Morgunblaðið - 09.06.1974, Page 7
MORCiUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JUNÍ 1974
7
Kvikmyndir
Eftír Bjöm Vígrtí Sígurpálsson
Uppskeru-
hátíð 1
Cannes
MESTA uppskeruhátið kvikmynd-
anna — Cannes-hátiðin — er af-
staðin. Viman er að renna af kvik
myndagagnrýnendum eftir margra
daga ofneyzlu kvikmyndalistar og
timburmennirnir láta ekki á sér
standa. Kvikmyndaspekingar er-
lendis spyrja sjálfa sig hvað hafi
orðið um hina gömlu góðu
Cannes-hátíð, þar sem listaverk á
borð við Viridiana, Fuglana, Trön-
urnar fljúga, Marty og Pather
Panchali, svo að einhver séu
nefnd. Já, sú var tíðin að kvik-
myndasagan virtist skráð I
Cannes
Nú er öldin önnur, segja gagn-
rýnendurnir. Þeir vilja þó lita á
björtu hliðarnar og segja sem svo,
að kannski sé ástæðan fyrir hnign-
un hátíðarinnar ekki endilega sú,
að góðar myndir berist ekki lengur
þar á fjörur heldur að erfiðara sé
„að finna nálarnar í heystakkn-
um", svo að notuð séu orð David
Robinson hjá The Times. Hann
segir, að i gamla daga hafi menn
aðeins horft á tvær myndir á dag
og varla nema um tvo tugi mynda
í allt á meðan hátiðinni stóð. Núna
sjá menn kannski fimm eða sex
myndir daglega en i allt er boðið
upp á einhvers staðar á milli 400
og 500 myndir á hátíðinni.
„Það kemur þvi af sjálfu sér, að
maður sér töluvert meira af verstu
myndum veraldar en hinum
beztu," segir Robinson.
Ástæðan fyrir þessu ógnarfram-
boði á kvikmyndum i Cannes er
tiltekinn glundroði, sem verið hef-
ur að magnast á undanförnum
árum. Þannig hlutu 26 kvikmyndir
náð fyrir augum hinnar hefð-
bundnu sérfræðidómnefndar i ár,
en hún var sett á laggirnar árið
1962 til að stemma stigu við
gróðasjónarmiðum, sem virtust þá
vera að ná undirtökunum á hátíð-
inni á kostnað gæðanna. Hins
vegar var nú einnig boðið upp á
aðrar 20 myndir á svokallaðri
Quinzaine des Realisateurs. sem
er eins konar gagnbyltingarhátlð
og klofnaði út frá aðalhátiðinni I
kringum stúdentaóeirðirnar 1968.
Þriðji þáttur Cannes-hátlðarinnar
er svo Perspectives du Cinema
Francais, nýr viðauki við hátiðina
með miklum fjölda mynda.
Cannes-hátiðin heldur enn aug-
lýsingagildi sínu. Þangað þyrpist
kvikmyndafólkið — stórstjórnur
og smástirni, leikstjórar og fram-
leiðendur ásamtfjármöngurum og
gróðabröskurum. Þeir halda
iburðarmikil hanastélsboð og
bjóða til málsverða þarsem borðin
svigna undan krásunum. Fram-
leiðendurnir og viðskiptajöfrarnir
mega ekkert vera að þvi að fara í
bió þessa daga, heldur sitja þeir
löngum stundum á tali á einhverj-
um afviknum stað, leggja á ráðin
um framleiðslu nýrrar myndar,
kaupa myndir og selja myndir,
skeggræða um það fram og aftur
hver verði tizkan i kvikmyndunum
að ári. Furðulegustu hugmyndir
skjóta upp kollinum, svo sem:
„Hvemig væri að fá þennan
Resnais til að gera söngvamynd úr
fangabúðum með Diönu Ross i
aðalhlutverki ef Streisand fæst
ekki — já og auðvitað Jack Nicols
í móthlutverkinu." Þetta er ekki
skálduð tilvitnun, eins og einhvei
kynni ef til vill að halda, þvi að
svona lagað ræða fjármálamenn-
irnir sin á milli i fullri alvöru og út
úr allri vitleysunni koma iðulega
kvikmyndir f ramtiðarinnar Og
þrátt fyrir góða viðleitni aðstand-
enda Cannes hátíðarinnar reynist
erfitt að halda peningasjónarmið-
unum F skefjum á hátiðinni og þá
Verðlaunaleikstjórinn Francis Ford Coppola ásamt ein
um leikaranum
vili kvikmyndalistin hverfa i
skuggann.
Lítum þá á fáeinar myndir, sem
hvað mesta athygli vöktu i
Cannes í ár, Af frambjóðendum
gestgjafanna vegnaði „Violins de
Val" einna bezt. Hún er gerð af
Michel nokkrum Drach og var eig-
inkona hans i aðalhlutverki mynd-
arinnar. Sú var valin bezta leik-
kona hátiðarinnar, en að öðru
leyti er hún sögð sykursæt endur-
minning um bernskuár Gyðinga-
barna f Frakklandi 1939—40. Frá
ítaliu kom m.a. Delitto d'Amore,
sem segir frá ástum verkamanns
frá Milanó og sikileyskrar stúlku.
Leikstjórinn Luigi Comencini er
hugfanginn af umhverfisverndar-
sjónarmiðum nútímans og kemur
þeim að með þvi að láta stúlkuna
deyja af völdum mengaðs
andrúmslofts iðnaðarborgarinnar.
Comencini þessi er annars sagður
laginn að fást við leikara og nær
fram afburðaleik i myndinni, sér-
staklega hjá Giuliano Gemma.
sem kunnastur er hérlendis úr fá-
einum spaghettivestrum.
Sérstök verðlaun í Cannes hlaut
Pier Paolo Pasolini fyrir útgáfu
sína á Þúsund og einni nótt. Þar
með er lokið triólógíu Pasolini, er
hann sækir i fornklassisk bók-
menntaverk — fyrst var
Decameron, þá Kantaraborgarsög-
ur og nú valdir þættir úr Þúsund
og einni nótt, eins og áður segir.
Við sýningu á myndinni i Cannes
létu áhorfendur óspart i Ijós
óánægju sina með hrópum og púi
en ekki er Ijóst hvort þeim var
stefnt gegn myndinni eða Pasolini
sjálfum. Honum hafa verið mis-
lagðar hendur i þessari bók-
menntalegu yfirreið sinni. Einkan-
lega hafa Bretar lýst yfir furðu
sinni á meðferð Pasolini á
Kantaraborgarsögunum og vilja
meina, að hann hafi ekki skilið
brandarana hans Chaucers. Þús-
und og ein nótt er af sumum talin
skárst þessara mynda en tæpast
viðunandi þó. Pasolini staðhæfir,
að sú mynd sé ádeila á nýkapital-
isma vestrænna ríkja, en Robin-
son hjá The Times segir það vera
álika fráleita fullyrðingu. og að
Stjáni blái (Popey) sé ádeila á
fasismann.
Tvær „svartar kómedíur" vöktu
nokkurn fögnuð i Cannes. og eiga
báðar það sameiginlegt að vera
frumverk höfunda sinna. Önnur
nefnist Le Trio Infernal, og ereftir
Francis Girod. Myndin er byggð á
sannsögulegum atburðum, glæp-
um lögfræðingsins Matre Sarret,
sem hálshöggvinn var árið 1934
fyrir misgjörðir sinar. Segir sagan
frá þvi hvernig Sarret ásamt
tveimur þýzkum systrum sveik,
prettaði og myrti blásaklaust fólk
til að verða sér út um dálitla
tryggingaupphæðir viðkomandi
fórnarlamba. Girod fer aðrar
leiðir við útlistun á glæpunum en
meistari Hitchcock — hann sýnir
nákvæmlega hinar hrottalegu að-
ferðir morðingjanna við ódæðis-
verk sín, svo að blóðið streymir i
stríðum straumi og holsárin gapa
við áhorfendum. Morðingjarnir
leysa fórnarlömb sin upp í sýrum
og strá siðan jarðneskum leifum
þeirra sem skarna á garð systr-
anna tveggja en nágrannarnir
kvarta kurteislega yfir óþefinum
af áburðinum.
Hin myndin nefnist Bilarnir,
sem átu París og er sú gerð af
Ástraliumanninum Peter Wair.
Paris i titli myndarinnar er ekki
höfuðborg Frakklands heldur litið
þorp ( skógarjaðri í Ástraliu. íbúar
þess eru ekkert annað en tuttug-
ustu aldar sjóræningjar á þurru
landi, sem sjá til þess, að ferða-
menn, sem leið eiga um þorpið,
klessukeyri bila sina og hirða sið-
an allt nýtilegt úr bilunum. Vara-
hlutir eru þannig viðurkenndur
gjaldmiðill í París. Wair byggir
mynd sina samkvæmt fyrirmynd-
um B-mynda Hollywood og árang-
urinn er sagður vera sérlega hittin
hrollvekjukímni.
Sigurvegari Canneshátiðarinn-
ar að þessu sinni var annars The
Conversation Francis Ford
Coppola, sem áður hefur verið
getið hér i þættinum i yfirliti yfir
framleiðslu Paramountkvik-
myndafélagsins í ár. Hún segir,
eins og þá kom fram, frá einka-
spæjara, er hefur hleranir að at-
vinnu en verður um siðir fórnar-
lamb þeirra. Coppola lagði drögin
að handritinu á árunum milli
1966—69 — áður en hann gerði
The Godfather og áður en Water-
gatehneykslið kom upp, en efni
hennar þykir höfða vel til samtím-
ans.
Húsnæði óskast Stofa eða nokkuð stórt kjallaara- herbergi óskast fyrir léttan iðnað. Helst i Austurbænum. Tilboð legg- ist inn á afgreiðslu Morgunblaðs- ins merkt „G'óð umgengni 1083". Frímerki Til sölu mjög gott úrval af frimerkjum. M.A. skildingar. Alþingishátíð, þjónusta stimpluð. O.m.fl. Mjög hagstætt verð Myntir og Frimerki, Óðinsgötu 3.
Volvo 144 1970 fallegur einkabill til sölu. Sam- komulag með greiðslu. Simi 16289. Reglusöm systkini óska eftir 2ja—3ja herbergja íbúð á leigu. Upplýsingar i sima 33267.
Oska að kaupa frimerkt bréf (jafnvel nýleg) tollur, stimpill. Verð á Hótel Borg 10 —19 júní, AXEL MILTANDER Keflavík — Suðurnes Nýkomið stórmunstruð gardinu- efni og grófir stórisar. Saumaþjón- Verslunin Álnabær Túngötu 12 Keflavik
Hópferðabilar Til sölu Scania B-76, 47 farþega, árgerð '69. Volvo 3.4 farþega árg. '63. Man 20 farþega, árg. '70. Upplýsingar i síma 66128 og 83351. Keflavik — Suðurnes margar gerðir af efnum í íslenska þjóðbúninginn. Verslunin Álnabær Túngötu 12 Keflavík
Kona með reynslu, dugleg, mjög góð í matreiðslu, með skipulagsgáfu og afar hrein- lát, vill vinnu hjá góðri fjölskyldu 5 daga vikunnar. Sími 86421. Keflavik — Suðurnes Terylene tate og dralon, demin í buxur og blússur. Verslunin Álnabær T úngötu 12 Keflavík
Keflavík Af gefnu tilefni banna ég undirrit- aður alla umferð ökutækja um lóð mína við stafn hússins Hafnargötu 44, Keflavík. SVEINN SIGURÐUR HARALDSS0N, Suðurgötu 1 7a. Gerum við kaldavatnskrana og WC-kassa. VATNSVEITA REYKJAVÍKUR, Simi 27522.
íbúð óskast Barnlaus hjón vantar 2ja til 3ja herb. ibúð. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 1 1 906 eftir kl. 1. Mold Gróðurmold til sölu, heimkeyrð. Uppl. i sima 51468 og 50973.
Herbergi óskast Ungur maður óskar eftir rúmgóðu herb. Uppl. i sima 25606. Vörubill til sölu Til sölu er Merc. Benz 1413 árg. '65. Uppl. í síma 83498.
Bakaraofn Til sölu er notaður tvihólfa Rafha bakaraofn úr ryðfríu stáli. SÍLD 0G FISKUR. Hestur til sölu 6 vetra rauðstjörnóttur góðhestur til solu. Upplýsingar i sima 10778
Bifvélavirki og vélvirki óska eftir verkstæði úti á landi til leigu eða kaups. Tilboð sendist Mbl. fyrir 20. júní merkt: „1 091 " Óska eftir að taka á leigu íbúð í Reykjavík, eða Hafnarfirði í skiptum fyrir 4ra herb. íbúð á ísafirði. Tilboð send- ist Mbl. sem fyrst merkt „1480".
Húsvörður óskast í fjölbýlishús nú þegar. Upplýsingar i síma 16636 i dag og næstu daga eftir kl.1 9. Kópavogsbúar Reynum alltaf að hafa úrval af peysum í barna- og unglinga- stærðum.
Stór sendiferðabíll til sölu D 300. Cortina '70. Upplýsingar i kvöld og næstu kvöld að Rjúpufelli 36. Litaúrval. Verzlið þar sem verðið er hag- stætt. Verksmiðjuverð á öllu. Prjónastofan, Skjólbraut 6 Simi 43940.
Bill — skuldabréf 2ja—4ra ára bill, helzt vesturþýzk- ur, óskast gegn skuldabréfi Tilboð merkt ,,1482" sendist Mbl. fyrir miðvikudagskvöld. Kjarvalsmynd til sölu vatnslitamynd ca 50x50 cm. Tilboð merkt „Kjarval — 1483" sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. fimmtudag. Norskur kvk. stúdent óskar eftir vinnu á bóndabæ frá 1.—31. ágúst gjarnan i eldhúsi, fjósi eða barnagæslu. Vill læra islensku. Skrifið: Helle Meltzer Otto Ruges Vei 22 1 345 Österás Norge.
Lítið fyrirtæki í fataiðnaði til sölu. Fyrirtækið er i Kópavogi og mjög hentungt fyrir hjón, sem vilja skapa sér aukatekj- ur. Fæst með mjög góðum greiðsluskilmálum. Tilboð sendist Mbl. fyrir þriðju- daginn 1 8. júni merkt ,,1481 ". ^ÞEIR RUKR uiflSKiPim sEm k nucLVsn í