Morgunblaðið - 15.10.1980, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1980
Hjónaminning:
Halldóra S. Jónsdóttir
Jakob R. Elíasson
Jakob afi minn var fæddur að
Berjadalsá á Snæfjallaströnd
þann 5. júlí 1897. Foreldrar hans
voru Rakel Jakobsdóttir ljósmóðir
og Elías Jónsson. Afi ólst upp í
stórum hópi systkina. Hann fór
ungur til sjós og varð formaður
aðeins 16 ára gamall og var
mestalla tíð til sjós.
Halldóra amma mín var fædd
þann 12. júlí 1889 að Hóltúni á
Snæfjallaströnd. Hún var dóttir
Jóns Þórðarsonar og Viktoríu Eg-
ilsdóttur. Faðir hennar og eini
bróðir hennar drukknuðu í sjó-
róðri þegar hún var 4 ára, og þá
stóð móðir hennar uppi ein með
dæturnar, sem hún varð að láta
frá sér í fóstur. Uppfrá því ólst
amma upp hjá Halldóru Sigurðar-
dóttur og Bjarna Guðnasyni á
Berjadalsá og sagði amma að
tæpast hefði verið hægt að eiga
betri foreldra.
í desember 1919 giftust þau afi
og amma. Þeim varð ekki barna
auðið, en árið 1929 tóku þau
kjördóttur, sem er mamma mín,
Elísa Rakel, þá vikugamla. Sama
ár og þau giftust afi og amma
+
Móöir okkar,
HELGA JÓNSDÓTTIR,
Skaröshlíð 11 E, Akuroyri,
lést á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri aö morgni 14. október.
Fyrir hönd vandamanna,
Haukur Einarsson,
Ingvi Jón Einarsaon.
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
JÓN JÓNSSON,
verkstjóri,
Skúlagötu 78,
lézt í Borgarspítalanum 13. október.
Fyrir hönd vandamanna,
Guöný Jóakimsdóttir og börn.
LOFTUR HJARTAR,
húsasmiöur,
Barmahliö 11,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 16. október kl.
13.30.
Guörún Á. Hjartar,
Steinunn Hjartar, Stefán B. Stefónsson,
Dóra Hjartar, Kristín Hjartar.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
MARÍA FINNSDÓTTIR,
Austurkoti, Vogum,
veröur jarösungin frá Kálfatjarnarkirkju fimmtudaginn 16. október
kl. 14.00.
Hallveig Arnadóttir, Magnús Ágústsson,
Ása Árnadóttir, Eiöur Sigurösson,
Helga Árnadóttir, Jón Bjarnason.
+
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JÓN GUÐLAUGSSON,
skipasmiöur,
Langholtsvegi 134,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. október
kl. 10.30.
Þeir sem vilja minnast hins látna, láti líknarstofnanir njóta þess.
Guöbjörg Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum af alhug samúö og vinsemd vegna andláts og útfarar
móöur okkar og tengdamóöur.
MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR.
Unnur Arnórsdóttir, Svava Arnórsdóttir, Báröur ísleifsson,
Gyöa Arnórsdóttir, Hermann Magnússon,
Hulda Arnórsdóttir, Óöinn Rögnvaldsson,
Inga Arnórsdóttir, Frank Cremona.
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
útför
ÁSTU ÁRNADÓTTUR,
Austurbergi 38.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki á deild 5-C á
Landspítalanum.
Þorsteinn Erlingsson,
Árni Leósson, Kolbrún Jónatansdóttir,
Sigurjóna Kristófersdóttir, Ingimundur Andrésson,
og barnabörn.
fluttust þau frá bernskuslóðunum
til Hnífsdals, því afa mun hafa
leikið hugur á að komast í skips-
rúm á stærri bátum. Gerðist hann
fljótlega formaður i Hnífsdal. Frá
Hnífsdal fluttu þau til ísafjarðar
«8 bjuggu þar í mörg ár, þar sem
afi stundaði sjó, en amma vinnu í
fiski og svo fluttu þau til Súðavík-
ur, en þar man ég fyrst eftir þeim.
Þar stofnaði afi ásamt öðrum
mönnum útgerðarfélagið Andvara
og Sæfara. Síðustu árin í Súðavík
gerðu afi og pabbi út bátinn
Sigurfara.
Árið 1952 fluttum við til
Reykjavíkur og bjuggum þar í átta
ár. Þann tíma vann afi á mölinni
og í sænsk-íslenska frystihúsinu.
Jafnframt áttu þeir, hann og
pabbi, trillu, sem þeir réru í
frístundum. Þá áttum við líka
sumarbústað, þar sem amma
eyddi öllum þeim stundum sem
hún gat í garðinum og við ýmis
störf, og líka á veturna við að hlúa
að trjánum eða að líta eftir
einhverju.
En Vestfirðirnir lokka og laða
og við fluttum til Bolungarvíkur
1961. Þá voru þau gömlu hjónin
komin á efri ár. Afi og pabbi fóru
beint á sjóinn á Sigurfara og var
afi skipstjórinn. Hann var alla tíð
mikill dugnaðarmaður og heppinn
sjósóknari. En hann varð að hætta
til sjós sökum heilsubrests árið
1968, eftir það og til dauðadags
vann hann við fiskverkun. Hann
kunni jú aldrei að meta. kosti
hóglífsins.
Amma var stoð og stytta á
heimilinu, hún prjónaði vettlinga,
sokka, húfur og allt sem við
þurftum af slíkum flíkum. Hún
var hlédræg og dul, en marga
nóttina vakti hún og horfði út á
hafið og beið. En mestan styrk og
þrek sýndi hún trúlega í nóvember
1933, en þá var afi á sjó á m.b.
Andvara frá Isafirði og lenti í
3—4 sólarhringa hrakningum með
Kveðja:
Hulda Long
Gunnarsdóttir
Móðurmissir
Mér andlátsfregn að eyrum berst,
ég út í stari bláinn
og hugsa um það sem hefur gerst
til hjarta mér sú fregnin skerst —
hún móðir mín er dáin!
Hve vildi ég, móðir, minnast þín,
en má þó sitja hljóður,
mér finnst sem tungan fjötrist mín,
mér finnst hver hugsun minnkast
sín —
því allt er minna móður!
Þú varst mér ástrík, einlæg, sönn,
mitt athvarf lífs á brautum,
þinn kærleik snart ei tímans tönn,
hann traust mitt var í hvíld og önn,
í sæld og sorg og þrautum.
Þú geymdir heitan innri eld,
þótt ytra sjaldan brynni.
Ef kulda heims var sál mín seld,
ég sat hjá þér um vetrarkveld —
þá þíddirðu ísinn inni.
Eg veit þú heim ert horfin nú
og hafin þrautir yfir,
svo mæt og góð, svo trygg og trú,
svo tállaus, falslaus reyndist þú —
ég veit þú látin lifir!
Ei þar sem standa leiðin lág,
ég leita mun þíns anda —
er lít ég fjöllin fagurblá,
mér finnst þeim ofar þig ég sjá
i bjarma skýjabanda!
(Úr ljóðabók Steins Sigurðssonar)
Börnin
+
Viö þökkum af alhug vináttu og samúö viö andlát og jaröarför
fööur míns, tengdafööur, afa og langafa,
ÁGÚSTS LÁRUSSONAR,
Þórustööum I,
Eyjafiröi.
Sérstakar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarliöi Fjóröungs-
sjúkrahússins á Akureyri fyrir frábæra umönnun í veikindum hans.
Ólöf Ágústsdóttir, Stsfán Árnason,
María Stefánsdóttir, Jóhann Austfjörö,
Ágúst Stefánsson, Sigurhanna Sigmarsdóttir,
Sigurlaug Stefánsdóttir, Randver Karlsson,
Stefán Stefánsson, Helga K. Stefánsdóttir.
og barnabörn.
bilaða vél, og var talið víst að
báturinn hefði farist, en breskur
togari fann þá bátinn 20 mílur
undan Kögri og dró hann til lands.
I það skiptið skall hurð nærri
hælum, en afi sýndi þá sem oft
endranær frábæran dugnað, hug-
rekki og sjómannshæfileika.
Mikið áfall var það ömmu þegar
afi dó hinn 1. desember 1970.
Uppfrá þeim tíma fór henni að
hraka, heilsan bilaði og amma var
ekki sama kvika litla konan. Hún
var fremur smávaxin. Afi, amma,
pabbi og mamma bjuggu alltaf
saman og þess vegna eru allar
mínar bernskuminningar tengdar
afa og ömmu. Oft þurfti amma að
þvo og þurrka tárin af litlum
börnum, setja plástur á sár og
hugga okkur. Oftast fékk maður
þá líka eitthvað í munninn. Svo
komu langömmubörnin' og alltaf
átti Dóra amma hlýju og svo
eitthvað í skápnum uppí litlu
munnana. Það er svo margs að
minnast og af svo mörgu að taka
að ég gæti eflaust haldið áfram að
skrifa í langa tíð, en að endingu vil
ég segja, að með afa og ömmu eru
gengin mæt og góð hjón. Traust
fólk, persónur sem munu verða
þeim sem kynntust þeim og áttu
því láni að fagna að eignast
vináttu þeirra minnisstæð. Og ég
veit að ég tala líka fyrir hönd
systkina minna og tengdasystkina
þegar ég þakka afa og ömmu fyrir
það sem þau voru okkur og henni
ömmu minni fyrir það sem hún
var börnunum okkar.
Amma dó laust fyrir hádegi
hinn 3. október 1980.
Ég bið guð að styrkja Fríðu
ömmusystur, mömmu og pabba,
svo og aðra aðstandendur.
Blessuð sé minning þeirra.
Jakob IIS. Ragnarsson,
Bolungarvfk.
Létt trúar-
leg tónlist í
Bústaðakirkju
„Jesús lifir“ er heiti hljómleika
sem haldnir verða i Bústaða-
kirkju nk. föstudag 17. október
og hefjast kl. 21.
„Svokölluð létt tónlist skipar nú
æ stærri sess í kristinni kirkju
víða um heim. Tónlistin er marg-
vísleg, t.d. léttir kórar, sem notað-
ir eru m.a. á samkomum og svo
ýmsir sönghópar og hljómsveitir
sem flytja eigin tónlist. Erlendis
eru slíkar hljómsveitir margar
hverjar orðnar þekktar meðal
fjöldans, vegna vandaðrar og
góðrar tónlistar. Hér á landi hafa
hópar sem þessir skotið upp koll-
inum annað slagið, en yfirleitt
ekki verið langlífir og kannski
lítið til þeirra heyrst nema í
takmörkuðum hópi. En nú skal
reynt að bæta þar um.“
Tónlistarmennirnir sem koma
fram eru allir starfandi í söfnuð-
um, má þar nefna Hvítasunnu-
söfnuðinn, Kristilega skólahreyf-
ingu, Krossinn og Ungt fólk með
hlutverk. Meðal þeirra sem syngja
og leika eru: „Hljómsveitin 1. Kor.
13, Fides, Garðar og Anna, Ágústa
Ingimarsdóttir, sönghópur og
Hellen S. Helgadóttir. Aðgangur
að tónleikunum er ókeypis.
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÖTA HF