Morgunblaðið - 14.03.1971, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1971
fjtffí--- ... w„v. / . s/itrj / / ••
BLÓÐ-
TURNINN
i
V
• • 36 • •
Það mátti heyra á Priestley,
að með þessu mundi ræðu hans
um efnið vera lokið. Hanslet og
Jimmy iitu hvor á annan og
skömmu seinna stóðu þeir upp
og kvöddu gestgjafa sinn. Har-
old fylgdi þeim fram í forstofu.
— Vel af sér vikið, sagði hann
lágt við Jimmy. — Þú hefur
hresst gamla manninn við og
það var einmitt það, sem hann
þurfti. En þú verður að láta
í bakstur
karamellur
hann vita strax, ef þú verður
einhvers vísari, sem einhver mat
ur er i.
Jimmy kinkaði kolli, einbeitt-
lega. — Já, það skal ég svei
mér gera, sagði hann. — Góða
nótt.
8. KAFLI
Síðdegis næsta dag mátti
sjá Jimmy spígsporandi fram og
aftur við skúr 41 í Alberts
skipakvinni. Honum hafði verið
sagt, að Niphetos væri úti á
ánni og yrði líklega annað eða
þriðja skip tii að koma inn, þeg-
ar hliðið yrði opnað. — Það er
svartmálað skip, sagði heimild-
armaður hans. — og með svart-
an reykháf með tveimur rönd-
utm, rauðri að ofan og hvítri að
neðan. En annars er auðveldast
að þekkja það á félagsfánanum,
rauðri rós á hvítum grunni með
blárri rönd.
Jimmy þakkaði manninum og
tók svo að spígspora aftur.
Hann var gripinn óþolinmæði,
er stundin nálgaðist. Hann lang-
aði að hitta þenna Glapthorne,
sem hafði valið sér sjómennsk-
una að lífsstarfi. Hvílíkur mun-
ur á umhverfi Benjamíns og
hinu, sem bróðir hans hafði kos-
ið sér! Frelsinu á opnu hafi
eða innilokun innan þess-
ara fangelsisveggja i Faming-
cote. Lotksins sá hann til skips-
ins, sem mjakaðist hægt áfram.
Jimmy beið þangað til skipið
var lagzt að og laindgön*gubrúnni
hafði verið komið fyrir. Þá gekk
hann um borð, komst inn í búr-
ið og sagði brytanum erindi sitt.
AKRA
í bakstur
— Ég þarf að hitta hr. Glap-
thorne, sagði hann. —Það er
persónulegt erindi og talsvert
áríðandi. Gætuð þér náð i hann
fyrir mig?
Brytinn horfði á hann,
tortrygginn. — Hann skuldar
yður vist ekki peninga? sagði
hann.
— Nei, alls ekki, sagði Jimmy
og hló. — En ég er hræddur um,
að ég hafi slæmar fréttir að
færa honum það.
Brytinn setti upp meðaumk-
unarsvip. — Það er slæmt, sagði
hann. — Hr. Glapthorne er
niðri núna, en kemur sjálfsagt
upp, úr því að við erum lagzt-
ir að. Komið þér héma með mér
og ég skal vísa yður á klefann
hans.
Hann gekk síðan eftir gang-
inum og Jimmy á eftir, þangað
til þeir komu að dyrum með
málmplötu á, þar sem á var letr-
að: „II. vélstjóri."
— Gei-ið svo vel, sagði hann.
— Hr. Glapthorne verður kom-
inn eftir andartak. Ég skal segja
honum af yður.
Jimmy gekk inn og leit for-
vitinn i kringum sig. Klefinn
var rúmgóður, með setbekk og
rúmi og stóru borði. Það, sem
mest var áberandi var mynd af
Joyce Blackbrook með nafni
ljósmyndara í Lydenbridge. Og
svo stækkuð augnabliksmynd af
Joyce, sýnilega nokkurra ára
gömul, negld á þilið fyrir ofan
rúmið. Fyrir ofan setbekkinn var
bóikahilla með mörgum bókum,
sem Jimmy athugaði vandlega
. . '. þar voru nokkrar bækur um
skipsvélar, og svo nokkrar skáld
sögur.
Meðan Jimmy var að skoða
bækurnar var hurðinni hrund-
ið upp og viðkunnanleg rödd
ávarpaði hann. — Halló! Hvað
eruð þér hér að gera?
Jimmy leit við og sá stóran
og kraftalegan mann í samfest-
ingi. Andiitsfallið var svipað og
á Simoni Glapthome, en svip-
urinn var opinn og góðleg-
ur. Það var ekki um að viH-
ast Glapthorne-útlitið, en senni-
lega með nokkrum breytingum
af því að maðurinn hafði alizt
upp annars staðar.
—- Mér þykir leitt ef ég er
til óþæginda, sagði Jimmy.
— Brytinn vísaði mér hingað og
sagði mér að bíða. Þér eruð hr.
AKR A
t bakstur
Gluggatjolda-
efni í miklu úrvali
STORÍS - DAMASK - BÓMULL - DRALON
DELICRON - ACRYL
Einlit - röndótt - rósótt
Glæsilegt litaval
STENGUR - RIMLATJÖLD - VINDUTJÖLD
BORÐAR - KRÓKAR
Mælum - saumum - setjum upp
Gluggatjöld
LAUGAVEGI 66 (2. HÆÐ), SÍMI 1 74 50
Glapthorne, er ekki svo? Hér er
nafnspjaldið mitt.
Benjamín tók spjaldið, starði
á það og síðan á komumann.
— Hvert er erindið? sagði
hann blátt áfram.
— Sennilega það, að ég hafi
slæmar fréttir að færa, svaraði
Jimmy. — Bróðir yðar, Caleb
Glapthorne fórst af slysi fyrir
viku.
Svipurinn á Benjamín harðn-
aði. — Fórst? Hvernig fórst
hann?
Ég er að vona, að þér getið
hjálpað mér að svara þeirri
spumingu, sagði Jimmy. — En
fyrst er ég með nokkuð, sem
mig langar að sýna yður. Kann-
izt þér nokkuð við þetta?
Hann dró snöggt upp
pappírsmiðann úr vasanum og
hélt honum á loft. Benjamín leit
á hann. — Þetta likist rithönd-
inni minni og er áreiðanlega
undirskriftin mín, sagði hann.
— En hvað um það ?
— Ég vil að þér reynið að
muna, hvenær og hvar þér háf-
ið skrifað þetta, sagði Jimmy
með áherzlu.
AKRA
í bakstur
Benjamin yppti öxlum. —
Svei þvi ef ég get munað það,
svaraði hann. En ef þér segið
mér, hvar þér hafið fengið það,
gæti það hjálpað mér til að
muna það.
— Ég vildi heldur, að þér
reynduð að muna það, án minn-
ar hjálpar, sagði Jimmy.
— Ég skal reyna, sagði
Benjamin og klóraði sér í hár-
inu. „Good sport“ og svo svona
undirskrift. Biðið andartak.
Lofið mér að sjá þennan pappír.
Jú, þetta er einmitt sú tegund,
sem við fáum hérna um borð.
Nú hef ég það. Þetta er snifsi
af bréfi, sem ég skrifaði frænku
minni, áður en við létum úr höfn
síðast. Það er ég alveg viss um.
— Getið þér munað setn-
inguna, sem endaði á þessum
orðum?
— Ekki nákvæmlega. Ég var
búinn að biðja hana að koma
um borð og drekka te með mér,
og endaði svona: There is a
good sport — þá ertu væn. En
hvað kemur þetta við dauða
Calebs ?
— Það skal ég útskýra fljót-
í bakstur
Hrúturinn, 21. marz — 19. april.
Byrlega blæs þessa stundina í öllum þínum málum, og þvi sjálf-
sagt að haga seglum eftir því.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Þú ert dálítið óheppinn þessa stundina, en óþarft er samt að
láta hugfallast þeirra hluta vegna.
Tvíburarnir, 21. tnaí — 20. júní.
Þér heppnast fleira, en þú hafðir gert ráð fyrir.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Það vefst eitthvað fyrir þér, hvað treglega hefur gengið að fá
fólk til að samsinna þér.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Ef eitthvað smávegis kemur I veg fyrir að þú komir áformum
þínum í framkvæmd, er ekki úr vegi að ryðja slíkum hindrunum
úr vegi.
Meyjan, 23. águst — 22. september.
Þér finnst stundum fólk leggja þig í einelti, og átt erfitt með
að gera þér grein fyrir ástæðunni.
Vogin, 23. septemlier — 22. október.
Ef enginn er þér fremri í þinni starfsgrein, er eðlilegt að þú
njótir forgangsréttinda, Annars er maðkur í mysunni.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Einhver liefur gert þér svo rækilega gramt f geði, að þú
átt erfitt mcð að fyrirgefa.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Hver er sinnar gæfu smiður, segir máltækið, og vert cr að liafa
það hugfast.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Það er rangt að skara alltaf cld að cigin köku, og því mál til
komið að hugsa dálítið um aðra.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Hvort sem þér líkar betur eða ver hlýtur að koma að því að
þú verður að líta i eigin barm,
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Nú væri hcntugt að láta sem minnst á sér bera allra hluta
vegna, en ekki er víst að það lánist.