Morgunblaðið - 03.11.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981
Örvar HU 21 sjósettur hjá Slippstöðinni:
Iðnaðarráðherra
boðar raðsmíði 5—7
fiskiskipa árlega
Akurrvri, .11. oklóbrr.
T/EI’LEGA 50(1 losla skuttogara var hleypl af stokkunum í Slippstöðinni á
Akureyri um hádegisbilið í dag. Ilann hlaut nafnið Örvar Hll 21 og er í
eigu Skagstrendings hf. á Skagaströnd. Skipið er hannað af starfsmönnum
ta-knideildar Slippstöðvarinnar hf. og er 50,55 m langt, 9,76 m breitt og
djúprista er 4,40 m. Skipið er útbúið til veiða með botnvörpu og flotvörpu
og hefir fullkominn búnað til vinnslu og frystingar á fiskflökum og til
heilfrystingar á fiski. Ein lest er í skipinu, 420 rúmmetrar, og þar er hægt
að haida 30 stiga frosti. Skipið er þannig fyrsti frystitogarinn, sem smíðað-
ur er hér á landi, um leið og það er 7. skuttogarinn, sem Slippstöðin smíðar.
Togarinn hefir 2400 hestafla
Wichmann-aðalvél, gerða fyrir
svartolíubrennslu. Ibúðir eru
fvrir 24 menn. Skipstjóri verður
Guðjón E. Sigtryggsson og 1. vél-
stjóri Magnús Sigurðsson. Eig-
inkona skipstjórans, Halldóra
' Þorláksdóttir, gaf skipinu nafn
og bað því og skipshöfn þess
blessunar.
Við athöfnina talaði m.a.
Sveinn Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Skagstrendings hf., þakk-
aði Slippstöðinni hf. og starfs-
mönnum hennar góða samvinnu
og vel unnið starf. Því til árétt-
ingar afhenti hann starfsmanna-
félagi Slippstöövarinnar 50 þús-
und krónur að gjöf. Formaður
starfsmannafélagsins, Haukur
Þorsteinsson, þakkaði hina
óvæntu gjöf og kvað hana mundu
verða notaða til að efla sumar-
húsasvæði félagsmanna í Öxar-
firði.
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra, var viðstaddur
athöfnina, og flutti ræðu við það
tækifæri. Hann ræddi nokkuð um
fiskiskipastól landsmanna og
væntanlega stefnu ríkisstjórnar-
innar í fiskveiðimálum í því sam-
bandi. Hjörleifur sagði, að um
tiO'/r fiskiskipa væru 16 ára og
eldri, o(t því væri nauðsynlegt að
láta eðlilega endurnýjun fara
fram, ekki síst á hinum minni.
Þess vegna hefði ríkisstjórnin
ákveðið, að raðsmíðuð skyldu ár-
lega 5—7 skip, 39 metrar á lengd,
o(j þar af yrðu 3 smíðuð ár hvert í
Slippstóðinni hf. Þetta ætti að
stuðla að viðhaldi verkkunnáttu
o(í atvinnu við skipasmíðar inn-
anlands, ekki síst vegna þess, að
ríkissjóður ætti að ábyrgjast
greiðslu smíðaverðs, jafnvel þó
kaupendur væru ekki fyrir hendi,
þegar smíði hvers skips hæfist.
Ráðherra lauk máli sínu með
því að óska eigendum Örvars til
llinn nýi (ogari Skagstrendinga hverfur út um dyr Slippstöðvarinnar á
Akureyri er hann var sjósettur á laugardaginn. Áður en honum var hleypt
af stokkunum var honum gefið nafnið Örvar. I,jósm.: Svcrrir I’íInmui.
hamingju með daginn svo og
Slippstöðvarmönnum og minntist
þess um leið, að innan fárra vikna
verða liðin 10 ár frá því er Stefán
Reykjalín tók við stjórnarfor-
mennsku í Slippstöðinni.
Forstjóri Slippstöðvarinnar,
Gunnar Ragnars, stýrði athöfn-
inni, en mikill mannfjöldi var
viðstaddur, þegar Örvar rann í
fyrsta sinn út á saltan sjó með
(ílæsibrag. Sv.l*.
Hjörleifur Guttormsson um röðun virkjana:
Blanda — Fljótsdals-
virkjun
Sultartangi
Ótvírætt fjárhagslega hagstædust ad mati Orkustofnunar
„AE ÞEIM fjórum röðum virkjana,
sem Orkustofnun hefur (ekið (il með-
ferðar í ú(reikningum sínum er virkj-
anaröðin Itlanda — Kljótsdalsvirkjun
— Sultarlangi ótvíræll fjárhagslega
hagslæðusl," sagði lljörleifur (JuK-
ormsson m.a. á velrarfundi Sambands
íslenzkra rafveilna í gær og liltók í því
sambandi að hann vildi greina frá
nokkrum þeim meginalriðum varðandi
virkjunarleiðir sem gætu auðveldað
mönnum „að spá í spilin á meðan beð-
ið er niðurstöðu ríkisstjórnar og síðan
tlþingis", eins og hann orðaði það.
Ilann sagði þessar niðurstöður Orku-
stofnunar eindregið studdar í greinar*
gerð Kafmagnsveitna ríkisins og með
vissum ha-Ki einnig í bráðabirgðaáliti
frá Landsvirkjun.
Hjörleifur sagði forsendur út-
reikninga Orkustofnunar þær að
orkunýting umfram þá aukningu
sem spáð er á hinum almenna raf-
orkumarkaði, verði allt að því 3.800
GWh á ári á tímahilinu fram til
aldamóta. Gert er ráð fyrir að þessi
orkunýting dreifist á einstaka lands-
hluta með mismunandi hætti og
breytilegri tímasetningu. Saman-
burður á sex slíkum iðnaðarstefnum
gæfi í öllum tilvikum ofangreinda
niðurstöðu, og væri þar um mark-
tækan mun að ræða.
Þá kom og fram í ræðu Hjörleifs
að í útreikningum Orkustofnunar á
hagkvæmri röðun virkjana væri í
öllum tilvikum gert ráð fyrir, að
samfara framkvæmdum við næstu
virkjanir yrði áfram unnið að auk-
inni orkuöflun og auknu rekstrarör-
yggi í kerfinu á Suðurlandi. Væri
stífla á ármótum Tungnaár og
Þjórsár þar efst á blaði.
Hjörleifur sagði einnig í ræðu si-
nni: „Aðeins jaðartilvik sem falla að
ég hygg ulan við ríkjandi viðhorf í
öllum stjórnmálaflokkum, gætu leitt
til annarrar niðurstöðu." Aðspurður
sagði Hjörleifur í viðtali við Mbl., að
þar ætti hann við að menn gætu gef-
ið sér forsendur, sem leiddu til ann-
arrar hagkvæmnisútkomu en áður
er gefið varðandi virkjanaröð, en
hann teldi ekki að slíkt væri fyrir
hendi í stjórnmálaflokkunum.
Þá vék ráðherrann í ræðu sinni í
gær að deilunni um Blönduvirkjun
og sagði að iðnaðarráðuneytið hefði
beitt sér fyrir því að reynt yrði að ná
samkomulagi um mál þessi við
heimamenn. Sérstök ráðgjafanefnd
ráðuneytis og samninganefndar á
vegum Rafmagnsveitu ríkisins sem
virkunaraðila hefði þarna unnið
mikið starf ásamt fulltrúum heima-
manna. Sagði Hjörleifur málin hafa
skýrst og þokast í samkomulagsátt,
-enn vantaði þó herslumuninn en
hann ætti von á lausn nú alveg á
næstunni.
Þess má og geta að Hjörleifur
ítrekaði í ræðu sinni að ríkisstjórnin
hefði gefið fyrirheit um að tillögur
um stefnumörkun í virkjanamál og
nýtingu orkunnar til orkufreks iðn-
aðar og sparnaðar á innfluttu elds-
neyti yrðu lagðar fram til ákvörð-
unar á haustþingi því sem nú er haf-
ið. Hann sagðist vænta þess að til-
lögur þessar yrðu lagðar fram mjög
fljótlega.
Kosningar
í miðstjórn
Á LANDSFUNDI Sjálfstæðisnokks-
ins voru kjörnir 11 fulltrúar í mið-
stjórn flokksins, en þingflokkurinn
kýs að auki 5 fulltrúa úr sínum hópi.
Þau ellefu, sem kosningu hlutu
voru þessi: Björn Þórhallsson 832
atkv., Davíð Sch. Thorsteinssón
749 atkv., Jónas H. Haralz, 720
atkv., Þorsteinn Pálsson, 704
atkv., Ellert B. Schram, 704 atkv.,
Einar K. Guðfinnsson, 686 atkv.,
Gísli Jónsson, 629 atkv., Óðinn
Sigþórsson 502 atkv., Jón Asbergs-
son, 465 atkv., Sigurlaug Bjarna-
dóttir, 426 atkv. og Björg Einars-
dóttir 411 atkv.
Þau sem næst komu að at-
kvæðatölu voru: Arndís Björns-
dóttir, 372 atkv., Magnús Jónas-
son, 343 atkv., Jónas Elíasson 316
atkv., Rúnar Pálsson, 315 atkv. og
Pétur J. Eiríksson 308 atkv.
„Ekki af stað
um áramót nema
viðunandi fisk-
verð og samn-
ingar liggi fyrir“
Á fundinum var samþykkl
álvktun, sem segir ad sjó-
menn muni ekki hefja veiðar
eftir áramót nema kjara-
samningar og viðunandi fisk-
verð liggi fyrir,“ sagði Óskar
Vigfússon formaður Sjó-
niannasambands Islands um
fund þann sem Sjómanna-
sambandið og Farmanna- og
fiskimannasambandið héldu
á sunnudag um nýákveðið
fiskverð.
„Þessi fundur okkar var ákveð-
inn með stuttum fyrirvara og var
því ekki fjölmennur, auk þess sem
stór hluti okkar félagsmanna var
bundinn við sín störf úti á sjó. Það
fór hins vegar ekki milli mála að á
fundinum skiptust menn í tvo
hópa, þá sem vildu grípa til að-
gerða strax og hina sem vildu bíða
átekta fram undir áramót, en þeir
menn vilja tengja kjarasamninga
og fiskverð saman, og þeirra til-
laga varð ofan á, sagði Óskar, en
bætti því við að menn úti á sjó
væru nú að skoða samþykktir
fundarins.
Stjórnmálaályktunin
meðal ljósu hliðanna
segir dr. Gunn-
ar Thoroddsen
um niðurstöður
landsfundarins
MORGIJNBLADIÐ leitaði í gær til dr. Gunnars Thoroddsens forsætis-
ráðherra, og leitaði álits hans á niðurstöðum 24. landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins, það er á kjöri formanns og varaformanns, og afgreiðslu stjórn-
málaályktana.
„Landsfundurinn hafði bæði Ijósar og dökkar hliðar," sagði Gunnar
Thoroddsen. „Meðal Ijósu punktanna er hin almenna stjórnmálaályktun,
þar er lögð áhersla á að stefna Sjálfstæðisflokksins sé víðsýn, frjálslynd
og þjóðlcg umbótastefna, og ennfremur að samhjálp skuli tryggð, sem
veili öryggi gegn áföllum: Þá var það mikilvægt að hrundið var hinni
fyrirhuguðu árás á frelsi og sjálfstæði einstaklinganna; þar sem átti að
refsa mönnum fyrir að fylgja sannfæringu sinni: llandjárnatillögunni var
vísað frá.
Á hinn bóginn má nefna það
meðal hinna dökku hliða, að
landsfundurinn sýndi alls ekki
rétta mynd af viðhorfum sjálf-
stæðismanna almennt, því veldur
flokkskerfið og hvernig því er
beitt. Sá valdahópur sem ræður
þar lögum og lofum og notar
Morgunblaðið út í æsar sem
málgagn sitt, hefur miklu fleiri
fulltrúa á landsfundi en fylgí
hans meðal sjálfstæðiskjósenda
réttlætir. Það er einnig mjög út-
hreidd skoðun meðal sjálfstæð-
ismanna á landsfundi, bæði nú og
fyrr, að meðan formaður flokks-
ins vi 11 sjálfur sitja, verði svo að
vera. Með öðrum orðum: Ævi-
ráðning í reynd. Það mátti því
búast við því fyrirfram, að Geir
Hallgrímsson yrði kosinn með
verulegum meirihluta, og miðað
við allar aðstæður er það góður
árangur setn Pálmi Jónsson ráð-
herra náði.
Þrátt fyrir þessa sterku að-
stöðu hins ráðandi valdahóps í
fiokknum, tókst ekki að fá vara-
formannsefni hans kosið. Sigur
Friðriks Sophussonar er mjög at-
hyglisverður og jákvæður þáttur í
þessum landsfundi.
Þá er það ályktunin gegn ríkis-
stjórninni. Sú staðreynd, að nær
30% manna vildu ekki greiða
þeirri vantrauststillögu atkvæði,
er í rauninni sigur stjórnarsinna,
miðað við samsetningu fundar-
ins. Það ber að hafa í huga að
ýmsar stofnanir flokksins, svo
sem þingflokkur, miðstjórn og
flokksráð, höfðu frá því er stjórn-
in var mynduð, tekið eindregna
afstöðu gegn henni með yfirgnæf-
andi meirihluta. Því mátti búast
við mjög verulegum meirihluta
gegn stjórninni á þessum lands-
fundi. Annars er þessi tillaga um
andstöðu við ríkisstjórnina full af
villum og rangfærslum, svo þegar
af þeirri ástæðu verður lítið mark
á henni tekið. í lok hennar er
skorað á sjálfstæðisráðherrana,
að ganga úr stjórninni. Hins veg-
ar hefur enginn getað bent á
raunhæfan möguleika fyrir ann-
arri meirihlutastjórn, þrátt fyrir
ítrekaðar fyrirspurnir þar um.
Með þessari kröfu væri því stefnt
út í stjórnleysi og glundroða. Við
viljum ekki taka þátt i slíku
ábyrgðarleysi.
Áð lokum um samkomulag eða
sættir í flokknum. Ég tel að við
hefðum staðið nær sáttum í
flokknum ef skipt hefði verið um
formann, en nú verðum við bara
að bíða og vona,“ sagði forsætis-
ráðherra að lokum.