Morgunblaðið - 24.09.1963, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjuda'gur 24. sept. 1963
Eins og áður hefur verið skýrt frá, var listsýaing Nínu Sæmundsson opnuð í Bogasal Þjóðminja-
safnsins sl. laugardag. Aðsókn að sýningunni hefur verið góð og hafa þegar þrjú málverk selzt.
Á sýningunni eru 27 málverk og 4 höggmyndir og birtist hér mynd af einni höggmyndanna, sem
listakonan nefnir: „Deyjandi Kleopatra". — Listsýningunni lýkur 30. september.
Tvær mínútur skildu
milli lífs og dauða
80 punda steinn fór í gegnum kaffiskúr
vegavinnumanna í Ölafsvíkurenni
Ólafsvík, 23. september.
ÞAÐ munaði aðeins tveim mínút-
um, að nokkrir vegavinnumenn,
sem vinna við að leggja hinn
nýja veg fyrir Ólafsvíkurenni,
færust eða stórslösuðust, er tveir
steinar hrundu úr fjallinu og
lentu á kaffiskúr, þar sem þeir
höfðu verið að drekka kvöld-
kaffi sl. þriðjudagskvöld.
Það varð þeim til björgunar,
að verkstjórinn kallaði þá út
úr skúmum til að taka vörur af
vörubíl og voru þeir að þeirri
iðju, þegar steinarnir komu fljúg
andi. Hellirigning var og því
ólíklegt að mennimir hefðu verið
Úti við að öðrum kosti.
Þegar mennimir heyrðu gný-
inn af grjóthruninu hlupu þeir
undir kaffiskúr, sem er rétt hjá
hinum. Héldu þeir þar til unz
skriðan hafði gengið yfir. Meira
en 9 tímar voru liðnir frá síð-
ustu sprengingu svo skriðan kom
á óvart.
Þegar að var gáð kom í ljós,
að stærri steinninn, um 70—80
pund að þyng(£ hafði lent á þaki
kaffiskúrsins og í gegn á sæti
eins vegavinnumannsins, Ágústs
Eiríkssonar, sem þar hafði setið
Cuðjón Bach-
mann, verkst jóri
látinn
GUÐJÓN Bachmann, verkstjóri,
Borgarnesi, andaðist að heimili
sínu s.l. laugardag.
Guðjón var á 96. aldursári.
Hann var verkstjóri hjá Vega-
gerð ríkisins í 55 ár.
— Kmverjar
Framh. af bls. 1
ínnar um það, sem hún nefnir
sviksamlega afstöðu Kínverja í
hugmyndafræðideildinni og einn
ig segir, að Kínverjar séu mót-
fallnir samkomulaginu um bann
við tilraunum með kjarnorku-
vopn, vegna þess að þeir vilji
•jálfir eignast siík vepn, hvað
sem það kostL
um tveim mínútum áður, og fór
steinninn svo út um skúrhliðina
og valt niður í fjöru, sem er
30—40 metrum neðar.
Hinn steinninn, um 40 pund,
fór inn um skúrhliðina og stanz-
aði á miðju gólfi. Mennimir, sem
þarna voru, telja fullvíst, að
minnsta kosti fjórir þeirra hefðu
orðið fyrir steinunum, ef þeir
hefðu ekki verið kallaðir út. —
Þeir voru alls um 10 í skúmum.
MBL. hefur borizt eftirfarandi
yfirlýsing frá Félagi matvöru-
kaupmanna og Félagi kjötverzl-
ana í Reykjavík.
Miðvikudaginn 18. sept. sl.,
héldu Félag matvörukaupmanna
og Félag kjötverzlana í Reykja-
vík sameiginlegan fund í Leik-
húskjallaranum og var fundar-
efni, verðlagsmál, rekstrargrund-
völlur matvöruverzlana og af-
koma þeirra.
Á vegum félaganna hefur ver-
ið starfandi að undanförnu, verð
lagsmálanefnd, sem m. a. hefur
haft það hlutverk á hendi, að
rannsaka rekstrargrundvöll og
afkomu matvöruverzlana. Ólaf-
ur J. Ólafsson, löggiltur endur-
skoðandi, hefur staðið fyrir rann-
sókninni, og var hann mættur á
fundinum og skýrði niðurstöður
rannsóknar sinnar og nefndar-
innar. Til grundvallar rannsókn-
inni voru lagðir rekstrarreikn-
ingar verzlana fyrir árin 1961 og
1962, en þar sem viðkomandi
verzlanir eru misgamlar, reka
ýmist í einkaeign eða hlutafé-
lögunum, voru gerðar viðeigandi
breytingar á einstaka liðum
reikninganna, til þess að gera þá
sambærilega hvern öðrum. Nið-
urstaða rannsóknanna sýnir, að á
árinu 1961 og 1962 hafa mat-
vöruverzlanir almennt verið
reknar með halla og það enda
þótt laun eiganda eða vextix af
eigin fé væri ekki reiknað til
gjalda viðkomandi fyrirtækja.
Þá er það ennfremur vitað. að
á yfirstandandi ári hafa þegar
Maður slasast í
árekstri á Seyðis-
firði
Seyðisfirði, 23. september.
HARÐUR árekstur varð hér sl.
nótt á Hafnargötu. Lentu saman
vörubifreið síldarverksmiðjanna
og R-2496, sem er jeppi af Land-
rovergerð, eign Sveins Bene-
diktssonar.
í jeppanum var farþegi,
Ámundi Ámundason, og við
áreksturinn skarst hann í andliti
og hálsi og varð að flytja hann
á sjúkrahús. Meiðsli Ámunda
eru ekki talin alvarlegs eðlis.
Jeppinn er mikið skemmdur,
en vörubifreiðin tiltölulega lítið.
orðið þrjár launahækkanir hjá
starfsmönnum fyrirtækja þess-
ara, auk allverulegra hækkana á
ýmsukm öðrum kostnaðarliðum.
Er því sýnilagt, að á árinu 1963
kemur afkoma þessara sömu
fyrirtækja til með að verða enn-
þá lakari.
Verðlagsyfirvöldum hefur ver-
ið gerð fullkomin grein fyrir
þessu, bæði nú og áður, og verð-
ur nú eigi lengur hjá því komizt,
að leiðrétta gildandi verðlags-
ákvæði þannig, að fullt tillit sé
tekið til eðlilegra þarfa fyrir-
tækjanna.
Á fundinum var eftirfarandi
tillaga samþykkt:
„Almennur sameiginlegur fund
ur Félags matvörukaupmanna og
Félags kjötverzlana í Reykjavík,
haldinn í Leikhúskjallaranum,
miðvikudaginn 18. sept. 1963, fel-
ur verðlagsmálanefnd félaganna
að vinna að því við verðlags-
yfirvöld, að fá leiðréttingu verzl-
unarálagningar til samræmis við
raunverulega þörf fyrirtækjanna,
sem rannsóknir nefndarinnar
hafa sýnt.
Ef slík leiðrétting fæst ekki
án ástæðulausrar tafar hjá verð-
lagsyfirvöldum telur fundurinn
rétt að benda á, að óhjákvæmi-
legt er að verzlunin sjálf leið-
rétti álagninguna á grundvelli
rannsóknanna til samræmis við
sannanlega þörf fyrirtækjanna
til þess að greiða raunverulegan
kostnað við dreifingu hverrar
vörutegundar."
— Sveinn.
telja
verðlagsreglur
óviðunandi
Danir safna fé fil
styrktar skóla
í Skálholti
í DANMÖRKU hefur verið
sett á fót nefnd í þeim til-
gangi að styrkja byggingu
skóla í Skálholti. í bréfi, sem
nefndarmenn hafa gefið út
segir m.a., að þegar haft sé
hugfast hið nána samband
íslands og Danmerkur um
aldaraðir, sé eðlilegt, að Dan-
ir vilji leggja sinn skerf til
endurreisnar Skálholts.
Formaður dönsku nefndarinn-
ar er Gudmund Schi01er, biskup,
Hróarskeldu og auk hans er hún
skipuð mörgum mönnum, sem
unnið hafa athyglisverð störf á
sviði skólamála. Má til dæmis
nefna Otto Kaarsberg, forseta
hæstaréttar, dr. jur. prófessor
Stephan Hurwitz, talsmann þings
ins, H. Hoffmann bankastjóra,
formann stórbanka Kaupmanna-
hafnar, O. Blinkenberg Nielsen
sparisjóðstjóra, formann danskra
sparisjóða. Kjörin hefur verið
framkvæmdanefnd og í henni
eiga sæti, auk formannsins
Schiþlers biskups, Poul Hjer-
mind hæstaréttarlögmaður, sem
féhirðir, S. Haugstrup Jensen,
skólastjóri Gruntvigsskólans við
Hilleröd og Bent A. Koch, rit-
stjóri.
Nefndin leggur áherzlu á, að
hún muni ekki stofna til fjár-
söfnunar á breiðum grundvelli í
Danmörku til styrktar Skálholts
skóla, heldur taka á móti fjár-
framlögum, sem ýmsir aðilar
óski eftir að gefa til skólans.
Nefndinni hefur þegar borizt
fyrsta stóra framlagið, sem nem
ur 10 þúsund krónum dönskum.
Gefandinn er atvinnurekandi í
Kaupmannahöfn, sem vili ekki
Cetakomizt
í norskan lýð-
háskóla
VEGNA forfalla geta tvær ís-
lenzkar stúlkur fengið ódýra vist
á Iýðháskóla í Noregi í vetur.
Skóli þessi er skammt frá Berg-
en. Lágmarksaldur er 17 ár.
Stúlkur, sem hefðu hug á að
sækja um þessa skólavíst geta
snúið sér til Magnúsar Gíslason-
ar, framkvæmdastjóra Norræna
félagsins í Reykjavík.
láta nafns síns getið. Hann af-
henti Koch ritstjóra ávísun á
þessa upphæð. Nefndinni hafa
einnig borizt tvær aðrar ávísan
ir, báðar á eitt þúsund danskar
krónur, frá gömlum nemendum
Grundtvigs lýðháskólans og lýð-
háskólans í Haslev. Skólastjórar
beggja skólanna eiga sæti 1
nefndinni.
Ætlunin er, að upphæðin, sem
nefndin afhendir íslendingum,
verði táknræn gjöf til hins mikil
væga skóla á íslandi.
— Rytgaard.
Hér fer á eftir kafli úr bréfl
nefndarinnar:
„í þakkarskyni fyrir hið mikla
framlag íslands til norrænnar
menningar, hafa verið settar á
fót nefndir í Finnlandi, Noregi
og Danmörku, í þeim tilgangi að
safna fé til stuðnings hugmynd-
inni um skóla í Skálholti. Þegar
haft er hugfast hið nána sam-
band íslands og Danmerkur um
aldaraðir, hlýtur að þykja mjög
eðlilegt, að Danir vilji einnig
leggja skerf til endurreisnar
Skálholts. Til þess að skerfurinti
verði af mörkum lagður, er
nefndinni komið á fót. Markmið
ið er að gjöf Dana nemi að
minnsta kosti 200 þúsund d. kr.“
Nefndarmenn eru: K. B. And
ersen, þingmaður, Hanne Budtz,
ladsréttarlögmáður, N. Chr.
Christensen, ritstjóri, Sigurd
Christensen, vátryggingastjóri
og ræðismaður, Poul Engberg,
lýðháskólastjórið Erik Eriksen,
fyrrv. forsætisráðherra, Uffe
Grosen, lýðháskólastjóri, O.
Hedegaard, bankastjóri, Poul
Hjermind, hæstaréttarlögmaður,
féhirðir nefndarinnar, H. Hoff
mann, bankastjóri, St. Hurwitz,
prófessor dr. jur., H. Hþgsbro,
biskup dr. theol., S. Haugstrup
Jensen, lýðháskólastjóri, Jþrgen
Jprgensen, fyrrv. menntamála-
ráðherra, Otto Kaarsberg, for-
seti hæstaréttar, Bent A. Koch,
ritstjóri, Johs. Magelund, lýðhá-
skólastjóri, E. Meulengracht, pró
fessor dr. med., Poul Mölier,
landréttarlögmaður, O. Blinken-
berg Nielsen, sparisjóðsstjóri,
Niels Nielsen, prófessor dr. phil„
P. Nyboe Andersen, prófessor dr.
oecon., Gudmund Schiþler, bisk
up, formaður nefndarinnar, Roar
Skovmand, ríkisráðunautur dr.
phil., Knud Thestrup, dómari og
Finn Tulinius, sóknarprestur.
Kínverjar spýta, geispa
og hlæja í Leninsafninu
Moskvu 23. sept. (AP)
RÚSSAR kvörtuðu undan
því á sunnudaginn, að kín-
verskir listdansarar, sem
dveljast nú í Sovétríkjunum,
dreifðu and-sovézkum áróðri
milli þess, sem þeir kæmu
fram opinberlega.
Blaðið Sovézk Menning rit-
aði um þetta á sunnudaginn
og sagði m.a., að Kínverjarn-
ir væru mjög góðir lLstamenn,
en þegar þeir stigju niður af
sviðinu breyttust þeir úr að-
laðandi hæfileikamönnum í
rógbera og undirróðursmenn,
sem réðust harkalega á stefnu
Sovétstjórnarinnar og færu
ærumeiðandi orðum um
kommúnistaflokk Sovétríkj-
anna.
Blaðið sagði, að heimsókn
listamannanna í Gorkysam-
yrkjubúið fyrir utan Moskvu
hefði helzt líkst vel undirbú- ]
inni áróðursherferð. Þeir
hefðu misnotað gestrisni
bændanna og notað alla
heimsóknina til þess að gagn 1
rýna og niðurlægja sovézku .
þjóðina og stefnu Sovét- 1 j
stjórnarinnar. '
Sovézk menning sagði, að
einn bændanna á samyrkju-
búinu hefði sýnt Kínverjun-
um hús sitt og þá hefðu þeir j
sagt, að húsið væri verra en *
aumasta hreysi í Kína. Blað- m
ið kvartaði einnig undan
hegðun Kínverjanna, er þeim j
var sýnt Leninsafnið 1 >
Moskvu. Segir, að þeir hafi
gengið um með fyrirlitningar
svip, hlegið háðslega, geispað
og spýtt. Blaðið segir að lok-
um, að augljóst > sé, að Kín-
verjarnir hagi sér eftir fýrir- >
rnælura að heiman.