Morgunblaðið - 27.03.1971, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. MARZ 1971
. . 47 . .
Woodsprings, þar sem hann var
beðinn að koma við fyrsta tæki
færi. Og hann náði strax í bil-
inn sinn og ók mér heim aftur.
Svo talaði hann lengi við hr.
Glapthorne og um leið og hann
fór, fékk hann mér fimm hundr
uð pund og sagði mér að vera
ekki neitt að ónáða hr. Glap-
thorne ef ég þyrfti að fá meira.
Hann sagðist þurfa að vera að
heiman i nokkra daga, en kæmi
aftur snemma í næstu viku, og
þá skyldi ég segja sér, hvernig
gengi.
Jimmy kinkaði kolli. — Vitið
þér til þess, að þeir hafi kom
izt að einhverjum samningum
þennan morgun?
— Um móann? Já, hr. Glap-
thorne sagði mér frá þvi. Hann
sagðist hræddur um, að Wood-
spring mundi þurfa að bíða
býsna lengi áður en samningur
inn tæki gildi. Hr. Glapthorne
sýndist harðánægður með kaup
in, sem hann hafði gert.
— Og hvað finnst yður sjálf
um, Horning?
Ég veit ekki, hvað ég á að
halda. Fimm hundruð pund ná
ekki langt, þegar allt er komið
í eindaga og meir en það. En hr.
Glapthorne segir, að allit komizt
í lag undir eins og hr. Benja-
mín komi heim.
— Og ég get glatt yður með
því að það verður á sunnudag-
inn eða mánudaginn kemur. —
Jæja, Horning, ég vona, að hr.
Glapthorne verði að þessari
bjartsýni sinni. Verið þér nú
sælir. Næst fóru þeir í leigubóka
safn Woodsprings, þar sem þeir
hittu Joyce Blackbrook. Hún
var viðlátin og brosti er hún sá
þá.
— Þér munið sjálfsagt eftir
mér, sagði Jimmy. — Hafið þér
frétt nokkuð af Benjamin Glap
thorne síðan ég hitti yður síð-
ast?
Hún roðnaði við þessa spurn-
ingu og Jimmy fannst hún enn-
þá laglegri en áður.
— Já, hann sendi mér skeyti
frá Gravesend í gær. Ég veit
ekki hvort hann hefur sent það
eftir að homam barst bi'éfið frá
mér, þar sem ég skýrði honum
frá dauða Calebs. Hann sagðist
bara koma um helgina.
— Hann sendi skeytið áður
en hann fékk bréfið. Ég hitti
hann i gær og tök það að mér
að tilkynna honum lát bróður
hans.
— Þér hittuð hann? sagði
hún steinhissa. — Og hvar?
Um borð i skipinu hans í
Alberts-skipakvínni. Við töluð-
um lengi saman. Hr. Benjamín
tefst eitthvað við skipið vegna
einhverra viðgerða í véiarrúm-
inu. En hann vonar, að því
verði lokið á laugardagsmorgun
og að hann geti náð í lest hing
að á sunnudag.
— Ég skil ekkert í því, að
þér skýlduð gera yður það
ömak að fara að leita Ben uppi,
sagði stúlkan. Hr. Woodspring
lofaði að tala við hann, snemma
í morgun, og hann hefði getað
sagt honum frá þessu.
— Já, en það vissi ég bara
ekki, sagði Jimmy afsakandi. —-
Fór hr. Woodspring til London
beiniínis til þess að hitta Benja
mín?
— Nei, nei. Hann ætlaði á
uppboð hjá Sotheby í dag og
tvö önnur á morgun og mánu-
dag. Hann var búinn að ákveða
fyrir löngu að verða burtu
þessa daga. En þegar ég sagði
honum, áður en hann fór, að ég
hefði frétt frá Ben, sagði hann,
að hann mundi geta haft tíma
til að segja honum lát Calebs.
— Og þá sjálifsagt líka samn-
inginn, sem hann gerði við föð-
ur hans?
Nú, svo þér vitið þá lika
um hann? Mér þætti annars gam
an að vita, eftir hverju þér er-
uð að grennslast, fuliltrúi ? Arth
ur bróðir minn skrifaði mér í
vikunni og sagði, að þér hefð-
um komið til sín, með alls kon-
ar spurningar.
— Ég er að reyna að komast
eftir því, hver á sök á dauða
Calebs Glapthorne, sagði
Jimmy róiega. — Og ég þykist
viss um, að ef þér getið eitthvað
hjálpað mér, munuð þér gera
það. Hvað vitið þér um böggul,
Nú eða...
næst er þér
haldið samkvæmi;
FERMINGAR-
AFMÆLIS-
eöa
T7EKIF7ERISVEIZLU
erum við reiðubúnir
að útbúa fyrir yður:
Kalt borð, Heita rétti,
Smurbrauð, Snittur,
Samkvæmissnarl.
Auk þess matreiðum
við flest það, sem
yður dettur í hug,
— og ýmislegt fleira!
Sœlkerinn
HAFNARSTRÆTI 19
SlMI: 12388
Lausar stöður
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar hjá flugmálastjórn:
a. Flugumferðarstjóri I. í flugturninum á Vestmannaeyjaflug-
velli.
b. Tvær stöður aðstoðarmanna í flugumferðarstjórn á Reykja-
víkurflugvelli.
c. Ritari við upplýsingaþjónustu flugmála.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi starfsmanna ríkisins. Um-
sóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu flugmálastjórnar
Reykjavíkurflugvelli. Umsóknarfrestur er til 12. apríl 1971.
Reykjavík, 25. marz, 1971
Flugmálastjórinn
Agnar Kofoed Hansen.
ODHNER
ODHNER
12/8
SAMLAGNING, FRÁ-
DRÁTTUR, SJÁLFVIRK
MARGFÖLDUN OG
PRÓSENTUREIKNINGUR.
12 TÖLUR 1 INNSLÆTTI.
13 TÖL.UR 1 ÚTKOMU.
HRAÐGENG, HLJÓÐLÁT,
MJÚK I ASLÆTTI
ÞR.ÁTT FYRIR ALLA
ÞESSA OG FLEIRI
KOSTI ER VERÐIÐ
AÐEINS KRÓNUR 27.474.oo
EINNIG HÖFUM VIÐ Á BOÐSTÓLUM AÐRAR GERÐIR
AF SAMLAGNINGARVÉLUM, SVO OG BÓKHALDSVÉLAR,
KALKÚLATORA, RITVÉLAR, FJÖLRITARA, BÚÐAR-
KASSA OG ELECTRONISKAR REIKNIVÉLAR FRÁ ODHNER
OG FACIT.
Sisli c7. cSofinsen l(
VESTURCÖTU 45 SÍMAR: 12747 - 16647
NÝTT FRÁ
— Ef ée aðeins vissi hvaða búninjri ég klæftist þegar ég fer á
grímuballið!
sem var sendur til Calebs, þann
6. ágúst síðastliðinn með Mow-
bray bílstjóra?
— Hvað ætti ég að vita um
böggul til Calebs? Aldrei hef ég
sent honum neinn, ef þér eigið
við það. Hef aldrei sent honum
svo mikið sem jólakort á æv-
inni. Svo hrifinn var ég ekki af
honum.
— Þér hafið þá ekki sett bögg
ul til hans inn í bílinn hjá Mow-
bray?
— Nei, sannarlega ekki, svar
aði hún móðguð. Ef ég hefði ætl
að að senda honum eitthvað,
hefði ég farið með það sjálf í
Klaustrið, því að þangað fer ég
oft.
— Ég skil. En meðal annarra
orða: Vissuð þér, hvers konar
skothylki faðir yðar notaði hér
áður fyrr?
— Nei, það veit ég ekki, enda
kemur það mér litið við. En
hann Newsham byssusmiður,
kynni að vita það.
— Þakka yður fyrir upplýs-
ingarnar. En nú gætuð þér
kannski sagt mér, hvar ég get
keypt píkríngrisju?
— Það get ég ekki, þar sem
ég hef aldrei heyrt hana nefnda
á nafn, svaraði hún hvasst. En
sé það eitthvað, sem lyfsalar
selja, þá fæst það sjálfsagt hjá
honum Roberts, hér skammt frá.
Og nú verð ég að minna yður á,
að ég þarf að snúa mér að
verki mínu. Verið þér sælir.
Appleyard skríkti, þegar
dyrnar að bókasafninu lökuðust
á eftir þeim. — Þessi telpa læt
ur ekki vaða ofan í sig, sagðd
hann. — Svo að Woodspring
gamli fór að hitta Benjamín í
morgun? Mér þætti gaman að
vita, hvað hann hafði að segja
honum.
Hann hefur varla getað sagt
honum mikið, sem hann vissi
ekki fyrir, sagði Jimmy. —
Benjamin hlýtur að vera búinn
að fá bréfið frá ungfrú Blaek-
brook, og í sambandi við það,
sem ég var búinn að segja hon-
um, verður hann fljótur að
leggja saman tvo og tvo.
— Já, það er einmitt það, sem
ég kviði dálitið, sagði Appley-
ard og varð al.lt í einu alvar-
GRAVLAX
Ái
GLÓÐARSTEIKT
LAMB
Hrúturínn, 21. niarz — 19. apríl.
Þú hchfur sýnt fádæma tómlæti í einkamálum, og hefur ekki
betra af hví.
Natitið, 20. apríl — 20. maí.
Ef þú ekki spjarar þig fljótlega færðu ekki svar sem þú ert að
leita eftir.
Tvíburarnlr, 21. inaí — 20. júní.
I*ú skalt sýna ýtrustu gætni í umgengni við aðra, ef þú vilt
sjálfur vera ánægður.
Krabbinn, 21. júní — 22. Júlí.
Sumir gera þér oftar gramt í geði en góðu hófi gegnir og gegn
þeim ættirðu að taka afstöðu.
JLjónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Fæst er til að kæta þig núna, en þú ert úrræðagóður að vanda.
Meyjan, 23. ág:úst — 22. september.
Margt er að vefjast fyrir þér í afkomuleiðum. Farðu gætilega í
vali.
Vogin, 23. september — 22. október.
Sýndarmennska er þér leiður förunautur, og því ráðlegt að
losna við hana sem fyrst.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Ef þú ert kvíðinn, skaltu leita ráða félaga þinna.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú hefur reynt að standa þig vel, og það meta alLir mikils.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þér er margt til lista lagt og þér nýtist það vel
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Þér leiðist að geta ekki rétt úr kútnum, en það verður einhver
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
bið á því.
Þú ert sínkur á upplýsingar þessa stundina, enda hagkvæmast.