Morgunblaðið - 12.09.1974, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1974
19
ELLINGSEN
VEIÐARFÆRADEILD
FLUTT í ÁNANAUST
( MÝRARGÖTU 28)
SÍMAR 28855 — 13605
Yfir 30 bílastæði — Strætisvagn - Leið 2 á 10 mín. fresti
ÚTGERÐARVÖRUR
VERKFÆRI
VÉLAÞÉTTINGAR
VINNUFATNAÐUR
\3aQ2LL0[iJ ©.aaniiaQaaia aa
Elsta og stærsta veiðarfæraverzlun landsins
Skrifstofan Hafnarstræti 15. sími 24411
Verzlunin Hafnarstræti 15 — Verkfæri — Málningarvörur, sími 14605
Merki SDI á „Degi dýranna“.
Dagur dýranna
á sunnudag
SUNNUDAGINN 15. september
n.k. er Dagur dýranna haldinn
hátíðlegur hér á landi og er það f
annað sinn, sem það er gert.
Á þessu ári minnast íslend-
ingar ellefu hundruð ára búsetu
sinnar f landinu og því hefur
stjórn S. D. I. ákveðið, að á Degi
dýranna að þessu sinni verði
minnst veru húsdýranna okkar
hér f ellefu aldir.
í tilefni dagsins mun verða dag-
skrá í útvarpinu og munu þar
koma fram m.a. Guðmundur Jósa-
fatsson og Arni Björnsson þjóð-
háttafræðingur.
Sýning á bókum um húsdýrin á
Islandi frá því að land byggðist
verður opnuð á anddyri Lands-
bókasafnsins einhvern næstu
daga og verður nánar skýrt frá
henni þegar þar að kemur.
Merkjasala verður víðs vegar
um landið á sunnudaginn til f jár-
öflunar fyrir starfsemi Sambands
dýraverndunarfélaga Islands.
Merkið teiknaði listamaðurinn
Baltasar og táknar það dýr lofts,
láðs og lagar.
nucivsincnR
^-»22480
AUGLYSINGATEIKMISTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 sími 25810
Skrifetofa FEF
opnuð að nýju
SKRIFSTOFA Félags einstæðra
foreldra að Traðarkotssundi 6
hefur verið opnuð að nýju, eftir
sumarleyfi. Þar er opið eins og
áður, mánudaga og fimmtudaga
kl. 3—7 og aðra daga kl. 1—5 e.h.
Mjög mikil aðsókn hefur verið að
skrifstofunni þau fjögur ár, sem
hún hefur starfað, og leita þangað
félagsmenn í upplýsingaskyni og
nýir meðlimir nota tækifærið að
ganga I FEF og forvitnast um
starfsemina. Skrifstofunni stýrir
sem fyrr Jódís Jónsdóttir.
Vetrarstarf FEF er nú að
hefjast og verður árlegu félags-
bréfi dreift á næstunni og þar
verða m.a. upplýsingar um starfið
á vetri komanda. Fyrsti fundur
verður 8. október og síðan hefur
flóamarkaður verið ákveðinn 26.
október og verður leitað til félags-
manna og velvildarmanna um
framlög og gjafir á hann.
Geta má þess, að Andarunga-
kórinn, sem stofnaður var fyrir
barnaskemmtanir FEF á sl. vetri
og skipaður var börnum félags-
manna, hefur nú fengið fastan
leiðbeinanda, Guðrúnu Birnu
Hannesdóttur, tónlistarkennara,
og munu reglulegar æfingar kórs-
ins hefjast á næstunni.
Jólakort hefur FEF gefið út
fjögur undanfarin ár og verður
svo einnig nú. Að þessu sinni hafa
nokkrir þekktir listamenn gert
kortin og verður sagt frá útgáfu
þeirra síðar.
Félagatala FEF mun nú vera
um 2.900. Formaður er Jóhanna
Kristjónsdóttir, blaðamaður.
Andarungakór FEF. Myndin var tekin á barnaskemmtun félagsins f marz sl. Undirleikari er Sigurður R.
Jónsson en nú hefur Guðrún B. Hannesdóttir, tónlistarkennari, tekið að sér að þjálfa kórinn.