Morgunblaðið - 30.11.1979, Qupperneq 28
60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1979
MEP
M OBöJK/-
KAff/nu
Við leitum að manni, sem kann
að nota hvert tækifæri sem
gefst — hvenær sem er!
Eru þessar sveiflur á skermin-
um stillimynd eða línurit yfir
skattstigana?
Rödd norrænna
ólympíunef nda gæti
haft úrslitaþýðingu
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Mjög fullkomin aðstaða gerði
úrslitaleik heimsmeistarakeppn-
innar skemmtilegan á að horfa.
Tvö sýningartjöld voru í notkun
svo að fylgjast mátti með gangi
hvers spils á báðum borðum.
Eftir því sem á leikinn leið jókst
spennan. í 7 spilum höfði ítalarn-
ir náð inn 45 stigum og aðeins 20
stig voru eftir af forskoti Banda-
rikjanna.
Og þá kom spilið að neðan á
tjöldin. Sjá mátti, að Bandaríkja-
mennirnir höfðu ekki farið í game
á spil austurs og vesturs en norður
gaf og austur-vestur voru á hættu.
Norður
S. K7
H. DG109
T. 1085
L. ÁK82
Vestur
S. ÁDG864
H. 8753
T. D62
L. -
Austur
S. -
H. ÁK6
T. ÁKG7
L. D76543
COSPER
Ökuskírteinið? — Já, en ég verð að fá það aftur, því
að ég á það ekki!
Fyrir alllöngu skrifaði ég dálitla
grein hér í blaðið að gefnu tilefni.
Var það í sambandi við stuðning
íslendinga við málstað andófs-
manna austur í Sovétríkjunum.
Var þá hafinn undirbúningur að
þátttöku íslands í Ólympíuleikun-
um í Moskvu á næsta ári. Beindi
ég máli mínu til Ólympíunefndar
íslands um að hún tæki það mál
upp innan Ólympíunefndanna á
Norðurlöndum.
Þessi skrif leiddu allir hjá sér,
sem ég beindi orðum mínum til.
Því minni ég á þetta, að ég fæ ekki
betur séð en að hægt sé að taka
þetta mál upp. Sem kunnugt er af
fréttum blaða og ríkisfjölmiðla
hefur einn frægasti maður skák-
íþróttarinnar, Victor Kortsnoj,
leitað til íslendinga, beðið þá að
hjálpa sér og fjölskyldu sinni í
skiptum hennar við stjórnvöld í
Sovétríkjunum, sem í áraraðir
hafa bannað eiginkonu hans og
syni að fara frá Sovétríkjunum,
svo fjölskyldan gæti sameinast.
Hlutur íslendinga á væntan-
legum Ólympíuleikum verður vart
sögulegri nú en endranær. En
íslendingum gefst af því tilefni
tækifæri til stuðnings við þá
mannréttindabaráttu, sem
Kortsnoj og fjölskylda hans hefur
háð árum saman. Því skora ég á
Ólympíunefnd íslands að taka mál
skákíþróttamannsins sem fyrst
upp við Ólympíunefndirnar á öll-
um hinum Norðurlöndunum. — Ef
þar næðist samstaða um hjálp til
handa Kortsnoj fyrir atbeina okk-
ar Íslendinga, gæti slík rödd
Norðurlandaþjóða í máli þessarar
fjölskyldu haft úrslitaþýðingu í
baráttunni gegn því ómanneskju-
lega harðræði sem Kortsnoj og
fjölskylda hans hafa átt við að búa
af hendi yfirvaldanna í Sovétríkj-
unum. Sverrir Þórðarson
• Vinstri stjórn
skal það vera
Nú hefur þjóðin hlustað á
eindregnar yfirlýsingar helstu
forystumanna Framsóknarflokks-
ins um að þeir muni vinna að
myndun fjórðu vinstri stjórnar á
íslandi ef þeir fá fylgi og aðstöðu
til þess eftir kosningar.
Ég verð að segja, að þetta eru
einhver verstu tíðindi sem heyrst
hafa í íslenskri kosningabaráttu.
Er það mögulegt að stór hluti
íslenskra bænda og samvinnu-
manna eigi þá ósk heitasta að
ganga í fóstbræðralag við íslenska
kommúnista, þegar fullljóst er
hverjar hörmungar þessi helst-
efna hefur leitt yfir þær þjóðir
sem hafa látið blekkjast af lyga-
áróðri þeirra. Ég minni aðeins á
„komma- eða sósíalsæluna" í
Kamputseu sem nú er augljós
öllum heimi. Framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna hefur nýver-
ið lýst því yfir, að þarna sé að
gerast einhver hryllilegasta harm-
saga veraldarsögunnar.
• Kommúnistar
berja á
kommúnistum
Það er löngu augljóst, að alls
staðar þar sem kommúnistar hafa
tekið völdin er þeim nákvæmlega
sama þótt fólkið í þessum löndum
líði hinar ótrúlegustu þjáningar
og virðast þeir nú hafa sett sitt
heimsmet í Kampútseu. Nú mætti
ætla, að þarna væru kommúnistar
að berjast við bannsetta gamla
íhaldið. En það er nú eitthvað
annað. Þarna berjast kommúnist-
ar við kommúnista af þvílíkri
Suður
S. 109532
H. 42
T. 943
L. G109
í lokaða herberginu spilaði
Bandaríkjamaðurinn í vestur 3
spaða og fékk 140 fyrir eftir að
norður spilaði út hjartadrottn-
ingu.
En í opna herberginu renndu
ítalarnir sér í gameið.
Norður Austur Suður Ve8tur
1 Lauf 1 TIkuII pass 2 Lauf
pass 3 Lauf pass 3 Spaðar
pass 3 Grðnd pass 4 Spaðar
Lausnargjald í Persíu
127
Kftir Evelyn Anthony
Jóhanna Kristjónsdóttir
sneri á íslenzku
allir pass.
Áhorfendur biðu spenntir. Tæk-
ist ítalanum að fá 10 slagi þrátt
fyrir slæma legu í trompinu.
Norður spilaði út laufkóng, sem
vestur trompaði og spilaði tromp-
ás og drottningu. Norður skipti í
hjarta, sem tekið var í blindum og
lauf trompað heima. Hefðu nú
báðir fylgt þegar sagnhafi tók á
trompgosann hefðu 10 slagir verið
öruggir. En þegar norður fylgdi
ekki tók sagnhafi þrjá slagi á
tígul, hjartaslaginn, sem eftir var
og trompaði síðan lauf heima. 10
slagir mættir og 620 fyrir, sem
þýddi að munurinn var orðinn 10
impar og 8 spil eftir.
komulag mitt við Japani við
eftirmann Khorvans ráðherra.
Það getur ekki leikið neinn vafi
á einlægni okkar.og áhuga á því
að ganga frá samningnum við
iranska oiiufélagið. Við þurfum
Imshan, herra. Þörfnumst þess
meira en ég reyni að lýsa. Þér
vitið það kannski betur en
nokkur annar, vegna þess að ég
í er bara kaupsýslumaður, en
ekki stjórnmáiamaður. En ef
þér viljið leyfa mér að gefa út
opinbera yfiriýsingu um að við
ætlum að hætta við Imshan, þá
myndi kona mín vera látin Iaus
úr haldi.
— Ég skil ekki tiilögu yðar,
herra Field.
— Leyfið mér að láta svo
sem ég gangi að skilmálunum.
Þá er kona mín frjáls og við
getum tekið upp þráðinn og
rekið smiðshöggið á frágang
samningaviðræðnanna. Það
gæti verið spurning um nokkra
daga.
— Þér eruð sem sagt að
æskja þess, sagði keisarinn —
að opinberlega látið þér í veðri
vaka að þér hafi gefið frá yður
Imshan og svo verði hafist
handa á ný, þegar einkamál
yðar eru leyst?
Hann hristi höfuðið og tók
ofan reyklituð gleraugun rétt
andartak. Augun voru dökk og
þau voru mjög köld.
— Mér þykir það leitt, herra
Field, en þetta er óframkvæm-
anlegt. Ég get ekki einu sinni
íhugað að leyfa nokkru vest-
rænu fyrirtæki að rjúfa samn-
ingaviðræður við okkur og
koma svo aftur. Það er ekki í
samræmi við stefnu mina. Ég
hef fulla samúð með vanda
yðar, en ég verð að ráðleggja
yður að aðskilja fullkomlega
allar persónulegar vangaveltur
frá samningaviðræðum við
iranska oliufélagið.
Hann reis upp, kæruleysisleg-
ur i fasi og rétti Logan höndina.
— Ég gleðst yfir því hversu
vel tókst til með samninga yðar
við Japani sagði hann. Svo
sneri hann sér að Kelly og
sagði: — Mér var ánægja að
hitta yður.
Áheyrninni var lokið. Þeir
gengu fram og hliðarvörðurinn
fylgdi þeim til dyra. Þeir gengu
niður þrepin og hvorugur mæiti
orð af vörum. Þegar þeir komu
út að hliðunum sá Logan biáa
Rolls Roycebílinn. í aítursæt-
inu sat Janet.
— Ég reyndi, sagði hann
skyndilega við James. — Það
var möguleiki á þvi að hann
hefði samþykkt það.
— Það var enginn möguleiki
á því, sagði James. — Því í
ósköpunum hefði hann átt að
bjarga þér úr klípunni. Þetta
var þitt eigið val. Við förum nú
til skrifstofu Arlanda. Ég sagði
þeirn að koma með bílinn minn.
Ég kem á eftir þér.
Janet tók utan um Logan og
kyssti hann.
— Elskan mín. Guði sé lof að
þú ert kominn aftur! Hvernig
gekk?
— Vel, sagði Logan. Hann
færði sig frá henni. — Hann
hefur fengið það sem hann
vildi.
Hann vildi ekki tala um það.
Hans val. Keliy hafði hamrað á
því frá byrjun. Val milli olíu-
svseðisins og Eileen.
— Elskan mín, sagði Janet
bliðlcga. — Ég verð að segja
þér slæmar fréttir. Ardalan
heldur að Eileen kunni að vera
látin.
— Hvað þá? Hann sneri sér
snöggt að henni — hvað áttu
við?
— Homsi dó í yfirheyrslu eftir
pyndingar, sagði Janet. — Ar-
dalan heldur að þeir hafi drepið
Eileen nú. Ef það er satt hafa
þeir gert það vegna þess þeir
hafa vitað að Homsi myndi
koma upp um málið. Svo að það
er ekki þín sök. Þú þarft ekki
að ásaka sjálfan þig.
Hún tók um hönd hans og
þrýsti hana, en hann dró hana
til sín og starði út um glugg-
ann.
— Við förum á skrifstofuna
og hlustum á upptöku. Ég er
hrædd um að það sé bara