Morgunblaðið - 18.04.1968, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 190«
Benzínsjálfsalar um
nætur í borginni?
BORGARRAÐ skoraði nýlega á
olíufélögin að taka upp sölu á
benzíni að næturlagi, og auka
þannig þjónustu við bifreiðaeig-
endur. Nú hafa olíufélögin sótt
um það til borgaryfirvalda, að
þau fengju að setja upp sjálfsala
við benzínsölustöðvar, svo að
unnt yrði að fá þar benzín allan
sólarhringinn. Borgarráð hefur
vísað þessari beiðni til Bruna-
varnaeftirlits rikisins og Eld-
varnaeftirlits Reykjavíkur.
Mbl. sneri sér til Önundar Ás-
geirssonar, forstjóra Olíuverzlun-
ar íslands, og spurði hann um
málið. Önundur sagði, að næst-
um ár væri síðan sjálfsafgrei'ðslu
tæki þessi hefðu komið á mark-
aðinn. Unnt er að nota sömu
benzíndælur og nú eru notaðar,
en við þær er tengd lítil tölva,
sem tekur við peningaseðli og af
greiðir benzínmagn sem svarar
til verðgildis hans. Hér er gert
ráð fyrir að tölvan taki við eitt-
hundrað króna seðli.
Tæki þessi eru nú framleidd
og notu'ð víða um heim. Þau eru
nokkuð dýr og þótt leyfi fengist
til notkunar þeirra hérlendis, líð-
ux nokkur tími unz unnt verður
að setja þau upp, vegna þess að
smíða þarf lestrartæki 100 króna
seðilsins sérstaklega. Aðspurður
sagði Önundur, að eldvarnar-
yfirvöld hefðu verið nokkuð
treg til að leyfa notkun véla sem
hleyptu benzíni undir bert loft.
Hins vegar kvað Önundur þa'ð
ástæðulaust, þar eð aðeins yrði
um 10 lítra, eða þar um bil að
ræða fyrir hvern seðil.
- ÞOKA
Framhald aif bls. 28
mjög snögglega yfir. Fjöldi flug-
véla af ýmsum stærðum og
gerðum, — allt frá þotu niður í
minnstu gerðir kennsluflugvéla
voru þá hér við borgina eða á
leið til lendingar. Urðu flug-
stjórnarmenn á Flugturninum á
Reykjavíkurflugvelli að kalla
flugvélar þessar inn til tafar-
lausrar lendingar. Vel sást til
þokunnar úti yfir Flóanum og
stefndi þokubakkinn, þó að
hvítalogn væri inn yfir land.
Milli kl. 19,34 og 20,17 lentu alls
10 flugvélar á Reykjavíkurflug-
velli og sú stærsta þeirra einn
Faxanna. Einnig lenti lítil far-
þegaþota sem orðið hafði að snúa
frá Keflavíkurflugvelli, sem
lokaðist nokkru áður en
Reykjavíkurflugvöllur. Flug-
turninn sagði, að ekki hefði leg-
ið fyrir spá um þessa þoku og
hefðu erlendar flugvélar, sem
voru á leið um íslenzka flug-
stjórnarsvæðið orðið að breyta
flugáætlun sinni og ýmist fljúga
yfir ísland — án ráðgerðrar við-
komu eða hreinlega snúa fró. Var
mikið að starfa í Flugturninum
við að veita flugvélum aðstoð
og leiðbeiningar.
Um klukkan 9 í gærkvöldi var
þokan svo svört á Reykjavíkur-
flugvelli, að skyggni þar var að-
eins 25-30 metrar. Á sama tíma
var sólskin uppi við Gufunes.
Arnargæzla kostaði
Akureyringar skemmta sér ekki einungis á skíðum i Hlíðar-
fjalli þessa daga. Um páskana skemmtu nokkrir ungir drengir
sér á sjóskíðum á Akureyrarpol lli, og er myndin tekin við það
tækifæri. — Ljósm.: Hallgrímuur Tryggvason.
45.500 krónur
A SÍÐASTLIÐNU sumri hafði
Fuglavemdunarfélagið eftirlit
með arnarvarpsstöðvum og leigði
félagið m.a. landssvæði, þar sem
óttast var að varpið myndi mis-
farast, vegna hlunnindanytja í
nágrenni stöðvanna. Þetta kom
fram á aðalfundi Fuglaverndun-
arfélags fslands, sem haldinn var
fyrir skömmu.
Á fundinum kom fram í ræðu
Péturs Gunnarssonar, sem verið
hefur f ormaður félagsins, að
leggja þyrfti mikla áherzlu á
verndun arnarvarps. Aron Guð-
brandsson, forstjóri, gjaldkeri fé-
lagsins, skýrði frá því að áður-
nefnd gæzla og eftirlit hefðu
kostað 45.500 krónur. Voru það
aðalútgjöld félagsins á síðast-
liðnu ári.
Fjölbreytt skemmtun
í Selfossbíói
SKEMMTUN verður haldin í
Selfossbíói nk. föstudagskvöld
kl. 9 til ágóða fyrir unga stúlku,
sem nú er til höfuðaðgerðar er-
lendis.
Til skemmtunar verður kvik-
mynd um kappakstur og flytur
Sverrir Þóroddsson, kappaksturs-
maður, skýringar, þá verðux efnt
til skyndihappdrættis og tízku-
sýningar á vegum Karnabæjar.
Hljómsveitin Mánar leikur. —
Kynnir og stjórnandi verður Lúð
vík Karlsson.'
Allir þessir aðilar hafa gefið
sitt framlag til þessarar söfnun-
ar.
Það er Kvenfélag Selfoss-
kirkju, sem stendur fyrir
skemmtuninni og söfnuninni til
ungu stúlkunnar. Skora konurn-
ar á fólk að fjölmenna á skemmt
unina og styrkja þannig þetta
góða málefni.
Heildarútgáfa á
verkum Kambans
— gef/n út af AB á nœsfa ári
Á FUNDI Þjóðleikhússtjóra
með fréttamönnum í gær
skýrði Tómas Guðmundsson
skáld frá því, að hann ynni
nú að undirbúningi útgáfu á
verkum Guðmundar Kambans
Sagði Tómas, að Almenna
bókafélagið hefði fengið rétt-
indi til útgáfu á verkum
Kambans og væri ætlað, að
verkið kæmi í einu lagi út á
næsta ári í sjö binda útgáfu.
í útgáfunni munu verða leik-
Ekið á bíl
EKIÐ var á kyrrstæðan bíl, sem
stóð framan við Sigtún 35 á
tímabilinu frá kl. 11 um kvöldið
annan i páskum og fram til kl.
7.45 á þriðjudagsmorgun. Bif-
reiðin sem hér um ræðir er hvít
Cortina R-6473 og var ekið á
hægri hlið hennar. Þeir, sem
kunna að hafa orðið vitni að
árekstrinum, eru vinsamlega
beðnir um að gefa sig fram við
rannsóknarlögregluna.
rit Kambans, skáldrit hans og
ljóð.
Papandreu sendir út boðskap
hvetur alheim til að einangra
herforingiastjórnina
Aþenu 17. april NTB. AP.
GEORGES Papandreu, fyrrver-
andi forsætisráðherra Grikk-
lands og leiðtogi Miðsambands-
ins griska, sem nú er bannað
eins og önnur stjómmálasamtök,
sendi í gær frá sér boðskap, þar
sem hann hvetur þjóðir heims
til að einangra og hundsa her-
foringjastjórnina grísku. Þetta
er í fyrsta sinn, sem Papandreu
eldri, hefur látið hug sinn opin-
berlega í ljósi gagnvart núver-
andi valdhöfum Grikklands.
Alþjóðleg
fiskveiðisýning
b Esbjerg
SJÖTTA alþjóðlega fiskveiði-
sýningin hefst í Esbjerg í Dan-
mörku 24. apríl og stendur til 5.
maí. Þarmunu sýna rúmlega 200
aðilar frá 16 þjóðlöndum og aðil-
ar frá 33 hafa tilkynnt komu sína
á sýninguna.
Á sýningu þessari mun gest-
um gefast kostur á að kynnast
mismunandi gæðum vöru, verð-
mismun og eiginleikum af eigin
raun. Danir auglýsa nú mjög
fiskveiðisýningu þessa og segja:
„Vi ses i Esbjerg!“
Fréttastofufregnum ber ekki
alls kostar saman um, til hverra
Papandreu hafi einkum viljað
beina máli sínu og segir NTB
til að mynda að yfirlýsingin hafi
einkum átt erindi til hersins
griska, en AP held-ur því fram,
að þetta hafi verið ákall til um-
Papandreu
heimsins alls. AP segir, að yfir-
lýsingin hafi verið undirrituð af
Georges Papandreu og menn
dragi ekki í efa, að Ihiún sé ósvik
in. Tilkynningunni var útbýtt til
erlendra fréttamanna í Aþenu í
gærkvöldi.
f boðskap sínum segir hinn 79
ára gamli stjórnmálamaður m. a.
að valdaræningjarnir hafi hing-
að til ekki fært neinar sönnur á
þá staðlhæfingu, að þeir nafi
gripið til sinwa ráða hinn 23.
apríl í fyrra, vegna þess að bylt-
ing kommúnista hafi verið ytfir-
vofandi. Byltingin hafi einungis
verið gerð til að koma í veg fyrir
stórsigur Miðsambandsins í kosn
ingum, sem fram áttu að fara í
maí í fyrna.
Papandreu segir, að leggist all-
ar þjóðir heims á eitt og hundsi
og einangri stjórnina, muni það
leiða til þess, að hún hrökklist
tafarlaust frá völdum.
Eins og skýrt var frá í fyrra-
dag var vörður settur á ný við
heimili Papandreu, svo og
við hiús annars fyrrverandi for
sætisráðherra Grikklands, Kan-
ellopouolsar. í gærkvöldi var
sagt, að Kanellopouls væri sjúk-
ur, en hefði verið neitað um að
fá lækni til sín.
Þá bárust fréttir um það í gær
að einn hinna eldri stjórnmála-
manna landsins og síðasti forseti
gríska þingsins Dimitrios Papa-
spyrou hafi einnig verið settur
í stofufangelsi, eftir að hann
neitaði að taka aftur gagnrýni
á stjórnina, sem hann birti fyrir
nokkru.
Og enn einn fyrrv. þingmað-
ur Miðsambandsins Angelos
Angelouiisisou hefur verið flutt-
ur frá Aþenu til einihverra fanga
eyja stjórnarinnar á Eyjahafi.
Hann var handtekinn s. 1. mánu-
dag og sagður hættulegur öryggi
landsins.
Uppreisn í banda-| Agætur afli Eyjabáta
rísku fangelsi
Raleigh, Norður-Karólína,
17. apríl — NTB- Reuter —
FANGAR í aðalfangelsinu í
Raleigh í Norður-Karólína
gerðu uppreisn í fyrrinótt og
voru fimm fangar skotnir til
bana áður en fangavörðum
tókst að brjóta uppreisnina á
bak aftur.
Átökin hófust þegar fanga-
verðir reyndu að fá um 400
fanga til að hverfa aftur til
klefa sinna, en fangamir
höfðu setzt um kyrrt í fang-
elsisgarðinum og kröfðust
þess, að þeir fengju fleiri sjón
varpstæki, betri mat og heim
sóknartími yrði lengdur. Fang
arnir neituðu að víkja og
brátt logaði allt í blóðugum
slagsmálum. Fangaverðirnir
segjast hafa átt líf sitt að
verja og hafi neyðzt til að
beita skotvopnum til að kæfa
uppreisnina. Allt er nú með
kyrrum kjörum í fangelsinu
og fangarnir hafa verið fluttir
aftur í klefa sína.
VESTMANNAEYJABÁTAR
hafa aflað ágætlega undanfarna
daga og má segja að dagurinn í
fyrradag hafi verið hvað bezti
afladagurinn, en þá komu hér á
land um 1000 lestir, sagði frétta-
ritari Mbl. í Vestmannaeyjum,
Björn Guðmundsson, í gær. Afl-
inn er þó dálitið misjafn, en sá
bátur er varð aflahæstur í fyrra
dag var Huginn, sem fékk á
milli 60 og 70 lestir af einnar
nátta fiski. Einstaka bátur fór
niður í 12 lestir, en flestir voru
með 20 til 30 lestir.
Saltbirgðir í Eyjum voru alveg
á þrotum í gær, en í nótt var
væntanlegt til Eyja saltskip með
1000 lestir. Næsta skip er vænt-
anlegt hinn 27., en verði afli
sem hann er nú má vart búast
við því að sendingar þessar nái
saman, en allur aflinn fer í salt.
Skreiðin selzt ekki vegna styrj-
aldarástands í Nígeríu.
Afli hefur yfirleitt verið rýr
hjá bátum með botnvörpu, en þó
hefur bátur og bátur fengið góð-
an afla inn á milli. T.d. kom Öðl-
ingur með 45 lestir í fyrradag,
Þá hafa bátar með nót aðeins
orðið fiskjar varir.
Unnið er stanzlaust að verkuh
aflans í Eyjum, en tiltölulega
lítið er um utanbæjarfólk þar
nú. Eyjaskeggjar hafa þó tölu-
vert varalið, sem tekur til héndi
á kvöldin, sem eru iðnaðarmenn
og fleiri. Hefur aflinn unnizt vel
það sem af er.