Morgunblaðið - 21.08.1964, Page 23
23
W ''í'i'M- >y. vs%4tnfi*A * '' « v P
Föstudagur 21. ágúst 1964 MOKGUNBLAÐID
- Grikkir
Framti. af bls. 1-
falias, sagði, að um endurtek-
in brot á grískri lofthelgi
hefði verið að ræða, í heilan
sólarhring.
Talsmaður stjórnarinnar í
Aþenu benti á, að oft áður
hefðu verið borin fram mót-
mæli vegna sams konar brota.
Yfirmaður herliðs Atlants-
hafsbandalagsins í Suður-Ev-
rópu, bandaríski aðmírállinn,
James Russel, átti í dag hálfr-
ar annarrar stundar viðræð-
ur við Garoufalias, en hélt að
því búnu flugleiðis til aðal-
stöðva sinna í Napoli.
• Garoufalias skýrði frá því,
að Russell hefði krafizt þess, að
grískir liðsforingjar, sem kvaddir
voru heim frá herstöð Atlants-
hafsbandalagsins í Izmir í Vest-
ur-Tyrklandi, verði sendir aftur
til stöðvarinnar. Svar varnar-
málaráðherrans var á þá leið.að
liðsforingjarnir myndu verða þar
sem þeir nú eru, þar til Kýpur-
deilan hefur verið til lykta leidd.
• Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að Russell aðmíráll
vilji, að liðsforingjarnir verði nú
sendir aftur til Tyrklands, svo að
þeir geti tekið þátt í heræfingum
Atlantshafsbandalagsins, sem
fram eiga að fara á næstunni. t»á
mun Russell hafa lýst þungum
áhyggjum yfir því, að Sovétríkin
hafa nú boðið stjórninni á Kýpur
aðstoð sína.
Liðsforingjarnir, sem kvaddir
voru heim frá Izmir, eru 135 tals-
ins, og var þess vænzt,’ að þeir
kæmu til Piræus síðar í dag,
fimmtudag.
í dag lá við, að til átaka kæmi
milli tyrkneskra Kýpurbúa og
gæzluliðsmanna Sameinuðu þjóð
anna, nærri aðalstöðvum samtak-
anna á eyunni. Kanadiskir, dansk
ir og finnskir hermenn úr gæzlu
liðinu rifu niður virki, sem tyrk-
nesku mennirnir höfðu reist
gegnt stöðvunum. Gerðu þeir
hróp að gæzluliðsmönnum, og
munduðu byssur, en ekki kom til
bardaga.
Talsmaður SÞ sagði, að virkin
hefðu verið rifin niður vegna
þess, að þau hefðu verið talin
ögrun. Hefðu gæzluliðsmenn
beiðzt þess af tyrknesku mönn-
unum um hálfs mánaðar skeið,
að þeir rifu niður vígin, sem voru
gersamlega óþörf.
Heilsa sáttasemjara, SÞ, Sakari
Tuomioja, hefur heldur miðað í
í rétta átt undanfarna nótt, en
hann er þó mjög alvarlega veik-
ur.
Blaðamaður nokkur (grískur
Kýpurbúi) var í dag handtekinn
af tyrkneskum mönnum á eyj-
unni. Maðurinn, Aleccos Con-
Stantinides, hafði lent í deilUm
við vopnaða Tyrki. Gæzluliðs-
menn komu honum til hjálpar,
og fengu hann leystan úr haldi.
Tyrkneska stjórnin bar í dag
fram harðorð mótmæli við
Makarios, erkibiskup og forseta
Kýpur, vegna þess, að fjórar
ferðatöskur, sem voru í eigu
tyrknesks menningarmálafull-
trúa, Emin Soysal, voru af hon-
um teknar á flugvellinum í Nic-
osía á þriðjudag. Fulltrúinn hélt
því fram, að töskur hans bæri
ekki að athuga, því að hann hefði
©pinbert vegabréf.
Kýpurstjórn hefur beiðzt þess,
eð Bretar taki að sér alla stjórn
flugvallarins í Nicosía, frá og
með 1. sept. Undanfarin fjögur
ár hafa Kýpurbúar og Bretar haft
sameiginlega með höndum stjórn
flugumferðarinnar þar. Brezka
etjórnin er sögð hafa málið til
athugunar.
BIRGIR ISL. GUNNARSSON
Málflutningsskrifstofa
Lækjargötu 63. — in. hæð
ÍTt II U G I Ð
eð borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
- Fólk flúði
Framhald af bls. 3.
stöðvarofn sprakk í sundur,
er hann slengdist upp að
vegg, og múrhúðun féll úr_
veggjum. Þá tiruðu allar hill-
ur og bækur lágu í hrúgu á
gólfinu. Sagði Guðni að á
heimili sínu hefði til skiptis
verið horft til Surts og Heklu,
en Surtur gaus aðeins sínu
venjulega fallega gosi og
Hekla lét alls ekki á sér
kræla, svo heimilisfólkið tók
á sig náðir á ný. Þegar menn
komu út á Hellu í gær-
morgun sáust sprungur í göt-
unum og á húsveggjum, hlaðn
ir veggir í íbúðarhúsum, sem
eru þar í smíðum, höfðu fall-
ið að nokkru og jarðsig var
greinilegt við báða enda brú-
arinnar sunnan kauptúnsins.
Kona, sem var að verzla
í kaupfélaginu fræddi okkur
á því, að annarra kippa hefði
orðið vart um hálfátta-leytið,
hálftólfleytið, hálf-tvöleytið
og hálffjögur-leytið.
★—★—★
Húsfreyjan á Árbakka í
Landssveit, Elínborg Sigurð-
ardóttir, var ásamt dóttur
sinni, Sigrúnu Bjarnadóttur,
við innkaup niðri á Hellu.
Hún sagði okkur, að tíu sultu
krukkur og fimmtán saftflösk
ur hefðu henzt niður á gólf
á Árbakka um nóttina, og
hefði það verið fremur óþrifa-
leg vinna að hreinsa til í
geymslunni. Hún og maður
hennar, Bjarni bóndi Jóhann-
esson, höfðu vaknað um fjög-
ur-leytið, þegar hjónarúmið
var búið að stökkva 20 senti-
metra fram á gólf. Við ókum
þeim Elínborgu og Sigrúnu
heim að Árbakka, þar sem
kýrnar lágu makindalega við
túnhliðið. Sögðu þær mæðg-
ur, að kýmar hefðu verið á
beit um nóttina, en sýnilega
orðið hræddar, þegar jarð-
skjálftinn varð, og komu þær
hið snarasta heim og voru
ókyrrar mjög.
— Það var óhugnanlegt að
vakna við þessi læti, sagði
Elinborg um leið og hún bauð
okkur inn. Hérna við eldhús-
dyrnar getið þið séð eitt dæmi
um ósköpin, sem á gengu.
Þessi eldavél vegur um 400
kg., og lá hún hér þétt upp
að húsveggnum í gærkvöld,
en þegar við komum út fyrir
í morgun, hafði hún færzt tals
vert frá honum.
— Það má segja að allt
hafi komizt á hreyfingu inni
í herberginu, sagði Sigrún.
Myndir hrundu niður af veggj
um, húsgögnin færðust úr
stað, en samt brotnaði ekkert
nema eitt lítið glas. Mjólkur-
bílstjórinn sagði, að það hefði
rétt aðeins skrallað í skápum
á SelfossL
— Urðuð þið ekkert hrædd?
■— Nei, ekki eldra fólkið,
sagði Elínborg, en drengur-
inn, sem er fjórtán ára, átti
erfitt með að sofna aftur. —
Mér þykir verst að hafa misst
allt þetta sultutau og saftina,
og ekki var skemmtilegra að
taka til í morgun, enda sjáið
þið að ég er enn berjablá á
höndunum. Sumar krukk-
urnar lágu þó heilar á gólf-
inu, því að það var mjúkt
undir, þar sem sultan hafði
runnið úr hinum krukkunum.
Hann Steini var að segja mér
í morgun, að taka ekki til fyrr
en búið væri að taka mynd af
þessu. En það var engin al-
mennilég myndavél til á bæn
um.
— Hvar er Steini?
— Hann er hérna uppi á
lofti.
Og uppi á lofti hittum við
Þorstein Erlendsson, 79 ára
gamlan. Hann sagðist ekki
muna eftir meiri jarðskjláfta
frá því 1912, er bærinn í Næf-
urholti hrundi. Mundi hann
eftir jarðskjálftanum 1896
sem olli gífurlegri eyðilegg-
ingu um Suðurland eins og all
ir kannast við.
Fólkið á Árbakka sagði, að
óvenjumiklar drunur hefðu
fylgt þessum jarðskjálfta og
hefði hann verið miklu snarp-
ari en kippirnir, sem urðu við
upphaf Heklugossins síðasta.
Liti einna helzt út fyrir, að
þrýstingurinn hafi komið úr
norðri eða austri og verið
mun meiri meðfram Rangá en
utar í sveitinni. Hafði gestur,
sem kom að Árbakka í gær-
morgun haft orð á því, að þar
væri allt eins og eftir loftárás.
★—★—★
Jón Jónsson, bóndi í Árbæ
var að hirða af túninu, þegar
við ókum í hlaðið síðdegis í
gær. Þar var búið að tjalda,
og sagði Jón, að heimilisfólki
í Árbæ hefði þótt hyggilegra
að yfirgefa bæinn, eftir fyrsta
kippinn, því húsið er gamalt,
74 ára, og þekjan hlaðin torfi.
Þórhildur Sigurðardóttir, kona
hans sagði, að mjög vafasamt
væri, að bæjarhúsið stæðist
annan kipp svipaðan og því
hygðist fólkið sofa í tjaldinu
aftur í nótt.
— Ég þóttist finna titring,
áður en kippurinn varð, og
var vöknuð, þegar mest gekk
á. Ég sá veggina nötra og þil-
ið losna frá. Allir í húsinu
vöknuðu, og við klæddum okk
ur í skyndi til að flýja húsið.
Fyrst leituðum við hælis í hlöð
unni, en svo var það ráð tek-
ið að tjalda, því að okkur
fannst ekki öruggt að fara
með börnin inn í bæinn aftur.
Myndir héldust uppi á veggj-
um, en smámunir á hillum ultu
allir um koll.
Við gengum út að kirkjunni
í Árbæ og tókum þá eftir því,
að einn legsteinninn í kirkju-
garðinum, rúmur metri á hæð,
hafði losnað frá stöplinum og
snúizt allnokkuð. Inni í kirkj-
unni hafði oreglíð færzt til,
sálmabækur fallið á gólfið og
kertastjaki á altari lá brotinn.
— Kveiktu í
Framhald af bls 24.
Sigurður við kort, sem hann
fékk hjá Lárusi Sigurbjörns-
syni.
Þá upplýstist einnig að
drengirnir höfðu fundið hálf-
fulla hvítvínsflösku í vinnu-
stofunni, sezt í stól þar, sem
fyrirsætur sitja í, og staupað
sig. Loks hirtu þeir hylki með
gullbronzi í, brugðu sér með
það í Sundlaugamar, og
helltu bronzinu í þær. Tvær
ferðir fóru þeir í vinnustof-
una í fyrradag, aðra fyrir há-
degi og hina rétt eftir hádegi.
Brutu þeir þar flöskur og
krukkur, kreistu úr litatúb-
um, spilltu málverkum o.fl.
— Kosningastetna
Framh. af bls. 1
unni, að minmka béri útgjöld rík-
isins til varnarmála um 50%,
leggja niður allar herstöðvar
Bandaríkjanna í landinu og enn-
fremur að Bretar ættu að segja
sig úr Atlantshafsbandalaginu.
Breziki kommúnistaflokkurinn
telur um 34.500 félaga. Hann hef-
ur ekki átt fulltrúa á þingi síð-
an 1950.
Hel«i Pálsson
látinn
AKUREYRI, 20. ágúst. — Helgi
Pálsson, forstjóri, Spítalavegi 8,
varð bráðkvaddur að heimili sínu
í gær. Hann fæddist 14. ágúst
1896 á Akureyri. Foreldrar hans
voru hjónin Kristín Jakobsdóttir
og Páll Jónsson. Helgi réðst ung-
ur, að loknu gagnfræðanámi, til
Höepfners verzlunar, starfaði
þar um árabil og var meðeigandi
hennar um skeið. Síðar réðst
hann í útgerð, sem hann-rak í
mörg ár, en frá 1946 og til dauða-
dags, var hann framkvæmda-
stjóri Byggingarvöruverzlunar
Akureyrar h.f.
Helgi gegndi mörgum trúnað-
arstörfum um ævina. Hann var
bæjarfulltrúi m Sjálfstæðisflokks-
ins frá 1950 til dauðadags og átti
sæti í bæjarráði. Hann var for-
stöðumaður Skömmtunarskrif-
stofu ríkisins á Akureyri meðan
hún starfaði og trúnaðarmaður
fjárhagsráðs á sínum tíma. Einn-
ig var hann erindreki Fiskifélags
íslands á Norðurlandi 1940—
1964 og formaður Verzlunar-
mannafélagsins á Akureyri um
skeið, Sjálfstæðisfélags Akureyr-
ar og stjórnar Útgerðarfélags Ak-
ureyrar h.f. frá stofnun þess.
Helgi var kvæntur Kristínu
Pétursdóttur og lifir hún mann
sinn, ásamt 7 börnum þeirra
hjóna.
VIKTOR GUÐNASON, póst- og
simstjóri í Flatey á Breiðafirði.
— Myndin átti að fylgja minn-
ingargreinni um hann í blaðinu
í gær, en varð viðskila við hana.
— Kongó
Framhald af bls. 1.
tveggja bandarískra hermálafull-
trúa, og eins sendiráðsmanns,
væri saknað.
Bukavu er höfuðborg Kivu-
héraðsins og er fimmti stærsti
bær í Kongó. Þar búa um 150.000
manns. Bærinn liggur við landa-
mæri Rwanda.
• Stjórnin í Leopoldville
hefur ákveðið að slita öllu
stjórnmálasambandi við Bur-
undi, en Kongóstjórn þykist
hafa fullar sannanir fyrir
því, að flugumenn Peking-
stjórnarinnar fái þar óhindrað
að reka starfsemi ,er miðar að
því að uppreisnarmenn nái
öllu Kongó á sitt vald.
• Síðustu fréttir herma, að
stjórnin í Leopoldville hafi
beðið Nigeríustjórn um að-
stoð, og sé hún nú að athuga,
hvort hún sendi herlið til
Kongó, stjórnarhernum til að-
stoðar.
— / hríð
Framhald af bls. 1
Bæ var staddur á Sauðárkróki í
gær og hringdi þaðan með veður
fréttir. Sagði hann að samfleytt
úrfelli hefði verið í 3 sólarhringa.
Rigning á láglendinu, svo að heil
ar tjamir væru komnar á túnin,
en snjór þar sem hærra stæði.
Hefði verið öklasnjór á túninu á
Hólum í Hjaltadal í gærmorgun
og liti út fyrir áframháídandri
í nótt. Væri meira úrfelli úti í
firðinum.
— Kýpur
Framhald af bls. 1.
aðinum við sex mánaða
gæzlustarf, en hann er tal-
inn munu nema um 13
milljónum dala. 26. sept.
hefur starf SÞ á eyjunná
staðið í hálft- ár.
Fé það, sem fengizt hefur til
gæzlustarfsins, eru frjáls fram
lög margra þjóða, þ.á.m. þjóða,
sem ekki eiga aðild að SÞ.
• „Berist ekki frekari fram-
lög“, sagði framkvæmdastjór-
inn, „getur orðið nauðsynlegt
að kalla liðið burt frá Kýpur
í september“.
Fundur U Thants í dag er sá
fyrsti, er hann heldur með
fréttamönnum, eftir ferðalag
hans til Parísar og Moskvu, en
þar átti hann tal við ráða-
menn. Á fundinum sagði U
Thant m.a.:
• „Ástandið í SA-Asíu er
mjög alvarlegt, og fer versn-
andi, og er vart við því að
búazt, að það batni, nema
allar samningsleiðir séu reynd
ar“.
• „Samkvæmt fréttum
virðist ástandið í Kongó vera
mjög alvarlegt einnig, en
Kongó hefur ekki beðið SÞ
um aðstoð. Sameinuðu þjóS-
irnar vantar sannanir fyrir
því, að flóttamenn (flug-
menn) frá Kúbu hjálpi Kongó
stjórn, og að flugmenn Pek-
ingst j ómarinnar standi að
baki aðgerðum uppreisnar-
manna.“
tilky nnir
★ Nú á næstunni verða laus til blaðadreifingar fyrir Morgun-
blaðið allmörg hverfi víðsvegar um borgina og í úthverfum
hennar.
★ heim er hug hafa á starfinu verða gefnar nánari upplýs-
ingar í afgreiðslu Morgunblaðsins. — Símið eða komið.
sími 22480.