Morgunblaðið - 12.09.1974, Page 28
JWorgiMiWíifcifc
nuGivsmcnR
(gt1ir*22480
LESIÐ
Ua ei
^'’ÚJmiMnWí, gjj*
Oíulliunga-
takmarkaiw a yeim
*fe2=aa»a..
DnGLEGR
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1974
/ r
Oska lagfæringa 8.
stöðu verzlunar
FULLTRtJAR Verzlunarráðs Is-
lands og Félags fslenzkra stór-
kaupmanna áttu f gær viðræður
við Geir Hallgrfmsson forsætis-
ráðherra og Jóhannes Nordal
aðalbankastjóra Seðlahanka
Islands. Fundurinn var haldinn f
forsætisráðuneytinu.
Á fundinum gerðu fulltrúar
verzlunarinnar grein fyrir vax-
andi erfiðleikum, sem verzlunin
ætti nú við að stríða vegna ýmissa
efnahagsráðstafana, sem gerðar
hefðu verið að undanförnu.
Lögðu þeir fram ákveðnar óskir
um lagfæringar, einkum varðandi
25% innborgunarskyldu, sem nú
hefur verið framlengd — segir í
fréttatilkynningu frá Verziunar-
ráðinu, sem Mbl. barst í gær.
Fulltrúar verzlunarinnar á
fundinum voru: Jón Magnússon,
Kristján Þorvaldsson, Hjörtur
Hjartarson, Gfsli V. Einarsson,
Albert Guðmundsson og Þorvarð-
ur Elíasson.
Frá fundinum f forsætisráðu-
neytinu í gær, frá vinstri:
Kristján Þorvaldsson, varafor-
maður F.I.S., Jón Magnússon,
Hjörtur Hjartarson, Gfsli
V. Einarsson, formaður
Verzlunarráðsins, Geir Hall-
grfmsson, forsætisráðherra,
Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri, Albert Guðmundsson og
Þorvarður Elfasson, fram-
kvæmdastjóri Verzlunarráðs
Islands. —Ljósm.: Sv. Þorm.
mgv m 1
m "s I
Slasaðist
þegar stolin
hvellhetta
sprakk
UNGUR piltur slasaðist
nokkuð, þegar hvellhetta
sprakk f höndum hans framan
við húsið nr. 36 við Rjúpufelf f
gær.
Slysið varð um kl. 18.30 er
nokkrir piltar voru að fikta
með hvellhettur, sem þeir
höfðu stolið frá byggingaraðil-
um f Breiðholti. Fóru piltarnir
að reyna að sprengja hvell-
hetturnar og gátu þeir sprengt
eina með vasaljósarafhlöðu.
Einn piltanna hélt á hvellhett-
unni og slasaðist nokkuð. Var
hann fluttur á slysadeild
Borgarspftalans og kom f Ijós,
að hann var með sár á lærum.
Mikið kohnunnamagn finnst við
suðurströndina
Margt bendir til að kolmunninn
hrygni við djúpkantinn úti af SA-landi
— MIKIÐ AF kolmunna hefur fundizt með fram allri suðurströnd
tslands, og bendir margt til þess, að kolmunninn hrygni við djúpkant-
inn út af suð-austurströnd Islands á vorin, þvf að kolmunninn, sem nú
finnst er allur frá þvf f vor. Ef það reynist rétt, að kolmunninn hrygni
djúpt úti af SA-landi, eru miklar Ifkur á, að hægt verði að veiða mikið
af honum snemma á vorin, eða frá þvf sfðari hluta aprflmánaðar og
fram f júnf. Kæmi það sér mjög vel fyrir loðnuskipin, sem yfirleitt
hætta veiðum f aprfl.
Jakob Jakobsson fiskifræðing-
ur og leiðangursstjóri á Árna
Friðrikssyni, sem nú er í síldar-
leit, sagði í samtali við Morgun-
blaðið f gær, að þeir á Árna væru
nú búnir að kanna svæðið frá
Reykjanesi austur fyrir
Hrollaugseyjar. Á þessu svæði
hefur ekki verulega orðið vart við
síld, nema þá helzt suður af
Surtsey og við Hrollaugseyjar.
Hinsvegar hefði vfða fundizt
mikið af kolmunna. Nú væri
nauðsynlegt að finna hrygningar-
stöðvar kolmunnans, en ýmislegt
FjöIbrautarskóU
í BREIÐHOLTI
Borgarráð samþykkti á
fundi í vikunni, að komið
Ölíu-
greiðslur
LÖG UM niðurgreiðslu úr ríkis-
sjóði á olíu til húsahitunar falla
úr gildi í lok febrúarmánaðar á
næsta ári, en þau voru sett sl.
vetur. Nú er búið að greiða hús-
eigendum einu sinni, en 1 sölu-
tölustigi var varið til þessara
niðurgreiðslna, fyrir mánuðina
marz, apríl og maí. Til þessa hafði
viðskiptaráðuneytið um 180 millj.
kr., en ekki þurfti að greiða allt
það fé út. Næsta greiðsla til hús-
eigenda mun fara fram í október,
og er hún fyrir mánuðina maí,
júní og júlí, og þá munu greiðsl-
urnar að líkindum vera heldur
hærri.
skyldi uppp fjölbrautar-
skóla í Breiðholti og er gert
ráð fyrir að hann taki til
starfa árið 1975. Þá má
búast við, að 500—600
nemendur leggi stund á
nám við skólann, en fjöl-
brautarskólinn hefst við 3.
bekk gagnfræðaskólastigs.
Kristján J. Gunnarsson fræðslu-
stjóri sagði í gær, að skólinn yrði
byggður í áföngum og enn væri
ekki vitað, hvenær búið yrði að
byggja skólann. Næsta stóra
skólamannvirkið í Breiðholti er
sundlaugin, sem byggð verður við
hlið íþróttavallarins við Fella-
skóla. Verður byggð úti- og inni-
sundlaug, og er hún bæði ætluð til
almenningsnota og kennslu. Búið
er að bjóða byggingu sundlaugar-
innar út, en ekki er talið, að hún
verði tilbúin fyrr en 1976 — 1977
til almenningsnota.
bendir til, að hann hrygni við
suðaustur-djúpkantinn. Kol-
munninn, sem nú finnst, er um 15
sm iangur og hefur klakizt út í
vor. Hann vex mjög hratt fyrsta
árið, en sfðan dregur úr vext-
inum.
Þá sagði Jakob, að hingað til
hefði verið talið, að aðal-
hrygningarstöðvar kolmunnans
væri djúpt vestur af Irlandi, og
væri það sennilega rétt, en flest (
benti til, að hrygningarstöðvar
væru enn fremur við Island, og
það ekkert litlar, því að það magn,
sem fundizt hefði, væri mikið,
þannig að um velheppnaðan ár-
gang væri að ræða.
Jakob sagði, að á Surtseyjar-
svæðinu hefði fundizt nokkuð af
síld, en erfitt væri að átta sig á,
hve mikið, því að sfldin hefði
blandað sér saman við kolmunna
og spærling á daginn. Á rekneta-
svæðinu við Hrollaugseyjar virt-
ist magnið heldur ekki vera mjög
mikið, og var síldin dreifð þar.
Síldin, sem þar er, er 3 ára gömul,
26—28 sm löng, en sá árgangur
mun hrygna á næsta ári, og er
hann talinn beztur þeirra ár-
ganga, sem komið hafa hin síðari
ár. Ef nótaveiðar hefðu nú verið
leyfðar, er hætt við, að stuttan
tíma hefði tekið að þurrka þetta
upp.
Annars sagði Jakob, að síldin á
Hrollaugseyjasvæðinu væri ekki
eins mikil og f nóvember í fyrra,
þegar svæðið var rannsakað. En
talið er, að síldin sé enn mjög
dreifð og þétti sig ekki mikið fyrr
en líða tekur á haustið.
Þegar við ræddum við Jakob í
gær, var Arni Friðriksson á vest-
urleið, og var ætlunin að kanna
Kolluál, Jökuldjúp og Faxaflóa,
en heyrzt hefur, að síld sé að
finna í Kolluál.
SP JOLL UNNIN A
BEITARTILRAUN
Þegar dr. Benet, sérfræð-
ingur frá Sameinuðu þjóðun-
um um beitarrannsóknir, kom
að tilraunasvæðinu, sem Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins
hafði girt og tekið út hjá Sölv-
holti f Flóa, höfðu hliðin verið
opnuð, hluti af girðingu rifinn
niður og búið að reka hross og
sauðfé inn f tilraunagirðing-
una.
Þetta er fyrsta tilraunasvæð-
ið, sem var tilbúið, af þeim 11
svæðum, sem verið er að ganga
frá vegna fimm ára beitarþols-
rannsókna f sambandi við
þjóðargjöfina svonefndu, upp-
græðslu- og landnýtingar-
áætlunina. Var búið að girða og
mæla gróður f girðingunni, en
tilraunaféð átti svo að fara f
hana f vor. Er nú búið að vinna
þessari tilraun þarna mikið
tjón, og Ifklega eyðileggja
a.m.k. eitt hólfið.
Tjón í Bátalóni
ekki tilfinnanlegt
TJÓN í skipasmfðastöðinni Báta-
lóni var minna en á horfðist f
brunanum f fyrrakvöld. Þor-
bergur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri stöðvarinnar sagði f gær-
kvöldi, að engar skemmdir hefðu
orðið á bátum, sem f smfðum
voru, og starfsemi stöðvarinnar
mundi lftið sem ekkert tef jast.
Hann sagði, að mesti eldurinn
hefði verið í norðvestur hlið húss-
ins, en einnig hefði brunnið hluti
af þakskeggi og þakinu. Húsið,
sem er stálgrindarhús, klætt með
járni, er einangrað með texi og
tréflekum.
Spilin ónýt í pólsku togurunum
og lestarnar í Spánartogurunum
Hrakfallasögu nýju skut-
togaranna virðist aldrei ætla að
Ijúka, þvf að komið hefur f Ijós,
að spilin f svo til öllum pólsku
skuttogurunum eru ónýt og
lestarnar f stærri togurunum,
sem voru smfðaðir á Spáni, eru
ónýtar.
Tveir pólsku togaranna, Ver og
Hrönn, hafa legið undanfarið í
Reykjavík, vegna viðgerða á aðal-
spilum skipanna. Ver er nú að'
fara til veiða, en í hans stað er
Engey komin til Reykjavíkur með
spilið f lamasessi. Komið hefur
fram, að spilin, sem eru pólsk eru
vansmíðuð, eins og t.d. spilgírinn.
Ekki er enn vitað, hvenær viðgerð
lýkur á spilinu í Hrönn, og enn
síður í Engey. Tveir pólsku tog-
aranna, Vigri og Ögri, eru ekki
með pólsk spil, og hafa spilin I
þeim reynzt mjög vel. Hinsvegar
bilaði aðalgír Vigra fljótlega, en
hann var smiðaður í Póllandi, og
hefur hann legið í Þýzkalandi um
langt skeið, þar sem unnið er að
viðgerð gírsins. Flestir héldu í
sumar, að tekizt hefði að komast
fyrir alla vankanta á stóru skut-
togurunum, sem smíðaðir eru á
Spáni, en sú hefur ekki orðið
raunin, þvf komið hefur í Ijós, að
lestar togaranna eru með öllu
ónýtar, og er nú verið að endur-
nýja þær sem óðast, eða er þegar
búið. Hafnarfjarðartogarinn Júni
er nú í Þýzkalandi, þar sem unnið
er að viðgerð á Iest skipsins. Þá er
búið að skipta um allan lestarút-
búnað f Snorra Sturlusyni og
Ingólfi Arnarsyni, en ekki er
vitað, hvernig lestin í Bjarna
Benediktssyni reynist.