Morgunblaðið - 15.12.1965, Síða 5
MiðvikudagTH* 15. des. 1965
MORCU N BLAÐIÐ
5
Klógulir emir yfir veiði hlukku
Stork-
urinn
sagði
að hann hefði svona af göml-
um vana flogið niður að Iðnó
i morgunsárið í gærv Það var
hláka, og þó var hálft, og ís-
inn ekki farinn af Tjöminni.
Morgunskíman var grá, en grátt
getur líka verið fallegt, einkan-
lega þegar litinn ber við blágrá-
an morgunhimininn. Þarna voru
aliir fuglarnir mínir, endur gæs-
ir og svanir og virtist líða hið
bezta og hafa enga þörf fyrir
ihjúskaparmiðlun, nema síður
væri, og það sér maður bezt á
vorin.
En þarna við grindverkið ofan
við ræsið, sem myndar nú efri
enda á þeim læk, sem rann í
gegnum borgina forðum eins og
Signa gegnum París, og Laekjar
gatan heitir eftir, hitti storkur-
inn mann, sem ló fram á hand-
riðið, starði út á fuglahópinn og
hugsaði.
Storkurinn: Færðu ekki höfuð
verk af allri þessari hugsun?
Maðurinn við grindverkið: Ja,
það liggur við, og er þó varla
nema von. Þú hefur heyrt um
Örninn unga þar upp á Keldum,
sem nú er stríðalinn, gefinn víta
mín og egg upp á hvern dag,
jafnvel næla menn sér í skot-
verðlaun og drepa handa hon-
um svartbak, semsagt hann er
stríðalinn eins og stríðshestur,
enda liggur mikið við. Það á
sem sé að láta hann binda trúss
sitt við 12 ára gamla ekkju,
eem við þarna uppi í Hvalfirði
sjáum stundum sveima einmána
yfir fallega firðinum, hátt í lofti, I
og það er þá helzt að hún beiti |
kjafti og klóm, þegar veiðibjöll- I
ur angra hana á fluginu, og hef j
ég sjálfur séð 10 ráðast að henni i
Mannsefni ekkjunnar í Hvalfirði, örninn ungi frá Hellissandi,
p.t. Keldum, Mosfellssveit.
eins og orrustuflugvélar, en sjálf
flaug ekkjan áfram og rétt blak-
aði til þeirra vængjum, rétt eins
og hún týndi lýs úr hári sínu eða
fjöðrum.
Þetta er svo sem ágætt allt
saman og verður sjálfsagt í upp-
rifinni gloriu, þegar sumarið
nálgast, en mér finnst vanta á,
að Félagsmálastofnunin sé kvödd
til aðstoðar við makaval og hugs-
anlegar frjógunarvarnir, og það
er þarna, sem þjóðkirkjan kemst
í spilið, því að henni var gefinn
Piltur 13—15 ára
óskast I sveit strax eftir
áramót. Uppl. í síma 3524Ö
Úrval
af fallegum kjólum. Dragt-
ir, telpnakápur og kjólar.
Notað og Nýtt, Vesturg. 16.
Til leigu
ca. 40 ferm. iðnaðarhús-
næði í Austurbænum. Upp
lýsingar í símum 15939 og
16398.
Sem nýr
gír og millikassi og fl. í
jeppa, árg. 42. Selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 41942,
eftir kl. 19.
Til sölu
gírkassi í Ford ’57—’59. —
Upplýsingar í síma 11073
frá kl. 1—6 e.h.
Handmálað postulín
Málað af Svövu ÞórhaBs-
dóttur, er nýkomið í Blóm
og Ávexti, og til Jóns Dal-
mannssoiyir, Skólavörðu-
stíg. 21.
Stúlka óskast
á gott sveitaheimili á Norð-
urlandi. Uppl. í síma 31263.
Lítil íbúð óskast til Ieigu
Sími 22150.
Til leigu
frá 1. jan., góð 3ja herb.
íbúð, stutt frá miðbænum.
Tilboð sendist Mbl. merkt:
„Reglusemi — 8042“.
ATHUGIÐ
að borjð saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
t Morgunbtaðinu en öðium
bjöðum.
þessi fjársjóður, sem heitir Fé-
lagsmálastofnuh á sínum tima. I
Einnig væri rétt að kveðja til
Ólaf sálfræðing frá Vík í Lóni,'
svona þegar kemur til að halda
starfsfræðsludag fyrir arnar-
unga.
Storkurinn leit af manninum
á gæsirnar, og hló í hjarta sínu,
og sagði: Já, því ekki það!, og
með það flaug hann upp á burst-
ina á Lindarbæ, þar sem Félags-
málastofnunin er til húsa, og nú
fá þeir nóg að gera á þeim bæ!
Bæjarstjórn Sauðárkróks
óskar eftir að ráða tannlækni, sem annist fyrst og
fremst viðgerðir í nemendum barna- og miðskóla
Sauðárkróks. Nánari upplýsingar gefur undirritaður
eða formaður fræðsluráðs Sauðárkróks, sr. Þórir
Stephensen.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.
Athugið
Getum afgreitt fyrir jól nokkur sett af
okkar vinsælu hjónarúmum úr eik og teak
ásamt fleiri húsgögnum.
Gjörið svo vel að líta í gluggana.
FRÉTTIR
Kvenfélag Hallgrímskirkju.
Jólafundur kvenfélagsins verður
haldinn miðvikudaginn 15. des.
kl. 8.30 í Iðnskólanum. Fundar-
efni. Upplestur: Steindór Hjör-
leifsson leikari les upp sögu
eftir Jökul Jakobsson, einsöngur
Guðm. Guðjónsson óperusöngv-
ari, jólahugleiðing: dr. Jakob
Jónsson, kaffidrykkja. Félags-
konur fjölmennið og takið með
ykkur gesti. Stjórnin.
Æskulýð'sstarf Nessóknar.
Jólafundur í kvöld kl. 8 1
fundarsal Neskirkju. Allir piltar
í Nessókn, 13—17 ára eru vel-
komnir. Séra Frank M. Halldórs
eon.
Frá félagi ungra guðspeki-
nema. Fundur verður í kvöld kl.
8:30 að Laugavegi 51. Úlfur
Ragnarsson talar um nútíma sál-
fræði.
Hjúkrunarfélag íslands! Jóla-
trésfagnaður verður haldinn
fyrir börn félagsmanna í Lídó,
fimmtudaginn 30. des. kl, 2 e,h,
Aðgöngumiðar verða seldir í
ekrifstofu félagsíins þingholts-
etræti 30 (efstu hæð). föstudag-
inn 17. og laugardaginn 18. þm.
þm. kl. 2—7 eh.
Kristileg samkoma verður hald
in í samkomusalnum Mjóuhlíð 16
rniðvikudagskvöldið 15. des. kl.
8. Allt fólk hjartanlega velkom-
ið.
Munið Jólasöfnun Mæðrastyrks
nefndar. Gleðjið einstæðar mæð
ur og börn. Skrifstofan er að
Njálsgötu 3. Opin frá 10:30 til 6
»lla daga. Nefndin.
Fataúthlutun Hjálpræðishers-
Ins stendur nú sem hæst, og er
opið frá kl. 10—12 f.h. og frá
kl. 14—18, að Kirkjustræti 2,
alla daga til aðfangadags. Hjálp-
ræðisherinn biður Dagbókina
fyrir þakkir til allra hollvina
sinna.
Hjálpræðisherinn hefur hafið
jólafjársöfnun sína og jólapott-
arnir eru nú komnir upp víða í
miðbænum. Mikið hefur safnazt
í. jólapottana undanfarin ár.
Hjálpræðisherinn hefur sent
þessar gjafir vegfarenda inn á
fjölmörg heimili og margir hafa
notið þeirra fyrir milligöngu
ýmissa greina líknarstarfsins. Að
þessu sinni mun hluti af söfnun-
inni renna til starfsins að skóla-
heimilinu Bjargi.
Æskulýðsfélagið, yngri deild.
Fundur miðvikudagskvöld kl. 6.
Aðalfundur Vestfirðingafélags-
ins verður fimmtudaginn 16. des.
kl. 8:30 í Tjarnarbúð uppi. Venju-
leg aðalfundarstörf. Rætt um
byggðasafnið. Vestfirðingabókina
og skemmtiatriði verða: Karl
Guðmundsson leikari les upp,
Anna Þórhallsdóttir syngur og
leikur á langspil. Vestfirðingar
fjölmennið. Nýir félagar vel-
komnir. Stjórnin.
Ekknasjóður Reykjavíkur.
G. Skúlason og Hliðberg hf.
Þóroddsstöðum, Rvk.
Styrkur til ekkna látinna
félagsmanna verður greiddur
í Hafnarhvoli 5. hæð alla
virka daga nema laugardaga.
Stjómin.
Hafnfirðingar. Vetrarhjálpin í
Hafnarfirði og Mæðrastyrktár
nefnd biðja þá, sem gefa vilja
fatnað til söfnunar þessarar að-
ilja að koma fatagjöfum sínum í
Alþýðuhúsið, en þar verður þeim
veitt móttaka hvern virkan dag
kl. 1—3 til 15. des. þeir, sem
ekki hafa tök á að senda fata-
gjafir sínar eru beðnir að gera
aðvart í símum 51671, eða 51241.
Skrifstofa Vetrarhjálparinnar
er á Laufásveg 41. (Farfugla-
heimilið). Sími 10785. Opið alla
virka daga kl. 10-12 og 1-5. Styðj-
ið og styrkið Vetrarhjálpina.
Vetrarhjálpin í Reykjavík.
Jólagetraun barna
OKKUR langar rétt til að
minna ykkur á að klippa
fuglamyndimar jafnóðum út,
svo að þið tapið engri, og svo I
förum við bráðlega að birta |
getraunaseðilinn, sem þið fær
ið nöfnin inn á.
Hvað heitir þessi fugl?
„Cathy66
Miklatorgi — Lækjargótu 4.
CATHY transistor útvörpin eru vönduð
og hafa sérstaklega góðan hljómburð.
8 transistora — 3 bylgjur, einnig er hægt
að tengja plötuspilara við það.
Verð kr. 2480
Einnig fyrirliggjandi lítil ferðaútvörp
7 transistora með L og M bylgjum.
Verð kr. 1345
Tilvaldar jólagjafir. - Takmarkaðar birgðir.