Morgunblaðið - 24.09.1963, Side 1
24 síftur
50 árgangur
206. tbl. — Þriðjudagur 24. september 1963
Prentsmiðja Mor"unblaðsins
Indónesía hættir
viðskiptum við
IUalaysíu
Jakarta, Kuala Lumpur, ..
London 23. sept. (NTB*-AP).
INDÓNESÍUMENN reyndu í dag
að brjótast inn í öryggishólf
brezka sendiráðsins í Jakarta, en
áður hafði starfsmönnum sendi-
ráðsins verið meinaður aðgangur
að öryggishólfunum. Er Gilchrist
sendiherra fregnaði innbrctstil-
raunina, ók hann begar í stað til
sendiráðsins og ruddi sér braut
að hólfunum ásamt einum sendi-
ráðsstarfsmanni. Brezkir verðir
igæta nú öryggishólfanna í rúst-
um brezka sendiráðsins.
Mikill uggur er í Bretlandi
Floti
Andersons
farinn
FLOTI Barry Anderson, kapt-
eins, 4 tundurduflaslæðarar
og birgðaskip, héldu til Bret
lands frá Seyðisfirði sl. sunnu'
dagskvöld. Siæddu skipinj
tundurduflasvæðið á Seyðis-
firði á laugardag og sunnu-
dag, en fundu engin dufl þar.
Skipiri slæddu um miðja1
síðustu viku á Eyjafirði og
fundu þar 4 tundurdufl, sem
voru á um 25 faðma dýpi. Var
eitt duflið sprengt, en hinum
sökkt. Liggja þau nú á botni
og mun sjórinn með tíman,
um éta þau sundur. Engin
hætta stafar af duflunum þar
sem þau eru.*
vegna brezkra fyrirtækja, sem
verkalýðsfélögin í Indónesíu hafa
tekið traustataki. Sukarno for-
seti hefur lofað, að eignum fyrir-
tækjanna verði ekki spillt og þau
afhent eigendum innan skamms.
Indónesíustjórn hefur ákveðið
að hætta viðskiptum við Mal-
aysíri og sagði Sukarno forseti
í dag, að þessi ákvörðun yrði
landinu til blessunar. Abdul
Rahman, forsætisráðherra Mai-
aysíu, sagði hins vegar, að Indó-
nesía tapaði meira á slitum við-
skiptasambandsins en Malaysía'.
1 gær meinuðu varðmenn Indó-
nesíustjórnar brezkum sendiráðs-
starfsmönnum í Jakarta aðgang
að öryggishólfum í rústum brezka
sendiráðsins. í dag hélt Gilchrist
sendiherra fund með fréttamönn-
um til þess að mótmæla fram-
ferði varðmannanna, en meðan
fundurinn stóð yfir bárust sendi-
herranum fregnir af því, að
fjórir fulltrúar Indónesíustjórnar
gerðu tilraunir til þess að
sprengja upp hólfin, sem inni-
halda mikilvæg skjöl. Sendiherr-
ann hraðaði sér á vettvang
ásamt hernaðarfulltrúa sendi-
ráðsins. Ruddust þeir að öryggis-
hólfunum og tóku upp varðstöðu
við þau. Hermálafulltrúinn sýndi
fréttamönnum síðar verkfæri,
sem fundust við hólfin og rispur,
sem sýndu að reynt hafði verið
að brjótast inn í þau. Eftir að
Gilchrist sendiherra kom til
sendiráðsins, féllst Indónesíu-
stjórn á að leyfa brezkum varð-
mönnum að standa vörð um
rústirnar. Brezka stjórnin hefur
mótmælt harðlega atferli em-
bættismanna Indónesíustjórnar.
Brezka stjórnin er nú ugigandi
Framh. á bls. 23
U Thant framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna iieilsar Kennedy Bandaríkjaforseta í aðal-
stöðvum samtakanna í New York sl. föstudag, en þá ávarpaði forsetinn Allsherjarþingið. Á
milli U Thants og Kennedys er Adlai Stevenson fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá sameinuðu
þjóðunum (AP).
Sveitastjórnarkosningar í Noregi:
Verkamannaflokkurinn vinnur á
Sömuleiðis borgaraflokkarnir
nema vinstriflokkurinn
Osló, 23 september. —
NTB og Skúli Skúlason.
f DAG fóru fram bæjar- og
sveitastjórnarkosningar í Noregi.
Þegar blaðið fór í prentun var
talningu lokið í 175 kjördæmum
af 525. í þessum kjördæmum
hafði verkamannaflokkurinn
Kínverjar vilja sölsa undir sig
landsvæöi Sovétríkjanna
Síðari hluti yíirlýsingar Sovétstjórnarinnar
Moskvu, 23. sept. — (AP) —-
STJÓRN Sovétríkjanna hef-
ur sakað kínverska kommún-
ista um mikinn yfirgang á
landamærum Kína og Sovét-
ríkjanna og segir þá hvað
eftir annað hafa reynt að
leggja undir sig hluta af
sovézku landssvæði. Ásakan-
ir þessar koma fram í síðari
hluta yfirlýsingar Sovét-
stjórnarinnar um Kínverja
og stefnu þeirra, en hún var
hirt sl. sunnudag í Pravda og
fleiri sovézkum blöðum. —
Fyrri hluti yfirlýsingarinnar
birtist á laugardag o£ var
skýrt frá honum í fréttum á
sunnudag.
í síðari hluta yfirlýsingar Sov
étstjórnarinnar segir ennfremur,
að hún hafi oft gert tilraunir til
þess að fá Kínverja til viðræðna
«m landamæri ríkjanna, en Kín-
verjar hafi alltaf forðazt slíkar
viðræður og haldið áfram yfir-
gangi á landamærunum. Sovét-
stjórnin segir, að tilraunir Kín-
verja til jress að ná á sitt vald
sovézkum landsvæðum hafi haf-
izt 1960. Á einu ári, 1962, hafi
Kínv-erjar, bæði hermenn og ó-
breyttir borgarar, virt landa-
mæri Sovétríkjanna að vettugi
oftar en 5 þúsund sinnum.
Talið er, að þessar ásakanir
Sovétstjórnarinnar séu mótleikur
við ákærum Kinverja þess efn-
is, að Rússar hafi ginnt 50 þús.
kínverska þorgara inn yfir landa
mæri Sovétríkjanna.
En ekki var þó minnst berum
orðum á þessar staðhæfingar
KinVerja.
í yfirlýsingunni sagði m.a., að
kínverskir leiðtogar gerðu sitt
ýtrasta til þess að æsa þjóðina
gegn öðrum þjóðum og í þeim
tilgangi reyndu þeir að draga at
hyglina að landamæraágreiningi.
Rætt er um bardagann á landa
mærum Indlands og Kína og
sagt, að markmið hans hefði ver
ið að spilla ástandinu í alþjóða-
málum.
Eins og skýrt var frá í frétt-
um á sunnudaginn fjallaði fyrri
hluti yfirlýsingar Sovétstjórnar-
Framh. á bls. 2
aukið fylgi sitt um rúm 2%.
Borgaraflokkarnir höfðu aukið
fylgi sitt lítilsháttar nema vinstri
flokkurinn.
Úrslitin í þessum kjördæmum
sýna, að kjósendur lá'ta ekki inn-
anhéraðsmál ráða atkvæðun^sín
um heldur mál þjóðarinnar í
heild. Hafa óháðir frambjóðend
ur og frambjóðendur flokka, sem
bjóða aðeins fram j fáum kjör-
dæmum hlotið mun færri at-
kvæði en í síðustu bæjar- og
sveitastjórnarkosningum.
í kjördæmunum 175 höfðu
241.929 greitt atkvæði.
Hér á eftir segir hve mörg
prósent hver flokkur fékk af
þessum atkvæðum og í svigum
prósentutölur þeirra við síðustu
kosningar ('1959):
Y erkamannaf 1.
Hægriflokkurinn
Kommúnistar
Kristilegi þjóðarfl.
Miðflokkurinn
Vinstriflokkurinn
Sósíaliski þjóðarfl.
Aðrir flokkar
Óháðir
heildir og nú eru hrepps- og
bæjarfélögin aðeins 525, en 1959
voru þau 732.
Við síðustu bæjar- og sveita-
stjórnarkosningar voru atkvæða
hlutföll flokkanna mjög svipuð
þvi, sem þau urðu við Stór-
þingskosningarnar 1961. Hér á
eftir fara úrslit kosninganna 1959
og í svigum úrslit kosninganna
41,64 (39,59)
10,70 (10,24)
1,67 (2,70)
6,85 (6,93)
15,63 (15,02)
7,75 (8,55)
1,17 (0,00)
3,64 (5,23)
10,95 (11,73)
Miklar breytingar hafa orðið
á hreppaskipan í Noregi frá síð-
ustu bœjar- og sveitarstjórnar-
kosningum (1959). Þær breyt-
ingar hafa eingöngu miðað í þá
átt, að hreppar og kaupstaðir
hafa verið sameinaðir í stærri
Sameinast írak og Sýrland í eitt ríki?
í
Damaskus, 23. sept. (AP).
Áreiðanlegar heimildir í Dam
askus herma, að Baath sósíal
istar, sem eru við völd í írak
og Sýrlándi, áformi nú að sam
eina rikin í eitt sambandsríki.
Heimildirnar lögðu áherzlu á
að hið nýja sambandsriki yrði
ekki stofnað til höfuðs Ara-
bíska sambandslýðveldinu.
Vonuðust stjórnendur íraks og
Sýrlands til þess að gott sam
starf mætti takast með sam-
bandsríkinu og Egyptum.
1 næsta mánuði verður hald
ið flokksþing Baath sósíalista
í Arabaríkjunum og herma
heimildirnar, að á því þingi
verði tekin ákvörðun um
stofnun sambandsríkisins. Seg
ir, að er sambandsríkið hafi
verið stofnað, verði öllum
frjálsum Arabaríkjum boðin
aðild að því.
1961:
Verkamannafl.
Hægrifl.
Vinstrifl.
Miðflokkurinn
729.503 (855.425)
310.636 (348.464>
148.799 (130.876)
129.777 (125.179)
Kristilegi þj.fl. 124.650 (125.179)
Kommúnistar 64.684 (53.391)
Sósíalíski þj.fl. (43.477)
— Við stórþingskosningarnar
var samvinna milli ymsra borg-
araflokkanna, . einkum milli
hægri og kristilega flokksins, en
einnig milli miðflokksins og
vinstriflokksins og gefur það
nokkra skýringu á því, að vinstri
hrakaði en miðflokurinn jók við
sig á árunum 1959—61.
En samtals höfðu borgara-
flokkarnir 752.881 atkv. en verka
mannaflokkurinn 729.503, við
sveitastjórnarkosningarnar fyrir
fjórum árum. Þá fengu komm-
únistar 64.684 atkv. en sósíal-
istaflokkurinn var eiginlega ekki
til þá. Fylgismenn hans buðu
fram fulttrúa í aðeins þrem
hreppum og fengu aðeins fá at-
kvæði. Við þingkosningarnar
1961 buðu sósíalistar hins vegar
fram í allmörgum kjördæmum
og tókst að fá tvo menn kosna,
annan í Osló, Finn Gustavsen
og hinn í Nordland, Asbjörn
Holm. Hinn nýi flokkur fékk
43.477 atkvæði, en hins vegar
hrakaði atkvæðamagni kommún-
ista úr 60.060 (frá 1959) niður
í 53.391 við kosningarnar 1961,
eða um tæp 7.000 atkvæði. At-
kvæðatölu verkamannaflokksina
hrakaði á sama tíma um rúmlega
10.000 atkvæði, svo að segja má,
að Finn Gustavsen nafi átt högg
í annarra garði en þó hlutfalls-
lega meira í garð kommúmsta.