Morgunblaðið - 18.04.1968, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1968
M. Fagias:
FIMMTA
I
KOmN
Nemetz hlustaði og honum
létti. Hann var með ofurlítinn
hita, bara tvö strik, en þó nóg
til þess, að hann vonaði, að ekk-
ert sérstætt vandamál bærist
honum daginn þann. Hann gaf
Kaldy skrá yfir drykkjufélaga
Bartha, og bað hann senda alla
rannsóknarlögreglumenn, sem
hann gæti náð í, til að tala við
þá. Sjálfur fékk Kaldy miklu erf
iðara hlutverk, sem sé það að
finna litlu stúlkuna, sem Nemetz
hafði fundið sitjandi hjá dauðu
konunni ljóshærðu fyrir framan
brauðbúðina á laugardagskvöld-
jð.
Síðan á mánudag hafði Kaldy
með þolinmæði og samvizkusemi
haft auga með brauðbúðinni og
spurt hvern einasta sem þangað
kom. Hann hafði komizt að því,
að þessi ljóshærða hét Kovacs
að ættarnafni — eða þá Takacs
Szakacs. Það var nú lítið gagn
í því, þar eð þetta voru allt al-
geng nöfn, en hann hafði líka
komizt að því, að hún hafði í-
búð í götu bak við þinghúsið.
Það svæði var í höndum Rússa,
en engu að síður voru þar stað-
settir margir andstöðuflokkar.
Þrátt fyrir endurteknar áskor-
anir stjórnarvaldanna, höfðu
þessir flokkar ekki fengizt til
að leggja niður vopnin. Öðru
nær, þeir sátu sem fastast í varð
stöðum sínum og víggirðingum.
Að komast á þessa varðstaði,
var hreint ekki hættulaust verk.
Samt sem áður reyndi Kaldy
það — úr því að Nemetz var
það svo mjög í mun að ná í
þennan stelpukrakka. Nemetz
hafði oft gramizt þessi gjörsam-
legi forvitniskortur hjá Kaldy.
Hann var hissa á því, að hann
skyldi geta framkvæmt þetta
verk sitt ár eftir ár, svo sam-
vizkusamlega og reglulega, eins
og eitthvert vélmenni. Því sam-
vizkusamlegar sem Kaldy vann,
því meir fór þessi þögla kur-
teisi hans í taugarnar á Nemetz.
Rétt fyrir klukkan tíu, stakk
Irene höfðinu gegn um gætt-
ina og tilkynnti, að Josef Bartha
biði í biðstofunni. En hann var
ekki einn á ferð, því að með
honum voru bæði konan og
berklaveika dóttirin. Öll þrjú
voru svartklædd, eins og þau
væru að fara í jarðarför. Nemetz
kallaði á B artha i nn í skrifstof
una. Konurnar sátu kyrrar á
bekknum fyrir utan. Við hlið frú
Bartha stóð taska. Hún var sjálf-
sagt með nærföt . og tannbursta
með sér handa manninum sín-
um.
Nemetz bauð skóaranum sæti,
og Bartha settist niður og and-
varpaði. Eftir langa þögn spurði
Nemetz hann, hvort hann hefði
nokkuð meira að segja frá laug-
ardagskvöldinu.
— Ekki neitt út yfir það, sem
ég sagði frá í gær, sagði mað-
urinn og hristi höfuðið. — Ég
er búinn að tala við tvo þeirra,
sem ég var með. Og þeir segja
báðir eitt og það sama. Að við
byrjuðum í Rado—vínstofunni
og héldum svo áfram í ölkránni.
Og þar vorum við til klukkan
um níu.
— Hvert fóruð þér þaðan?
Getið þér heldur ekki munað
það? Eða voruð þið kannski of
fullir til þess?
— Nei. Maðurinn hristi aftur
höfuðið. Þeir voru ekki offullir.
En ... Hann þagnaði og dró
djúpt a nd ann. — En þeir segja,
að ég hafi farið frá þeim, þeg-
ar við komum úr ölkránni, og
einn míns liðs. En hvorugur
þeirra veit, hvert ég fór.
— Reyndu þeir ekki að stöðva
yður þegar þeir sáu, hvað þér
voruð fullur?
— Það held ég ekki.
— Sjáið þér nú til, Bartha.
Ég hef látið athuga b yssuna
yðar, og það hefur verið skot-
ið úr henni nýlega. Það er að
segja á síðustu fjórum eða fimm
dögum.
Maðurinn leit upp. — Það
hefði ég getað sagt yður sjálf-
ur. Vitanlega hefur verið skot-
ið úr henni. Ég skaut til marks
úti í garðinum, eitt kvöld í vik-
36
unni, sem leið. Þetta gerir hver
maður, fjandinn hafi það.
— Hvernig stendur á því, að
þér skuluð yfirleitt eiga skamm-
byssu spurði Nemetz.
— Þetta eiga allir. Falda bak
við spegil eða í vatnsheldum
poka við eldhúsafrennslið. Þar
var ég vanur að fela mína. Ég
geng út frá, að öllum hafi ver-
ið það ljóst, að það gæti kom-
MJÓLKLRFRAMLEIÐSLAN 1967
BETRI OC MEIRI MJÓLK EN NOKKRU SINNI FYRR
Eftirfarandi upplýs-
ingar eru fengnar hjá
Kára Guðmundssyni.
Fyrir 20 árum ákvað
heildbrigðismólaráðu-
neytið í samaiáði við
landlækni að sikipa sér-
stakan starfsmann, er
haia skyldi með hönd-
um eftirlit með mjólk-
urframleiðslu og fram-
leiðsiu mjólkurafurða
hér á landi og þá sér-
staklega í þeim héruð-
um, þar sem mjólkur-
stöðvar voru starfandi
og afhentu neyzlumjólk
eða mjólkurafurðir til
sölu. Þá voru starfandi
aðeins 8 mjólkursamlög
í landinu, en eru nú 19
talsins.
Framfarir hafa því
orðið stórstígar á þess-
um síðustu tuttugu ár-
um — meiri og betri
framleiðsla — sem
táknar að sjálfsögðu
betri heilsu, þvi nú
drekka flestir lands-
menn gerilsneydda
mjólk.
Innvegið mjólku-
magn mjólkursamlag-
anna á síðasta ári (1967)
reyndist vera um
100.000.000 kg, sem nær
eingöngu flokkaðist í
I. og II. gæðaflokk, eða
nánar tiltekið um 99%.
Mjólkursaml'ög og mjólkurstöðvar eru nú dreifðar um allt land, eins o>g sjá má á eítir-
farandi upptalningu: Aikureyri, Borgarnesd, Búðardal, Blönduósi, Egilsstöðum, Selfossi,
Grundarfirði, Húsavík, Hvammstanga, Hveragerði, Höfn í Hornafirði, ísafÍTði, Neskaup-
stað, Ólafsfirði, Patreksfirði, Reykjavík, Sauðárkróki, Vopnafirði og Þórshöfn.
ið sér vel einhvern daginn að
eiga skotvopn, og þessvegna
gæta menn vel bæði byssu og
skotfæra. Og þetta er líka eina
skýringin á því, að öll borgin
getur orðið grá fyrir járnum á
einu augabragði.
— Hr. Bartha, sagði Nemetz,
— getur það hugsazt að þér
undir áfengisáhrifum hafið gef-
ið gömlu hatri yðar til frú
Halmy lausan tauminn og ákveð
ið að gera upp reikningana við
hana? Þér vissuð, hvort sem var,
hvar hún átti heima — þér höfð-
uð komið þangað. Þér eruð ann-
ars ekki sá eini, sem grunaður
er, Bartha. Þar getur verið um
fleiri að ræða. En þér gætuð
sparað þeim mönnum mikil
óþægindi, ef þér .. .
— Já, ef ég segist hafa skot-
ið hana, greip Bartha fram í.
Hann stóð upp og horfði beint
framan í Nemetz. — Það mundi
ég líka gera, ef ég hefði gert
það. Það sver ég, að ég mundi
gera. En þó veit ég það ekki.
Hún var óþverramanneskja og
hún eyðilagði fyrir mér atvinn-
una. Ég hafði næga ástæðu til
að hata hana. Stundum
dreymdi mig, að ég slægi hana
í kássu. Þetta gat mig dreymt
nótt eftir nótt. Og samt hef ég
aldrei barið neinn — ekki einu-
sinni konuna mína — nema í
draumi. Ég hef alltaf verið frið-
samur maður. Kristinn maður.
Ég mundi líka kannast við það,
ef ég hefði drepið hana. Það
sver ég við guðs nafn. En ég
gerði það bara ekki.
Það var ekki annað hægt en
senda Bartha heim til sín, þó
með aðvörun um, að hann yrði
ef til vill aftur að mæta til
yfirheyrslu. Nemetz fylgdi hon-
um til dyra og sá hann slást
í för með konunum í biðstof-
unni. Þegar Bartha sagði kon-
unni sinni, að sér hefði verið
leyft að fara, varð hún bæði
hissa og efablandin, og flýtti
sér að taka töskuna með sér.
Óþolinmóð eins og ákafur smala
hundur rak hún hann út úr bið-
stofunni, rétt eins og hún væri
hrædd um, að Nemetz mundi
snúast hugur.
Hún heldur að hann hafi
drepið hana, hugsaði Nemetz. Og
kannski er hann alls ekki jafn
friðsamur og kristinn og hann
vill vera láta.
Þegar þau voru farin, tók
hann símann og bað Irene að
sjá um, að Bartha yrði eltur á-
fram. Hann kærði sig ekkert um,
að hann slægist í för með þjóð-
flutningunum miklu til austur-
rísku landamæranna.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Þú átt við önuglyndi að stríða í dag og lætur undam ólundinni.
Hættu nú þessum barnaskap. Þetta borgar sig. Snúðu þér að alvar
legum viðfangsefnum
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Ekki hika við að takast á hendur dagleg störf. Láttu efann
lönd og leið. Sýndu maka þínum einhvern vinsemdarvott
í kvöld.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní:
Tilhneiging til gjafmildi og hjartahlýju fylgir þessum degi.
En leitaðu upplýsinga áður en þú sóar tima og peningum.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Smámunirnir þreyta í dag — þeir hlaðast upp allan daginn.
Ef leitað er aðstoðar í tíma, verður hún fúslega veitt. Rólegt
kvöld.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Ekki góður dagur til ferðalaga. Eðlilegast er að leysa af hendi
dagleg störf og svolitla heimavinnu. Rétt að gera varúðarráð-
stafanir vegna húss og heimilis í kvöld.
Jómfrúin 23. ágúst — 22. september.
Útgjöld meiri en tekjur í dag. Pósturinn kemur færandi hendi
í dag, líklega með mikilvægar fréttir. Kvöldið tíðindalaust.
Vogin 23. september — 22. október.
Leitaðu ekki eftir láni, sem ekki býðst. Hafirðu borið tvenms
konar sögur á borð fyrir tvo aðila, þá gætu þeir borið samam
bækur sínar í kvöld. Færðu maka þínum eitthvað fallegt í kvöld.
Drekinn 23. október — 21. nóvember.
Gatan er ekki sérlega greið 1 dag, en stuðningur kunningjanna
léttir gönguna. Athugaðu heilsufarið.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Einhver nákominn lítur þig enm öfundaraugum. Láttu sem þú
vitir ekki af því og haltu áfram við vimnu þína. Eigðu rólegt
kvöld.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Þeim mun fyrr sem þú kemst í gang í dag, því betra. Rétt er
að vinna af kappi og halda svo upp á daginm, heima á eftir
Leyfðu tilfinningunum svolítið að ráða í kvöld.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Smávægilegir erfiðleikar vegna einhvers sem þú hefur nýlega
gert — því þarf að kippa í lag. Allir vilja hjálpa til við það.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Manni hættir til að eyða meiri peningum en nauðsynlegt er I
dag, til að bæta sér eitthvað upp. Farðu út að verzla með ein-
hverjum góðum félaga. Það lægir æsit skap.