Morgunblaðið - 05.08.1971, Page 15
MORGUNÐLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1971
15 i
!■■■■■■■■■■!
Skandinavía;
BARÁTTAN
í LOFTINU
EFTIR FINN BORBERG
immmmmmmmmmm
ÞAÐ má heyra gnýinn af
baráttunni milli skandinav-
ískra leiguflugfélaga. Hvað
eftir annað hefur SAS gert
ráðstafanir til þess að skipa
dótturfélagi sínu, Scanair, í
röð með dugmeiri og arð-
vænlegri leiguflugfélögum.
Fyrst nú, tíu árum eftir
stofnun Scanair, hefur gæf-
an tekið að snúast á sveif
með því og framundan eru
kannski miklar breytingar á
fyrirkomulagi fjöldafarþega
flutninga á Norðurlöndum.
Tímamót eiga sér nú stað í
dönsku leiguflugi. Eftir tíu ára
reynslu hefur Scanair, dóttur-
félag SAS, loks talið sig hafa
fundið lausn á vandamáli sínu.
Þessa lausn hafa dönsku leigu-
flugfélögin tvö, Sterling Air-
ways og Conair, sem keppt
hafa við Scanair, þekkt lengi.
Hún er fólgin í því, að viðkom-
andi leiguflugfélag ráði yfir
það mörgum ferðaskrifstofum,
að unnt sé að tryggja mjög
mikla og jafna aðsókn far-
þega á leið til þeirra sumar-
leyfisstaða, sem vinsælastir
eru.
Leyndarmál leiguflugsins er
það, að allar flugvélar verða að
vera fullar. Með þeim hætti er
unnt að færa fargjöldin niður
i lágmark. Ef þess er gætt, að
laga flugkostinn eftir þeirri
„framleiðslu sumarleyfisferða",
sem viðkomandi flugfélag ræð-
ur yfir, fæst trygging fyrir há-
marksnotkun á flugfélogunum
og með lægstu verði. Ef við-
komandi flugfélag hefur ekki
sjálft yfirstjórn yfir þeim
ferðaskrifstofum, er' útvega þá
viðskiptavini, sem óskað er eft-
ir, þá verður flugfélagið að
bjóða lægra verð heldur en
keppinautarnir og fái flugfélag-
ið þrátt fyrir það ekki samn-
inginn, stendur það uppi með
tómar vélarnar.
í Danmörku hefur sambandið
milli ferðaskrifstofa og leigu-
flugfélaga verið að skapast á
sl. tíu árum. Það var ekki Scan-
air, sem fann lausnina, heldur
keppinautar þess tveir, Tjære-
borg og Spies. Þessa hefur
Scanair goldið, en nú skal allt
slíkt úr sögunni að áliti Scan-
air-SAS.
Bardagi upp á líf og dauða
getur orðið afleiðingin.
1 Scandinavíu berjast aðeins
fáein leiguflugfélög um sumar-
leyfisferðalögin. Þau eru fyrst
og fremst:
Sterling Airways (danskt með
sænskri deild). Ræður yfir 32
flugvélum með sætum fyrir
3.500 farþega.
Scanair (danskt-sænskt-
norskt), 6 flugvélar með sæti
fyrir 900 farþega.
Conair (danskt), 6 flugvélar
með sæti fyrir 900 farþega.
Þar fyrir utan eru ennfrem-
ur starfrækt danska flugfélagið
Maerskair og norska flugfélag-
ið Braathen SAFE í leiguflugi,
en þó í minna mæli miðað við
hin.
Það eiga sér stöðugt stað
breytingar á flugvéiakosti
leiguflugfélaganna. Sterling
Airways er nýbúið að selja
nokkrar Caravelle-vélar, en hef-
ur pantað fleiri i staðinn. Con-
air er í þann veginn að fá ný-
tízku þotur i stað eldri skrúfu-
véla.
Af skandinavísku þjóðunum
eiga Danir langstærsta flotann
af leiguflugvélum. Stafar það
að nokkru af meiri framsýni
hjá dönsku flugfélögunum, en
að nokkru af legu landsins, því
að Kastrup-flugvöllur er út-
gönguhliðið frá Skandinavíu.
UNGT FYRIRBRIGÐI
Laiguflug er sem stórfyrir-
brigði aðeins um tiu ára gam-
alt. Þegar þessi tegund flug-
ferðalaga var rétt orðin til, átti
SAS einstæðan möguleika á því
að tryggja sér meginhluta þess
markaðar, sem átti eftir að
vaxa svo feiknarlega á fáein-
um árum.
Hjá SAS störfuðu í lok ára-
tugarins tveir Danir, sem hvor
um sig hafði augun opin fyrir
þvi nýja. Það voru þeir Hans
Linde, yfirmaður vöruflutning-
anna, og Erik Östbirk, sölu-
stjóri, sem reyndu að fá stjórn
SAS til þess að leggja út í
áhættuna. Rétta augnablikið
virtist komið, er SAS þurfti að
taka úr notkun og losna við
þær vélar, sem það átti af gerð-
inni DC-6. Þær voru orðnar of
gamlar og of hæggengar fyrir
samkeppnina í áætlunarflug-
inu. En þær yrðu áfram heppi-
legar fyrir leiguflugið, þar sem
viðskiptavinirnir gerðu ekki
eins miklar kröfur sökum þess,
að þeir greiddu þar langtum
lægra verð.
En það var ekki unnt að telja
um fyrir SAS-stjórninni. Hún
seldi flugvélarnar til Mexíkó.
Þar með var teningunum kast-
að. Linde hætti hjá SA£» og kom
á fót leiguflugfélaginu Flying
Enterprise. Rekstur þess gekk
strax mjög vel. Bráðlega fór
Östbirk að dæmi hans og stofn-
aði Nordair. Áður en stuttur
tími var liðinn hafði hugmynd-
in sannað gildi sitt og enn fleiri
leiguflugfélög sáu dagsins ljós.
SCANAIR
En mitt í öllum straumnum
skaut SAS upp með sitt eigið
félag, Scanair, og við það hófst
slagurinn fyrir alvöru. Hann
fékk á sig harðneskjulegan
blæ. Mörg nýju flugfélaganna
rötuðu i erfiðleika, m.a. sökum
þess, að skipulagning þeirra
var ekki góð og fjármagn
þeirra of lítið. Þau skorti einn-
ig nauðsynlegar aðstæður á
jörðu niðri og sum þeirra urðu
beinlínis háð SAS, að nokkru
vegna viðhalds véla sinna á
verkstæðum SAS og að nokkru
vegna þess, að SAS, sem að
hluta var eign ríkisins, hafði
nánari tengsl við danska sam-
göngumálaráðuneytið og flug-
málastjórnina. Menn höfðu það
hugboð, að þessu stóra flug-
félagi væri gert hærra undir
höfði.
Margs konar dylgjur hafa
síðan verið bornar fram aí
hálfu leiguflugfélaga, sem far-
ið hafa á hausinn, um litla fyr-
irgreiðslu af hálfu danska ríkis-
ins. Helzti ásteytingarsteinninn
hefur verið sá, að leiguflug-
félögin geta ekki gert áætlanir
tii langs tima, sökum þess, að
flugleyfin til þeirra eru aðeins
veitt til skamms tíma í einu,
en það eru örðugleikar, sem
ekki geti bitnað á Scanair í
sama mæli.
Á fyrstu árum leiguflugsins
var samkeppnin frjáls á mark-
aðinum um viðskiptavini ferða-
skrifstofanna. En fljótt þótti
gæta nýrrar tilhneigingar.
Ferðaskrifstofur, sem efndu til
fjöldaferða, komu á fót eigin
flugfélögum. Með þeim hætti
voru „frjálsu" flugfélögin úti-
lokuð frá stöðugt stærri hluta
af markaðinum. Þetta kom til
með að bitna á Flying Enter-
prise, Nordair og Scanair. Fly-
ing Enterprise lenti í örðugleik-
um og var síðan keypt upp af
Spies, sem lét það renna sam-
an við nýja flugfélagið sitt,
Conair. Þá var Nordair keypt
upp af SAS-Scanair og flest
hinna leiguflugfélaganna hurfu
einnig úr sögunni.
Þau tvö, sem stóðu sig bezt,
voru Sterling-Airways, sem
séra Eilif Kroager rak og flutti
ferðafólk á vegum Tjæreborgar
ferðaskrifstofunnar, og Conair,
sem flaug einnig fyrir eiganda
sinn, ferðaskrifstofu Simon
Spies.
En Scanair lifði líka erfiðu
timana af. En það er naumast
röng tilgáta að álíta, að Scan-
air hefði verið í mikilli hættu,
ef það hefði staðið aleitt og án
hinnar voldúgu móður, SAS.
Það er langt síðan SAS-Scan-
air kom auga á ráðið til þess
að ná árangri í leigufluginu,
það er að tengja saman flugið
og starfsemi ferðaskrifstof-
anna. En það hefur reynzt
erfitt að koma þessari hug-
mynd í framkvæmd.
FERÐASKRIFSTOFA
1 október 1968 var gerð
fyrsta alvarlega tilraunin í
sambandi við kreppu þá, sem
þá kom upp i sænskum ferða-
málum. Ferðaskrifstofan Ny-
man og Schultz lenti í erfið-
leikum. SAS keypti verulegan
hluta fyrirtækisins, en þó ekki
meirihluta hlutabréfanna. En
önnur fyrirtæki stóðu i tengsl-
um við Nyman og Schultz,
framar öðrum Vingresor og
Club 33. Kaupin náðu samt
ekki til þeirra.
Chr. Hunderup, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri SAS, skýrði mál-
ið með eftirfarandi orðum: —
Við verðum að reyna að koma
jafnvægi á í afstöðunni til
markaðar, sem við höfum ekki
staðið í réttum tengslum við.
1 rauninni hafði SAS-Scan-
air þá þegar haft góð sam-
skipti við ferðaskrifstofustarf-
semina. Þannig átti SAS 12%
í aðalfyrirtæki Bennetts í Osló
og hafði samstarf við „Globe-
trotter“-hreyfinguna, sem selur
langar, ágætar ferðir til fjar-
lægra staða, eins og Austur-
landa fjær. En það kom á dag-
inn, að þetta var ekki kjarni
leiguflugsins. Leyndarmálið er
miklu fremur fólgið í fjölda-
ferðum en dýrum úrvalsferð-
um.
Scanair varð ekki heldur að
neinu risafyrirtæki eftir að
hafa keypt sig inn í Nyman og
Schultz og árið 1969 varð það
að viðurkennast, að Scanair
gekk ilia. SAS kom til skjal-
anna réttandi hjálparhendi.
En samtímis þessu jókst
leiguflug jafnt og þétt. Á fyrra
árshelmingi 1970 jókst það um
Kaupmannahafnarflugvöll ein-
an um 28.7% miðað við sama
tímabil árið áður. Áætlunar-
flugið — þar sem SAS er
stærsti þátttakandinn — jókst
aðeins um 15%. Farþegafjöld-
inn í þessum tveimur hópum
skiptist að miklum meiri hluta
l
á leiguflugið. En ekki tii Scan-
air.
Sumarið 1969 steig SAS
næsta skrefið fram á við. Meiri
hluti hlutabréfanna i Nyman
og Schultz voru keypt, en við-
skiptavelta þess hafði verið um
300 millj. d. kr. En Scanair náði
eftir sem áður ekki yfirráðum
yfir Vingresor og Club 33.
Scanair varð ekki enn að stór-
fyrirtæki.
SAMKEPPNIN
í nóvember í fyrra bar SAS-
framkvæmdastjórinn Knut
Hagdrup fram eftirfarandi við
fréttamenn: — Á mörgum
flugvöllum Evrópu fljúga leigu
flugfélögin jafnhliða okkur.
Þau hafa þá umframaðstöðu,
að þau geta hætt við flugferð,
ef þau hafa ekki fulla vél. Það
getum við ekki. Við verðum að
fljúga, enda þótt við höfum
ekki nema einn farþega. Frá
1963 hafa 25 leiguflugfélög orð-
ið gjaldþrota, þar af 11 í
Scandinavíu. Við látum nú fara
fram athuganir i því skyni að
auka leiguflugstarfsemi SAS.
Við erum sveigjanlegir gagn-
vart þróuninni . . .
Þessar athuganir leiddu tii
niðurstöðu, sem lengi hafði
mátt búast við. SAS ákvað loks
að koma á beinu sambandi við
„fjöldaframleiðsluna" á sumar-
leyfisgestum.
Fyrir fáeinum vikum var
lokið umfangsmiklum kaupum.
SAS keypti loks stóru ferða-
skrifstofuna, sem félaginu
hafði ekki tekizt að festa hend-
ur á við fyrri kaup: Vingresor,
sem réð yfir 300 manna starfs-
liði. Hún er þriðja stærsta
ferðaskrifstofan á Norðurlönd-
um.
Það er endurskipulögð og öfl-
ug ferðaskrifstofa, sem SAS
hefur þar með eignazt. Það er
ljóst, að það á að nota hana í
beinni samkeppni við Tjære-
borg og Spies, sem eiga mjög
marga viðskiptavini í Svíþjóð.
1 Danmörku er Vingresor
einnig til undir danska nafninu
Vingrejser og einnig þar verð-
ur hafizt handa með mikilli af-
kastagetu innan skamms í
beinni samkeppni við Tjære-
borg og Spies.
Danskt sumarleyfisfólk sér
framundan tíma, þar sem sam-
keppnin er svo mikil, að síðastl
dropinn verður kreistur út úr
viðskiptunum. Ef unnt er að
lækka verðið á sumarleyfis-
ferðum enn meira, verður það
gert.
Baráttan milli Scanair og
tveggja stóru ferðaskrifstof-
anna i Danmörku hefur ekkí
farið fram hljóðlaust í þau
ár, er SAS hefur keppzt
við að ná takmarkinu. Þessl
barátta hefur átt sér stað
frammi fyrir augum og eyrum
almennings i sífelldu orðaskaki
milli Tjæreborg og SAS. Það
hefur ekki aðeins verið deilt
um leiguflug, heldur einnig um
áætlunarflug. Því að samtímis
því sem SAS keppti að því að
fá fastari grundvöll innan
leiguflugsins, hefur Sterling
Airways leitazt við að komast
inn i áætlunarflugið á dönsk-
um innanlandsleiðum.
En þar hefur séra Kroager
Framhald á bls. 16
KNUT HAGDRUP, framkvaemdastjóri SAS, — við verðum að
fljúga, enda þótt það sé ekki nema einn farþegi.