Morgunblaðið - 29.01.1964, Page 1
24 siður
Frakkar og Kínverjar
á öndveröum meiði
Pekingstjómin segir engan geta viður-
kennt tvær stjórnir í sama landi - Frakkar
ætla ekki að slíta stjórnmálasambdndi
við Formósu
Peking, París, 28. janúar — (N'PB)
•fr í dag bárust andstæðar yfirlýsingar frá Peking og
París um stjórnmálasamband ríkjanna og viður-
kenningu Frakka á Pekingstjórninni.
/ í yfirlýsingu Pekingstjórnarinnar segir, að með því
að viðurkenna Kínverska alþýðulýðveldið hafi
Frakkar skuldbundið sig til þeSS að slíta stjórnmálasambandi
við stjórn Chiang Kai-Cheks á Formósu. Formósa sé hluti af
Kína og ekkert ríki geti viðurkennt tvær löglegar stjórnir
í sama landi.
■Jc Franska stjórnin segir hins vegar I yfirlýsingu sinni,
að hún muni ekki slíta stjórnmálasambandi við For-
mósu, og Frakkar hafi ekki tekið á sig neinar skuldbindingar,
er þeir samþykktu að taka upp stjórnmájasamband við Pek-
ingstjórnina.
Stjórn Formósu hafði til íhugunar að slíta stjórn-
málasambandi við Frakka vegina viðurkenningar
þeirra á Peldngstjórninni, en í dag ákvað hún að gera það
ekki. __ *
+ í dag bannaði stjórn S-Vietnam allan innflutning til
landsins frá Frakklandi í mótmælaskyni við viður-
kenningu Frakka á Pekingstjórninni.
í yfirlýsingu Pekingstjórnarinn
ar í dag segir, að um leið og
Frakkar viðurkenni Kínverska
alþýðulýðveldið hafi þeir skuld-
bundið sig til þess að slita stjórn-
málasambandi við Formósu. —
Formósa sé hluti af Kína og Pek-
ingstjórnin geti ekki sætt sig við
að eyjan verði viðurkennd sém
sjálfstætt ríki. Ekki sé heldur
kleift að viðurkenna tvær lög-
mætar stjórnir í sama landi og
Frakkar hafi rætt við P’eking-
stjórnina sem einu lögmætu
stjórn Kína. Samkvæmt alþjóða-
venju feli viðurkenning á einni
stjórn augljóslega í sér að slitið
sé stjórnmálasambandi við aðra
stjórnl sama landi. Tvær stjórnir
sama ríkis geti ekki staðið jafn-
fætis hvorki í augum eins er-
lends ríkis né á alþjóðlegum vett-
vangi. Þar af leiðandi geti Frakk-
ár ekki viðurkennt bæði Peking-
stjórnina og Formósustjórnina.
„Dagblað alþýðunnar“ í Pek-
ing tók í dag í sama streng í rit-
stjórnargrein. Segir þar, að ekk-
ert ríki geti viðurkennt Peking-
stjórnina en haft jafnframt stjórn
málasamband við Formósustjórn.
Bæði kínverska þjóðin og Pek-
ingstjórnin séu andvíg tilraun
bandarískra heimsvaldasinna til
þess að skipta Kína í tvö ríki.
Þar sé aðeins ein lögmæt stjórn,
Pekingstjórnin.
★
í yfirlýsingu, sem frajjska ut-
Framhald á bls. 2.
-Mao Tse-tung.
De Gaulle.
Fiskverð til sjdmanna
hækki um 15%
Frumvarpið vegna sjávarútvegsins sam-
þykkt frá Neðri deild
-£■ Þegar nefndarálit meiri
hluta fjárveitingarnefndar
neðri deildar Alþingis um frv.
til laga um ráðstafanir vegna
sjávarútvegsins o. fl. var lagt
fram í þingdeildinni í gær við
2. umræðu um frv., fylgdu því
breytingartillögur. Er þar m.
a. lagt til að veita ríkisstjórn-
inni heimild til þess að greiða
sem svarar 6% ofan á það
ferskfiskverð, sem yfirnefnd-
in ákvað 20. janúar. Hefur
ríkisstjórnin unnið að athug-
un fiskverðsins undanfarna
daga ásamt sérfræðingum sín-
um.
Vegna þessarar hækk-
unar til sjómanna og útvegs-
manna er lagt til, að söluskatt
urinn hækki úr 3% í 5%%,
eða hálfu prósenti meira en
ráð var upphaflega gert ráð
fyrir í frumvarpinu. Hækkar
hann því alls um 2.5% vegna
þessara ráðstafana til bjargar
sjávarútveginum.
Áætlað er, að þessi hækk
un nemi í kringum 52.5 millj.
króna.
Hækkun fiskverðsins
mun jafngilda 19* aurum á
hvert kílógramm.
-)Ar Minni hluti fjárhags-
nefndar (Framsóknarmenn)
lagði til, að framlög til sjávar-
útvegsins yrðu hækkuð og
gerð víðtækari, en söluskatt-
urinn verði ekki hækkaður.
Lúðvík Jósepsson (K) lagði
það einnig til, svo og að fisk-
verðið verði hækkað um 15%.
ý^-Breytingartillögur meiri-
hlutans voru samþykktar til
3. umræðu, en breytingartil-
lögur minnihlutans allar felld
ar. 3.hunræða fór svo fram í
gærkvöldi í neðri deild.
Framh. á hls. 8.
Sovétríkm leggja til að
allar sprengjufIugvélar
verði eyðilagðar
Aðalfulltrúi BandarEkjanna
eyðileggingu
véla.
sprengjuflug-
hjartsýnn á samkomulag
Gení 28. jan. NTB/
AÐALFULLTRÚI Sovétríkj-
anna á afvopnunarráðstefn-
unni i Genf, Semjon Zarap-
kin, kigði í dag fram tiliögu
um afvopnun í níu liðum. I
tillögunni er m. a. gert ráð
fyrir því að allar þjóðir eyði-
leggi sprengjuflugvélar sínar.
Einnig er gert ráð fyrir að
þjóðirnar leggi niður her-
stöðvar sínar í öðrum löndum
og samið verði um kjarnorku
vopnalaus svæði, fyrst og
fremst í Mið-Evrópu. I ræðu
sinni á fundi afvopnunarráð-
stefnunnar í dag sagði Zarap-
kin, að Sovétríkin gætu fall-
izt á að herstöðvar í- öðrum
löndum yrðu lagðar niður
smám saman t. d. legðu Sovét
ríkin niður herstöðvar í A-
Þýzkalandi gegn því að
Vesturveldin legðu niður her
stöðvar í Vestur-Þýzkalandi.
Fulltrúar Vesturlanda á af-
vopnunarráðstefnunni létu í
ljós áhuga á tillögum Sovét-
ríkjanna og sögðu, að þær
yrðu teknar' tii nákvæmrar
athugunar. — Aðalfulltrúi
Bandaríkjanna William C.
Foster sagðist hafa hlustað
með áhuga á tillögur Sovét-
ríkjanna og kvað sennilegt,
að ná mætti samkomulagi um
í fynstu litu fulltrúar Vest-
urveldanna á tillögu Sovét-
ríkjanna um eyðileg.gingu.
spren.gjuílugvéla sem saim-
þykki á tillögu, sem Banda-
ríkjaimjenn báru fram á s.l.
ári þess efnis, að eyðilagðar
yrðu all.ar sprengjuflugvéliar,
sem orðnar væru úreltar. En
eftir fundinn í dag lagði Zar-
apkin áherzlu á, að tillaga
Sovétríkjanna væiri mun við-
tækairi þa.r sem hún geirði
ráð fyrir eyðileggingu allra
sprengjuflugvéla bæði þeirra,.
sem tilbúnir væru til notkun-
ar og þeirra, sem verið væiri
að framleiða. Hann sagði, að
hugsanlegt samkomulag um
þetta atriði yrðu allar þjóðir
að undirrita, þar á meðad Kín
verjar og Frakkar.
Zarapkin benti á, að í til-
Framh. á bls. 2.
Flugvélar saknað
yfirA.-Þýzkalandi
Talið að hún haíi hrapað eða verið
skotin niður
Wiesbaden 28. janiúar (NTB).
TILKYNNT var í Bonn í kvöld,
að saknað væri tveggja hreyfla
æfingaþotu bandaríska flughers-
ins, sem flogið hefði inn yfir
Austur-Þýzkaland. Með þotunni
voru þrír menn. Haft vjir eftir
talsmanni bandaríska sendiráðs-
ins í Bonn, að flugvélin hefði
verið skotin niður yfir Austur-
Þýzkalandi, en samkvæmt fregn-
um frönáku fréttastofunnar AFP,
var þetta borið til baka í kvöld.
Sagði talsmaður höfuðstöðva
flughers Bandaríkjanna í Wies-
baden, að of snemmt væri að
fullyrða að flugvélin hefði verið
skotin niður því að eins líklegt
væri að hún hefði hrapað.
Flugvélm, sem er af gerðinini
T-39 Sabrenlmer, fór í venjulega
æfingaferð í dag frá Wiesibaden,
um 130 kim frá landamœrum
Austur-Þýzkalandi. Átti hún að
komn til baka kl. 17. (ís.1. tími).
Talsmaður flugumferðarstjórnar
fjóryeldanna í Vestur-Berlíin
skýrði frá því, að ferða flugvél-
arinnar hefði orðið vart yfir
Austur-Þýzkalandi.t Kluikkutíma
eftir að hún átti að koma til
baka til Wiesbadei-, var tilkynnt
að hennar væri saknað og nokikru
síðar sagði talsmaður sendiráðs
Bandaríkjanna í Bonn að hún
hefði' verið skotin niður yfir
Austur-Þýzkalandi, v en eins og
áður segir er talið of sneimmt
að fullyrða það. Austur-þýzka
fréttastofan ADN sagðist í kvöld
hvorki hafa heyrt að flugvél
hefði verið skotin niður né hrap-
að yfir Austur-Þýzkalandi.
Mennirnir þrír, sem með flug-
vélinni voru, eru allir Banda-
ríkjamenn kvæntir og búsettir í
Vestur-Þýzkalandi.
Kyrrt í
A.-Afríku
Dar-es-Salam 28. jan. (NTB).
ALLT var me'ð kyrrum kjör-
um í ríkjunum úganda,
Kenya og Tanganaiyka í
Austur-Afríku í dag og eru
brezkir hermenn á verði á
götum höfuðborga landanna.
Sem kunnugt er, gerðu herir
ríkjanna uppreisnartilraunir
fyrir skömmu, en þjóðhöfð-
ingjarnir kölluöu Breta til
hjálþar og tókst að koma á
friði.
ernmmtmmrnmMMUMnn