Morgunblaðið - 28.05.1964, Blaðsíða 1
I
52 siðtnr
51 árgangur
117. tbl. — Fimmtudagur 28. maí 1964
PrentsmiSja MorgunblaSsii
Ljosið hefur slokknuð
— sagði IManda, innairríkisráð-
herra Indlands er hann tii-
kynnti lát Mehrus, forsætis-
rádherra — Bálförin fer fram
í dag
Nýju Dehli, 27. maí.
— (AP-NTB) —
ÞJÓÐARSORG ríkir í
Indlandi vegna fráfalls
forsætisráðherra landsins,
Jawarharlal Nehru, er lézt af
hjartaslagi í dag, 74 ára
að aldri. Kom lát hans sem
reiðarslag yfir þjóðina, enda
þótt heilsufar hans í vetur,
eftir að hann fékk aðkenn-
ingu af slagi í janúar sl., hafi
búið hana að nokkru undir
áfallið. Þó töldu menn vart að
svo skammt væri að bíða
endalokanna — þess hafði
hins vegar verið vænzt, að
hann segði af sér embætti
|MYND þessa fékk Mbl. sim- =
jj| senda frá Nýju Dehli um =
= I.ondon í (rærkveldi. Var hún =
= tekin um það bil er liki =
| Nehrus var komið fyrir á við-g
| hafnarbörum i tröppum for- =
= sætisráðherrabústaðarins, þarM
= sem fólki g-afst færi á að sjáE
fhann og kveðja í hinzta sinn.|
S =
luiiHwmiitiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiifwiiiiiiiiiiiiiiiumiimiii
Bræðiköst
Nehrus eru
þeim minnis'
stæð
MEÐAL þeirra, sem minnzt hafa
Jawaharlals Nehrus, forsætisráð-
herra Indlands í dag eru nokkrir
elarfsmenn AP-fréttastofunnar,
cem átt hafa þess kost á starfs-
ferli sánum, að kynnast hinum
lálna.
Einn þeirra, Preston Gix>ver,
ylirmaður fréttaskrtfstafu AP í
Moskvu, segir u.n» Nehru, að
harvn hafi eins og Gandhi átt
miög auðvelt með að umgang-
•st aliþýðu manna, — enda þótt
ejálfur teldist hann til efri stétt-
enna. Jafnframt hatfi hann verið
gæddur myndugileika, er
ruddi honum braut í stjórnmá 1-
um. Grover segir enn fremur,
«ð Nehru hafi verið mjög skap-
mikill maður — og skapbráður.
Ha.fi hann eitt sinn séð hann
berja hörkmlega frá sér í hópi
tfvlgismanna sinna, er þeir ætl-
uðu ekki að leyfa honum að kom
«st leiðar sinnar.
Yfirmaður skri'fstofu AP i
Madrid er sama sinnis og Gixtv-
«r umn bnáðlyndi Nehrus — og
kveðst muna hann einna helzt
fyrir hin skyndilegu bræðiköst.
BEn honum rann oftast reiðin
jafn skyndilega og gat þá með
vinsemd fengið menn til að
gleyma iþví sem undan var geng
ið. Þessir eiginleikar Nehrus,
fonáðlyndi og óiþolinmæði, höfðu
km áhrif á Nebru sem boðbera
Framihald á bls. 27
Nehrus minnzt um allan heim:
I Nehru brunnu eldar
frelsis, réttlœtis og vonar
— sagði Adlai Stevenson, hjá Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna
27. maí. — (AP-NTB) —
if ÞJÓÐALEIÐTOGAR og
stjórnmálamenn hvarvetna í
heiminum hafa í dag látið í
ljós hryggð sína vegna frá-
falls Jawaharlal Nehrus, for-
sætisráðherra Indlands — og
sent samúðarkveðjur til
Rhadakrishnan, forseta, ríkis-
stjórnarinnar og indversku
þjóðarinnar.
Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna kom saman til þess
að minnast hins látna sér-
staklega og fánar aðildarríkja
samtakanna hlöktu í hálfa
stöng úti fyrir aðalstöðvun-
um í New York. Á viðskipta-
málaráðstefnu SÞ í Genf var
fráfalls Nehrus rriinnzt með
einnar mínútu þögn.
Framhald á bls. 2i7
Nebru undraðist bók-
menntaafrek Islendinga
Halldór Laxness segir frá kynnum sínum af
hinum nýlátna þjóÖarleiðtoga Indverja
HAI.I.DÓK T.axness er einn
af örfáum íslendingum, sem
hafa hitt Nehru að máli i
hans föðurlandi. Morgunblað-
ið sneri sér til I.axness í gær
og óskaði eftir því að hann
segði nokkur orð um kynni
sín af hinum látna þjóðarleið
toga. Skáldið sagði:
— Ég hitti Nehru nokkrum
sinnum og var meira að segja
gestur á heimili hans til há-
degisverðar. Min kynni eru
auðvitað takmörkuð af þeim
mikla mun sem er á einu far-
andskáldi og hinum mikla
stjórnmáiamanni og heims-
áhrifamanni.
— Hann er Ijúfur og þægi-
legur gestgjafi og ákaflega
töfrandi persóna, háimenntað-
ur mað'ur. Við áttum mjög
skemmtilegar viðræður og
hann lagði fyrir mig þá spurn
ingu, sem ég hef ekki getað
svarað síðan.
— Hann spurði mig að því,
hvernig á því stæði að smá-
þjóð lengst úti í Norður-
Atlantshafi hafi á miðöldum
getað skapað einn aí heims-
litteratúrunum, þjóð er hefði
eklti talið þá nema svo sem
60 þúsund íbúa. Hvaða skýr-
ing væri á því?
— Nehru vissi sem sé að is-
lenzkar bókmenntir teljast til
heimslitteratúranna á sama
hátt og þær grísku og latn-
esku. Ég hef ekki enn getað
svarað spurningu þessari.
— Ég spurði hann meðal
annars að því, hvers vegna
hann væri hættur að skrifa
bækur. „P.ækur skrifar mað-
ur aðeins í fangelsum, svaraði
Framhald á bls. 15.
forsætisráðherra, áður «i
langt um liði, og gerðist ráð-
gjafi nýrrar ríkisstjórnar.
Sjálfur sagði Nehru á fundi
með fréttamönnum fyrir
nokkrum dögum, að hann
teldi sig alls ekki nærri falli.
Bálför Nehrus fer fram
þegar á rnorgun, að ind-
verskum hætti, — og verða
þar viðstaddir fulltrúar
stjórna fjölmargra ríkja. þ. á.
m. Sir Alec Douglas Home,
forsætisráðherra Bretlands,
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og Alexei
Kosygin, vara-forsætisráð-
herra Sovétríkjanna.
m Gulzari Lal Nanda, innan-
ríkisráðherra, hefur þeg-
ar tekið við embætti forsæt-
isráðlierra til hráðahirgða eða
þar til Congressflokkurinn
kemur saman til að velja eft-
irmann hins látna. Flestar
líkur henda til þess, að hann
verði Lal Bahadur Shiastri,
vara-forsætisráðherra, sem
verið hefur náinn aðstoðar-
maður Nehrus frá því hann
veiktist í vetur.
Nehru lézt um tvöleytið (að
staðartima) í dag og hafði þá
verið meðvitundarlaus í margar
klukkustundir. Við banabeð hans
voru Indira, einkadóttir hans,
Sarvepalli Rhadakrishnan, for-
seti Indlands, Gulzari Lal Nanda,
innanrikisréðherra og Lal Baha-
dur Shiastri, vara-forsætisráð-
herra, auk sjö lækna. f gær-
kveldi hafði Nehru virzt hinn
hressasti. Hann gekk til sængur
um klukkan ellefu (staðartimi)
svaf vel í nótt, og vaknaði árla.
Sat hann á rúmi sínu og var *ð
klæða sig, er hann kvartaði allt
í einu um miklar þrautir í baki.
Dóttir hans, Indira, kom þegar
til hans en hann hneig út af i
rúmið og féll i mók. Tveir lækn-
ar voru þegar kallaðir á vett-
vang, — annar þeirra sérfræð-
ingur í hjartasjúkdómum, — en
forsætisráðherrann var meðvit-
undarlaus, er þeir komu og komst
ekki til meðvitundar aftur.
Nehru var maður heilsuhraust-
ur. Gat vart heitið, að hann
kenndi sér meiri háttar meins
fyrr en árið 1962, er hann fékk
vírussjúkdóm, er herjaði á nýru
hans. Og í janúar sl. fékk hann
aðkenningu að slagi, sem kunn-
ugt er, en síðasta ár hefur hann
haft of háan blóðþrýsting. Til
stóð, að hann færi í byrjun næsta
mánaðar til Kalimpong til hvild-
ar og hressingar — en fyrir
nokkrum dögum sagði hann í við
tali við fréttanienn, að hann
reiknaði ekki með heimsókn
„sláttumannsins“ á næstunni.
Framihald á bls. 16