Morgunblaðið - 04.01.1969, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1969
23
Bretar gera miklar athuganir á ís-
ingarhættu og stööugleika togara
markmiðið að sjóslysin við íslands-
sfrendur í fyrra endurfaki sig ekki
SJÓSLYSIN mi'klu, sem urðu
við ísland í fyrra, en þá fórust
m.a. 59 brezktir togarasjómenn,
hafa orðið til þess að Bretar eru
að láta fara fram uimfanglsmiklar
rannsóknir á ísingarhættu og
stöðugleika togara. Skýrir
brezka blaðið The Times frá
þessum athugunum nýlega, en
markmið þeirra er að koma í
veg fyrir að atburðirnir í janúar
og febrúar í fyrra end-urtaki sig.
Er einn liður þessara athug-
ana tilraun með afísingartæki,
sem framleidd eru undir stjórn
Sir Barnes Wallis. Togarinn
Boston FTiantom, sem eins og
unnugt er var tekinn að ólögleg-
uim veiðum úti fyrir Veetfjörð-
um fyrr í vetur, er útbúinn slík-
um tækjum, og er hann fer á
veiðar nú í janúar verða um
borð tveir sérfræðingar, sem
fylgjast eiga með hvernig þessi
afísingartæki reynast. Afísingar-
tækin eru eins konar gúmmí-
hosur, sem komið er fyrir á brú
og á fleiri stöðum, þar sem ís-
singarhætta er mest. Með því að
bl'áisa hosurnar upp má sprengja
af ísinn, sem á þær sezt.
Rannsókn sjóslysanna í fyrra
leiddi í ljós, að ástæðan fyrir
því að togararnir Kingston Peri-
dot og Ross Cleveland fórust
væri líklega sú, að þeir hafi ekki
verið nógu stöðugir til að stand-
ast oftearok, ísingu og stórsjó —
allt í senn. Að rannsókn mláls-
ins lokinni var frá því skýrt, að
siglingamáladeild verzlunarmála-
ráðuneytisins brezka og nokkrir
einkaaðilar myndu takast á hend
ur að prófa stöðugleika allra
brezkra uthafstogara, sem eru
um 140, að undanskildum nokkr-
um þeim nýjustu.
Þá er verzlunarmálaráðuneyt-
ið að senda út spurningalista til
allra úthafsskipstjóra, þar sem
þeir eiga að svara mjög nákvæm
lega hvar á skipinu ísing mynd-
ast, í hvernig veðri hún myndast,
hvað þeir gera til að losna við
hana og hvaða áhrif hún hefur
á siglingu skipsins. Er það von
manna að svörin geti gefið skýra
mynd af ísingarhættunni, en
henni hefur verið lítill gaumur
gefinn nema fyrst eftir að slys
hafa orðið.
Átján Hull- og Grimsby-togar-
ar hafa þegar verið prófaðir með
tilliti til stöðugleika og á næst-
unni kemur röðin að Fleetwood-
togurunum, að þvi er segir í Tíie
Times.
Eru stöðugleikapróifanirnar í
því fólgnar, að togararnir eru
settir í kví, þeim hallað um
nokkrar gráður og ýmsar mæl-
ingar gerðar, en niðurstöður
þeirra síðan settar í rafreikni.
Það er tekið fram, að niðuretöð-
urnar eigi ekki að leiða í ljós,
hvort skipið hafi „staðizt prófið
eða fallið", heldur sé verið að
komast að því, hve stöðugir tog-
ararnir eru við verstu skilyrði.
Segir í The Times, að í mörg-
um tilfellum sé að líkindum
hægt að komast fyrir „meinið“
með þvi að auka kjölfestu skips-
ins eða með því að færa til dyr
og önnur op sem eru nálægt yfir
borði sjávar.
Þeir, sem hafa stöðugleikapróf
anirnar með hendi, eru þess full-
vissir, að allir brezkir togarar,
sem nú stunda veiðar á útihöfum,
geti rétt sig við, þótt þeir séu
komnir á hliðina svo framarlega
sem sjór kemst ekki undir bilj-
ur gegnum dyr, lestarop eða kýr-
augu. Telja sérfræðingarnir að
með því að flytja þeosi op til
megi í nokkrum tilfellum gera
togarana svo að segja ósökkv-
andi.
Rannsókn á inn-
fluttum blysum
— ein gerð ranglega merkt
SLÖKKVILIÐSSTJÓRI hefur
sett í gang rannsókn á innflutt-
um blysum og hefur þegar
fundizt ein gerð, sem var rang-
lega merkt. Nokkur brögð voru
Ovíst um framtíðar-
verkefni Stálvíkur
',,VIÐ höfum verið verkefnalitlir | því tjóni, sem langvarandi verk-
Sl. 15 mánuði og nú er svo komið ! efnaskortur hefur valdið“.
tað við höfum sagt upp öllu
'starfsfólki okkar 47 talsins með
jsamningsbundnum fyrirvara frá
'31. desember að telja“, sagði Jón
Sveinsson hjá Stálvík, þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann í gær. Á sl. ári var nýt-
ing skipasmíðastöðvarinnar að-
éins 30%.
Nú eru í smíðum hjá Stálvík
tveir bátar, 120 rúmlestir hvor,
'og verður sá fyrri afhentur síðar
í þessum mánuði og hinn í marz
»k. Sagði Jón, að engin ný verk-
efni væru fyrir hendi, og er
uppsögn starfsfólksins miðuð við
þessi tvö verkefni, sem nú er
unnið að.
i „Þrátt fyrir þessa erfiðleika
munum við ekki gefast upp“,
sagði Jón, „og erum við nú að
safna auknu hlutafé til að efla
Starfsemina og vega upp á móti
Kvaðst Jón binda miklar vonir
við, að málin leystust farsællega
á þann hátt, að hafin yrði seríu-
smíði skipa en nefnd hefur nú
■unnið á annað ár að tillögum
um hentugustu bátastærðirnar
til hennar.
- STÖRBRUNI
Framhald af bls. 24.
voru í Glerá og auk þess er að
■jálfsögðu notazt við vatn af
geymum slökkvibílanna.
Kunnugir telja, að mikil sprengi
hætta stafi af þynnigtunnum, sem
geymdar eru á neðri hæð
skinnaverksmiðj unnar, og mikið
kapp er lagt á að kæla olíugeymi,
sem stendur sunnan við hina
brennandi álmu, en nú leggur
eldtungumar frá verksmiðjunni
um geyminn.
Áramótaskákmótið í Hastings:
Smyslov og Tukmakov efstir
HIÐ árlega skákmót í Hastings
í S-Englandi stendur yfir um
þessar mundir. Eftir fimm um-
ferðir, eru sovézki stórmeistar-
inn Vassily Smyislov og landi
hans, Tukmakbv (22 ára), efstir
og jafnir með 4 vinninga. Júgó-
slavneski stórmeistarinn Sveto-
zar Gligoric er þriðji með 3%
vinning. Keene frá Bretlandi og
Hartoch Hollandi hafa 214 vinn-
ing hvor. Vestur-Þjóðverjinn
Húbner og Smeijkal frá Tékkó
slóvakíu hafa 2 vinninga (af 4
mögul.). Kottnauer Bretlandi,
hefur 2 vinninga, Clarke Bret-
landi hefur 1% vinning (af 3
mögul.), Persirz, fsrael, og
Wright Bretlandi, hafa 1% vinn
ing hvor og Fuller frá Ástralíu
rekur lestina með 1 vinning.
Mikið er um jafntefli á mótinu
og hafa 15 skákir af 24 orðið
jafntefli.
að því að fólk brenndi sig á blys
um á gamlárskvöld og kenndi
fólkið illa merktum blysum um.
Þessari gerð, sem um ræðir,
fylgdu skýringar á ensku, þar
sem sagði, að alls ekki mætti
halda á blyisunum, en á miðum
með íslenzkum texta, sem límd-
ir voru á blysin stóð, að halda
ætti í annan endann. Sagði
slökkviliðsstjóri, að slíkar rang-
túlkanir væru mjög alvarlegar
og vítaverðar.
Þá leikur einnig grunur á að
ein gerð blysa hafi splundrast
öðru vísi en vera átti og kvað
slökkviliðsstjóri það geta stafað
af óhentugu geymsluihúsnæði en
slík slys þarf að geyma við
ákveðið raka- og hitastig. Er það
mál einnig í rannsókn.
Flugvélurræn-
ingi irumseldur?
Kairó og Aþenu, 3. janúar
AP—NTB
EGYPZK yfirvöld héldu í dag á-
fram rannsókn í máli Grikkjans
Georg-es Flamourides, sem rændi
flugvél Olympic-flugfélagsins í
gær. Talsmaður egypzka utanrik
isráðuneytisins sagði að þetta mál
mætti ekki spilla góðum sam-
skiptum Egyptalands og Grikk-
lands. Gríska stjómin hefur kraf-
izt þess að flugvélarræninginn
verði framseldur, og í Aþenu
vinna lögfræðingar að rannsókn
málsins, sem er m jög flókið, með
al annars vegna þess að Grikkir
og Egyptar hafa ekki með sér
samning um framsal afbrota-
manna.
Flamourides sem er múrari frá
Krít, hefur sagt blaðamönnum
að hann sé kommúnisti og hafi
setið í fangabúðum grísku stjórn
arinnar. Hann hyggst leita hæl-
is sem pó'litískur flóttamaður í
Egyptalandi eða Sovétríkjunum
en hefur einnig sagt að hann
vilji komast til Rómar og þaðan
til Norðurlanda. Farþegar rændu
flugvélarinniar, 97 að tölu, eru
komnir til Aþenu og flugvél
inni hefur verið skilað.
Orsino.
Leiðbeina breskum
togurum hér við land
BREZKI verksmiðjutogarinn unblaðið ræddi við Louth,
Orsino frá Hull er nú á var bræla á miðunum og voru
vegum siglingamáladeildar brezku togararniir í vari. —
brezka verzlunarmálaráðu- Sagði Louth, að átján brezkir
neytisins á hafinu norður og togarar væru nú að veiðum á
norðvestur af íslandi til að- eftirlitssvæði Orsino og auk
stoðar brezkum togurum, sem þedrra nokkrir þýzkir og svo
eru þar að veiðum. Morgun- íslenzkir togarar.
blaðið hafði í gær tal af Brezku togararnir gefa Ors-
manni um borð í Orsino, ino staðarákvörðun sína á
Louth að nafni. tólf tíma fresti en frá Orsino
Sagði Louth, að Orsino hefði eru sendar út veðurfréttir og
lagt upp frá Hull 1. desember togaraskipstjórunum gefnar
sl. og er ætlunin, að skipið ýmsar leiðbeiningar m. a. um,
verði á framangreindum slóð- hvort hyggilegt sé að leita
um til aprílloka. Auk áhafn- vars eða ekki. Þá aðstoðar
arinnar, sem er 18 manns, eru Orsino togarana, ef þörf kref-
um borð veðurfræðingur. ur. (
læknir og svo Louth, Siem Louth sagði að læknirinn
stjórnar leiðbeiningarstarfsem um borð í Orsino hefði sex
inni við togarana. sinnum farið yfir í brezka
Louth sagði, að mestan togara tál að gera að meiðslum
þann tíma, sem þeir hefðu togaramanna; þrír sjúklingar
verið á miðunum, hefði skipið hafa verið teknir í sjúkrahús-
haldið sig í 30—40 mílna fjar- ið um borð í Orsino, og þrjá
lægð norður og norðvestur af veika menn hefur skipið flutt
íslandi, en í gær, þegar Morg- til ísafjarðar.
Enn eitt flugvélarránið
140 farþegar fluttir nauðugir til Kúbu
Miami, Florida, 3. jan. (AP)
ENN einni fsyrÞegaflugvél Var
rænt í nótt. Að þessu sinni var
um að ræða DC-8 þotu frá banda
ríska flugfélaginu Eastern Air-
lines, sem var á leið frá New
York til Miami með 140 farþega
auk áhafnar. Rétt áður en þot-
an átti að lenda í Miami símaði
flugstjórinn að hann hefði verið
neyddur til að fljúga til Havana
á Kúbu, en gaf engar frekari
upplýsingar um flugvélarræn-
ingjann eða ræningjana.
Síðdegis í dag flaug áhöfnin
þotunni til Miami, og fengu 14
farþeganma að fara með. Er þetta
mjög óvenjuleg ráðstöfun, því yf
irvöld í Havana hafa jafnan kraf
izt þess að smærri flugvélar
flyttu farþega frá Kúbu á þeim
forsendum að flugvöllurinn væri
ekki nógu stór til flugtaks með
hlaðna þotu.
Eastern flugfélagið sendi tvær
smærri flugvélar til Varabero
flugvallarins, um 140 km. fyrir
norðan Havana, til að sækja þá
farþega, sem eftir urðu. Var bú-
izt við þeim til Miami í kvöld.
Við komuna til Miami í kvöld
ræddi ein flugfreyjan, Linda
Abolt, við fréttamenn, og gaf þá
nánari upplýsingar um ránið.
Sagði hún að blökkumaður einn
hafi staðið að ráninu. Hafi hann
þrifið ungbarn frá móður þeas
og hlaupið með það að stjórn-
klefa þoturmar. f fylgd með hon
ttm var blökkukona, sem bar sex
mánaða bam í fangi sínu.
Blökkumaðurinn bar stolna
bamið á öxl sér, og hélt á skamm
byssu í hendi. Rauk hann að ann
ari flugfreyju við dyrnar að
stjómklefanum, miðaði á hana
byssunni, og krafðist þess að hún
opnaði dymar inn í stjómklef-
ann. Þriðja flugfreyjan hafði lyk
ilinn að stjómklefanum, og
hleypti hún blökkumanninum
þangað inn ásamt stolna bam-
inu, blökkukonunni og bami
hennar. Þar voru svo skötuhjúin
þar til flugvélin lenti í Havana.
Skilaði blökkumaðurinn stolna
barninu við lendingu.
Ók ú sex bílu
EKIÐ var á 6 kyrrstæða bíla I
Reykjavík á nýársnótt og er tal
ið, að þar hafi sami ökumaðurirm
verið að verki í öll skiptin. Er
álitið, að hann hafi ekið ljósblá
um fólksbíl með hvítan topp. Alí
ir bílarnir sex skammdust mik-
ið.
Fjórir bílanna stóðu við veit-
ingahúsið Röðul og veit rann-
sóiknarlögrelan, að einhverjir
hafa orðið vitni að ákeyralun-
um þar, m.a. einn leigubílstjóri
•og biður rannsóknarlögreglan
þessi vitni að gefa sig fram.
Þá var ekið á G-4560, sem er
Skoda, þar sem hann stóð við
Háteigsveg 23 og loks á R-23026,
sem er Volkswagen, þar sem
hann stóð við Nóatún 29. Biður
rannsóknarlögreglan vitni að
þessum ákeyrslum að gefa sig
fram og einnig skorar hún á öku
manninn, sem þsima var að
verki, að gera slíkt hið sama.
JOHN ADAMIS
- LÁTINN -
GRÍSKI fiskkaupmaðurinn John
Adamis lézt nýlega í Aþenu tæp
lega sextugur að aldri.
Adamis var mörgum hér á
landi að góðu kunnur er hann
um árabil sá um yfirtöku á salt-
fiski fyrir griska kaupendur.