Morgunblaðið - 08.10.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKT. 1987
>
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381 ^
SIM1-44-44
mJUF/Ðlfí
Hverfisgötu 103,
Simi eftir iokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið ' leigugjaldi
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 13. Sími 35135,
Eftir lokun 34936 og 36217.
RAUÐARARSTfG 31 SfMI 22022
Flesl til raflagna:
Raf m agnsvör ur
Heimilstæki
ÍJtvarps- og sjónvarpstæki
Hafmagnsvörubiiðin sf
SuSurlandsbraut 12.
Simi 81670 (næg bilastæði).
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
★ Hvar er Skálafell?
St. G. skrifar:
„Hinn 28. sept. sl. er í einu
dag'blaðanna óskað eftir tilboði
í 150 kúbíkmetra af steypumol,
sem afhendast skuli við radíó-
stöðina á Skálafelli í Mosfells-
sveit.
Ég hef hingað til haldið, að
umrætt Skálafell væri í Kjalar-
neshreppi eða Kjósarhreppi.
Eða er hér um eitthvert an-nað
Skálafell að ræða?
St. G.“.
— Velvakandi þekkir ekki
hreppamörk þarna, en telur
þó, að Skálafell sé fremur í
Kjalarneshreppi en Kjósar-
hreppi; alls ekki í Mosfells-
sveit
Hvar er bláa
DBS-reiðhjóIið?
„Kæri Velvakandi!
Ég er lítill drengur, 10 ára,
sem var svo óheppinn að tapa
reiðhjólinu mínu.
Síðastliðinn sunnudag þ. 1.
okt. var það tekið fyrir fram-
an hliðið hjá okkar að Guð-
rúnargötu 7, og hefi ég ekki
fengið það aftur, en ég hélt að
einhver hefði bara fengið það
lánað um stund.
Þetta er DRS-reið'hjól, blátt
að lit og alveg nýtt; ég er ekki
búinn að eiga það lengur en
einn mánuð. Ég er alveg viss
um, að sá, sem fékk það lánað,
vill skila því aftur til mín.
Mundir þú nú, kæri Velvak-
andi, vilja koma þessu í blaðið
þitt og biðja þann, sem tók
það, að koma með það aftur,
eða biðja þá, sem um það vita
að láta mig vita?
Með fyrirfram þökk,
Hilmar Einarsson, 10 ára,
Guðrúnargötu 7,
Sími 1 58 70“.
ic Slæmir eru
kettirnir
G. O. skrifar:
„Halló, Velvakandi!
Mig língar til að biðja þig
að koma á framfæri nokkrum
orðum um kettina, og hefi ég
áður vakið máls á ógagnsemi
kattahaldsins.
í Kópavogi og Reykjavík er
hundahald bannað, og flestum
hundum þar lógað, en kettirnir
fá að þrífast! í vor vaknaði ég
við blíðan fuglasöng á morgn-
ana, en viti m-enn: Fólk flytur
inn beint á móti mér með tvo
kettL Síðan heyrist enginn
fuglasöngur, en annar „söngur"
kominn í staðinn: kattabreim.
Fiður er hér allt um kring,
áreiðanlega nóg í ýlgóða sæng
handa kattaeigendunum.
Ég á páfagauka í búrL en
skilji ég augnablik eftir opinn
glugga, eru kettir nágrannans
komnir inn á gafl í stofunni og
fuglarnir trylltir af hræðslu.
Þetta á við jafnt á nótt sem
degi. Mér var ráðlagt að
skvetta vatni á kettina, og
gerði ég það, en því vek ég
máls á þessu hér í þínum víð-
lesnu dálkum, að nú hefi ég í
þokkabót hlotið hatur kattaeig-
endanna, sem senda mér tón-
inn út um gluggana, þegar ég
kem heim, — oft í myrkri á
krvöldin. Mér finnst þetta anzi
hart. Ef gerð væri herferð
gegn kattahaldi, eins og gerð
var gegn vesalings hundunum,
sem engum gera mein, þá væri
fuglalífið meira og fjölbreytt-
ara, bæði hér og annars staðar,
þar sem kettir fá að drepa
hvern unga, sem kemst á legg.
— Burt með alla ketti, þeir eru
ímynd falsins og lævísinnar,
sem hvergi og enginn ætti að
hýsa“.
ít Jakob og Snati
„Kæri Velvakandi!
Ég heiti Jakob, og á ég heima
í Garðahreppi og er 10 ára. Mig
langar til að senda þér þessa
mynd af honum Snata mínum,
hann er svo góður hvolpur, og
bezti félagi minn. Hann bítur
aldrei, enda verður að vera
strangur en góður við að ala
upp hunda. Ég vildi að allir
krakkar gætu átt hund.
Jakob Jóhannsson“.
Velvakandi þakkar bréfið og
myndirnar. Það, sem stóð neð-
anmáls í bréfinu og ekki er
prentað hér, ætlar Velvakandi
að athuga bráðum.
it Skepnuhald
í Vesturbænum
„Borgari" skrifar:
„Herra Velvak'andi!
Oftar en einu sinni hefur
verið vakin athygli á því í dálk-
um þínum, að inni í miðju og
þéttbýlu íbúðarhverfi í Vestur-
bænum leyfa bæjaryfirvöLdin
enn skepnuhald. Þarna eru
kindur geymdar í gömlum
kofum, og auk þess eru þar
endur og gæsir, ef ekki fleiri
húsdýr. Allt í kring eru við-
bjóðslegir haugar og anda-
dammar, enda sækja þangað
dúfur og rottur í þúsundatali.
Meindýraeyðar Reykjavíkur-
borgar munu algerlega hafa
gefizt upp við að halda rottun-
um þarna í skefjum, enda
óvinnandi vegur, og megum
við íbúarnir í hverfinu því
alltaf búast við því að rekast
á rottur í kjöllurum okkar og í
öskutunnunum. Flugnapestin
í þessu hverfi er fræg, því að
ekki er hægt að opna glugga
mikinn hluta ársins, án þess
að stofurnar fyllist af hvers
konar flugum, og væri fróð-
legt fyrir skordýrafræðing að
búa hér um tíma.
„Þótt „búrekstur" þessi sé
við híiSina á tveimur barna-
heimilum og Sundlaug Vastur-
bæjar, virðist borgarlæknir
ekki sjá sér fært að stöðva
þetta svínarí. Margsinns hefur
verið kvartað og kært undan
þessum óþrifnaði, og alitaf
verið lofað að málið yrði at-
hugað. Við það hefur staðið,
— og ekkert gert. Ég hélt, að
rétt yfirvöld hefðu orðið ræki-
lega vör við það í kringum
seinustu borgarstjórnarkosning-
ar, að húsmæður hér um slóðir
líta þetta mál mjög alvarleg-
um augum. Ekkert hefur þó
verið gert. Sagt gæti ég all-
hrikalegu sögu úr Sundlaug
Vesturbæjar, en geymi mér
hana um sinn, ef ég skyldi
aftur þurfa að skrifa um þetta
mál. Vonandi kemur ekki til
þess, a.m.k. ekki ef skepnu-
hald verður stöðvað þarna þeg-
ar í stað og sléttað yfir sóða-
skapinn og rottubælin, eins og
lofað var r vor.
Borgari".
— Ekki er nú lýsingin fögur,
og væri æskilegt, að viðkom-
andi yfirvöld svöruðu bréfi
þessu.
it Vantar karlfugl
í búrið
Guðrún Jacobsen skrifar:
„Ágæti Velvakandi!
Vildurðu birta þetta lítil-
ræði til góðfúslegrar athugun-
ar hlutaðeigandi aðila? Svo er
mál með vextL að hann Jón
minn, þessi stórskemmtilegi
söngvari — ber að auki frábært
skyn á myndlist og skáldskap
— hefur ekki notið sín eins og
skyldi upp á síðkastið sökum
kvenmannsleysis — kvenfugls-
leysins. Hann varð ekkjufugl
fyrir mánuði. Litli Jón eða
meistari Jón — ég kalla hann
þetta til skiptis — er rísfug!
af vönduðu og rándýru kyni.
Og ég vil hér um bil allt til
vinna að hann láti eftir sig
erfingja. Fuglaverzlanir þurfa
að bíða mánuðum saman eftir
leyfisveitingu fyrir þann lif-
andi varnig, sem þær höndla
með — það er ekki þeim að
kenna, þótt einstakir kaupend-
ur loki óþekkta gleði sína í búr-
um, Mér finnst hart að þurfa
að kaupa mér flugfar til út-
landa eftir ungri og snoturri
Litlu Gunnu. Næsta fuglasend-
ing ku ekki vera væntanleg
fyrr en um jól, og svo lengi
viljum við Jón ekki bíða.
Svo er það annað.
Telpurnar mínar hlustuðu á
sveitaþátt í útvarpinu fyrir
skömmu og geðjast nú heldur
illa sveitaafinn blesaður. Þeim
finnst hann tala Ijótt um líf-
brauðið sitt. „Ég vil fá traktor
til að draga áfram helvítis
skjáturnar“, sagði einn bænda-
frömuðurinn í viðtali meðal
cinnars. Ég vil bæta því við að
mér hundleiðist að hlusta alltaf
á sama lagið raulað í réttunum.
ic Hundavaktir
um listaverk
Að síðustu vil ég taka
undir með Barböru J, Árna-
son, sem kvartar und’an
skemmdarvörgum, sem klifra
upp á listaverk og afskipta-
leysi fólks, sem á horfir. Ég
gekk eitt kvöldið fram hjá Út-
laganum á Melatorgi og tók þá
eftir, að búið var að klína vara-
lit um varir konumyndarinnar
á baki hans. Og ósjaldan
hefi ég hlaupið mig spreng-
móða á eftir guttum, sem voru
að henda grjóti á íbúa tjarnar-
innar. í fyrra tilfellinu hefi ég
ekki hugmynd um, hvaða háls
það er, sem ég á að læsa um
lúkunum, og í hinu síðara fékk
ég ekki færi á nokkrum
ómerkilegum strákarössum.
Hér þyrftu að koma til ailsherj-
ar samtök borgarbúa um að
standa óbeiníínis sólarhrings-
langar hundavaktir um LISTA-
VE'RK, og almennn þátttaka í
óformlegum fjöldaboðhlaupum,
þegar svo ber undir. Þakka þér
svo fyrir.
Guðrún Jacobsen".
m ciié ÞETTA SVEFNHERBERGISSETT
i '" ^ j og 20 aðrar tegundir úr eik, tekki, álmi, aski og palisander fást eingöngu hjá okk- ur.
^ " tt| MUNIÐ að aðeins hjá okkur getið þér fengið hinar landsþekktu EVU springdýn-
u.r
* » Lm m
^I - g Q Simi -22900 Laugaveg 26