Morgunblaðið - 03.11.1981, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981
3
Athugað
með kaup
á nýjum
Drang
FLÓABÁTURINN á Akureyri er
nú að huga að kaupum á nýju
skipi í stað Drangs, sem verið hef-
ur í notkun frá því á árinu 1959.
Jón Steindórsson, framkvæmda-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að þeim stæði til
boða nýtt skip, sem væri aðeins
stærra en Drangur, sem er 176
tonn að stærð.
Jón sagði, að hið nýja skip væri
byggt fyrir gámaflutninga og væri
svokallað ekjuskip. Þá sagði hann
að um borð í skipinu væri bóma
sem gæti iyft 56 tonnum og far-
þegarými fyrir 60 manns, en það
er sama tala og Drangur tekur.
„Umrætt skip er byggt í Rúm-
eníu, og er nú nýkomið til Noregs.
Ef af kaupunum verður, þá þurf-
um við að láta breyta skipinu
nokkuð, þannig að það henti betur
okkar aðstæðum. Það sem okkur
vantar nú er fjármagnið, en það
liggur nú fyrir að þótt flutningar
myndu ekki aukast með tilkomu
nýja skipsins, þá yrði ódýrara að
gera það út en Drang, hins vegar
mælir allt með því að flutningar
myndu aukast mikið með nýju
skipi, því þá getum við flutt svo til
allt með lítilli fyrirhöfn. Það sem
okkur vantar nú er fjármagn til að
kljúfa kaupin," sagði Jón.
Pílagríma-
flugi Flug-
leiða að ljúka
PÍLAGRÍMAFLUGI Flugleiða í ár
er nú að Ijúka. Tvær DÍ>8-63-flug-
vélar voru í fluginu og um 90 Flug-
leiðastarfsmenn tóku þátt í flutning-
unum. Flogið var milli staða í Alsír
og Jedda í Saudi-Arabíu. Flutningar
þessir voru framkvæmdir fyrir als-
írska flugfélagið Air Algerie.
Alls voru fluttir um 28 þús. píla-
grímar í tveimur önnum flugsins
og farnar 110 flugferðir milli
landa í sjálfu pílagrímafluginu.
Að auki voru farnar áætlunarferð-
ir fyrir alsírska flugfélagið milli
Alsír og Evrópu.
Flugleiðastarfsmenn sem þátt
tóku í síðari önn pílagrímaflugs-
ins eru væntanlegir til Kaup-
mannahafnar næsta miðvikudags-
kvöld. Þar verður gist um nóttina
en komið til Keflavíkurflugvallar
kl. 15:45 daginn eftir, fimmtudag-
inn 5. nóvember.
Islenska álfélagið:
Ragnar Arna-
son í stað Inga
R. Helgasonar
Framhaldsaðalfundur íslenska á|-
félagsins var haldinn í gær. Þar var
kjörin ný stjórn, er situr fram að
næsta aðalfundi.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar
voru tilnefndir þeir Ragnar Arna-
son, lektor við viðskiptafræðideild
Háskóla íslands, en hann kemur í
stað Inga R. Helgasonar, og Þor-
steinn Ólafsson, viðskiptafræð-
ingur, er setið hefur í stjórninni
síðustu ár.
Aðrir í stjórninni voru endur-
kjörnir, þeir Halldór H. Jónsson,
formaður, dr. Paul Múller, vara-
formaður, Wolfgang Capitaine,
Gunnar J. Friðriksson og Sigurður
Halldórsson.
j t ví;i D
• O II
____SKÍÐAPARADÍS í
ÍTÖLSKU ÖLPUNUM í SUÐUR-TYROL.
_______TVÆR VIKUR FYRIR
AÐEINS4.719.00 KRÓNUR.
Flugleiðum heíur tekist að ná
góðum samningum við tvö prýðileg
skíðahótel í draumalandi allra skíða-
manna, Dolomiti í ítalska hluta Suður
Týról. Svœði þetta er þekkt íyrir fram-
úrskarandi skíðalönd með rúmlega
90 skíðalyftum og aðstöðu íyrir
byrjendur jaínt sem lengra komna. Til
marks um ágœti Dolomiti er hluti af
heimsmeistarakeppni í Alpagreinum
haldin þar árlega.
Svœði þetta býður upp á það
besta úr tveim heimum. Austurrískt
andrúmsloft og ítalska glaðvœrð.
Suður Tyról var eitt sinn austurrískt en
er nú innan ítölsku landamœranna.
ítölsku alparnir hafa löngum verið
rómaðir fyrir náttúrufegurð, en Selva
Val Gardena er talið eitt fegursta
Alpasvœðið og eitt glœsilegasta
skíðasvœði Evrópu.
Flugleiðir fljúga gestum sínum
til Innsbruck, en þaðan er aðeins 1 1 /2
klst.akstur til Val Gardena. Þar bíður
gisting á Hotel Sun Valley, sem er
ákaílega vistlegt hótel með hálíu
fœði inniföldu í verðinu. Sun Valley er
stjórnað aí margfjöldum Ítalíumeist-
ara á skíðum, þannig að þar er vel
búið að skíðafólki!
Svo bjóðum við líka Hotel Savoy,
einnig með hálfu fœði inniíöldu!
Þá er einnig boðið upp á gistingu á
gistiheimilinu „Pension Elvis".Hjá Elvis
er morgunmatur inniíalinn.
í Gardenadalnum má íinna
skíðabrekkur og leiðir við allra hœíi,
jaínt byrjenda sem kunnáttuíólks.
Rúmlega 90 skíðalyftur tengja saman
Selva, Badia og Fassa, en Selva er í
hjarta Dolomiti skíðasvœðisins, sem
býður uppá u.þ.b. 400 skíðaleiðir. Á
staðnum er skíðaskóli fyrir börn, ungl-
inga og íullorðna.
Fyrsta íerðin heíst 9. janúar 1982,
en síðan verða vikulegar íerðir í
janúar, íebrúar og mars. Tveggja
vikna ferð til ítölsku Alpanna kostar
frá kr. 4.719 , en vikuferð írá kr. 3.959
Sérstakur aísláttur fyrir böm.
Leitið upplýsinga um verð fyrir hópa.
Hafið samband, pantið strax hjá
Flugleiðum, umboðsmönnum Flug-
leiða eða hjá íerðaskriístoíunum.
Kynnið ykkur greiðslukjör.
FLUGLEIÐIR
Traust fólkhjá góöu félagi
• - Í££l
HITTUMSTI OLPUNUM!
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK 0
Þl AIGLYSIR l.M ALLT
LAND ÞEGAR Þl AUG-
LÝSIR I MORGLABLADINl