Morgunblaðið - 15.10.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1980 1 1
Mál og menning:
Pelastikk — sjómanna-
saga eftir Guðlaug Arason
Aukning í þorskafla
nemur um 39 þús. t.
MÁL og menning hefur Kefið út
nýja skáldsöKU eftir GuðlauK
Arason ok nefnist hún „Pela-
stikk“. Síðasta skáldsaKa Guð-
lauKs kom út haustið 1978,
„Eldhúsmellur“, ok áður komu út
eftir hann skáldsöKurnar „Vind-
ur, vindur, vinur minn“, ok „Vík-
ursamfélaKÍð“.
í umsöKn útKefanda um „Pela-
stikk“ seKÍr m.a.:
„Pelastikk" er sjómannasaga af
bestu gerð og um leið talsvert
nýstárleg, ekki síst að því leyti að
heimur sögunnar er bundinn við
vitund og eftirtekt 8 ára drengs.
Logi Kristinsson fær að fljóta með
einn túr á síldarbát, og síðan
framlengist leyfið út alla vertíð-
ina. Hið afmarkaða samfélag um
borð birtist lesanda ljóslifandi
með augum barnsins og um leið er
honum veitt skemmtileg innsýn í
ýmsar hliðar þessa tímabils í
Islandssögunni, sem kallaö hefur
verið „síldarárin". Börn og ungl-
ingar munu því ekki síður hafa
gaman af bókinni þó að þau kunni
að skilja hana nokkuð öðrum
skilningi en fullorðnir lesendur.
Lýsing drengsins er sjálfri sér
samkvæm, blæbrigðarík og lif-
andi. Hér er lýst vettvangi karl-
manna með augum karlmannsefn-
is, og því má segja að lesandi
kynnist hinni hliðinni á þeim
heimi sem höfundur lýsir í Eld-
húsmellum. Sagan er að hluta
byggð á bernskuminningum höf-
undar sjálfs, en persónur og at-
burðir hlíta að öllu leyti lögmálum
skáldsögunnar."
Bókin er 209 blaðsíður að stærð
og prentuð í Odda.
BOTNFISKAFLI landsmanna
frá áramótum var orðinn rösk-
lega 531 þúsund i lok september
samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélagsins, en var rúmlega
487 þúsund tonn á sama tímabili
i fyrra. Uorskaflinn fyrstu níu
mánuði ársins nam 351.149 tonn-
um, en var 312.274 tonn i fyrra
og er aukningin þvi um 39
þúsund tonn á milli ára. Hlutur
báta í þorskaflanum nú var
188.585 tonn og hlutur togara
162.564 tonn. í fyrra var hlutur
bátanna 164.568 tonn og togar-
anna 147.710 tonn og er aukning-
in þvi mun meiri hjá bátaflotan-
um.
í september bárust alls á land
44.388 tonn af botnfiski, en í sama
mánuði í fyrra var botnfiskaflinn
27.412 tonn. Af þessum afla í
síðasta mánuði voru 26.023 tonn
þorskur, en í september í fyrra
komu á land 11.636 tonn af þorski.
Heildarafli landsmanna frá ára-
mótum var 1.021.884 tonn um
síðustu mánaðamót, en var á sama
tímabili í fyrra 1.236.645 tonn eða
214.761 tonni meiri. Munar þar
mestu um að loðnu- og spærlings-
aflinn er 242.807 tonnum minni
það sem af er 1980, en á sama tíma
1979. Er um aukningu í flestum
öðrum tegundum að ræða.
Tveir Verðlauna
£ með
M reksturskostnað
MMC1A.C11. í lágmarki
Kjörnir bflar ársins í Bandaríkjunum 1980:
COROLLA
TOYOTA
TOYOTA TERCEL:
Framhjóladrifinn bíll, sem er
óvenju rúmgóður.
Sportlegur, hljóðlátur, og meó
frábæra aksturseiginleika.
Bíll sem eyðir ótrúlega litlu
og er eins og aðrir Toyota bílar,
traustur; öruggur og viðhaldsléttur.
TOYOTA er bfllinn sem
heldur í við hvaða
verðbólgu sem er...
r TOYOTA COROLLA:
Metsölubíll um allan heim.
Glæsilegur fjölskyldubíll.
Rúmgóóur og vel geróur að innan
með stórt farangursrými.
Bíll, sem eins og aðrir Toyota bílar
er traustur, öruggur, vióhaldsléttur
og eyðir litlu bensíni.
Bflar, sem komast langtá litlu .
TOYOTA
til afgreiöslu nú þegar
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÖPAVOGI SÍMI 44144
UMBOÐIÐ A AKUREYRI: BLAFELL S/F ÓSEYRI 5A — SlMI 96-21090
Vandaðir bílar fyrir vandláta kaupendur