Tíminn - 16.06.1965, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 16. júní 1965
TÍMINN
11
HÆTTULEGIR
vm
s
k
Axel Kielland
38
um. Hann leit upp þegar við kom
um og kinkaði kolli stuttlega.
Þetta var granhvaxinn eldri
maður, nauðrakaður með grátt
hár, skörp en þreytuleg augu und-
ir miklum augabrúnum. Hann var
fagur eins og myndastytta og and
litsdrættirnir sérstæðir. Hann
reykti sígarettu í löngu munn-
stykki og þegar hann talaði til
okkar var röddin kurteisleg allt
að því vingjarnleg og hann talaði
ágæta þýzku.
— Hafið þér verið tengdur
Gestapo félagsskapnum?
Spurningunni var beint til
Gösta, sem hristi ákafur höfuðið.
— Fjarri fer því. Ég er sænsk-
ur.
— í fórum yðar fannst Gestapo
merki og þér voruð ásamt hers-
höfðingjanum v. Hannecke í vagni
hans.
Það lá í augum uppi, að von-
laust var að reyna að útskýra mál-
ið, en Gösta stóð sig með prýði
og talaði lengi og sannfærandi.
Maðurinn hlustaði þolinmóður a
hann, en þegar Gösta tók sér
málhvíld benti hann á mig með
sígarettunni og sagði:
— Og þér haldið því sem sagt
fram að þér séuð amerísk?
— Já. Ég heiti Ann Dickson.
Hann brosti og strauk sér
þreytulega yfir ennið.
— Þetta verður býsna ótrúlegt,
sagði hann blíðlega. — Þér segist
vera amerísk, en í passanum yðar
stendur, að þér séuð sænskar
— Sænsk gift, sagði ég.
— Enn fremur stendur að þér
séuð fædd í Sviss . ..
Jahá, það var og! Það var eins
gott að gefast upp við að reyna
að sannfæra manninn og ég við-
urkenndi fúslega að hefði ég verið
í hans sporum hefði ég hreint ekki
gleypt við sögu okkar. Ég baðaði
út höndum og á neyðarstundu fór
ég ósjálfrátt að tala móðurmál
mitt og hrópaði:
— Hafið' þér alls engan amer-
íkumann hérna, sem ég gæti tal-
að við?
Og þá'var það, að hið ótrúleg-
asta gerðist. Úti í horni færðist
líí i teppahrúgu og hrokkið höf-
uð stakk upp kollinum og syfjuleg
rödd sagði:
— Helló, Baby! Var einhver að
kalla á mig?
Hann skreiddist á fætur og
hann var óskaplega langur og
jórtraði tyggigúmmi á heimilisleg-
an hátt.
— OH, BOY, sagði ég. — Er
það virkilega satt?
Hann kom nær mér horfði betur
á mig, svo rétti hann fram hönd-
ina:
— Ég heiti Wilkins, sagði hann.
— Hiriam Wilkins. Allir kalla mig
Buddy.
— Halló, Buddy, sagði ég. — Ég
sit laglega í því og þigg með
þökkum hjálparhönd.
— Um hvað snúast málin?
— Þeir halda, að ég sé þýzk
og tilheyri Gestapo.
Hörkusvipur kom á andlit hans
og hann leit hvasst á mig.
— Og er það rétt?
—;Ég held nú ekki, sagði ég.
— Ég heiti Ann Dickson, blaða-
Tcona við St. Louis Bulletin.
— St Louis? sagði hann. Var
það St. Louis, eða hvað?
— Einmitt.
— St. Louis Bulletin? — Ein-
mitt.
— Voruð þér þar til dæmis ár-
ið 1939?
— Já.
— Þekktuð auðvitað alla blaða-
mennina?
— Auðvitað.
— Látum okkur sjá . . . það
var Tim Nelson, sem var glæpa-
fréttaritari það árið . .
— Vitleysa, sagði ég. — Það
hefur aldrei verið annar glæpa-
fréttaritari en Ray Milligan.
— Jahá, hann með rauða hárið.
— Aftur vitleysa, Buddy. Ray
hefur verið sköllóttur síðan ég
man eftir mér.
— Rétt, sagði Buddy og leit nú
ólíkt hlýlegar á mig. — Var hann
ekki slæmur að lenda á því þegar
þér þekktuð hann?
— Ray lenti aldrei á því. — En
hann kom á krámar til að snapa
saman fréttirnar.
— Rétt, sagði hann aftur.
E mm
£fT3 T5if5??!
Hátíðahöldin hefjast með skrúðgöngu frá Félagsheimilinu kl. 130.
Skemmtunin sett í Hlíðargarði kl. 2.
Fjallkonan flytur ávarp.
Ræða. Glímusýning.
Skátar skemmta. Gamanþáttur.
Almennur söngur. Lúðrasveit Kópavogs leikur milli atriða.
1 >m kvöldið við Félagsheimilið kl. 830:
Gamanbáttur: Árni Trvggvason, Bessi BjamasonogKleimw M
rtnecAH
f f r r
RIO-TRIO úr Kópavogi leikur og svngnr bióðlög.
Oans úti og inni.
átíðinni slitið kl. 1 e. m.
EYJAFLUG
með HELGAFELLI NJÓTia ÞÉR
ÚTSÝNIS, FLJÓTRA
OG ÁNÆGJULEGRA FLUGFERpA.
AFGREIÐSLURNAR
OPNAR ALLA DAGA.
*-'A7ÁXZS/G'
SÍMAR: ___
VESTMANNAEYJUM 1202
REYKJAVÍKURFLUGVELLI 22120
SVEIT
Duglegur 11 ára drengur óskar
eftir að komast á gott sveita-
heimili. —
Upplýsingar í símum 2-49-74
og 4-02-05.
HREINLÆTI
Salernisskálar eru alltaf
hreinar - ef HARPIC er not-
að daglega.
<ivS
SGTTHREINSANDI
HARPIC sótt-
hrexnsar skálina
og heldur henni
hreinni og án
sýkla.
ILMANDI
Stráið HAR-
PIC i skálina
að kvöldi og
skolið þvj nið-
ur aÓ morgni
og salernið
mun alltaf
gljá af hrein-
læti og ilma
vel. ^—— ~rn i *
ss
HARPIC
SAfL WITH AU W.C.S.EVfS
THÓSE VVITH 'SEPTiC TANKS
FÆST I NÆSTU
KAUPFÉLAGSBÚÐ