Morgunblaðið - 22.02.1967, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐMIKUDAGUR 22. FÉBRÚAR 1<H57.
7
Föstumessur á morgun
MYND þssa tók Sveinn Þormóðsson af byggingar framkvæmdum við Hallgrímskirkju á Skólavörðu-
hæð fyrir nokkrum dögum. Turninn hækkar og hækkar, og ljóst er að kirkja þessi á eftir að verða
höfuðkirkja landsins um ókomnar aldir. Stefnt er að þv:, að hún verði fullgerð árið 1974.
Dómkirkjan
Föstumessa kl. 8:30. Litania
sungin. Séra Óskar J. Þorláks-
son.
Hallgrímskirkja
Föstumessa kl. 8:30. Dr. Jakob
Jónsson.
Neskirkja
Föstuguðsþjónusta kl. 8:30. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Langholtsprestakall
Föstumessa kl 8:30. Séra Si.g-
urður Haukur Guðjónsson.
Háteigskirkja
Föstuguðsþjónusta kl. 8:30. Sr.
Arngrímur Jónsson.
Laugarneskirkja
Föstumessa kl. 8:30 Séra Garo-
ar Svavarsson.
Fríkirkjan í Reykjavík
Föstum’essa kl. 8:30. Séra Þor-
steinn Björnsson.
Spakmœli dagsins
Nýlega voru gefin saman af
séra Þorsteini L. Jónssyni í
Landakirkju Vestmannaeyjum,
ungfrú Gerður Guðríður Sigurð-
ardóttir og Guðni ólafsson. Heim
ili þeirra er að Helgafellstoraut 17
(Ljósmyndastofa ÓSŒCARjS).
14. jan. voru gefin saman af
séra Þorsteini Björnssyni, ung-
frú Sigrún K. Einarsdóttir og
Hilmar Guðmundsson, Hring-
braut 71 (Nýja Myndastofan,
Laugavegi 43to sími 15-1-26).
Þú skalt ekki fremja neinn
löst sakir þess að þú teljir hann
svo lítilfjörlegan, né vanrækja
neina dyggð af því, að þú álítir
hana svo smávægilega.
— Kínverskt.
VÍSUKORN
Meðan sólin skæra skín,
skreytir tinda hvíta,
ó, ef hún mætti inn til mín
allra snöggvast líta.
Valdimar Pétursson.
16. febrúar opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú Kolbrún Úlfs-
dóttir, ritari, Sörlaskjóli 78 og
Jóhannes M. Haraldsson, lög-
regluþjónn, Laugarlæk 24.
Börn eiga ekki heima á götunni
Verndið börnin gegn hættum og
freistingum götunnar og stuðlið
með því að bættum siðum og
betra heimilislífi.
sá NÆST bezti
Ein er sú saga um Kjarval, að hann hafi tekið þátt í málverka-
samkeppni. Skyldi sá málari hljóta verðlaunin er málaði frumleg-
ustu myndina ög væri fyrstur. Bkki er tilgreint, hversu margir
keppendiurnix voru.
Kjarval málaði allan strigann svartan og skilaði fyrstur.
Þegar hann var spurður, hvað þetta ætti að tákna svaraði hann:
„Þetta er málverk af svertingja að moka kol í svartamyr(kri“.
FRÉTTIR
Fótaaðgerðir í kjallara Laugar
neskirkju eru hvern föstudag kl.
9-12. Símapantanir á fimmtudög
um í síma 34544 og á föstudög-
um í 34516.
Geðverndarfélag íslands, Veltu
sundi 3, sími 12139, — Skrifst.
tími kl. 2-3 e.h., nema laugard.,
— og eftir samkomulagi. Ráð-
gjafa- og upplýsingaþjónustu
mánudaaa kl. 4-6 e.h. Þiónustan
ókeypis og öllum heimil.
MUNIÐ HNÍFSDALSSÖFN-
UNINA.
Afgrbiðslur allra dagblað-
anna í Reykjavík taka á móti
framlögum.
Kvenfélag Lauganessóknar.
Hárgreiðsla fyrir konur í sókn-
inni 65 ára og eldri, verður í
kirkjukjaliaranum á þriðjudög-
um frá kl. 1—5. Tímapantanir
í síma 37845.
Austfirðingar í Reykjavík og
nágrenni. Austfirðingamótið verð
ur laugardaginn 4. marz í Sig-
túni. Nánar auglýst síðar.
Hvítabandið. Afmælisfundur
félagsins verður haldinn í Átt-
hagasal Hótel sögu miðvikudag-
inn 22. febrúar kl. 8.30. Kaffi-
drykkja og skemmtiatriði
Rangæingafélagið minnir á
þorrafagnaðinn í Hlégarði 25.
þ.m.
—-------—
Ur Passíusálmum
IfnHgrímur Pétursson.
Sú er mín huggun sama,
sem þín var, Jesú minn,
krossinn þá að vill ama,
ofsókn og hörmung stinn.
Hjá þinni hægri hendi,
hér þó nú lífið endi,
fagnaðargnægð ég finn
13. sálmur, 11. vers.
—-——-----------------------------------1
Kýrin mjólkar ekki meira, þó {
skjólan sé stór.
.- ----------...................♦
MÁLSHÁTTUR^
Munið eftir að gefa smáfugl-
unum, strax og bjart er orðið.
Fuglafóður Sólskríkjusjóðsins
fást vonandi í næstu búð.
Danska Multiplast marmaramálningin frá S. Dyrup & Co, fæst í 11 lit- um. Leitið uppl. Póstsend- um. Einkaumboð Málara- búðin, sími 21600. Málaravinna önnumst alla málaravinnu. Jón og Róbert, sími 15667 og 21893.
Flfót hreinsun Nýjar vélar, nýr hreinsun- arlögur, sem reynist frá- bærlega vel. Hreinsum og pressum allan fatnað á 45 mín. Efnalaugin Lindin, Skúlagötu 51. Rúskinshreinsun Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sér stök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—60. Sími/ 31380, útibúið Barma hlíð 3, sími 23337.
Nýjar prjónasilki náttki-lar og prjónasilki undirkjólar. Rauðir og bláir nælon und irkjólar. Þorsteinsbúð. Snorrabraut 61 og Kefla- vík. Milliveggjaplötur fyrirliggjandi í 5, 7 og 10 cm þykktum. Vönduð og ódýr framleiðsla. Sendum. Hellu og steinsteypan sf. Bústaðabletti við Breið- holtsveg. Sími 30322. Annast um skattaframtöl Tími eftir samkomulagi. Friðrik Sigurbjörnsson, lögfræðingur, Fjölnisv. 2. Sími 16941.
Húsgagnasmið eða vanan mann vantar á verkstæði. Tilb. með uppl. um nafn og heimilisfang (sími) sendist Mbl. merkt „Plast-innréttingar 8311“
Köflótt stretch-efni Köflótt stretch-efni og tere lene efni í buxur og pils. Rauð og blá nælon-skjört. Þorsteinsbúð. Snorrabraut 61 og Kefla- vík.
Einhleyp stúlka óskar eftir 2ja herb. íbúð helzt í Vesturbænum, nú þegar eða 1. maí. Uppl. í síma 10566 frá kl 2-5 í dag og á morgun.
Ung háskólamenntuð barnlaus hjón óska eftir góðri 2-3 herb. íbúð á leigu Uppl. í síma 16782 eftir kl. 7 á kvöldin. Ódýrar gallabuxur Ódýrir drengjasokkar. vík. Þorsteinsbúð. Snorrabraut 61 og Kefla-
Volkswagen Teg. 1200 árgerð 1060 til sölu. Uppl. í síma 30186. Starfsstúlka óskast að barnaheimilinu Tjalda- nes í Mosfellsdal. Uppl. hjá forstöðumanninum Sími um Brúarland.
Ungt reglusamt fólk óskar eftir í’búð frá og með 1. maí. Tilto. leggist inn á afgr. ■ Mbl. fyrir 1. marz merkt „Reglusamt 8670“. Bílabónun — Bílabónun Þrífum og bónum bifreið- ar. Fljót og vönduð vinna. Pöntunum veitt móttaka í síma 31458. Bónver Álf- heimum 33.
Félags'teimili
Heimifaílar
Opið hús í kvöld
(sjónvarp o. fl.)
Húsbyggjenour
Byggingafélög
Getum útvegað með stuttum afgreiðslu-
fresti eldavélar í mörgum stærðum á hag-
kvæmu verði. — Upplýsingar gefur
H. G. Guðjónsson
Miðbæ, Háaleitisbraut 58—60, uppi.
Sími 37637.