Morgunblaðið - 23.05.1962, Qupperneq 1
NVER BORGARIÁBYRGUR Á KJÖRDEGI
Sundurlyndi, heitingar og
ofstæki víki fyrir sam-
hentri og styrkri stjórn
borgarmála
Frá umræðunum i gærkveldi
Kínverskur flóttamaður reynir að komast undan meðan verið var að flytja hann frá
Hong Konff til landamæra Kína. Flóttatilraunin mistókst og var hann sendur heim eins
og aðrir þeir flóttamenn, sem til næst.
Vandræði í Hong Kong
vegna
Hong Kong ,22. maí (AP).
TIL vandræða horfir í Hong
Kong vegna flóttamanna-
straums frá Kína. Reyna um
4000 Kínverjar á dag að kom
ast yfir landamærin til
brezku nýlendunnar þrátt
fyrir það þótt brezku yfir-
völdin hafi mjög hert á eft-
irliti á landamærunum og
sendi aftur heim alla þá, sem
til næst.
Rúm milljón Kínverjar hafa
flutzt til Hong Kong undanfar-
in 12 ár og er ibúatala nýlend-
unnar komin yfir 3 milljónir, en
landrými er þarna aðeins eitt
þúsund ferkilómetmr. A mánu-
dag kom til nokkurra árekstra
er yfirvöldin voru að flytja
Iheim kínvers'ka flóttamenn. M.
a. réðist hópur Kínverja á lög-
regluforingja og reyndi að
stöðva bílalest, er flutti flótta-
menn að landamærunum. Varð
lögreglan að ógna mannfjöldan-
um með skotvopnum til að geta
haldið ferð sinni áfram, en
nokkrir menn og tvö börn særð-
ust í stympingunum.
FORMÓSA
Stjórn kínverskra þjóðernis-
sinna á Formósu bauðst í gær
til að taka við talsverðum hluta
þeirra flóttamanna frá Kína,
sem komnir eru til Hong Kong
og hefur því tiiboði verið mjö«
fegnað meðal Kínverja í brezku
nýlendunni. Einnig ákvað Por-
mósustjórn að senda nú þegar
1000 lestir af hrísgrjónum til
flóttamannaslraums frá liína
Hong Kong til að draga úr skorti
flóttamanna.
Talsmaður brezka utanríkisráðu
neytisins sagði í dag að svo virt
ist sem flóttamönnum frá Kína
fari mjög fjölgandi, en flestir
flýja þeir uiidan hungri og neyð
í heimalandinu. Sagði hann að
frá 1. þ.m. hafi um 50.000 flótta
menn verið sendir aftur heim
til Kína, því ekki væri unnt að
taka á ihóti fleiri flóttamönn-
um í Hong Kong. Væri þessi
flóttamannastraumur beinlinis
hættulegur heilsufari í Hong
Kong, auk þess sem vatnsbirgð-
ir nægðu tæpast fbúunum, sem
fyrir eru. Brezka stjórnin hefur
leitað eftir samvinnu við rí'kis-
stjórnir annarra rikja og við fé-
lagssamtök um að reyna að finna
lausn á flóttamannavandamál-
inu. En talsmaðurinn sagði að
brezika stjórnin gæti ekki sent
flóttamennina til Formósu, m.a.
vegna þess að Bretar hafa ekki
stjórnmálasamband við stjórn-
ina þar.
BRETAR UNDRANDI
Flóttamannavandamálið var
til umdæðu í brezka þinginu i
dag og skýrði Reginald Maud-
ling nýlendumálaráðiherra mál-
ið fyrir þingmönnum. Sagði
hann að brezka stjórnin væri
Frh. á bls. 12
ÚTVARPSUMRÆÐURNAR
í gærkvöldi einkenndust
annarsvegar af rökfestu og
öfgaleysi ræðumanna Sjálf-
stæðisflokksins, Geirs Hall-
grímssonar, borgarstjóra, og
Þóris Kr. Þórðarsonar, pró-
fessors, og hinsvegar af sund
urlyndi og öfgum hinna
margklofnu andstöðuflokka.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, vék að þeirri bardaga-
aðferð andstæðinganna að
halda því fram, að borgur-
unum væri óhætt að kjósa
þá, vegna þess að Sjálf
stæðisflokkurinn væri örugg
ur með meirihluta. Hann
benti á, að Sjálfstæðisflokk-
inn hefði skort nær 2400 at-
kvæði við síðustu almennu
kosningar til að vera í meiri
hluta í borginni. Má því
segja, að slíkar yfirlýsingar
andstöðuflokkanna byggist á
því, að þeir telji að Sjálf-
stæðisflokkurinn muni stór-
auka fylgi sitt í kosningun-
um. „En meirihluti Sjálf-
stæðisflokksins er ekki ör-
uggur“, - sagði borgarstjóri,
„fyrr en borgararnir sjálfir
gera hann að veruleika". —
Borgarstjóri lauk máli sínu
á þessum orðum:
„Góðir Reykvíkingar. Enn
Sonur U Thonts feist í bílslysi
Rangoon, Burma, 22. maí (AP)
U Thant aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna tilkynnti í
dag ættingjum sínum i Burma að
hann gæti ekki komið og verið
viðstaddur jarðarför sonar síns
vegna þess að kona hans hafi
fengið taugaáfall. En sonur U
Thants, Tin Mung Thant, sem
var 21 árs, lézt á máinudagskvöld
eftir höfuðhögg, sem hann fékk
við fall úr langferðabifreið
skammt frá Rangoon.
Ökumaður langferðabifreiðar-
innar hefur verið handtekinn og
sa-kaður um að hafa með hirðu-
leysi sínu átt sök á dauða Thants
yngra. Eftir að Thant fól'l úr bif-
reiðinni, lá hann meðvitundar-
laus á götunni. Tók bifreiðastjór-
inn hann þá upp og fhitti á lyf-
sölustað í stað þess að fara með
hann í sjúkrahús.
U Thant sagði í símtali við
bróður sinn í Rangoon að hann
gæti ekki komið vegna þess að
kona hans hafi fengið taugaáfall
er hún frétti um son sinn og væri
nú undir læknishendi.
Áttu að myrða de Gaulle
París, 22. maí (AP-NTB).
S.l. miðvikudag kom:st frans'ka
lögreglan á snoðir um fyrirætlán
ir OAS manna um að myrða de
Gaulle forseta. Foresetinn var
þá á ferð um Frakikland og var
16 manna fflokkur OAS manna
settur honum til höfuðs. Lögregl-
an fylgdist með ferðum morð-
sveitarinnar og á súnnudag voru
15 þeirra handteknir, þeirra á
meðal foi'ingi sveitarinnar Jean
Louis Blanchy, sem er starfsmað-
ur við tryggingarfélag í París.
Franska lögreglan skýrði svo
frá í dag að morðsveit þessi hafi
verið vel vopnum búin. Meðal
þeirra vopna, sem fundizt hafa
voru fjarðstýrð eldflaug ti-1 að
nota gegn skriðdrekum, fiman
sprengjur, tvær hríðskotabyss-
ur og riffill með sjónauka. Auk
vopna fann lögreglan landabréf
af Frakkilandi, sem á var merkt
við ýmsa staði, og er talið að
þar muni vera miðstöðvar OAS
manna. Kort þetta fannst í íbúð,
sem morðsveitin hélt til í og má
búast við að það komi lögregl-
unni að miklu liði við rannsókn
á starfsemi OAS í Frakklandi.
á Reykjavík gnægð góðra
kosta, sem geta komið öU-
um Reykvíkingum að góðu
gagni, ef sundurlyndi, heit-
ingar og ofstæki víkja nú
sem fyrr fyrir samhentri og
styrkri stjórn borgarmála“.
Þórir Kr. Þórðarson mælti
m.a. á þessa leið:
„Það ætti að vera okkur öll
um umhugsunarefni, að það
er imdir okkur sjálfum kom-
ið, að framtíð Reykjavíkur-
borgar einkennist af sama
starfsþróttinum, sama ið-
andi lífinu og dagurinn í
dag. Það er stýrk og stefnu-
föst stjórn borgarmála, sem
hefur skapað þann ramma
utan um líf borgaranna
sjálfra, sem við njótum öll
góðs af í dag. Skoðun mín
er sú, að það sé hag okkar
allra fyrir beztu að sami
borgarstjórinn, Geir Hall-
grímsson, fari áfram með
stjóm borgarinnar næsta
kjörtímabil“.
Venjuleg- „vinstri úrræði“
í byggingamálum
Einar Ágústsson, frambjóð-
andi Framsóknarflokksins, upp-
lýsti rækilega í ræðu sinni, að
hann væri á bandi þeirrar
vinstri klíku, sem nú ræður
lögum og lofum í flokki hans.
Tók hann meira að segja undir
þann óhróðurssöng Tímans í
garð núverandi borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins, að stað-
hæfingar hans á síðasta borgar-
stjórnarfundi hefðu allar verið
markleysa, en „samspilskenn-
ing“ Þórarins Þórarinssonar
væri hin eina rétta. Hann lagði
áherzlu á, að í húsnæðismálum
ættu menn að hafa hliðsjón af
„fortíð flokkanna í húsnæðis-
málum“. Rifjaði hann þar með
upp, að Framsóknarmenn voru
aðalhvatamenn að þeirri lög-
festingu um skertan eigna- og
afnotarétt af eigin íbúðum, sem
hlaut nafnið „Gula bókin“. Af
því tilefni er meginefni þeirra
áforma rifjað upp á öðrum stað
í blaðinu.
Óskar Hallgrímsson, fram-
bjóðandi Alþýðuflokksins, hvatti
menn til að kynna sér stefnu-
skrá Alþýðuflokksins, þar á
meðal í húsnæðismálum. Virt-
ist hann þar meS vilja árétta,
að Alþýðuflokkunnn ætlaði sér
að standa við það stefnuskrár-
atriði, að reyna að hindra að
nokkrir einstaklingar fengju að
byggja íbúðir í höfuðborginni,
heldur yrðu þær allar byggðar
af tveimur eða þremur „bygg-
ingarsamsteypum". En annar
ræðumaður sama flokks sagði
það „alrangt" að flokkurinn
hygðist fylgja þeirri stefnu,
Framh. á bls. 2