Morgunblaðið - 12.09.1974, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1974
5
SS- maður
háttsettur
í Chile?
New York, 11. september. AP.
STARFSMAÐUR Amnesty Inter
national (samtaka er berjast
fyrir réttindum pólitfskra fanga)
segir samtökin hafa fengið ýmsar
upplýsingar um, að fyrrverandi
samverkamaður Adolfs Hitlers sé
yfirmaður leyniþjónustu Chile-
stjórnar. Talsmaður Chilestjórn-
arneitar þessum ásökunum.
Roger Plant, sem stjórnar
rannsóknum Amnesty Inter-
national á ástandinu I Chile, seg-
ir, að samkvæmt upplýsingum,
sem hafi borizt samtökunum, sé
yfirmaður leyniþjónustunnar
Dina/Walter Rauff, sem var hátt-
settur SS-foringi og bar ábyrgð á
útrýmingu Gyðinga.
Adolfo Jenkelvich, blaðafull-
trúi sendinefndar Chile hjá Sam-
einuðu þjóðunum, kvað þetta
uppspuna og sagði, að yfirmaður
Dina væri innfæddur Chilemaður
en Walter Rauff stundaði sauð-
fjárrækt I Punta Arenas I Suður-
Chile.
Vestur-Þjóðverjar fóru fram á,
að Rauff yrði framseldur á árun-
um eftir 1955 en hæstiréttur
Chile úrskurðaði, að ekki væri
hægt að framselja hann.
Hundsa boð
Chilemanna
London, 11. september. Reuter.
SENDIHERRA Breta í Santiago,
Reginald Seconde, hefur fengið
fyrirmæli um að hundsa hátiðar-
höld í tilefni þess, að eitt ár er
liðið síðan stjórn Salvador
Allendes forseta var steypt af
stóli.
Ráðherrar ríkisstjórnar Verka-
mannaflokksins hafa oft látið í
ljós vanþóknun á því, sem þeir
telja virðingarleysi fyrir mann-
réttindum I Chile.
Gert er ráð fyrir því, að sendi-
herrar fleiri rikja I Santiago neiti
að taka þátt I hátíðarhöldunum.
r
Ovæntur
gestur í
Elyseehöll
París, 11. september. AP.
MAÐUR nokkur klifraði inn i
Elysee-höll, ætlaði að hitta
Valery Giscard d’Estaing forseta
en fann hann ekki, fékk sér mat
úr fsskáp og sofnaði 1 sófa að þvf
er skýrt var frá f dag.
Hann kvaðst heita I’Henureux
og þar sem franski herinn skuld-
aði honum peninga ætlaði hann
að ræða málið við forsetann.
Atburðurinn gerðist á laugar-
dagskvöld. Þegar þjónn fann
hann sofandi á sunnudagsmorgun
og tilkynnti það Iffvörðum forset-
ans neituðu þeir að trúa honum.
Maðurinn gekk um nokkur
herbergi 1 höllinni án þess að
rekast á nokkurn. Þegar verðirnir
komu að sækja hann var hann að
bursta skó sfna f nálægu
baðherbergi.
Embættismenn segja að
atburðurinn sýni, að forsetinn
hafi staðið við það loforð sitt að
fækka starfsliði forsetahallar-
innar.
við hryggbrjótum
engan,meÖ því að mæla með
EPI er bandarískt fyrirtæki, sérhæft í gerð hátalara,
enda stofnað af sérfræðingum nokkurra virtustu hátalara-
fyrirtækja Bandaríkjanna, þá.
EPI fjölskyldan samanstendur af 8 gerðum hátalara, sem allir
eiga það sameiginlegt að vera það besta í sínum verðflokki
eða það ódýrasta í sínum gæðaflokki
Stolt EPI er Model 100, en aðeins hátalarar í að minnsta
kosti, helmingi hærri verðflokki eru hæfir til
samanburðar, við Model 100
Síðasta afkvæmi EPI er „the Micro Tower”, MT 1. En þessi
óvenjulegi og ótrúlegi hátalari var í sumar valin
„the Best Buy” af Bandarísku Neytendasamtökunum
Þaö er vonlaust að reyna að lýsa hljómgæðum EPI með orðum
einum, eða talfræðilegum staðreyndum. Besti mælikvarðinn er
þitt eigið eyra
Gerðu þér ferð í Hljómdeild Faco, og finndu út hver raunveruleg
merking orðsins Hljómgæði er
Faco
Hjjómdeild
Láugavegi 89.