Morgunblaðið - 02.03.1967, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. MARZ 1967.
smHissi
Öryggisútbúnaður álbræðslunar:
Hægt aö setja reykhreinsunar
tæki upp fyrirvaralaust
sagði Jóhann Hafstein í ítarlegri ræðu 'á Alþingi í gær
JÓHANN Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, svaraði í gær
fyrirspurn Alfreðs Gíslason-
ar um eituráhrif og öryggis-
útbúnað álverksmiðjunnar í
Straumsvík, með ítarlegri
greinargerð, þar sem ítarlega
•ru rakin viðhorfin í þessum
málum og aðgerðir islenzkra
yfirvalda tii þess að koma í
veg fyrir allar hugsanlegar
hættur af þessum völdum.
Það kom fram í ræðu Jó-
hanns Hafsteins að skv. kröfu
fslenzkra aðila voru ákvæði
tekin inn í samningana við
svissneska álfyrirtæki þess
efnis að því væri skylt að
koma fyrir reykhreinsunar-
tækjum í verksmiðjunni ef
ástæða væri til og hafa þegar
verið gerðar ráðstafanir til
þess að það sé unnt með
stuttum fyrirvara, en af því
hefur leitt töluverðan kostn-
aðarauka fyrir hið svissneska
fyrirtæki. Hins vegar sagði
Jóhann Hafstein, að þær upp
lýsingar sem iðnaðarmála-
ráðuneytið hefði undir hönd-
um um þetta mál hefðu ekki
leitt í ljós nauðsyn þess að
koma upp reykhreinsunar-
tækjum á fyrsta stigi fram-
leiðslunnar.
Hér fer á eftir í heild hin
ftarlega greinargerð Jóhanns
Hafsteins um þetta mál, sem
Alþingi var gefin i gær:
Hr. ForsetL
ÉG VIL fyrst fara nokkrum al-
mennum orðum um fyrirspurn
tU iðnaðarmálaráðherra um eit-
ttráhrif og öryggisbúnað fyrir-
hugaðrar álverksmiðju í Straums
vík frá Alfreð Gíslasyni, háttv.
9. þm. Reykvíkinga, á þingskjali
202.
Það hefur verið vitað frá því
að fyrst var farið að ræða um
byggingu álbræðslu hér á landi,
að viss mengun gæti stafað af
rekstri hennar, aðallega vegna
uppgufunar á flúorvetni frá
bræðsluofnum hennar. Má segja,
að þetta sé sú eina tegund meng-
unar, sem orð sé á gerandi í sam-
bandi við fyrirhugaða álbræðslu
i Straumsvík.
Eins og nánar verður vikið að
hér á eftir, er full ástæða til
að ætla, að flúormengun muni
ekki skapa teljandi vandamál í
sambandi við vinnu verkamanna
og annarra i verksmiðjunni
sjálfrL þar sem loftræsting í
bræðsluofnum hennar og önnur
vinnuskilyrði verði góð. Þær at-
huganir, sem farið hafa fram í
málinu á vegum ríkisstjórnar-
innar hafa þess vegna meira
beinzt að því, hvers vænta megi
umn áhrif álbræðslunnar á um-
hverfi hennar, þ.e. fyrst og
fremst á gróður og dýralíf í
næsta nágrenni.
í þessu sambandi skiptir það
«6 sjálfsögðu mjög miklu máli,
hvar álbræðslunni er valinn
•taður. í>að hefur frá upphafi
verið ljóst, að álbræðsla ÍSiALs
yrði mjög vel staðsett í Straums-
vík í þessu tillitL Hún mun
standa þar á opnu svæði, þar
sem ríkjandi vindátt er á haf
út, og gróður í næsta nágrenni
mjög takmarkaður og yfirleitt
ekki af þeim tegundum, sera
taldar eru sérstaklega viðkvæm-
ar fyrir mengun af völdum
flúors.
Þetta kom skýrt fram á fyrsta
stigi viðræðnanna um álbræðslu
á íslandL en þá var við það mið-
að, að byggð yrði 30.000 tonna
verksmiðja með einum bræðslu-
sal. Þá var talið, að staðsetning
verksmiðjunnar ein saman væri
næg trygging fyrir því, að ekki
mundi þurfa reykhreinsun fyrir
álbræðslu í Straumsvík. Hins
vegar var gengið að því sem
gefnu, að nauðsynlegt yrði að
hafa reykhreinsun, ef bræðslan
yrði staðsett við Eyjafjörð, þar
sem aðstæður eru hliðstæðar
því, sem þekkt er úr hinum
þröngu fjörðum í Noregi. Þegar
hinir svissnesku viðsemjendur
ríkisstjómarinnar gerðu fyrstu
kostnaðaráætlun sína á árinu
1964, töldu þeir, að bræðsla við
Eyjafjörð yrði um 45 millj. kr.
dýrari í byggingu en Straums-
víkurbræðslan vegna þessarar
reykhreinsunar, miðað við 30
þús. tonna bræðslu.
Um það leyti, sem ríkisstjóm-
Jóhann Hafstein
in gaf skýrslu sína til Alþingis
um álmáiið, hinn 5. maí 1965,
hafði framkvæmdaáætluinm
breytzt þannig, að á fyrsta stigi
skyldi byggja 30.000 tonna ál-
bræðslu, er síðan yrði stækkuð
í 60.000 tonn á nokkrum árum
í einum eða tveimur áföngum.
Þá var einnig gert ráð fyrir því,
að ekki mundi þurfa að gera sér-
stakar ráðstafanir í byrjun til
hreinsunar á reyk frá álbræðsl-
lurni í Straumsvík. Hins vegar
var það áskilið af hálfu fslend-
inga, eins og segir í skýrslu rík-
isstjórnarinnar (bls. 9 efet), að
„verksmiðjufélagið beri alla á-
hættu af tjóni af útblásturslofti
eða öðrum úrgangi frá verksmiðj
unni í Straumsvík. Verði tjón
af þessum sökum, mundi það
vera fullkomlega skaðabótaskylt
og auk þess skuldbundið til að
grípa til nauðsynlegra varúðar-
ráðstafana, ef hætta yrði talin á
frekara tjóni."
Þetta síðast talda sjónarmið
sætti nokkurri andspyrnu af
hálfu hinna svissnesku viðsemj-
enda ríkisstjómarinnar. Þegar
þeir lögðu fram samningsupp-
kast sitt sumarið 1965, óskuðu
þeir eftir ákvæði á þá leið, að
ekki mætti skylda ISAL til þess
að setja upp reykhreinsunarút-
búnað í bræðsluna. Á þetta var
ekki fallizt, og taldi ríkisstjómin,
að reykhreinsun ætti að koma
til greina á sama hátt og aðrar
varúðarráðstafanir, þ.e. að félag-
inu yrði skylt að taka hana upp,
ef hún yrði talin nauðsynleg.
Þetta atriði og mengunarákvæði
samningsins í heild var til um-
ræðu milli aðilanna fram á árið
1966, þegar endanlega var frá
samningunum gengið. Á því
tímabili voru gerðar ýmsar at-
huganir á málinu af hálfu ríkis-
stjómarinnar eða fulltrúa hertn-
ar. M.a. fór einn samningsnefnd-
armannanna (Stgr. Herm) til
Noregs til að kynna sér aðstæð-
ur þar frekar en gert hafði ver-
ið, og Rannsóknarstofnun iðnað-
arins gerði skýrslu þá um meng-
un, sem lögð var fram með frum
varpinu um álsamninginn 1. apr.
1966, fskj. II. Að sjálfri niður-
stöðu eamninganna verður nán-
ar vikið hér á eftir.
Eftir að samningsgerðinni lauk
vorið 1966, hefúr athugun á mál-
inu af hálfu ríkisstjórnarinnar
verið haldið áfram og frekari
Jón Árnason á Alþingi » gær:
ALHUOA RANNSdKN Á SAM
GOKGUMIIM HVALFJORD
— Brú eða ferja
f RÆÐU í Sameinuðu þingi I
gær lagði Jón Árnason alþm. á-
herzlu á nauðsyn þess að fram
fari alhliða rannsókn á því
hvernig hagkvæmast muni að
leysa samgönguþörfina milli þétt
býlisins í og við Reykjavik ann-
ars vegar og Akraness, Borgar-
fjarðar og til Vestur- og Norð-
urlands hins vegar.
í ræðu sinni sagði Jón Árna-
son að aðallega hefðu verið rædd
ar tvær leiðir í þessu efni. Brú-
argerð yfir Hvalfjörð eða ferja
milli Reykjavíkur og Akraness
eða yfir Hvalfjörð. Ennfremur
væri nauðsynlegt að kanna
möguleika á notkun loftpúða-
skips í þessum tilgangi .
Jón Árnason benti á að fram-
undan væri bygging varanlegs
vegar frá Reykjavík tii Vestur-
lands og síðan áfram norður og
væri ekki sízt af þeim sökum
nauðsynlegt að leita hagkvæm-
ustu lausnar á þessu tiltekna
samgönguvandamáli. Hér fer á
eftir ræða Jóns Árnasonar um
mál þetta:
Ég hef ásamt öðrum h.v. þm.
Vesturl. leyft mér að flytja tilL
til þál. um fullkomna rannsókn
á samgöngumöguleikúm yfir
Hvalfjörð. Tillgr. hljóðar svo
með leyfi forseta:
,.Alþ. ályktar að skora á ríkis-
stj. að skipa þriggja manna n.
urinn er nú, hefur þessi sam-
til þess að annast alhliða rann-
sókn á því hvernig hagkvæmast
muni að leysa samgönguþörfina
milli þéttbýlis í og við Reykja-
vík annars vegar ög Akraness,
Borgarfjarðar og til Vestur- og
Norðurlands hins vegar. Verði
n. heimilað að ráða sérfræðilega
aðstoð, bæði verkfræðilega og
hagfræðilega, svo að unnt verði
að finna niðurstöður byggðar á
eins traustum grundvelli og
mögulegt er, bæði að því er
varðar tæknileg og þjóðhagsleg
sjónarmið. í n. verði valinn einn
maður búsettur á Akranesi. N.
skili áliti fyrir árslok 1967. Kostn
aður við rannsókn þessa greið-
ist úr ríkissjóði“.
Till. þessi er. m.a. flutt að
tilmælum bæjarstjórnar Akra-
ness. Akurnesingar eiga að sjáií
Jón Árnason
sögðu mikilla hagsmuna að gæta
í sambandi við lausn þessa þýð-
ingarmikla samgöngumáls. Um
langan tíma hafa samgöngur yfir
og einnig fyrir Hvalfjörð verið
Framh. á bls. 21.
upplýsingu.m safnað um hinar
ýmsu hliðar þess. Meðal annars
má geta þess, í fyrsta lagi, að
hinn 30. jiiní 1966 barst iðnaðar-
málaráðuneytinu bréf frá land-
læknL og fylgdu með því upp-
lýsingar um mengunarvamir við
álbræðslu, sem hann hafði aflað
að beiðni heilbrigðis- og iðnað-
armálaráðherra, frá Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni og þýzkum og
norskum heilbrigðisyfirvöldum.
Einnig bárust ráðuneytinu upp-
lýsingar frá svissneskum heil-
brigðisyfirvöldum með bréfi
landlæknis 14. júlí 1966. í þess-
um gögnum er að finna ýmsar
mikilsverðar upplýsingar al-
menns efnis, sem hafa má hlið-
sjón af við mat á aðstæðum hér
á landi, en hins vegar engin bein
svör við þeirri spurningu, hvað
sé hæfileg varúð í sambandi við
álbræðsluna í Straumsvík. Öll-
um þessum gögnum er það sam-
eiginlegt, að þau leggja höfuð-
áherzlu á það, hvernig til takist
um staðarval viðkomandi verk-
smiðju hverju sinni. í þessum
þremur löndum, Þýzkalandi,
Sviss og Noregi, eru engar al-
mennar og algildar reglur um
varúðarráðstafanir vegna meng-
unar nema þær, að gera beri
það, sem telst mauðsynlegt hverju
sinni með tilliti til aðstæðna. Að
því leyti má segja, að þar er
beitt nákvæmlega sömu aðferð-
um og sama mælikvarða eins og
fyrirhugað er að beita hér á
landi vegna ÍSAL. — Að því er
sérstaklega varðar reykhreinsun
má geta þess til nánari upplýs-
ingar, að í Sviss eru 4 álbræðsl-
ur, og sumar komnar mjög til
ára sinna. Það er ekki fyrr en
tiltölulega nýlega, sem þær hafa
sett upp reykhreinsunartæki, en
reynslan hafði þá sýnt, að þeirra
væri þörf eftir aðstæðum. Höfðu
kamið fram skemmdir á apríkós-
um og grenitrjám í nágrenninu,
og á einum stað hafði þess orðið
vart, að nautgripir sýktust af
flúorveikL í Noregi hefur reynd-
in orðið sú, sem kimnugt er, að
allar álbræðslur í landinu, sem
vera munu 6 að tölu, hafa sett
upp reykhreinsunartæki. Ástæð-
an er sumpart sú, að vegna landa
lagsins í fjörðum og dölum Nor-
egs er ekki talið varlegt að starf-
rækja þar álbræðslu án slíkrar
hreinsunar, sbr. það, sem áðúr
var sagt um Eyjafjörð. Auk þess
er ríkari þörf á hreinsun við þá
tegund bræðsluofna, sem algeng-
ust er í Noregi. — En almennt
gildir það um þessi lönd, sem
fyrr segir, að það tilheyrir hin-
um almennu réttarreglum ura
öryggi á vinnustað og atvinnu-
sjúkdóma, hvað gera beri hverju
sinni vegna þeirra manna, sem
vinna í verksmiðjunum, og ná-
grannaréttinum tilheyrir það,
hvað gera beri vegna áhrifa á
umhverfið á hverjum stað.
Iðnaðarmálaráðuneytinu hefur
einnig borizt bréf frá landlækni
dags. 15. nóv. sl., þar sem kom-
ið er áleiðis erindi frá heilbrigð-
isnefnd Hafnarfjarðar, sem álykt
aði á fundi sínum hinn 12. sept.
sl. að fara þess á leit við land-
lækni, að hann „gengist fyrir
ýtarlegri könnun á ráðstöfunum
varðandi væntanlega álverk-
smiðju í Straumsvík, .. að þvl
leyti, sem snertir heilbrigðisvarn
ir almennings, og geri allt sem
í hains valdi stendur til að tryggja
að æskilegar varúðarráðstafanir
verði gerðar, ef hann telur þess
þörf.“ Eins og sagt var áður,
eru þessi mál í áframhaldandi
athugun á vegum iðnaðarmála-
ráðuneytisins, og munu þar
verða höfð full samráð við land-
lækni og önnur viðkomandi yfir-
völd, eftir því sem tilefni gefast.
í öðru lagi hefur Rannsóknar-
stofnun iðnaðarins haldið áfram
athugunum sínum á mengunar-
málinu að beiðni ráðuneytisins.
Forstöðumaður stofnunarinnar
fór m.a. til Sviss og Noregs á sL
hausti og kannaði þar álbræðsl-
ur á vegum Alusuisse og ann-
arra. Skilaði hann skýrslu til
ráðuneytisins um athuganir sín-
ar um mánaðamótin nóv.-des.
sL Þessi skýrsla hefur nú verið
afhent ÍSAL og Alusuisse til um-
sagnar, og er hún þar í athug-,
un.
Framh. á bls. 21.