Morgunblaðið - 29.01.1964, Qupperneq 6
6
MORGUN BLADID
Miðvikudagur 29. jan, 1963
Noriurlands-
borinn ú föruna
HÚSAVÍK, 27. jan.: — Húsvík-
ingu.m til mikillar urMÍrunar hef
ir skyndilega verið ákveðið að
hætta borun eftir heitu. vatni í
Húsavík og farið er að taka
Norðurlandsborinn niður og und
irbúa flutning hans til Vest-
mænaeyja.
Eins og áður hafir verið um
getið var hætt við borun á Húsa
vík sl. sum-ar vegna vöntunar á
borsköftum, sem fá þurfti utan-
lands frá, en á meðan var borinn
fluttur inn í Bjamarfiag. Fyrir
áramót var hann svo aftur flutt-
ur til Húsavíkur og hófst borun
að nýju nú í janúarbyTjun. Var
þá talið að borað yrði niður á
16—1700 m dýpi. Borun þessi
hefir gengið mjög vel, en á laug-
ardag, þegar komið var niður á
1505 m dýpi kemur skyndilega
fyrirskipun að sunnan að hætta
að bora og flytja borinn til Vest-
mannaeyja.
Þó ekki yrði borað dýpra í
Nehru við
hersýmngu
Nýju Delhi, 27. jan. — AP:
• Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands var í gær viðstaddur her-
sýningu, sera haldin var í Nýju
Deihi — af því tilefni, aS 14 ár
eru liðin frá því Indland varð
lýðveldi og fékk sinn eiginn for-
seta.
Iiiður I hersýningunni var af
hending heiðursmerkja fyrir
vasklega framgöngu gegn Kín-
verjum í landamærastyrjöldinni
— en þá gengu sendimenn Pek-
ingstjórnarinnar á brott í mót-
mælaskyni.
Sagt er í Nýju Delhi, að lækn-
ar forsætisráðherrans hafi verið
því mjög mótfallnir að . hann
væri við. hersýninguna, en hann
hafi eindregið krafizt þess að
vera þar viðstaddur.
Mótmæla fisk-
verðinu
S T J Ó R T? og trúnaðarráð Skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins
Öldunnar samþ. á fundi sínum
27. 1: 1964:
„Að lýsa óánægju sinni og mót-
mæla harðlega verðákvörðun
þeirri er ákveðin hefur verið fyr-
ir komandi vetrarvertíð af odda-
manni þeim, er skipaður var af
Hæstarétti í yfirnefnd í verðlags-
ráði sjávarútvegsins".
Greinargerð:
Það má teljast í fylLsta máta ó-
eðlilegt að hin almenna kaup-
hækkun, sem átt hefur sér stað
hjá öllum starfsgreinum í landi,
nái ekki einnig til starfa sjó-
mannsins. Jafnframt er það viss
þjóðhagsleg hætta, sem fellst í
því að menn fáist ekki til starfa
á fiskiskipin.
Nú á að fara inn á þá braut aS
bæta upp að nokkru áukinn kostn
að til vinnslu og verkunarstöðv-
anna, til að mæta þeirri verð-
bólgu, sem átt hefur sér stað nú
undanfarið við alla íramleiðslu
þeirra, án þess að eygt sé að sjó-
menn og útvegsmenn séu til
(Frá „Öldunni")
þessari holu þá eru Húsvíking-
ar undrandi yfir því að borinn
skuli fluttur í burtu þar sem
búið var að steypa undirstöður
undir hann á tveimur öðrum
stöðum í bænum og kosta til
þess talsverðu fé. Svo munu
Norðlendingar almennt vera
undrandi yfir því að Norður-
landsborinn, sem hér norðan-
lands hefir nóg verkefni, skuli
skyndilega vera fluttur tij. Suð-
urlands.
En þrátt fýrir allt eru Hús-
víkingar ekki búnir að missa
tirúna á það að hið heita vatn,
sem er undir bænum, muni nást
til virkjunar. Nú hefir í 3 ár
verið dælt 30—40 stiga heitu
vatni undan Húsavíkui’höfða í
sundlaug bæjarins.
Fréttaritari.
r
Ulpan festist í
bílhurðinni
UM klukkan 2.30 voru nokkrir
drengir við afgreiðslu Vísis í Ing-
ólfsstræti og biðu blaðsins. í»á
var bíl ekið suður Ingólfsstræti
og festist úlpa eins drengsins í
hurðarhúni bílsins.
Drengurinn, sem heítir Jón
Haukur Valsson, Laugavegi 159,
8 ára að aldri, dróst nokkurn spöl
með bílnum, en ökumaðuriiyi
stöðvaði bílinn fljótlega.
Jón Haukur var fluttur í Slysa-
varðstofuna. Meiðsli hans eru
ekki talin alvarleg, en drengur-
inn kvartaði um eymsli í fæti.
Sl. laugardag korihi 127 grískir Kýpurbúar saman til fundar í Aþenu og ræddu við Georga
Dighenis Grivas. fyrrum leiðtoga Eoka-neðanjarðarhreyfingarinnar á Kýpur, sem barðist gegn
Bretum og fyrir sameiningu Kýpur og Grikklands. Að fundinum loknum ræddi Grivas við
tyrkneska blaðamenn og var myndin tekin við Það tækifæri.
Legstaður Jóhannesur puíu
verður úfrum í Péturskirkju
Páfagarði, 27. jan. — AP.:
Páll páfi VI hefur ákveðið í sam
ráði við sérstaka nefnd kardi-
nála, að jarðneskar leifar Jó-
hannesar XXIII páía verði í fram
tíðinni geymdar í grafhvelfingu
undir St. PéturskirkjunnL
Hinn látni hafði á sínum tíma
látið í ljós þá ósk, að hann yrði
grafinn í St. Jóhannesarkirkj-
unni í Róm, og hefur verið talið,
að leifar hans yrðu fluttar þang-
að, þegar að loknni viðgerð á
kirkjunni, sem staðið hefur yfir
um hríð.
Frá því Jóhannes páfi XXII
lézt hefur hinsvegar gífurlegur
mannfjöldi, jafnt ítalskir, sem er
lendir ferðamenn, farið píla-
grímsferðir til Páfagarðs í því
skyni að biðjast fyrir hjá leg-
stað hins látna. Mun það skoðun
Páls páfa VI og kardinálanna, að
greiða beri fyrir slíkum pílagrim
um, og þeir hafi greiðari aðgang
að legstaðnum í Péturskirkjunni
en í Jóhannesarkirkjunni.
Þekkja verzlanirnar
Þegar íslendingar fara til út-
landa hættir þeim við að remb-
ast við að reyna að komast yfir '
miklu meira en hægt er að gera
á tilteknum tíma — og þess
vegna koma margir heim og
segjast hafa verið í svo og svo
mörgum borgum án þess þó að
hafa séð neina þeirra. Við þetta
bætist svo, að þann stutta tíma
sem dvalið er í hverri borg nota
íslendingar til að þeysa á milli
verzlana og kaupa allt milli him
ins og jarðar. Það litla, sem fólk
þekkir svo af stöðum og nöfn-
um í heimsborgunum eftir heim
komuna er því oft bundið við
verzlunargötur og verzlunar-
hús. En samt hafa allir gaman
af að ferðast. • ,
Hafa áhyggjur
í Bretlandi, V-Þýzkalandi og
ýmsum öðrum Evrópulöndum
þykir ajmenningi jafneðlilegt
fara í sumarferðalag og okkur
þykir að leysa af okkur skóna
áður en við förum í rúmið á
kvöldin. Bretar og Þjóðverjar
binda sig ekki endilega við að
fara út fyrir landamærin frek-
ar en við gerum, en óneitan-
lega kostar það minna fyrir þá
að fara til útlanda — og er jafn-
an ólíkt skemmtilegra — þar eð
þeir leggja ekki megináherzlu
á að rannsaka vörulagerinn í
öllum verzlunum, sem verða á
vegi þeirra. Þeir njóta slíkra
sumarferðalaga riefniléga í rík-
um mæli — og þess vegna er
jafnvel byrjað að gera ferða-
áætlun fyrir áramótin. Um þess
ar mundir er þorri fólks búinf!
að skipuleggja sumarferðina og
farinn að safna fyrir henni, í
rauninni áður en hætt er að tala
um síðustu sumarferð.
íslendingar gera hins vegar
ekki áætlanir fram í tímann,
enda standast fæstar okkar á-
ætlanir hvort sem er. Menn
panta gjarnan far til útlanda
með tveggja daga fyrirvara —
og hafa jafnvel ekki aurað nægi
lega miklu saman. Enda er ekki
byrjað á því allt of snemma.
Einhvern veginn slampast þetta
þó hjá flestum, sem vilja. En í
stað þess að klífa fjallstinda 1
útlöndum og skoða fegurð nátt-
úrunnar hafa menn stórar á-
hyggjur af yfirvigt, sem kölluð
er, og því sem tollþíónarnir segi
þegar þeir opna töskurnar við
heimkomuna.
Ódýrara en í bíl
Mér datt þetta í hug, þegar
ég var að hugleiða hvaða áhrif
fargjaldalækkanir flugfélag-
anna á Norður-Atlantshafi
mundtí hafa fyrir okkur á ís-
landi. Þessi lækkun kemur ekki
til framkvæmda fyrr en í vor
og því er sennilega einum of
snemmt að fara að ræða um
hana núna. Samt sem áður ætt-
um við að gera okkur grein fyr-
ir að lækkunin nær aðeins til
leiðarinnar á milli íslands og
Ameríku. Þetta verður töluverð
lsékkun — og næsta haust’ er
óhætt að segja að hún verði dá-
lagleg. Loftleiðafargjaldið verð-
ur sem sagt 4,608 krónur til
New York eftir 29. september
í haust og fram til 16. júlí
næsta ár. Frá New York til
Reykjavíkur verður gjaldið það
sama á tímabilinu 4. ágúst til
21. maí.
Þetta er 4,300 km löng leið og
því aðeins rúm króna á hvern
kílómetra. Ég fékk þær upplýs-
ingar frá BSR, að 5 manna bíll
kostaði 640 krónur á hverja
100 ekna kílómetra, en það sam
svarar að ferðin til New York
kostaði 27,520 krónur í bíl, eða
5,504 krónuf á mann. Loftleiða
fargjaldið yrði því 896 krónum
lægra fyrir manninn en jafn-
löng ferð í leigubíl.
Næst til Ameríku?
Ef lögð er til grundvallar
leiðin til Akureyrar og gerður
samanburður á farmiðaverði i
langferðabíl og Loftleiðaflug-
vél, telst mér til að hver krtx I
„rútu“ til Akureyrar kosti far-
þegann 82 aura en í Loftleiða-
vél eina krónu og sjö aura. Mér
finnst þetta hagstæður saman-
burður fyrir flugvélina. Þetta
verður sem sagt furðuódýrt.
Þetta leiðir hugann ósjálf-
rátt að heimssýningunni í New
York, sem sótt verður af a.m.k.
70 milljónum og verður stærsta
heimssýning allra tíma, opnuð i
vor. Annars ætla ég ekki að
fara að auglýsa þetta fyrir Loft
leiðir. Þeim er bezt trúandi til
að sjá um það sjálfir. En fyrir
þá, sem geta hugsað sér að ráð-
gera ferðalag með meira en
viku fyrirvara, er þetta athygl-
isvert. Hingað til hefur verið
það dýrt að komast til Amer-
íku að fólk hefur yfirleitt ekki
lagt í slíkt fyrirtæki nema að
eiga brýnt erindi. Þeir, sem ferð
azt hafa til útlanda sér til á-
nægju og innkaupa, hafa snúið
sér að Evrópu. Og ekki sakar
að geta þess í lokin, að Grey-
hound flutningafyrirtækið, sem
hefur langferðabíla í förum um
þver og endilöng Bandaríkin,
selur farseðla, sem gilda á öll-
um leiðum félagsins í 99 daga
— fyrir aðeins 99 dollara.