Morgunblaðið - 18.04.1968, Side 28
INNIHURÐIR
1 landsins
mesta urvaliili
SIGURÐUR ELÍASSON HF.
AUÐBREKKA 52—54, KÓPAVOGI.
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1968.
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4*80
24. sprengjan fundin
— Hreirssun á slysstaðnum líklega lokið
á töstudag
24. sprengikúlan, sem mjög illa
gekk að finna í Landssveit,
fannst í gær, en eins og kunnugt
er fórst þar fyrir skömmu banda-
rísk orrustuþota frá Keflavíkur-
flugvelii með 24 litlum eldflaug-
um, sem notaðar eru til loftbar-
daga milli orrustuflugvéla. — 23
sprengjanna fundust strax og
voru þær sprengdar þar austur
frá, en einnar hefur verið leitað
æ síðan, unz hún fannst í gær.
Mbl. hafði í gærkvöldi til af
Guðna Kristinssyni, bónda og
hreppstjóra í Skarði á Landi, og
spurðist fyrir um fund sprengj-
unnar. Guðni sagði að sprengjan
hefði fundizt um sjöleytið í gær-
kvöldi og hefði hún legið á mel
skammt fyrir sunnan Tjarnarlæk
um 100 metra frá þeim stað er
þotan kom niður. Sagðist hann
ætla að sprengjan hefði losnað
við þotuna fyrr en hinar og því
hefði hún ekki fundizt, þar eð
enginn átti von á henni þarna.
Guðni hrósaði mönnunum, er
fyrir leitinni stóðu og sagði að
þeir hefðu komið í fyrradag og
hafið leit um hádegi. Leituðu
þeir síðan fram í rökkur, en
héldu áfram snemma í gærmorg
un. Sprengjan verður flutt til
Keflavíkurflugvallar eins og ann
að brak úr þotunni, en Guðni
kvað allmikið smádrasl hafa
komið í ljós er hlánaði og mun
hreinsun landsins ekki lokið, fyrr
en í fyrsta lagi á föstudag.
Dásamlegt veður var í Lands-
sveit í gær og 12 stiga hiti.
Hugsunarháttur
selstöðukaupmanna
I UTVARPSUMRÆÐUNNI í
gærkvöldi ræddi Ólatfur
Björr.sson um viðskipta- og
neyzlutfrelsi og þá gagnrýni
sem komið hefur fram hjá
stjórnarandstöðutflokkunum
og verkalýðshreyfingunni á
það. Sagði Ólatfur m.a. í ræðu
sinni:
Af hálfu stjórnarandstöð-
unnar hefur því að vísu ver-
ið haldið fram, að verzlunar-
frelsið væri aðeins heildverzl
unum í hag, en almenningi
hánast til óþurftar og virð-
ist það vera mat þeirra, að
slíkur verzlunarháttur eigi
sér talsverðan hljómgrunn
meðal verkalýðsins.
Ég skal ekki fullyrða um
það, hvort svo sé eða ekki,
en minna má á það, að um sl.
aldamót, þegar fyrst fór að
myndast vísir til verkalýðs-
hreyfingar hér á landi var
f öðruvísi á þetta litið af for-
I ystumönnum verkalýðsins á
þeim tíma. Þá var það fyrir-
komulag ríkjandi í launa-
greiðslum, að fólkið fékk
kaup sitt greitt ekki í pening
um heldur í úttekt hjá at-
vinnurekanda sínum, sem
jafnframt rak verzlun ásamt
útgerð eða öðrum atvinnu-
rekstri. Þá var það aðalbar-
áttumál verkalýðsins að fá
kaup sitt greitt ekki í úttekt
heldur í peningum, sem væru í
til frjálsrar ráðstöfunar, til l
kaupa á varningi samkvæmt 7
eigin vali og í þeirri verzlun \
er bauð bezt kjör. Það kostaði I
talsverða bartáttu að fá þessu l
framgengt, því að atvinnu- 7
rekendur þeirra tíma hafa »
vafalaust sagt við verkamenn 1
sína og sjómenn að það yrði i
þeim sjálfum fyrir verstu, að 1
fá kaup sitt til frjálsrar ráð- J
stöfunar, því að þá myndu »
þeir freistast til þess að eyða *
því í gráfíkjur og döðlur, sem
mér skilst samkvæmt frá-
sögnum aldraðs fólks, að hafi
verið tertubotnar þeirra
tíma, eða í annan óþarfa, sem
keppinautar þeirra hefðu á
boðstólum.
En það er í rauninni þessi
verzlunarháttur selstöðukaup-
mannanna, sem fram kemur
hjá stjórnarandstæðingum er
þeir gagnrýna viðskiptatfrels
ið, þó hann komi fram í nokk
uð dulbúinmi mynd vegna |
breyttrar aðstæðna frá því /
sem var um sl. aldamót. En 7
þeir segja alveg eins og sel- 1
stöðukaupmennirnir, að þeg- (
ar fólkið fái að ráð- /
stafa fjármunum sínum 7
etftir eigin viid þá kaupi »
það útlenda tertubotna og kex I
og geti þannig komið þjóðar- /
Framhald á bls. 27
Stofnlánasjóður hefur
lánaö nær milljarö
sagði Gunnar Gíslason
Sr. Gunnar Gíslason alþ.m.
upplýsti í ræðu í eldhúsdagsum-
ræðunum frá Alþingi í gær-
kvöldi að við árslok 1967 hefðu
lánveitingar Stofnlánadeildar
landbúnaðarins numið nær 1
milljarð króna til bygginga, rækt
unar og vélakaupa í þágu land-
búnaðarins.
Þá gat ræðumaður þess að á
árinu 1958, voru fjárveitingar til
landbúnaðarmála um 69 milljón
ir króna en á sl. ári var varið
til þeirra 225 milljónum króna
eða 300% hærri upphæð.
í gær var hafizt handa um að steypa fyrsta áfanga bílabrúar þeirrar, sem kemur til með að
liggja vestan frá Hamarshúsinu og austur að Sænsk-íslenzka frystihúsinu. Brúin liggur yfir
nyrzta hluta tollstöðvarinnar, sem nú er verið að reisa, en það er einmitt þar sem farmkvæmdir
hófust í gær. Verkinu verður haldið áfram í dag. Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
NORÐURSTJARNAN NÓF
NIÐURSUÐU Á SÍLD í GÆR
Mikið kapp lagt á að fjölhœfa fram-
leiðsluna til að tryggja rekstur hennar
allt árið
NIÐURSUÐA á síldinni, sem
Norðurstjarnan hefur safnað til
vinnslu undanfarna mánuði,
hófst í verksmiðju fyrirtækisins
í Hafnarfirði í gær. Hér er um
að ræða um 90 tonn af síldar-
flökum, og er það mestmegnis
síld, er veiddist í Jökuldjúpinu
í desember og fehrúar s. 1. Er
í DAG er vika til sumars, en
þrátt fyrir það er sjávarkuldi
óvenjumikill fyrir Norðurlandi
og austan. í gær var þoka fyrir
öllu Norðurlandi og náði suður
með Austfjörðum. f gærkvöldi
var þokan komin suður á Snæ-
fellsnes og Reykjavíkur- og
Keflavíkurflugvellir lokufjust í
gærkvöldi vegna þoku.
Þoka þessi myndast er hlýr
loftstraumur sunnan að kemur
yfir óvenju kaldan sjó. Þéttist
þá raki loftsins og síðan er and-
ar af hafi kemur þokan inn yfir
landið. Við Dalatanga var í gær
2 stiga frost í þokunni, sem sýn-
ir vel, hvernig ástand sjávarsins
er — óvenju kalt. Líkist þetta
veðurlag mjög veðurlagi ársjns
1965, en þá var fram eftir öllum
maímánuði þoka með stillum.
Veðurstofunni var í gær til-
kynnt um ís frá tveimur stöðum.
áætlað að þetta magn nægi verk-
smiðjunni til vinnslu í einn til
tvo mánuði, að því er Pétur
Pétursson, einn af forráðamönn-
um fyrirtækisins, tjáði Morgun-
hlaðinu í gær. Um 30 manns
vinna nú í verksmiðjunni, en til
að byrja með er hún aðeins rek-
in með 1/6 af hámarksafköstum
Dísarfell, sem var á leið frá
Norðfirði til Vopnafjarðar til-
kynnti um einstaka ísjaka á sigl-
ingaleið út af Rorgarfirði og
Blikur, sem staddur var á miðj-
um Húnaflóa um kl. 18 í gær til-
kynnti mikla þoku og staka jaka
um allan sjó. Einnig varaði
Blikur við slæmum ísbreiðum,
sem sæjust illa í ratsjá og var
talið að siglingaleiðin væri ótfær
í myrkri.
Sennilegt er að vestanátt verði
ríkjandi í dag, þykkni upp, en
vindurinn nái í norðrið á morg-
un og frystir þá fyrir norðan og
má kannski búast við éljum. Nú
er vika til sumars.
Þá má geta þess, að Blikur, er
var í hringferð á leið vestur og
norður um land varð að snúa við
í gær skammt fyrir austan Akur-
eyri. Er hann nú á vesturleið.
Hér í Reykjavík skall þokan
Framhald á bls. 2
meðan verið er að reyna vélar
o. fl
Eigendur verksmiðjunnar gera
sér vonir um að einhver síld
kunni að veiðast hér við Suð-
vesturland í maí, sem unnt verði
að taka til vinnslu þegar nú-
verandi hráefni þrýtur, ellegar
sækja hana á miðin fyrir Aust-
fjörðum, svo að mögulegt vierði
að halda niðursuðu á síld áfram.
Annars er mikið kapp lagt á,
að fjölhæfa framleiðslu verk-
smiðjunnar, að sögn Péturs til
að hægt verði að tryggja rekstur
hennar allt árið um kring, ef
svo skyldi fara að síldin brygð-
ist. Verksmiðjan hefur notið að-
stoðar úr Fiskveiðimálasjóði í
þessu skyni. Tilraunir hafa verið
gerðar með niðursuðu á þorsk-
lifur, og verða reynslusýnishorn
send utan innan skamms. Enn-
fremur hefur komið til tals að
sjóða niður hrogn, en það mál
er þó skemmra á veg komið en
hið fyrra.
Þess skal getið að endingu, að
síld sú, sem Norðurstjarnan vinn
u, er sölutryggð og fer á markað
í Bandarikjunum. Síldin er seld
nndir vörumerkinu King Oscar,
en norska fyrirtækið Kristian
Bjelland & Co. hefur með hönd-
um sölu á vörunni vestan hatfs.
Jótnðn
sex innbrot
RANN SÓKN ARLÖGREGLAN
hefur handsamað tvo pilta á
aldrinum 17 og 19 ára, ^sem nú
hafa viðurkennt á sig sex inn-
brot í borginni. Þau eru þó flest
fremur smávægileg og yfirleitt
framin um jólaleytið. Annar
piltanna framdi svo innibrot hinn
6. þ. m. og var þá tekinn. Komust
fyrri innbrotin þá upp, og báðir
piltarnir hatfa játað, eins og fyrr
segir.
Þoka samfara
sjávarkulda
— Loka varð Reykjavíkur- og Keflavíkur-
flugvöllum mjög skyndilega