Morgunblaðið - 21.08.1964, Side 24
SERVIS
SERVIS
SERVIS
SERVIS
SERVIS
Servis
MtUa LAUttAVEGl
Jarðskjálfti á SV-landi:
Sprungur í veggjum, ddt hrundi niður, leg-
steinar féllu, fólk hrökk upp af svefni
Glös og pakkar hrundu úr hillum í Kaupfélagi Rangæinga á
Hvolsvelli við jarðskjálftann og var eins og hráviði um gólfið. —
(Ljósm.: Otto Eyfjörð)
Börnin, sem unnu hervirkið á
vinnustofu Örlygs, fundust í gær
FREGNIN í Mbl. í gær um
innbrotið og spellvirkin, sem
unnin voru í vinnustofu Ör-
lygs Sigurðssonar, listmáiara,
varð til þess að skemmdavarg
arnir náðust í gær. Voru það
tveir drengir og ein stúlka,
öll um 10 ára gömul, sem her-
virkið unnu. Líkönin að hús-
unum í Reykjavík um 1875,
sem Sigurður, sonur Örlygs,
hafði lagt geysimikla vinnu í
að útbúa, tóku drengimir í
gær og kveiktu í þeim öllum
nema Dómkirkjunni. Þeim
fannst hún svo skrautleg, að
þeir geymdu hana. Og til upp-
kveikjunnar notuðu þeir
stjómarskrá lýðveldisins!
Öplygur var hinn hressasti
í bragði er við heimsóttum
hann inn í Laugardal í gær.
„Blessaðir verið þið, ég er bú-
inn að bjarga málverkunum
að mestu,“ sagði hann. „Á
þennan móluðu þeir heljar-
miikið hvítt skegg frá aug-
um og niður á maga. Þeir virð
ast ekki hafa kunnað að meta
'handlbragðið hjá mér, og hafa
viijað betrumbæta myndirnar.
Þetta er einhver aggressívasta
krítíkk sem maður hefur feng-
ið! En ég náði þessu að rrrestu
af myndunum með heitu vatni
og terpentínu. Ein myndin
varð blaut og ég varð að
mála í andlitið, en mér tókst
að fá fyrirmyndina hingað í
morgun og sitja fyrir meðan
ég lagaði þetta.“
Raunar voru það nok'kur
gömul póstkort, eða „skop-
kort,“ sem vísuðu á bomin,
sem skemmdunum ullu. Þau
stálu nefnilega heilum bunka
af gömlum skrípamyndakort-
um, sem sýna Brynleif heitinn
Tobíasson og Jón Sveinsson
fyrrum bæjarstjóra á Akur-
eyri, og dreifðu meðal barn-
anna í hverfinu. í því hverfi
á nú hvert barn hið fræga
kort af Brynleifi, sem Örlygur
lenti í málaferlum útaf á
Akureyri á sínum tíma! Eftir
að mæður höfðu lesið Mbl. í
gær, komst allt upp.
Við skruppum síðdetgis með
Hauki Bjamasyni rannsóknar
lögreglumanni og hittum ann-
an drengjanna, sem fyrir
þessu hafði staðið. Ekki er
hægt að segja að á honum
hafi verið hátt risið. Kom á
daginn að í gærmorgun urðu
drengirnir hræddir, og fóru
þá og brenndu öllum húslík-
önum, sem þeir höfðu tekið í
vinnustofunni. Þeir komu
þeim fyrir ofan í holræsis-
brunni fyrir ofan Suðuriands
braut og kyntu undir þeim
bál með stjórnarskrá lands-
ins! í húsi við hliðina eru
nefnilega geymdar gamlar
birgðir af kosningahandbók
frá þjóðaratkvæðagreiðslunni
1944, en í henni er stjórnar-
skráin öll prentuð. Höfðu
drengirnir seilzt inn um
glugga og náð í bó'kina til
uppkveikju. ■
í brunahrúgunni á brunn-
botninum var eitt hús heilt,
þrjú eða fjögur hálfbrunnin,
en öll hin aska og duft. Húsin
voru gerð úr balsavið, og hef-
ur Sigurður Örlygsson unnið
að gerð líkananna í heilan vet
ur, svo ófáar vinnustundir
fóru þarna í súginn. Líkönin
eru nákvæmar eftirlíkingar af
húsum í Reykjavík eins og
hún leit út um 1875. Studdist
Framhald á bls. 23.
1 FYRRINÓTT urðu tveir jarð-
skjálftakippir á Suðvesturlandí
og einn í gærmorgun. Fundust
þeir allt austur að Núpstað og
vestur í Helgafellssveit. Jarð-
skjálftamælir veðurstofunnar í
Reykjavík sýndi að uppruni jarð
skjálftans var um 80 km. frá
Reykjavík og hefur hann líklega
verið í násd við Hellu á Rangár
völlum, en þar í kring var hann
snarpastur, svo sprungur komu
í veggi, dót hentist niður, leg-
steinar fóru um í kirkjugörðum
og hlutir fluttust úr stað. í Birt-
ingaholti sneri þung bronzstytta
af Ágústi Helgasyni sér við á
stallinum. Snarpasti kippurinn
varð kl. 3,57 um nóttina og mæld
ist 6 stig að styrkleika, annar
varð kl. 7,49 og sá þriðji og
vægasti kl. 11,30 i gærmorgun.
Fréttaritarar blaðsins á ýmsum
stöðum sendu svohljóðandi frétt-
ir af jarðskjálftunum hver á sín
um stað, en fréttamenn Mbl. áttu
viðtöl við fólk, sem birt eru ann
ars staðar.
Jarðsprungur og sprungnir
veggir.
HELLU. — Um kl. 4 í nótt varð
hér allharður jarðskjálftakippur.
Fylgdi jarðskjálftanum mikill
gnýr og var fólki ekki svefn-
samt. Kom mörgum ekki dúr á
auga það sem eftir var nætur.
Víða mun hafa orðið nokkurt
tjón af þessum jarðhræringum,
þótt það sé í flestum tilfellum
ekki stórvægilegt. Jarðsprungur
hafa fundizt á nokkrum stöðum
og veguppfyllingin austan við
brúna á Ytri Rangá seig um
2—3 þurðlunga.
Hér á Hellu biluðu miðstöðvar
kerfi í a.m.k. tveimur húsum og
á nokkrum húsum hafa komið
sprungur í veggi. Vörur í verzlun
kaupféiagsins Þórs hrundu fram
úr hillum og brotnuðu glös og
flöskur og pakkar sprungu. Hafði
verzlunarfólk ærið að starfa í
morgun við að hreinsa það til.
Skemmdir á varningi eru þó ekki
í flestum húsum og bæjum hér
í grenndjnni fór eitthvað úr
skorðum, myndir duttu af veggj
um og bækur úr hillum og hlutir
færðust úr stað. Máttu margir
taka sér kúst í hönd og sópa sam
an glerbrotum.
Á Árbæ í Holtahreppi urðu
skemmdir á íbúðarhúsinu og
munu tvö herbergi vart vera
íbúðarhæf. Er bærinn gamalt
timburhús með torfþaki. Á
Brekkum sprakk steyptur vegg-
ur á nýlegri hlöðu. í Marteins-
tungú sprakk reykháfur í íbúðar-
húsinu. Einnig urðu skemmdir
á sáluhliði kirkjugarðsins þar.
Þá hrundu þar legsteinar óg aðr
ir færðust úr stað. Sagðist bónd
inn þar teljsf að þessi jarðskjálfti
væri harðari en jarðskjálftinn
sem varð 1947. Annars staðar er
mér ekki kunnugt um að veru-
legt tjón hafi orðið, en flestir
munu hafa orðið fyrir einhverju
tjóni, þótt Iþað sé víðast smá-
vægilegt.
Framh. á bls. 20.
Haukur Bjarnason lögreglumað ur stendur við brunninn, sem
líkönin voru brennd í. Á barmi brunnsins liggja þau likön, sem
fundust hálfbrunnin. (Ljósm.: Mbl. Sv. Þ.).
gripinn
strax. Á sunnudag stal hann
kvenötsku með 1500 kr. á Grett-
isgötu 67. Konan hafði skroppið
í næsta hús í nokkrar mínútur
og skilið eftir ólæst. Þegar hún
kom heim sá hún mann fyrir
utan og gat hún gefið nokkuð
góða lýsingu á honum, sem átti
við umræddan mann. Ennfremur
var á föstudaginn stolið 2000 kr.
á Bergþórugötu 9, sömuleiðis úr
kventösku, og nokkru áður 1100
kr. á Freyjugötu 6 og hefur mað
urinn játað á sig' þessa þjófnaði.
Rannsóknarlögreglan telur hann
þó hafa komið víðar við sögu,
enda hefur hann sézt í sumum
tilfellunum.
Veskjaþjófur
Var efltur á
í GÆR um kl. 5 síðdegis var
maður um fertugt staðinn að
því að stela veski í húsi á Grett-
isgötu í Reykjavík, en mikil
brögð hafa verið að því að und-
anförnu að stolið væri veskjum
úr íbúðum og peningar hirtir úr
þeim. Hefur maðurinn þegar ját-
að á sig aðra 3 slíka þjófnaði
og telur rannsóknarlögreglan
ástæðu til að halda að hann hafi
meira af þvi tagi á samvizkunni.
Hann er í varðhaldi.
Maður þessi lagði leið sína í
gær á Grettisgötu 44 A og komst
þar inn í eldhús, þar sem hann
þreif kvenveski. Kona í íbúðinni
varð vör við hann og fór á eftir
honum. Þá bar svo vel í veiði að
dóttir hennar var að koma í bíl
upp að húsinu og karlmaður með
henni. Þau áttuðu sig mjög fljótt
og eltu manninn, sem hljóp
hratt í burtu, og náðu honum
eftir skamman eltingaleik. Hafði
hann þá kastað frá sér töskunni,
en haldið eftir seðlaveski sem í
voru 1200 kr. Var nú lögreglunni
gert aðvart og kom hún og tók
manninn.
Hann meðeekk briá biófnaði
Kveiktu í „Reykjavík"
með stjórnarskránni