Morgunblaðið - 20.08.1963, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20. ágúst 1963
MORGAJNBLAÐIÐ
3
jjf-A. ' • y-> • -aa a
»VW«.S'*VÍ<.>.V>«VWWAWVXft«)WW«WW// «N»%WAW «rn<.í,W<WV»WWW^W«*»OmmWW«w, • A^VN^.WrtVAWAÍWVVX^^WKVW^AWWJÍCAWWWWA^. w-<» «MWWl.'W»í«'WlrM{ II1 í 01 w WI(JU 'J ww«
' ?:' % -' < Jr- : "*•»%»■<*» -
■■V ***&» »**«„*:„
19^ 8ð£S$ «í***fc . S®$
Aimælisgestir við sýningarpallinn í Árbæ.
I afmæliskaffi að Arbæ
Á SUNNUDAGINN _ brugðu
margir sér upp að Árbæ og
drukku afmæliskaffi Reykja-
víkurborgar ' í Dillonshúsi.
Reykjavíkurborg átti 177 ára
afmæli og afmælisins minnzt
að venju í Árbæ með dansi,
hljóðfæraslætti og öðrum
skemmtunum.
Fáar stúlkur á íslandi eru
jafn mikið ljósmyndaðar og
framreiðslustúlkurnar í Djli-
onshúsi, eða svo var okkur
að minnsta kosti sagt. Mynda
vélum var beint að þeim úr
öllum áttum meðan þær báru
fram góðar veitingar, bæði
dýrum og flóknum kvik-
myndavélum og einföldum
kassamyndavélum. Þær veittu
að þessu sinni um þúsund
manns góðan gjörning, kaffi
og ilmandi kleinkur, pönnu-
kökur og fleira góðgæti.
Margir Reykvíkingar hafa
það fyrir venju að halda upp.
á afmælisdag borgarinnar ár-
lega, en ekki eingöngu á heil-
um eða hálfum tug. Það eru
því mikið til sömu andlitm
sem skjóta upp kollinum í
Árbæ þann 18. ágúst ár
hvert, einkum gamlir og rót-
grónir borgarar, nafnkunnir*^*
menn úr Vesturbænum eða
hinu megin lækjarins.
Að þessu sinni tók flokkur
Færeyinga þátt í afmælisfagn
aðinum og skemmti gestum
með hornablæstri og lúðra-
þyt. Þeir komu til landsins
síðasta föstudag í boði Lúðra-
sveitar Reykjavíkur og borg-
arstjórnar Reykjavíkur og
héldu hljómleika ‘á laugar-
daginn í Háskólabíói, sem
vöktu verðskuldaða hrifn-
ingu.
Færeyska hljómsveitin,
Havnar Hornorkestur, lék
færeyska þjóðlagasyrpu og
fjörug hornalög, allt frá
Ketelby til Beethovens, á sýn
ingarpallinum í Árbæ. Veður
var ekki hið ákjósanlegasta,
rigningarsuddi og nokkur
vindur. En yfir hljómsveit-
inni blöktu fánar landanna
beggja, íslands og Færeyja,
og fjörugur leikur frænda
okkar og vina vakti gleði í
hjörtum viðstaddra. — Á eftir
sátu færeysku hornablásar-
arnir, ásamt frúm þeirra, boð
borgarstjórnarinnar í Dillons-
húsi.
Þá sýndu félagar úr Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur ís-
lenzka þjóðdansa á sýningar-
pallinum, en þeir eru, eins og
kunnugt er, nýkomnir heim
úr velheppnuðu dansferða-
lagi til Noregs.
Humarveiðin hefir
gengið vel í Hafnarfirði
Stjórnandi Havnar Hornorkestur, Th. Pauli Christiansen,
bæjarfulltrúi í Þórshöfn, slær taktstokkinn. Við hlið hans
er Robert Oughton, enskur cornet einleikari, sem búið hefur
í Færeyjum í tvö ár og þykir fádæma leikinn á hljóðfæri
sitt.
HAFNARFIRÐI. — Urn 20.hum-
arbátar hafa verið gerðir út
héðan í sumar og hafa þeir afl-
að fremtur vel og sumir ágæt-
lega. Níu bátar hafa lagt upp
hjá Bæjarútgerðinni og þeir
yfirleitt fengið um 140—170
tonn af humar og öðrum fiski,
svo sem þorski, karfa, steinbít,
langlúru og lúðu. Fá þeir frá
400 kg. og allt upp í eitt tonn
af fiski í hvert sinn. Sjómenn
bera úr býtum um 6% af brúttó-
afla Qg er aflaverðmæti hæsta
bátsins hjá útgerðinni, sem er
Sæljón, skipstjóri Gísli Ólafs-
son, rúmlega ein milljón króna.
Hafði hann aflað hinn 15. ágúst
um 160—70 tonn. — Þess skal
getið, að engar löndunartafir
hafa verið hjá bátunum.
Verða nú taldir upp nokkrir
humarbátanna hjá Jóni Gísla-
syni og Lýsi og mjöl og afla-
magn þeirra. Það skal þó tekið
fram, að þeir byrjuðu veiðarnar
á misjöfnum tíma.
Fiskaklettur 161 tonh af hum-
intgur 82, Ingjaldur 40, Vonin 50
Og Hafbjörg 120 tonn hjá Lýsi
ar og öðrum fiski, Stefnir 129
tonn, Flóaklettur 115, Hafnfirð-
og mjöl, en hún hefir einnig
lagt upp talsvert magn hjá
Bæjarútgerðinni. •
Gríðarlega mikil vinna hefir
verið við humarinn í sumar og
unglingar allt niður í 10 ára
aldur starfað í frystihúsunum
-og unnið sér inn dágóðan skild-
ing. — Enn um hálfsmámaðar
skeið mega bátarnir stunda hum
arveiðar og ef til vill munu
einhverjir sækja um að fá að
veiða lengur.
Togararnir eru nú allir á
veiðum, og a. m. k. eimhverjir
munu hyggja á Þýzkalands-
markað úr næstu veiðíferð.
Frétzt hefir hins vegar, að
markaður þar hafi verið með
lélegra móti enn sem komio er,
Nú eru síldarbátarnir farnir
að koma að norðan, t. d. komu
Auðunn, Ársæll Sigurðsson og
Eldiborg um helgina og fóru
þeir strax á síldveiðar hér fyrir
sunnan. — G.E.
- íbróttir
Framh. af bls. 22
miðjuna og Sigurþór lenti í ná
vígi við Geir markvörð en hafði
betur.
Liðin
Lið KR var mjög heilsteypt
þessum leik, hvergi veikur hlekk
ur, en liðið allt hreyfanlegt og
ákveðið, svo að sjaldan hefur
betur verið.- Gunnar Guðmanns-
son og örn Steinsen eru báðir
öllu betri en nokkru sinni fyrr.
Gunnar Fel. hefur gífurlega yfir
ferð. Með Ellert sem uppbyggj-
ara og fyrirleggjara að baki sér
er hann stórhættulegur. Sigur-
þór er mjög vaxandi — nú með
mark eða mörk í hverjum leik,
ákveðinn, fljótur og duglegur.
Sama er að segja um Garðar
og Svein sem eru mjög hreyfan
legir og stoðir bæði í vörn og
sókn. Aftasta vörnin skilaði sínu
hvað bezt nú af öllum leikjum
ársins. í heild hefur KR liðið
ekki í annan tíma verið betra.
Lið Fram er skipað ójafnari
mönnum og lakari mörgum sem
einstaklingum. En liðið vinnur
vel saman þó skorti herzlumun
á nákvæmni og ákveðni en ein-
mitt það ræður baggamuninn.
Hrannar og Björn Helgason
framverðir voru beztu menn liðs
ins, réðu framan af en voru til
leiksloka stólpar liðsins. Hvergi
þar var veikur hlekkur heldur
þó ekki tækist betur. — A St.
Hvað sagði Guðmundur?
Undir þessari fyrirsögn segir í
forystugrein Alþýðublaösins á
sunnúdag:
Þegar Alþýðubandalagið ósk-
aði eftir, að fulltrúar þess fengju
að ræða við Guðmund í. Guð-
mundsson, utanríkisráðherra um
olíuframkvæmdir í Hvalfirði,
varð ráðherrann strax við þeirri
ósk. Hann ræddi við Hannibal
Valdimarsson og Eðvarð Sigurðs-
son og skýrði þeim nákvæmlega
frá því, sem fyrirhugað er.
Nú hefur það gerzt, að þessir
tveir herrar hafa séð ástæðu til
að rangfæra ummæli Guðmund-
ar í þessu einkasamtali og mis-
nota það í áróðursskyni. Má af
þessu sjá, að hér eru samvizku-
lausir menn að verki, og gefur
þetta atvik stjórninni ekki á-
stæðu til að leggja sig fram til
að ræða við stjórnarandstöðuna,
þegar svona er að farið.
Þegar Guðmundur hafði skýrt
þeim Hannibal og Eðvarð frá
málinu, spurðu þeir sérstaklega
um hinar fyrirhuguðu festingar
fyrir skip. Spurðu þeir hvort
herskip, þar á meðal kafbátar,
gætu legið við þessar festar.
Guðmundur kvaðst gera ráð
fyrir, að binda mætti allt, sem
flýtur á sjó, við legufæri sem
væru nógu stór.
Þetta telja kommúnistar vera
viðurkenningu Guðmundar í. á
því, að framkvæmdirnar muni
gera Hvalfjörð að bækistöð fyrir
„herskip og kafbáta, þar á með-
al kjarnorkukafbáta".
Þessi ályktun er fráleit. Sam-
kvæmt þessu ættu Reykjavík,
Hafnarfjörður, Akureyri og
margar fleiri hafnir á íslandi, þar
sem hægt er að binda skip (einn-
ig herskip og kafbáta, þar á með-
al kjarnorkukafbáta) að vera
stórhættulegar flotastöðvar.
Þetta atvik sýnir, að ráðherr-
ar eða aðrir ábyrgir embættis-
menn geta ekki talað við komm-
únista í einrúmi um neitt, sem
máli skiptir. Þeir eru vísir til að
rangsnúa ummæli manna, draga
af þeim furðulegustu álytkanir
og nota allt þetta gegn þeim
embættismanni, sem við þá tal-
aði.
Það sýnir veikleika í þeirri
áróðurssókn, sem kommúnistar
og framsóknarmenn nú halda
uppi um Hvalfjörð, að þeir skuli
þurfa að byggja á slíkum útúr-
snúningum, sem hér hafa verið
nefndir. Þeir kæra sig sýnilega
ekki um málefnalegar umræður
um' þetta áróðursmál enda eru
sérstakir hagsmunir í veði — og
annað ekki.
Viðreisn áfram
Forystugrein íslendings sL
föstudag ber ofangreint nafn.
Þar segir:
Eins og kunnugt er, leiddu al-
þingiskosningarnar í vor í ljós,
að viðreisnarstjórninni hafði auk
izt fylgi, en það er eins- og fá-
dæmi um ríkisstjórn, sem setið
hefur heilt kjörtímabil samfleytt
að völdum og orðið að gera miðl-
ungi vinsælar ráðstafanir til að
íylgja fram stefnu sinni. Um
þetta segir Frjáls verzlun m. a.
(3. hefti 1963):
„Úrslit , alþingiskosninganna,
sem fram fóru þann 9. júní sl.
tryggja, að áfram verður haldið
umbóta- og viðreisnarstarfi rík-
isstjórnarinnar. Því ber að fagna,
enda vafasamt, að nokkur ís-
lenzk ríkisstjórn hafi starfað
með jafngóðum árangri og við-
reisnarstjórnin þjóðinni til heilla
og hagsbóta. Nú mun haldið á-
fram þeirri stefnu, sem rekin
hefur verið í efnahagsmálum og
fjármálum rikisins."