stúlkan, saga frá Tytrkjaráninu, söguleg skáld- saga, byggð á öllum fáanlegum sögulegum heimildum um Tyrkjaránið, og gerist ýmist á íslandi eða 1 Algier; saga þrungin spennu, og bæði fróðleg og skemmtileg. Höfundurinn, Sigfús M. Johnsen, er þjóðkunnur fræðimaðuir um allt er varð- ar sögu Vestmannaeyja. Helga i Stóruvík, eftir Sólveigu Sveinsson, er ein af þess- um hugljúfu ástarsögum, sem átt hafa miklum vinsældum að fagna hér á landi, bók fyrir „ungar“ stúlkur á öllum aldiri. Nýjasta Jack London bókin er Hetjan í Klondike Þetta er afburða spennandi bók, jafnt fyrir konur sem karla, enda ein frægasta bók Jacks London. Bækur Jacks London svíkja engan, þær eru jafnt fyrir unga sem gamla, konur, sem karla. * Bókaverzlun Isafoidar Jólabækurnar frá Snæfell i Heljarfljót í nóvember 1954 var ungur, danskur maður, Óli Miiller að nafni, myrtur í ókönnuð- um frumskógum Suður-Amer- íku. Vorið 1959 lögðu þrír Danir, Arne Falk R0nne, J0rgen Bitsch og Helmer Christiansen, leið sína inn í frumskógana til þess að kom- ast fyrir málið. í þessari bók bjóða þeir lesandanum með sér í mörg þúsund kilómetra ævintýraferð, þar sem þeir rekja slóðir landa síns, sem myrtur var, og fara um frumskóga og fljót, sem aldrei hafa verið merkt á landabréf, um fjallaskörð og hásléttur, þar sem snjó tekur aldrei af tindum, þótt við miðjarðarlínu sé. Þessi bók er spennandi á borð við frægustu lögreglusögur, en jafnframt er hún raunsönn lýsing á lífinu í þessu græna víti. Bókin er skrifuð af Arne Falk R0nne og myndir í bók- inni eru teknar af Jörgen Bitsch. Vertf kr. 154.50. Rósa Bennett hjá héraðslækninum Rósa Bennett hefur hin síð- ari ár, sem vænta mátti, eign- ast fjölda vinstúlkna á ís- landi. Sögumar af Rósu Bennett’ eru hressandi frá- sagnir úr lífi og starfi hjúkr- unarkvenna, spennandi ævin- týrum Rósu og kunningja hennar, sem allir eru hinir skemmtilegustu og beztu fé- lagar. Verð kr. 62.00. Geims+öðin er ný bók um uppfinningar- mannmn unga, Tom Swift, og vin hans, Bud Barclay, sem kunnir eru orðnir af afrekum sínum í bókUnum: Rannsókn- arstofan fljúgandi, Kjarn- orkukafbáturinn, Eldflaugin, Gervirisarnir og síðast en ekki sízt Kjarnorkubonnn, sem út kom í fyrra. Geimstöðin er hörkuspenn- andi drengjabók, sem ekki verður lögð frá sér fyrr en hún er fulllesin. Ný ævintýri kjarnorkualdarinnar heilla alla drengi, sem gaman hafa af viðburðarhröðum og spenn andi sögum. Verð kr. 62.00. Vesalinnnrnir eftir VlClUR HUGO komu fyrst út í Frakklandi árið 1862 og mun mörgum víða um lönd verða fyrst hugsað til þeirrar bókar, er þeir heyra minnzt á fransk- ar bókmenntir. Vesalingarnir hafa áð- ur verið þýddir á íslenzku. Kom sagan þá neðanmáls í Lögréttu, en var síðan sér- prentuð, en er fyrir löngu uppseld. Enginn vafi er á, að hér mun þykja að því mikill fengur að geta nú fengið V e s a 1 - i n g a n a aftur til lesturs á íslenzku. Þetta er bók sterkra áhrifa, tilfinningahita og mik- illa andstæðna. Verð kr. 120,00. BÓKAIÍTGÁBN SIMÆFELL jotasveinarikið Sænski rithöfundurinn Estrid Ott er einn kunnasti barna- bókahöfundur á Norðurlönd- um. Hún hefur skrifað fjöld- anrí allan af barnabókum, og hafa margar þeirra orðið mjög vinsælar. Ein þeirra, Jólasveinarikið, sem hér birt- ist í íslenzkri þýðingu, er viðburðarík og skemmtileg bók. Óli, aðalpersóna bókar- innar, er ekki nema sjö ára gamall. Hann dvelur með álfum í draumum sínum, kynnist lífi þeirra og dagleg- um störfum og lendir 1 fjöl- mörgum ævintýrum í riki jólasvéinanna. Þetta er kjör- in bók fyrir börn á aldrinum 6—10 ára. Bjarni Jónsson hefur teiknað allar skemmtilegu mynairnar, sem prýða bókina. Verð kr. 48,00. Eirikur gerist ibróttamaður er norsk drengjabók, sem ef- laust mun falla íslenzkum drengjum vel í geð. Þetta er kjörin bók þeirra drengja er gaman hafa af íþróttum og Eiríkur er sögu- hetja, sem ungir piltar munu taka sér til fyrirmyndar og allir foreldrar munu stoltir af að eiga fyrir son. Verð kr. 48,00. Tjarnarbraut 29, Hafnarfirði Sínii 50738.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.