Morgunblaðið - 24.09.1963, Blaðsíða 24
■Völ^VO
"tTuefct"
206. tbl. — Þriðjudagur 24. september 1963
SGÖGM
STERKOG
STÍLHREI
Tíu hafa sdtt um
prestsembætti
SEX PRESTSEMBÆTTI hafa
verið auglýst laus til umsóknar
í Reykjavík, þrjú í nýjum presta
köllum og þrjú vegna fjölgunar
presta í öðrum. Um þessi embætti
hafa 10 prestar eða- verðandi
prestar þegar sótt um, en um
sóknarfrestúr er til 15. október
n.k.
Um Ássprestakall (nýttj hefur
sótt séra Jónas Gíslason, Vík i
Mýrdal.
Um Bústaðaprestakall (ný skip
an) hefur sótt séra Ólafur Skúla
son, æskulýðsfulltrúi þjóðkirkj
unnar.
Um Grensásprestakall (nýtt)
hafa sótt Felix Ólafsson, fýrrv.
kristniboði, og séra Ragnar Fjal
ar Lárusson, Siglufirði.
Um Háteigsprestakall (fjölg-
un) hafa sótt séra Ásgeir Ingi-
bergsson, Hvammi, Dölum og
séra Lárus Halldórsson, ferða-
prestur.
Bræðslu að ljúka
á Raufarhöfn
Raufarhöfn, 23. sept.: —
Reykjafoss er hér í höfn og tek-
ur 10 þúsund sekki (50 kg.) af
sildarmjöli til útflutnings hjá
Síidarverksmiðjum ríkisins.
Bræðslu kemur til með að
Ijúka hér um miðja vikuna. Nú
hafa verið brædd um 234 þúsund
mál hér og saltað í tæpar 80 þús-
und tunnur í sumar. — Einar.
Um Langholtsprestakall (fjölg
un) hafa sótt séra Magnús Run
ólfsson, fyrruv. framkvæmda-
stjóri KFUM og séra Sigurður
Haukur Guðjónsson, Hálsi,
Fnjóskadal. .
Um Nesprestkall (fjölgun)
hafa sótt Frank Halldórsson,'
cand. theol. og séra Hjalti Guð
mundsson, sem verið hefur prest
ur meðal Vestur-íslendinga.
Þriðja konan staðin að
þjófnaði í verzlunum
1 GÆRDAG var enn ein kona
staðin að hnupli í verzlun í
Reykjavík og kærð fyrir lög-
reglunni. Samkvæmt upplýsing-
um Ingólfs Þorsteinssonar, varð-
stjóra í rannsóknarlögreglunni,
hefur slíkt hnupl í verzlunum
viðgengizt, og hefur verzlunar-
fólk yfirleitt haft þann hátt á, er
fólk hefur verið staðið að verki,
að krefja það um greiðslu á hin-
um stolna varningi, eða látið það
skila honum. Ingólfur tjáði Mbl.
að framvegis mætti gera ráð fyr-
ir því að þjófnaður í verzlunum
gengi beint til lögreglunnar, og
yrði því farið með þá, sem að
slíku eru staðnir, sem venjulega
sakamenn.
Konan, sem handtekin var í
gær, hafðí hnuplað fatnaði fyrir
á 5. hundrað kr. í verzluninni
Hagkaup við Miklatorg. Hafði
hún stungið varningnum í tösku,
en þess var farið á leit við hana,
að hún opnaði töskuna, um leið
og hún greiddi smáræði, sem hún
hafði uppi við.
Konan var tekin til yfirheyrslu
hjá rannsóknarlögreglunni í gær,
og játaði hún brot sitt.
Svo sem kunnugt er af frétt-
um, voru tvær konur kærðar fyr-
ir hnupl úr verzlun í sl. viku.
Við rannsókn málsins segir önn-
ur þeirra kvenna, en þær eru
frænkur, að hún hafi engu stolið,
þótt hún viðurkenni hins vegax,
Eimskip flytur frysta fugla
frá Charlston til Evrópu
SKIP Eimskipafélags íslands h.f.
sem verða í förum til New York
munu frá og með 9. okt. n.k.
koma við í borginni Charlston
og taka þar vörur til Evrópu-
hafna.
Selfoss mun hefja þessa nýju
þjónustu og fara frá New York
til Charlston. Þaðan munu Eim-
skipafélagsskapin taka frysta
Tveir sjóliðar
skornir upp í
Reykjavík
Þriðji liggur íót-
brotinn á Seyðisf.
L.UGVÉL frá Landhelgis
[gæzlunni, sem stödd var fyrir;
faustan í gærdag, flutti tvo
iveika sjóliða af brezku tund-
lurduflaslæðurnum til Reykja-
jvíkur.
Sjóliðarnir voru fluttir á
[Landakotsspitala, þar sem
lannar var skorinn upp við
jbotnlanga en hinn við kvið-
fslitL Þeim líður báðum vel
feftir atvikum.
Þriðji sjóliðinn af skipum
lAndersons liggur á sjúkra-
Ihúsinu á Seyðisfirði, en hann
nótbrotnaði við vinnu sína.
kjúklinga, kalkúna og annað dregizt saman, en óvíst hvað
kjötmeti og flytja á markað í
Evrópu. Mun farminum aðallega
skipað upp í Rotterdam.
Um þessar mundir standa yfir
miklar deilur milli Bandaríkj-
anna og Efnahagsbandalags Ev-
rópu vegna innflutningstolla á
bandarískum kjúklingum. Fyrir
nokkrum vikum hækkaði Efna-
hagsbandalagið tollinn mjög mik
ið og hafa síðan staðið yfir
samningaumléitanir til þess að
fá hann lækkaðan.
Markaðurinn á meginlandi Ev-
rópu hefur verið mjög þýðingar-
mikill fyrir sölu á bandarískum
kjúklingum og segja Bandaríkja-
menn, að hinn nýi, hái tollur,
muni gera þeim ókleift að selja
kjúklingana þar. Efnahagsbanda
lagið hefur boðið að lækka toll-
inn um 10%, en það telja Banda-
ríkin alltof litla lækkun.
Bandaríkjastjórn hefur hótað
að hækka tolla á ýmsum vörum
frá löndum Efnahagsbandalags-
ins fáist ekki veruleg lækkun á
kjúklingatollinum. Má búast við
úrslitum í deilu þessari innan
skamms tíma, því Bandaríkin
hafa látið í veðri vaka, að þau
muni láta hina nýju tollskrá. sína
koma til framkvæmda síðast í
septembermánuði.
Morgunblaðið fékk þær upp-
lýsingar hjá Eimskip í gær, að
deilan hafi enn sem komið er
ekki haft þau áhrif, að flutning-
ar á kjúklingum með skipum fé-
verði í framtíðinni náist ekki
samkomulag milli Efnahags-
bandalagsins og Bandaríkjanna
um kjúklingatollinn.
að hafa vitað um þ,ófnað frænk-
unnar.
Við húsleit hjá þeirri kvenn-
anna, sem talin er hafa stolið
úr verzluninni, fundust grun-
samlega miklar birgðir af niður-
suðuvöru. Leigir kona þessi eitt
herbergi í húsi hér í bæ, og telur
lögreglan óeðlilegt, að þar skyldi
finnast slíkt magn af þessum
vörum. Hins vegar heldur konan
því fram, að hún hafi keypt
Framh. á bls. 23
Hvalveiði lokið
439 hvalir
veiddusi í úr
Hvalvertíðinni í ár er lok-
ið. í gærkvöldi voru allirl
hvalveiðibátarnir kallaðir inn
og verður unnið að því í dagj
að taka veiðarfærin, línur og
skutla í land.
Alls veiddust - 439 hvalir,
283 langreyðar, 136 búrhválir
og 20 sandreyðar. Hvalur V.
fékk 104 hvali, Hvalur VI. 125
Ihvali, Hvalur VII 109 hvali
|og Hvalur VIII 101 hval.
Síðastliðið ár veiddust alls'
[483 hvalir.
IFYRIR nokkru var brú
Öxnadal tekin niður og flutt
heilu lagi og sett upp á
Köldukvísl, skammt frá Þóris-
ós.
Fyrsti bíllinn, sem fór yfirl
brúna á nýja staðnum var frál
Guðmundi Jónassyni. Við það
'tækifæri tók Jón R. myndina.* 1
Seldi fyrir 899 -
þús. krónur í 4
ferðum
Neskaupstað, 23. sept.: —
Vélbáturinn Þorsteinn frá Nes-
kaupstað, 38 tonn að stærð, hefur
nú farið 4 söluferðir til Eng-
lands í sumar.
í þessum ferðum hefur hann
selt fyrir 899 þúsund krónur og
gerir það 17,60 á hvert kíló af
fiski þeim sem hann seldi, mest
megnis rauðsprettu, sem var isuð
í lest.
Síðasta ferð Þorsteins tók 16
daga frá því hann fór héðan og
þar til hann var kominn aftur.
Tafðist báturinn af þrálátum
stormum. — Ásgeir.
Eldur í miðstöðv-
arskúr
ELDUR kom upp í miðstöðvar-
skúr að Tómasarhaga 9 um kL
21:58 í gærkvöldi. Skúrinn er á-
fastur við trésmíðaverkstæði.
Skúrinn eyðilagðist að mestu
í eldinum, en slökkviliðinu tókst
að koma í veg fyrir að eldurinn
kæmist í trésmíðaverkstæðið.
IVIjólk hækkar um 18,5%
25Jb hækkanir frá þvi haustið 1962
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins hefur auglýst hið nýja
verð á mjólk og mjólkurvör-
um. Mjólk í lausu máli hækk
ar úr kr. 4.85 lítrinn í kr.
5.75 og nemur hækkunin 18,5
%. Verð á kjötvörum- hefur
enn ekki verið ákveðið, en
væntanlega verður það. gert
síðdegis í .dag.
Samkvæmt auglýsingunni kost
ar mjólk í lausu máii nú kr.
5.75 og er það kr. 1.15 hærra
£n haustið 1962. En mjóik hækk-
aði 1. marz s.l. um 1'5 aura pr.
lítra og 10 aura 1. júní s.l., þann-
ig að hækkunin nú nemur 90
aurum eða 18,5%.
Hyrnumjólk kostar nú kr. 6.40
pr. lítra en kostaði kr. 5.25 í
fyrrahaust. Skyr kostar nú kr.
14.65 pr. kíló í smásölu, en kost
lagsins frá Bandaríkjunum hafi | aði kr. 12.75 í fyrrahaust.
Smjör kostar nú pr. kiló
kr. 103.55 en kostaði kr.
80.75 í fyrráhaust. Ostur (45%)
kostar nú pr. kíló kr. 84.15 en
kostaði kr. 71.35 pr. kg. í fyrra-
haust.
Niðurgreiðslur á mjólk verða
óbreyttar fyrst um sinn. Nú
nema niðurgreiðslur kr. 2.72 pr.
mjólkurlítrann. Þar sem niður-
greiðslur hækka , ekki, verður
hlutfallsleg hækkun á útsölu-
verði mjólkur meiri en sú hlut-
fallshækkun sem bændur fá.
Bændur fá 17.4% hækkun fyrir
mjólk, en útsöluverð hennar
hækkar um 25% miðað við verð-
ið í fyrrahaust af fyrrgreindum
ástæðum. Hins vegar hefur dreif
ingarkostnaður mjólkur aðeins
hækkað um Í0% og dregur það
heildar hækkanirnar niður að
hundraðshluta. Samkvæmt hin-
um nýja verðlagsgrundvelli
eiga bændur nú að fá kr. 6.19
fyrir mjólkurlitrann (17.4%
hækkun).
I gærkvöldi var ekki endan-
lega búið að ganga frá verði á
kjöti, slátri, kartöflum og fleiru,
en hið nýja verð mun væntan-
lega verða auglýst í kvöld.
Verð til bænda hefur þó ver-
ið ákveðið og fá þeir fyrir 1,
flokks dilkakjöt kr. 36.10 pr. kíló
og er það 28.9% hækkun miðað
við verðlagsgrundvöll haustið
1962.
Þessi mikla hlutfallslega hækk
un til bænda á kjöti umfram
mjólk stafar af því, að hluti
þeirrar hækkunar sem verða
átti á mjólk samkvæmt hinum
nýja verðlagsgrundvelli var
færður yfir á kjötverðið og enn
fremur sökum þess, að verð á
ull og gærum hækkar ekki eina
mikið og meðalhækkun verðlags
grundvallarins, sem er ' eins og
áður hefur verið skýrt frá 20.8%
t