Morgunblaðið - 27.09.1974, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1974 17
HARÐNANDI afstaða Banda-
rfkjamanna gagnvart olfurfkj-
unum hefur leitt til þess, að
bollalagt er hvort til átaka geti
komið f heiminum um olfuna.
James Schiesinger, landvarna-
ráðherra Bandarfkjanna, hefur
reynt að eyða þessu tali með
yfirlýsingu þess efnis, að
hernaðaraðgerðir séu ekki ráð-
gerðar til þess að tryggja
óhindraða olfuflutninga og
koma f veg fyrir hækkanir á
olfuverðinu, en bollalegging-
arnar halda áfram.
Jafnframt er gert ráð fyrir að
á fundi utanríkis- og fjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, Vest-
ur-Þýzkalands, Bretlands,
Japans og Frakklands í Camp
David um næstu helgi verði
ákveðið að grfpa til sameigin-
legra aðgerða til þess að mæta
hættunni á hækkandi olíuverði.
Bandarískir embættismenn
segja, að engin ákvörðun verði
tekin á fundinum, en um það er
rætt, að koma verði á fót ein-
hvers konar samtökum olíuinn-
flutingsríkja til þess að kljást
við samtök olíuframleiðslu-
ríkja, OPEC.
Ósveigjanleg afstaða Banda-
ríkjastjórnar hefur komið fram
í ýmsum yfirlýsingum undan-
fama daga. Ein síðasta yfirlýs-
ingin kom frá Nelson Rocke-
feller á miðvikudaginn, þegar
hann sagði, að það væri „nánast
ógerningur að leysa verðbólgu-
vandann í Bandarikjunum og
rétta við greiðsluhallann ef
Arabar héldu áfram að hækka
olíuverðið". Jafnframt hefur
afstaða þingmanna harðnað.
Frank Church öldungadeildar-
þingmaður leggur til, að Banda-
ríkjamenn hætti allri aðstoð við
olfuframleiðslulönd, sem neita
að lækka olíuna.
Ford forseti og Kissinger
utanríkisráðherra sögðu báðir á
mánudaginn, að áframhaldandi
hækkun olíuverðsins fæli f sér
hættu á heimskreppu og gæti
lamað allt skipulag alþjóðasam-
starfs. Upphaflega mótaði Ford
hina harðnandi stefnu í ræðu
þeirri, sem hann hélt f Alls-
herjarþinginu í síðustu viku,
þegar hann varaði við því, að
hægt væri að nota matvæli sem
vopn gegn þeim, sem notuðu
olíuna fyrir vopn. Bæði Ford og
Kissinger, sem talaði einnig á
Allsherjarþinginu, hvöttu til
alþjóðasamstarfs til þess að
leysa orkukreppuna og koma á
fót nýju verðlagskerfi, sem allir
gætu sætt sig við.
Þessar yfirlýsingar bera þess
vitni, að bandarískir ráðamenn
séu að komast að þeirri niður-
stöðu, að helztu iðnaðarríki
heims verði að sýna hörku ef
þau eigi að komast hjá veruleg-
um skakkaföllum f efnahags-
málum. Stefnubreytingin sést á
því, að fyrir aðeins nokkrum
mánuðum lagði Kissinger á það
mikla áherzlu, að forðazt bæri
að gefa nokkrar yfirlýsingar,
sem gætu reitt olíuframleiðend-
ur til reiði. Aðalvandinn virðist
hins vegar sá að samræma hina
harðnandi afstöðu tilraunun-
um, sem eru gerðar til þess að
koma á friði í Miðausturlönd-
um.
Viðbrögð Araba hafa verið á
þá lund, að ræður Fords og
Kissingers jafngildi ógnun við
fullveldi þeirra. Fyrirsögn í
blaðinu „Beirut" var talin
dæmigerð: „Ford hótar að taka
olíu Araba með valdi.“ Dálka-
• höfundur blaðsins „An Nahar"
sakaði Bandaríkjamenn um að
beita fjárkúgunaraðferðum og
sagði, að Arabar hefðu aðeins
um tvennt að velja, að gefast
upp eða halda áfram að hækka
olíuna og taka afleiðingunum.
En svar olíuframleiðsluland-
anna við ræðum Fords og Kiss-
ingers hefur verið krafa um, að
Bandaríkin og önnur iðnaðar-
rfki lækki verð á útflutningi
sfnum.
Samtök olíuframleiðsluríkja,
OPEC, hafa áður varað vestræn
ríki við því að setja á fót samtök
olíunotendaríkja eins og talið
er að rætt verði um á fundinum
i Camp David um helgina, og
hótað alls konar hefndarráð-
stöfunum ef hugmyndinni
verði hrundið í framkvæmd. En
á það er bent, að ásadandið f
olíumálunum sé þegar orðið svo
slæmt, að það geti varla versn-
að, og Kissinger virðist hafa
ákveðið að einbeita sér að lausn
þessara mála. Hann telur efna-
hagserfiðleika Vesturlanda al-
varlega ógnun við stjórnmála-
jafnvægi þeirra og óviðunandi,
að örfá olíurfki tryggi sér gffur-
legt vald til þess að lama hag-
kerfi háþróuðustu ríkja heims-
ins. Kissinger virðist staðráð-
inn í að sjá til þess, að Banda-
rfkjamenn taki í sínar hendur
skelegga forystu í efnahagsmál-
um Vesturlanda.
Að vfsu reyndi Kissinger að
leysa orkumálin með ráðstefnu
þeirri, sem hann efndi til f
Washington í febrúar og sú til-
raun fór út um þúfur, aðallega
vegna afstöðu Frakka, sem
lögðust gegn tilraunum til þess
að móta sameiginlega afstöðu
gegn olíuríkjunum. En sfðan
hefur aukizt skilningur á af-
leiðingum samtakaleysis,
áhrifavalds olíuframleiðslu-
landanna, hráefnaskorts og
olíuverðhækkana í öllum iðnað-
arlöndum. Kissinger telur, að
eina lausnin séu sameiginlegar
varnir í efnahagsmálum og
hann virðist reiðubúinn til þess
að veita þá forystu, sem þarf.
Mikið getur oltið á afstöðu
Frakka, og hækkandi olíuverð
hefur raunar komið hvað harð-
ast niður á þeim. Þeir hafa
ákveðið hámarksinnflutning á
olíu fyrstir vestrænna þjóða og
gert áætlanir um orkuskömmt-
un í verksmiðjum og á heimil-
um. Nýir menn eru við stjórn-
völinn, en Jean Sauvanargues
utanríkisráðherra hefur ítrek-
að þá skððun stjórnar sinnar,
að deilumálin verði aðeins leyst
með samningum og samvinnu.
Annars óttast hann, að komið
geti til efnahagsstríðs.
Svipaður ótti um efnahags-
strfð hefur komið fram á fundi
fjármálaráðherra samveldis-
landanna í Ottawa, og í Vestur-
Evrópu. Þessi ótti getur sett
svip sinn á viðræðurnar f Camp
David. Ljóst er, að vestur-þýzku
stjórninni og fleiri ríkisstjórn-
um í Vestur-Evrópu hefur
gramizt, að ekkert samráð var
haft við þær áöur en Ford og
Kissingar mótuðu hina nýju og
hörðu afstöðu Bandaríkja-
stjórnar. Frakkar munu senni-
lega túlka sjónarmið Araba á
fundinum þótt fulltrúi Frakka
á orkumálaráðstefnu, sem nú
er haldin í Detroit, hafi lýst
þeirri skoðun sinni, að Frakkar
muni taka þátt f samstarfi með
öðrum þjóðum um „áþreifan-
legar aðgerðir til þess að lækka
olíuverðið". Viðræðurnar í
Camp David geta reynzt erfiðar
þótt meiri vilji sér til samkomu-
lags um aðgerðir en á orkuráð-
stefnunni f febrúar. Þær geta
sýnt hvort samstaða er um
varnir í efnahagsmálum Vest-
urlanda og hvort slíkar varnar-
aðgerðir muni leiða til efna-
hagsstrfðs.
Flóðin f Norður-Honduras skoluðu þessu húsi f heilu Iagi upp á brú þessa f Aguan-dalnum.
Deilur um
tölu látinna
Tegucígalpa, Honduras
26. september — Reuter.
ALÞJÓÐLEGA hjálparstarfið á
flóðasvæðunum f Norður-
Honduras gekk betur f dag, en
rfkisstjórn landsins gaf upp
hærri dánartölu enn einu sinni í
andstöðu við áætlanir banda-
rfskra sérfræðinga. Cesar Batres,
utanrfkisráðherra Honduras,
sagði á allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna f dag, að 10.000
manns hefðu farizt f flóðunum,
sem fellibylurinn Fifi kom af
stað, en það eru a.m.k. 1000 fleiri
en hjálparstarfsstjórnin hafði
áætlað. Yfirmaður hjálparstarfs
Bandarfkjanna á þessu svæði
sagði f gær, að hann hefði ekki
staðfestar fréttir af meira mann-
tjóni en 1000, og um 10.000
manns, sem þörf hefðu fyrir
hjálp.
Þessar tölur hans eru að mestu
f samræmi við ágizkanir annarra
erlendra manna á staðnum.
En ljóst er, að flóttamennirnir,
sem nú eru flestir I sérstökum
búðum, eru alvarlega þurfandi
fyrir mat og lyf, og kom sulturinn
berlega f ljós f gær, þegar kalla
þurfti út herinn til þess að koma f
veg fyrir, að múgurinn brytist inn
í járnbrautarvagna fulla af ban-
önum f borginni Ceiba.
Andreas Papandreou:
Kosningar bjóða
Konstantín heim
Aþenu 26. september
—Reuter.
ANDREAS Papandreou,
leiðtogi griskra sósíalista,
sagði í dag, að nýjar kosn-
ingar, sem búizt er við að
verði i nóvember, kynnu að
vera gildra til þess að koma
Konstantín konungi aftur
til valda. Papandreou, sem
nú er leiðtogi Samhell-
ensku sósíalistahreyfingar-
innar, sagði á blaðamanna-
fundi, að ríkisstjórn með
meirihluta að loknum
kosningum gæti boðið
Konstantín að snúa aftur
til konungdóms. „Ekkert
gæti bannað þeim að gera
slíkt,“ sagði Papandreou.
Bömum Kennedys hótað
Quincy, Massachusetts
26. september — Reuter.
BLAÐAFULLTRUl Edwards
Kennedy hefur skýrt frá þvf, að
daginn áður en Kennedy til-
kynnti, að hann ætlaði ekki að
bjóða sig fram til forsetakjörs
árið 1976, hefðu honum borizt
hótanir gagnvart börnum hans.
Hann neitaði þó, að hótanirnar
hefðu átt nokkurn þátt f ákvörðun
Kennedys.
Alrfkislögreglunni, FBI, vartil-
kynnt um hótanirnar, en
Kennedy safnaði f jölskyldunni
saman á heimili hennar f
Hyannisport f Massachusetts.
Heimildir segja, að hótanirnar
hafi komið frá samtökum öfga-
manna til vinstri.
Daginn eftir tilkynnti
Kennedy, að hann mymji ekki
bjóða sig fram 1976 vegna
skyldna sinna gagnvart fjöl-
skyldu sinni. Sagði hann þá
ákvörðun endanlega.