Morgunblaðið - 16.12.1973, Blaðsíða 2
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1973
Bangsi
Bangsinn er prjónaður á
prjóna nr. 3. Hann er fylltur
með bómull, augun og snúður-
inn saumað meðsvörtu garni.
Haus og búkur: Fitjið upp 10
lykkjur, prjónið garðaprjón í 9
cm, þá er stykkinu skipt í
tvennt, hinn helmingurinn
geymdur á prjóninum, og
prjónaðir fætur, 5 lykkjur á
hvorri, þar til komnir eru 4‘ó
cm, fellið af. Hinn fóturinn
prjónaður eins. Prjónið 2
stykki eins.
Handleggir: Fitjið upp 10
lykkjur og prjónið 3'ú cm garða-
prjón, og fellið af. Prjónið 2
stykki.
Haus og búkur saumað sam-
an, hafið op efst, til að hægt sé
að fylla bangsann með bómull.
Þá er saumað fyrir efst. Iland-
leggirnir saumaðir saman og
fylltir með bómull. Þá er komið
lagi á bangsann, bandi bundið
fyrir háls, handleggirnir saum-
aðir á. Garni vaf íð um úlnlið og
ökkla. Eyrun saumuð. Augun
saumuð í og snúðurinn.
Buxurnar: Fitjið upp 10
lykkjur á prjóna nr. 3, og
prjónið 3'4 cm garðaprjón,
stykkinu skipt í miðju eins og á
bangsanum, prjónaðar skálmar
i 2 cm, fellið af. Fitjið upp 6
lykkjur í smekk, prjónaðir 12
prjónar. Fellið af 2 Iykkjur
f miðjunni, og hlýrarnir prjón
aðir á 2 lykkjunum hvorum
megin, í 7 cm. Buxurnar saum-
aðar saman, bangsinn klæddur
í þær.
Ljósaskermur
búinn til úr pappa og eggja-
bökkum. Litað að vild eða úr
mislitum pappa. Sjá myndir.
Það er auðvitað skorið lok af
neðri neðri hluta eggjabakk-
anna, til að ljóssjáist f gegn. Má
þá gjarna setja gagnsæjan
pappír fyrir opið. Skerminn má
setja utan um rafmagnsperur,
en auðvitað alls ekki nálægt
kerti.
Jólasveinn á gosflösku
Utan u:n gosflöskurnar, sem
nota á ineð jólamatnum, má
setja jólasvein úr kreppappír
eða efni, t.d. filti. Því miður
fylgir ekki snið með, en það
ætti varla að aftra þeim, sem
handlagnir eru, frá því að
reyna.
í fljótu bragði virðist ekki
svo ýkja erfitt að búa til snið af
búknum úr pappfr, leggja utan
um gosflösku og breyta síðan
eftir þörfum. Það er alls ekki
nauðsynlegt að hafa ennar. en
húfa verður að fylgja. Andlit
getur verið úr pappa, límt á
augnabrúnir, nef og skegg.
Augun er bezt að teikna ineð
tússi.
GULLHJARTAÐ
Skálúsaga eftlr Thor Slljan
Flói kemur að Helgu skólasystur
sinni á kaldan klaka í Kaup-
mannahöfn. Mogesensfyrirtækið
stofnar útibú í Reykjavík og Flói
og Helga eiga að starfa þar í sum-
arleyfinu. Þau verða samferða til
Reykjavíkur og eiga að hitta
Victor Bang að sólarhring liðnum.
En þá taka áætlanir Bangs og
Mogesens að gliðna og voveifleg
atvik að eiga sér stað. Jeppaferða-
lagið norður, eftirför prófessors-
ins, umsátrið um vegavinnuskúr-
inn, dramað í tófubyrginu við ræt-
ur Vatnahálsins, bílslysið í
Bjarkadalsgljúfri og uppgangur
Flóa hjá Mogesensklíkunni. Þetta
eru bara örfáir hlekkir í æsi-
spennandi atburðakeðju, er held-
ur lesandanum í þrotlausri
spennu bókina á enda.
SPÁKONUFELL
Kaup á Hi-Fi-tækjum geta verið
hreint ævintýri. Þess vegna skuluð þér muna,
þegar þér hefjið leit að slíkum tækjum,
að gá að Hi-Fi International-merkinu frá PHILIPS
Það finnst á tækjum eins og 521 -magnaranum
og 621-viðtækinu. í sameiningu láta
tvíburatæki yður heyra hinn tæra tón,
sem 2 x 40 watta hljómorka gefur
Hver tónn er tær og ómenqaður,
allt frá píanissimó tíl hæstu'tóntinda.
Stjórnskalar og hnappar eru með svörtum lit.en áletranir
eru grænar, greinilegar og smekklegar —
og lýsandi eins og á mælaborði flugvéla.
Magnarinn er með stungum, sem auðvelt er að ná til,
bæði fyrir hljóðnema og heyrnartæki.
ef menn óska að hlusta án utanaðkomandi truflana,
eða án þess að trufla aðra
Finnig má tengja 4 hátalara — gerð 426, sem hér sést,
og þá má hlusta á HI-FI-STEREO-tónlist í tveim herbergjum samtímis,
eða sem stereo 4, Ambiophonic. Viðtæki, af gerðinni 621 býður upp S 4
bylgjulengdir, allar með glæstum tónum, og fimmfalt FM-forval að auki gerir alla stillingu auðvelda og fljóta
Sjálfvirk tíðnistýring og hljóðlaus FM-stilling eru trygging fyrir fullkominni, jafnri viðtöku
Sé óskað eftir að hlusta á fullkomna, gallalausa tónlist ,af plotu eða segulbandi, er einfalt að tengja hinn
elektróníska plötuspilara gerð 212 eða segulbandstæki gerð 4510.
Heimurinn er fullur af fögrum tónum, sem hægt er að láta menn njóta næstum hvar sem er Ef yður langar til að hlusta,
þá tengið einfaldlega nokkur Hi-Fi-tæki frá PHILIPS. Þá gefst yður kostur á að hlusta á flóð tærra tóna, óbjagaðra
og ómengaðra, og slík tæki eru einmitt á boðstólum um þessar mundir
PHILIPS
heimilistæki sf
Hafnarstræti 3 - 20455.; Sætún 8 - 15655
PHIUPS hifi international
handa þeim,
sem Nilja tœra tóna