Morgunblaðið - 04.05.1967, Qupperneq 32
Lang stœrsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1967
Newton skipstjóri færðu r inn í réttarsalinn.
Blaðamannafundur með skólastjóra Kennaraskólans:
—————————————— III ' I ' I' ■»»
Menntadeild og framhaldsdeild
taka til starfa í haust
— Bygging Æfing&skóla hafin
í sumar
DR. Broddi Jóhannesson, skóla-
stjóri Kennaraskóla íslands, boð-
aði blaðamenn á sinn fund í gær,
og skýrði þá frá því að á hausti
komanda mundi menntadeild, er
útskrifaði stúdenta, hefjast við
skólann svo og framhaldsdeild
er veitti starfandi kennurum
frekari menntun. Þá er ennfrem-
ur ákveðið að í sumar hefjist
bygging Æfinga- og tilrauna-
skóla á lóð Kennaraskóla íslands.
„Tími til að gyðja rétt-
lætisins fái að opna augun
— sagði verjandi Newtons skipstjora við réttarhöldin
u
RÉTTARHÖLDIN í máli New-
tons skipstjóra héldu áfram í
gærdag og var þá borin fram
framhaldsákæra vegna hinnar
misheppnuðu flóttatilraunar
hans. í kærunni segir m.a. að
höfða beri mál gegn nefndum
Newton fyrir að hafa beitt of-
beldi og hótunum um ofbeldi
tvo lögregluþjóna sem stóðu
vörð í togaranum í þvi skyni
að varna því að hann yrði fjar-
lægffur þaffan sem hann lá og sið-
an siglt togaranum af stað og
ætlað til Englands. Með ógnandi
framkomu sinni og áhafnar sinn-
ar hafi hann hindrað lögreglu-
mennina i að gegna skyldustörf-
um sínum.
Newtion, skipstjóra, var til-
kynnt að hann þyrfti ekki að
svara spurningum réttarins, ef
hann ekki óskaði eftir þvi, en
hann hafði ekkert við það að at-
huga. Ármann Kristinsson saka-
dómari bað hann þá að skýra 1
stuttu máli frá því sem fram fór.
Newton sagðist hafa ákveðið að
hverfa á braut eftir að hann
frétti að hann yrði lengur í
haldi áður en réttarhöldunum
lyki og þvi vitað að aflinn myndi
eyðileggjast. Hann kvaðst hafa
boðið lögregluþjónunum upp á
tesopa í klefa sínum og læst þá
þar inni með bátsmanninum.
Hefðu þeir fljótlega brotizt út og
beðið hann að snúa til hafnar og
annar þeirra farið út á brúar-
væng og flautað og kallað á skip
sem þeir voru að mæta. Segist
Newton hafa gengið til hans og
sagt: — í>að kemur súgur ef þú
hefur hurðina opna væni minn,
Fé heimt úr björgum
Látrar, 1. maí.
I VETUR varð vart við tvö
lömb í Keflavíkurbjargi, hrút og
gimur. Einnig varð vart við fé í
Látrabjargi í svokallaðri Saxa-
gjá-
Á laugardag var farið að gæta
að kindum í Keflavíkurbjargi og
var þó enn töluverður snjór í
bjarginu. Hrúturinn var þá far-
inn, en gimbrin var eftir og kom
in að burði. Tókst að handsama
hana heila á húfi, og var hún
borin á sjúkrabörum, sem búnar
voru til í fjörunni í Keflavík og
út á Brunnahæð, en þangað er
„Keflavíkurvegurinn" kominn.
I>ar steig hún upp í bíl ásamt
björgunarmönnum sínum, sem
voru frá Kollsvík, Hænuvík og
Örlygshöfn. Var ekið með hana
til Kollsvíkur, en Ingvar Guð-
bjartsson bóndi í KoUsvík átti
kindina.
Kindin var mjög vel í holdum
og hin sprækasta. Bylur var á
Brunnahæð á laugardag.
1 morgun var bezta veður, og
fór þá Asgeir vitavörður Bjarg-
tanga út á bjarg, og varð þá var
við þrjár kindur. Þær voru ljón
styggar, og vissi hann strax að
þar mundu vera komnar kind-
urnar úr Saxagjá, og hefðu kom-
izt hjálparlaust upp. Tókst hon-
um að koma þeim til sjávar, og
svo heim að Látrum.
Þetta voru tvær tvævettlur,
sem hurfu í fyrsta norðanbyln-
um í fyrrahaust, og fundust
hvergi eftir það. Hafa þær sjálf-
sagt hrakið út á bjarg, og niður
í Saxagjá, þar sem hafa senni-
lega verið fyrir tvö lömb, grár
hrútur sem var með þeim nú, og
fjórða kindin hefur farizt.
Hrúturinn er bæklaður á fram
fæti, sennilega orðið fyrir ein-
hverju óhappi, og var því sein-
færari en ærnar. Þær vildu þó
ekki hlaupa hann af sér, og varð
það til þess, að þær voru hand-
samaðar í fyrstu lotu.
Kindurnar eru báðar komnar
að burði, stökk þó önnur þeirra
yfir milligerði sem var hálfur
annar metri á hæð, þegar hún
kom í hús. Kindurnar eru allar
ágætlega vel í holdum, og farn-
ar að flaka í ullu, eins og komið
væri langt fram á vor, og sérstök
veðurblíða, en okkur sem verið
höfum ofan bjargs hefur fundizt
lítil veðurblíðan á þessum ný-
liðna vetri, og munum varla ann-
an verri. — Þórður.
og þeir heyra hvort eð er ekki
tU þín“.
Hann kvaðst ekkert skilja f
því, hvernig Þorkell hefði farið
að því að meiðast í viðskiptum
sínum við áhöfnina, fullyrti, að
það væri ekki af hennar völd-
um. Hann sagði, að hann hefði
átt vinsamleg orðaskipti við lög-
regluþjónana og að annar þeirra
hefði beðið um og fengið egg
að borða.
Armann spurði: Var yður ekki
ljóst, að þér máttuð ekki láta úr
höfn?
— Mér hafði ekki verið sagt
það.
— Til hvers haldið þér þá, að
lögregluþjónarnir hafi verið?
— Til dæmis til að hindra aðra
í að komast um borð.
— Hvers vegna læstuð þér þá
þá inni?
Við þessu barst ekkert svar.
— Var yður ekki ljóst að þér
máttuð ekki láta úr höfn?
Þessu neitaði Newton að svara.
-— Játið þér að hafa læst lög-
regluþjónana inni?
— Já, ásamt bátsmanni mín-
um.
— Var yður Ijóst, að þetta
voru íslenzkir löggæzlumenn?
— Já.
— Hversu margir skipverjar
voru í brúnni þegar þið fóruð?
— Það veit ég ekki alveg. Það
voru a. m. k. þrir vaktmenn og
ég sjálfur, og svo einhverjir, sem
komu til að fá skipanir.
— Voru einhverjir þeirra
vopnaðir bareflum?
Framhald á bls. 31.
Togar&sölur
í Grímsby
TVER togarar seldu i Grimshy
í fyrradag, Kaldbakur og Surp-
rise og í gærmorgun seldi Slétt-
bakur einnig í Grims:by. Sölur
togaranna voru allar mjög þokka
legar og uppistaða aflans að
mestu ýsa.
Kaldbakur seldi 145 tonn fyrir
13.5S1 sterlingspund, Surprise
123 tonn fyrir 11.339 sterlings-
pund og Sléttbakur 108 tonn fyr-
ir 11.320 sterlingspund.
1963 voru Kennaraskóla fs-
lands sett ný lög, en í þeim lög-
um er kveðið á um að Kennara-
skólinn skuli starfa í sex deild-
um. Þær eru almenn kennara-
deild, kennaradeild, stúdenta,
handavinnudeild og undirbún-
ingsdeild sérnáms, er tók til
starfa haustið 1963. Þá gerðu
lögin ráð fyrir framhaldsdeild
og menntadeild við skólann og
segir svo um það í lögum: f skól-
anum starfa þessar deildir:
Menntadeild er taki til starfa
eigi síðar en fjórum árum eftir
gildistöku laga þessara. Loka-
próf úr menntadeild er stúdents-
próf, og veitir það réttindi til
inngöngu í háskóla með þeim
takmörkunum er sett eru í lögum
hans og reglugerð. Námskröfur
til stúdentspróf frá Kennaraskóla
fslands skulu sambærilegar kröf-
um til stúdéntsprófs menntaskól-
anna, þó þannig, að heimilt er
að láta próf í uppeldisfræðum
frá almennu kennaradeildinni
gilda til stúdentsprófs og fella
þá niður, innan takmarka, sem
ákveðin eru í reglugerð, annað
námsefni sem því svarar, á svip-
aðan hátt og gert er um sér-
greinar 1 mála- og stærðfræði-
deildum menntaskólanna. Og enn
segir í lögunum að starfa skuli
við skólann framhaldsdeild er
veiti nemendum feost á fram-
haldsmenntun með nokkru kjör-
frelsi. Skulu þeÍT þá stunda nám
í eigi færri greinum en þrem og
(sé ein þeirra aðalgrein. Sett
Iskulu ákvæði um próf að af-
lloknu þessu framhaldsnámi. —
(Heimilt er starfandi kennurum
•að leggja stund á einstakar
greinar þess framhaldsnáms, sem
efnt veTður til samkvæmt þess-
um ákvæðum, eftir frjálsu vali,
log ljúka í þeim tilskildum próf-
<um.
Samkvæmt ákvæðum laganna
iskal því menntadeildin hefja
Btörf á hausti komanda og hefur
nú ennfremur verið ákveðið að
Broddi Jóhannesson, skólastjórL
framhaldsdeildin taki þá einnig
ifcil starfa.
Dr. Broddi Jóhannesson sagði,
að enn væri ekki fullmótað
hvernig starfsemi framhalds-
deildarinnar yrði hagað. Ráð-
'gert væri, að fyrsta veturinn
hæfist kennsla í stærðfræði og
yrði hún aðalgrein, en auka-
greinar yrðu eðlisfræði og efna-
Ifræði og ef til vill eitt erlent
tungumál, — mest í þeim tilgangi
að nemendur ættu auðveldara
Imeð að hagnýta sér kennslu-
'bækur á erlendum málum.
Kennslustundir í framhaldsdeild-
Framhald á bls. 31.
Forsetinn
kominn
heim
FORSETI ÍSLANDS, herra
Ásgeir Ásgeirsson, var vænt-
anlegur heim í gærkvöldl
flugleiðis frá Kaupmanna-
höfn. Sem kunnugt er fór hann
utan til lækninga og gekk undir
uppskurð í sjúkrahúsi í Kaup-
mannahöfn. Síðustu vikurnar
hefur hann verið á heimili sendi-
herra íslands þar í borg, sér til
hvíldar og hressingar.
SR taka ekki á móti
síld fyrr en 1. júní
f FRÉTTATILKYNNINGU frá
Síldarverksmiðjum ríkisins, seg-
ir aff stjórn SR hafi ákveffið að
verksmiðjurnar hefji ekki mót-
töku bræðslusíldar fyrr en 1.
júní n.k. f því sambandi var
samþykkt á stjórnarfundi SR i
gær með fjórum atkvæðum
gegn einu, tveir sátu hjá, að
gefa út eftirfarandi yfirlýsingu.
„Á undanförnum árum hefur
síldveiði fyrir Norðausturlandi
og Austfjörðum oftast verið Htil,
sem engin, í maímánuði, og sú
síld, sem veiðzt hefur til bræðslu,
hefur skilað mjög lágum hundr-
aðshluta af lýsi og minna mjöl-
magni miffað við einingu síðar
á vertíðinni
Af þessum sökum og vegna
gifúrlegs verðfalls á bræðslu-
síldarafurðunum, síldarlýsi og
síldarmjöli, frá því um þetta
leyti í fyrra, er augljóst að af.
urðir úr síld, sem veiðast kynni
nú í maímánuði myndu vera svo
rýrar og verðlitlar, að ekki yrði
hægt að greiða nema mjög lágt
verð fyrir síld til bræðslu og
mikið tap fyrirsjáanlegt bæði f
rekstri síldarverksmiðjanna og
síldveiðiflotans í maímánuði.
Loks er æskilegt að nota
þennan mánuð til þess að búa
síldarverksmiðjurnar undir
reksturinn í sumar og fram til
n.k. áramóta.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins hefur því ákveðið að verk-
smíðjurnar hefji ekki móttöku
bræðBlusíldar fyrr en 1. júní n.k.
Veremiðjustjórnin hefuT beint
þeirri ósk til Verðlagsráðs sjá-
varútvegsins, að það ákveði verð
bræðslusíldar frá 1. júni til 30.
sept. n.k. eins fljótt og það telur
fært.