Tíminn - 16.06.1965, Qupperneq 2
2
TÍMINN
MIÐVTKUDAGUR 16. júní 1965
Þriðjudagur, 15. júní
NTB Santo Domimgo.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að 17 uppreisnar
hermenn hafi fallið í hörðum
bardögum við herlið Suður-
Ameríkuríkja í Santo Domingo
í dag.
NTB-London.
Wilson forsætisráðherra
Breta sagði í útvarpsviðtali í
kvöld, að vopnahlé myndi auð
velda samkomu friðarráðstefnu
um máleftni Vietnam, en að
sjálfsögðu væri skilyrði, að
báðir aðilar vlrtu vopnahléð.
NTB-Washington.
Haft var eftir Johnson,
Bandaríkjaforseta í dag, að
ekki væri útilokað að hlé yrði
gert á loftárásum á Norður-
Vietnam, en hins vegar yrði
ekki skýrt frá því fyrirfram
ef tU slíks hlés kæmi.
NTB-Dong Xoai.
Mikil spenna ríkti í dag í
bænum Dong Xoai í S-Víetnam
í dag, þar sem bandarískir og
suður-víetnamiskir hermenn
biðu þess albúnir að mæta
nýríi árás frá Vietcong-mönn
um.
Fyrir nokkrum dögum
gerðu skæruUðar harða árás
á bæinii og oUu dauða og eyði
leggingu, en hurfu síðan á
ný inn í frumskóginn. Að því
er fregnir herma eru um 8000
skæruliðar í leyni í frumskóg
unum kringum bæinn og hefur
því mikill liðsstyrkur af hálfu
stjórnarinar verið fluttur til
bæjarins.
NTB-Beriín.
Austur-þýzkir landamæra-
verðir skutu í dag til bana 43
ára gamlan kaupmann, Her-
mann Doebler að nafni og
særðu lífshættulega rúmlega
tvítugan mann, en þeir voru
báðir á litlum báti með utan
borðsmótor á Tewtow-skurðin
um í Berlín, scm liggur á mörk
um borgarhlutanna. Atburður
imn átti sér stað örskammt frá'
Reilinden-varðstöðinni, sem er
á vestur-þýzku landssvæði.
NTB-Columbus.
18 bandarískir hermenn
týndu í dag lífi, er tvær þyrl
ur á æfingaflugi rákust á og
féllu til jarðar nálægt Colum-
bus í Georgíu-fylki. Slysið varð
aðeins þrjá km. frá flugvellin
um, sem þeir höfðu lagt uipp
frá.
NTB-Passau.
Ástamdið versnaði enn á
flóðasvæðunum í Ungverja-
landi og Júgóslavíu, því að
Dóná vex stöðugt og er vatns
hæðin nú komin 5 metra fram
yfir það, sem venjulegt er.
Mikil hætta er á, að flóð-
garðar bresti víða í þessum
um löndum en þegar er orðið
mikið tjón í öllum löndumum
sjö, sem Dóná rennur um. í
Bayern hafa farizt 8 menn og
tjón er metið á meira en 3
milljarða íslenzkra króna.
Kópavogskaupstað
Eins og undanfarln ár verða há
tiðahöld í Kópavogskaupstað.
Hátíðin hefst kl. 13:30 víð Félags-
heimilið. Þaðan verður gengið í
Hlíðargarð. Lúðrasveit Kópavogs
leikur fyrir göngunni. í Hlíðar-
garði verður margt til skemmtun-
ar, m.a. glímusýning, söngur, leik
þættir og fleira. Sveinn S. Einars-
son, verkfræðingur, heldur ræðu,
Finnborg Ömólfsdóttir fljrtur ljóð
Fjallkonunnar. Ráðgert er að úti
samkomunni ljúki í Hlíðargarði
klukkan 16. Um kvöldið hefst há
tíðin aftur við Félagsheimilið kl.
20.30. Þar flytja gamanþátt Klem-
enz Jónsson, Ámi Tryggvason og
Bessi Bjamason. Ríó-tríó úr Kópa
vogi syngur þjóðlög og fleira. Síð
an verður dansað úti og ini til kl.
1. Sóló og Mónó leika.
Ætlaði að skjóta kanínu
hitti læri lögreglumanns
BÞG—Reykjavík, þriðjudag.
Það slys henti lögreglumann
í Hafnarfirði laust eftir id. 4
í dag, að hann varð fyrir skoti
úr byssu starfsbróður síns, er
ætlaði að aflífa kanínu inn við
öskuhauga Hafnarfjarðar.
Nánari tildrög að þessari
miklu slysni vom þau, að um
miðjan dag var komið með
sjúka kanínu til lögreglunnar í
Hafnarfirði, og hún beðin að
aflífa dýrið.
Höfuð kanínunnar var allt út
gt-áfið, og fltittli tveif lögfeglti
meiih iiaha í kássa ihh á öskú
hahga, þar sem aftakán skyldi
fara fram. Erfitt var að hafa
henduf á dýrinu, sem er smátt
og kvikt, og áttu lögreglumenn-
irnir í brösum við að koma
skoti á það. Krupu þeir við
verk sitt, og svo slysalega vildi
til, að þegar annar lögreglu-
mannanna hleypti af, hljóp
skotið í læri félaga hans. Var
þegar haft samband við lög-
regluvarðstofuna gegnum tal-
Stiið Iögfégiitbllsiris, sem þeir
félágár VöfU á, dg vár hinn
slasaéi maður þegar fluttur i
Slysavarðstofuna. Að lokinni
skoðun var lögreglumaðurinn
fluttur á Landakotsspítala, þar
sem sennilega hefur verið gerð
aðgerð á honum til að ná kúl-
unni út. Að því, er lögreglan í
Hafnarfirði skýrði frá í kvöld,
mun skotið ekki hafa gengið
inn að beini, en nánari fregnir
voru þá ekki komnar af líðan
mannsins.
Myndin hér aS ofan er frá skólaslitum lærdómsdeildar Verzlunarskóla fslands og sjást nýstúdentar setja upp hvítu húfurnar. (Ljósm.: Tímlnn-GE)
24 NYSTUDENTA R FRA V.I.
BÞG^-Reykjavik, þriðjudág.
Lærdómsdeild Verzlunarskóla
íslands var slitið í dag við hátíð-
lega athöfn. Skólastjóri, dr. Jón
Gíslason, flutti skýrslu skólans og
Síldarfréttir þriðjudaginn 15. júní
Gott veður var á síldarmiðunum
s. I. sólarhring og voru skipin eink
um að veiðum um 240 mílur ANA
af Rauðunúpum.
Lóðað var á nokkra síld í Norð
fjarðardýpi og utarlega í Seyðis-
fjarðardýpi, en síldin stóð djúpt
og fékkst engin veiði.
Á s. 1. sólarhring tilkynntu 36
skip um afla, samtals 44.600 mál.
Raufarliöfn
Áskell ÞH 550, ÓI. Friðbertsson ÍS
1000, Helga RE 1600, Bjarmí EA
750 Guðm. Péturs ÍS 1700 Auðunn
GK 1400, Gullver NS 1550, Súlan
EA 1650, Fagriklettur GK 1500,
Gullberg NS 1200 Hugrún ÍS 1350,
Halkion VE 1800, Straumnes ÍS
600, Faxi GK 1300, Viðey RE 1550.
Elliði GK 1000, Sig. Bjarnason EA
1650, Guðrún Jónsdóttir ÍS 1000,
Gjafar VE 1000 Helgi Flóvents-
son ÞH 1700, Heimir SU 1400,
Helga Guðmundsd. BA 1500, Svein
björn Jakobsson SH 1000, Ásþór
RE 1300, Mímir ÍS 600, Keflvík
ingur KE 1450 Akurey RE 1600,
Höfrungur III AK 2200 Ární
Magnússon GK 1250
Dalatawgi.
Skarðsvík SH 1100, Ágúst Guð-
mundsson GK 400, Gunnhildur ÍS
550, Sig. Jónsson SU 1200 Björg
NK 1200, Jón á Stapa SH 1100,
Þráinn NK 850.
ávarpaði nýstúdenta, sem voru 24
að þessu sinni.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Arndís Björnsdóttir, ágætis-
einkunn, 7.51, og er hún jafnframt
hundraðasta stúlkan, sem braut-
skráð er frá skólanum.
f 5. bekk skólans voru 27 nem-
endur, og varð Elín Jónsdóttir efst
á prófinu, hlaut ágætiseinkunn,
7.51. Stúdentspróf þreyttu 24 nem
endur, og hlaut einn ágætis eink-
unn, eins og áður segir, 12 fyrstu
einkunn og 11 aðra einkunn.
Liðin eru 20 ár síðan fyrstu stúd-
entarnir voru útskrifaðir frá skól
anum, og af því tilefni afhentu 20
ára stúdentar s’kólanum að gjöf
málverk af Vilhjálmi Þ. Gíslasyni,
núverandi útvarpsstjóra, sem þá
var skólastjóri Verzlunarskólans.
Orð fyrir 20 ára stúdentum hafði
Valgarð Briem, lögfræðingur, en
Vilhjálmur Þ. Gíslason flutti þakk
arávarp. Málverkið gerði Sigurður
Sigurðsson, listmálari. Af hálfu 10
ára stúdenta talaði Árni Grétar
Finnsson, lögfræðigur.
Skólastjóri þakkaði gjafirnar og
góðar óskir í skólans garð, og lauk
athöfninni með því, að sunginn var
Verzlunarskólasöngurinn.
HATIÐAH0LDIN I MOSFELSHREPPI
Sú nýbreytní var tekin upp á
Þjóðhátíðardaginn í fyrra, að efna
til úti’hátíðarhalda við Varmár-
skóla í Mosfellshreppi og voru
saman ofin vígsla sundlaugar og
þjóðhátíð.
Með þessa góðu reynslu að
bakhjarli, sem af þessari sam-
komu fékkst, hvað snertir fjöl-
menni úr sveitinni og nágranna- í
sveitum og vel beppnuð dagskrár \
atriði, hefur \ ióðhátíðarnefnd
Mosfellshrepps akveðið að halda
hátíðarsamkomu nú 17. júní.
Dagskrá hennar verður í höfuð
atriðum sem hér segir: Safnazt
verður saman við vegamót Reykja
lundar hjá Meltúni kl. 13.20; og,
lagt af stað í skrúðgöngu með
lúðrasveit drengja í fararbroddi
undir stjórn Birgis Sveinssonar
kennara kl. 13.30 Gengið verður
að Varmárskóla. Þar mun sveitar
stjórí Mattlrias Sveinsson setja
samkomuna. Síðan hefst guðsþjón
usta, sr. Bjarni Sigurðsson. prédik
ar, kirkjukór Lágafellssóknar syng
ur organisti Hjalti Þórðarson. Að
þessu loknu flytur Tómas Stur-
laugsson kennari minni dagsins.
Með hlutverk Fjallkonunnar fer
frú Salome Þorkelsdóttir. Karla-
kór Kjósverja mun syngja undir
stjórn Odds Andréssonar.
Kaffi verður fram borlð eftir
ávarp Fjallkonunnar og verður þá
gert hlé á hátíðarhöldunum á með
an. Kaffiveitingarnar verða í Hlé
garði og verða leikin létt Iög með
an setið er undir borðum.
Kl. 4 hefst svo keppni í sundi
og frjálsum íþróttum. Einnig verð
ur keppt í jafnvægisgöngu kvenna
á planka yflr laugina. Að lokum
verður sérstakur skemmtiþáttur
sérstaklega ætlaður yngstu kyn
slóðinni fluttur af þjóðkunnum
leikurum. Ýmislegt fleira verður
til skemmtunar.
Kl. 9 um^kvöldið verður efnt til
skemmtunar í Hlégarði með
skemmtikröftum og dansi.
Þjóðhátíðarnefnd Mosfellshrepps
vill beína þeim tilmælum til Kjós
verja Kjalnesinga og Þingvalla-
hreppsbúa. velunnara Mosfells-
hrepps, og gamalla sveitunga sem
eru fluttir burt að þeir sjái sér
fært að fjölmenna til þessara há-
tíðarhalda, svo þau megi verða
hin ánægjulegustu.
Þjóðhátíðarnefnd Mosfellshrepps.
DÚX
Framhald af 16. siðu.
að fara tíl Ítalíu og læra
ítölsku, og ætti þá latínan að
koma að góðu haldi. En fyrst
er ég að hugsa um að vera eitt
ár í París og læra frönsku.
— Um hvaða verðlaun finnst
þær vænzt?
—Ætli það sé' ekki Gull-
penninn (en hann er veittur
fyrir beztan árangur í íslenzku
skriflegri) og þar næst latínu
verðlaunin. Þetta eru mínar eft
irlætisgrelnar.
— Og það þarf auðvitað ekki
að spyrja að því, að biðlamir
elta þig á röndum eða ertu ef
til vill trúlofuð?
— Nei, guð hjálpi þér, ég
hef ekki nokkurn tíma til
slíks, ég á svo mikíð eftir að
stúdera.
Og að svo mæltu hvarf Borg-
hildur í hóp svartklæddra sam
stúdenta sinna og andvarpaði
yfir fávíslegum spumingum
blaðamanns.
Borghildur er dóttir Einars
Braga Sigurðssonar skálds og
Kristínar Jónsdóttur, Bjarnar-
stíg 4, Reykjavík.
Framherji, félag
,aunbega
Ákveðið er að fara í skemmtiferð
á vegum félagsins helgina 2,—A.
júlí. Farið verður um Fjallabaks
leið Þeir félagar, sem áhuga hafa
á ferðinni, eru beðnir u.ti að
hafa samband við Daða Ólafsson,
síma 37073, eftir kl. 20. á kvöld
in fyrir 15. júní n. k. Stjórnin.